Monitor - 13.10.2011, Page 22
22 Monitor FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011
LOKAPRÓFIÐ skólinn
| 13. október 2011 |
fílófaxið
fimmtud13okt
INGÓ VEÐURGUÐ
Players
22:15 Trúbadorinn Ingó, kenndurvið Veðurguðina, treður upp
á Players. Dagskráin hefst með „pub quiz“
kl. 22:15 en að því loknu rífur söngfuglinn
í gítarinn og kemur gestum í gírinn fyrir
almenn skemmtilegheit.
GRADUALE NOBILI
Langholtskirkja
16:00 Stúlknakórinn GradualeNobili, sem unnið hefur til
fjölda viðurkenninga á erlendri grundu sem
og gert það gott í Bíófílíu Bjarkar, fagnar
útgáfu nýjasta geisladisks síns. Diskurinn ber
nafnið X Ten Years Graduale Nobili. Frítt inn.
laugarda15okt
Kvikmynd: Sá myndina The
Room um daginn og hef verið
heillaður af henni síðan. Hún
er svo snargölluð á allan hátt að
í heild sinni verður hún á ein-
hvern óskiljanlegan hátt frábær.
Þáttur: Horfi ekki mikið á
þætti en fylgist vel með
South Park. Hárbeitt og
fyndin þjóðfélagsádeila
í gangi þar. Svo eru
Fóstbræður klárlega bestu
gamanþættir sem gerðir
hafa verið, held ég kunni öll
atriðin utan að.
Bók: Ilmurinn er
örugglega frumlegasta
og besta bók sem ég hef
lesið. Hún á vel við mig
þar sem ég hef gaman
af því að þefa af öllu
sem ég kem ná-
lægt. Svo les ég
líka í Bókinni um
Veginn nánast á
hverju kvöldi.
Plata: Held ég verði að
segja Buena Vista Social
Club með samnefndri
hljómsveit. Hún á alltaf
við og þreytist ekki þrátt
fyrir ítrekaðar hlustanir í
gegnum árin.
Vefsíða: Hef undanfarið
eytt miklum tíma í að
lesa allt á TheVenu-
sProject.com. Mæli með
að allir kynni sér málið
hið fyrsta og verði svo
í bandi.
Staður:
Varð
alveg
heill-
aður af
Seyðis-
firði í sumar. Var þar
í nokkra daga og var
eftir það staðráðinn
í að kaupa þar hús.
Vill einhver losna við
slíkt? Má vera kofi.
Síðast en ekki síst
» Arnar Pétursson, gítarleikari Mammút, fílar:
ICELAND AIRWAVES
Mið. 13. okt. – sun. 16. okt.
Úti um allan miðbæ
Það hefur varla farið framhjá mörgum að tónlistarhátíðin Iceland
Airwaves fer fram um helgina en hún hófst formlega í gærkvöldi
með tónleikaveislum víðs vegar um bæinn. Segja má að aldrei
iði miðborg Reykjavíkur jafnmikið af rokki og róli enda er hátíðin
hrein og bein árshátíð allra hljómsveitarbraskara. Alls eru um 6.000
manns með armbönd á hátíðina en um það bil helmingur handhafa
armbanda eru erlendir gestir. Tekið skal fram að það fólk sem ekki
náði að verða sér úti um armband getur þrátt fyrir það tekið þátt í
Airwaves-geggjuninni með því að flykkjast á „off venue-tónleika“.
„Off venue-dagskrána“, ásamt almennu Airwaves-dagskránni og alls
kyns fréttum um hátíðina, má finna á Airwaves-síðu Monitor inni á
mbl.is. Monitor hvetur lesendur til að fylgjast grannt með gangi mála
á síðunni um helgina og minnir jafnframt á síðasta tölublað sem var
helgað Airwaves í einu og öllu. Gleðilega hátíð.
Árshátíð
tónlistarmanna
12. � 16. OKTÓBER 2011
!
" # $
%& ! "#$
!"#$% & '' ()*+, #$%
* - &. '' ,/#$% 01. ''
"/#$% ,2 '' 34 #$% , ''
#$ 5)6)/% $ 78 00 ''
9*:#$% 5 ;
00< '' () % =
; &&
'' #$ ,/*:% (- >
HLUSTUNARVEISLA
Bakkus
18:30 Rokkhljómsveitin Sólstafirstendur fyrir hlustunarveislu
þar sem nýjasta platan þeirra, Svartir Sandar,
verður spiluð í heild sinni fyrir utan eitt lag
sem hljómsveitin mun spila „live“. Platan
verður til sölu á staðnum og léttar veitingar
í boði.
OKTÓBERGLEÐI
BAGGALÚTS
Græni hatturinn
22:00 Baggalútsmenn halda tón-leika í tilefni af útgáfu nýrrar
hljómskífu þar sem þeir lofa nýjum lögum,
nýjum gíturum og gömlum bröndurum.
STEINDI JR., BENT
OG EMMSJÉ
800 BAR
23:00 Tvíeykið Steindi Jr. og Benthyggjast trylla Selfyssinga
með helstu lögunum af plötunni Án djóks
samt djók. Á sama kvöldi stígur rapparinn
Emmsjé Gauti á stokk. Miðaverð er 1.000 kr.