Morgunblaðið - 01.04.2010, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1. A P R Í L 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
76. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
DAGLEGT LÍF»10-11
BARNABARN GUÐSTEINS
STENDUR Í BRÚNNI
FÓLK»32
FJÖRUG HELGI FRAM-
UNDAN Á ÍSAFIRÐI
6
SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ mæl-
ir með því við Arion banka að bankinn
skoði þann kost að selja Haga í hlut-
um. Stofnunin telur hins vegar að hún
hafi ekki lagaheimild til að setja það
sem skilyrði fyrir yfirtöku bankans á
Högum. Gylfi Magnússon, efnahags-
og viðskiptaráðherra, hefur lagt fram
frumvarp á Alþingi um að eftirlitinu
verði heimilt að skipta upp fyr-
irtækjum ef skipulag eða uppbygging
fyrirtækis hamlar samkeppni.
Fram kemur í úrskurði Samkeppn-
iseftirlitsins um
samruna Haga
og Arion banka
að Hagar hafi
markaðs-
ráðandi stöðu á
matvörumarkaði og á markaði með
sölu á bókum. Samruninn raski sam-
keppni. Eftirlitið samþykkir engu að
síður samrunann en setur ítarleg skil-
yrði fyrir honum. Sambærileg skil-
yrði voru sett fyrir samruna Lands-
bankans og Teymis. | Viðskipti
Mælir með upp-
skiptingu á Högum
Heimildir
Morgun-
blaðsins
herma að
erlendir
kröfuhafar Sparisjóðs Keflavíkur
(SpKef) muni þurfa að afskrifa
u.þ.b. 80% krafna sinna á hendur
sjóðnum. Kröfuhafarnir munu fá
greitt annars vegar með skulda-
bréfi á sparisjóðinn og hins vegar
með reiðufé. Stofnfjáreigendur
munu halda eftir á bilinu 3-5% af
sínum hlut.
Því er ljóst að kröfuhafar
SpKef munu þurfa að taka á sig
mun þyngra högg en kröfuhafar
Byrs. Nýjustu fregnir benda til
þess að kröfuhafar þess banka
muni þurfa að afskrifa tæplega
60% sinna krafna á sjóðinn.
»Viðskipti
Kröfuhafar SpKef þurfa að
afskrifa um 80% krafna
Útlit er fyr-
ir að rukkuð
verði veggjöld
af vegfar-
endum á öll-
um stofn-
æðunum
þremur frá
höfuðborg-
arsvæðinu til
að fjármagna
stórtæk verk-
efni í vegagerð.
Lífeyrissjóðirnir eru tilbúnir að
fjármagna fyrirhugaðar fram-
kvæmdir, þ.e. breikkun Suður-
landsvegar og Vesturlandsvegar og
einnig að ljúka framkvæmdum við
stækkun Reykjanesbrautar, auk
Vaðlaheiðarganga. Til að svo megi
verða er gert ráð fyrir að taka upp
veggjöldin.
Ríkisstjórnin fjallaði um málið sl.
þriðjudag en enn er andstaða á
meðal Vinstri grænna við einka-
framkvæmd með vegtollum. Hins
vegar er samkomulag sagt í sjón-
máli og taldar góðar líkur á að búið
verði að greiða götuna fljótlega eft-
ir páska. »2
Veggjöld á allar stofnæðar
frá höfuðborgarsvæðinu
–– Meira fyrir lesendur
fylgir m
eð
Morgun
blaðinu
í dag
Baugur seldi Landsbankanum og
Glitni hlutabréf í Iceland á árinu
2008. Baugur fékk á móti kauprétt
á hlutunum sem seldir voru til
bankanna tveggja.
VIÐSKIPTI
Seldi Iceland inn í
bankana 2008
Vöruskiptajöfnuður heldur áfram
að batna, ekki vegna aukins út-
flutnings, heldur mikils samdráttar
í innflutningi. Hann dróst saman
um 14% í janúar og febrúar.
Hrun í eftirspurn
og innflutningi
Eftir Guðna Einarsson, Kristján Jónsson
og Baldur Arnarson
UM 50 manns voru í grennd við Fimmvörðuháls
þegar ný gossprunga opnaðist þar um sjöleytið í
gærkvöldi. Sumir voru aðeins nokkur hundruð
metra frá nýju sprungunni. Var ákveðið að flytja
fólkið strax með þyrlum yfir á Morinsheiði en það-
an gekk það niður í Þórsmörk. Björgunarsveit-
armenn áttu að vera við Hvanná í nótt á sérbúnum
bílum og lýsa upp gilið fyrir þá sem voru á leið úr
Þórsmörk og fylgjast með vatnavöxtum en talið
var mögulegt að áin hlypi skyndilega tímabundið.
Jón Kjartan Björnsson, þyrluflugmaður hjá
Norðurflugi, var á sveimi með ferðafólk yfir svæð-
inu og varð vitni að því þegar nýja sprungan birt-
ist. „Þetta gerðist allt í einu og fimm mínútum
seinna var komin sprunga sem var upp undir 100
metrar. Sprungan rifnaði í suðurátt að hinum
gígnum,“ sagði Jón. Nýja sprungan, sem er um
300 metra löng, er um 200 metrum norðar en hin.
Vel gekk að rýma Fimmvörðuháls og nágrenni.
Um miðnætti var fólk enn á leið niður af jöklinum.
Ferðamönnum sem komið höfðu að sunnan til
að skoða gosstöðvarnar var snúið aftur að Skóg-
um, einnig var farartækjum á Mýrdalsjökli snúið
til baka. Þessum leiðum var lokað í gærkvöldi.
Um 30-40 sentímetra breið jökulsprunga hefur
opnast í Mýrdalsjökli rétt við akstursleiðina að
Fimmvörðuhálsi og er hún opin á um 15 metra
kafla. Sprungan er vestan í Goðabungu og liggur
hún samhliða akstursleiðinni.
Nýr gígur á hálsinum
Ný gossprunga opnaðist á Fimmvörðuhálsi skammt norðan við þá gömlu
Leiðum að jarðeldunum var lokað og vel er fylgst með vatnavöxtum í Hvanná
» Með þyrlum af hættusvæði
» Vel gekk að rýma svæðið
» Sprungan rifnaði í suðurátt
Ljósmynd/Þorleifur Einar Pétursson
Nýr hraunstraumur Þessa mynd af sprungunum tók Þorleifur Einar Pétursson, flugstjóri hjá Flugfélagi Íslands um klukkan níu í gærkvöldi, þegar hann
flaug fram hjá eldstöðvunum. Flugvélin, af gerðinni Dash-8, var á leið frá Egilsstöðum til Reykjavíkur. Hún var í 10.000 feta hæð þegar myndin var tekin.
Þetta er tilviljanakennt | 4