Morgunblaðið - 01.04.2010, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út laugardaginn 3. apríl og
fylgir Sunnudagsmogginn því
blaði. Fréttaþjónusta verður á
Fréttavef Morgunblaðsins,
mbl.is, yfir alla páskana. Ábend-
ingum um fréttir má koma á
netfangið netfrett@mbl.is.
Þjónustuver Morgunblaðsins
verður opið í dag, skírdag, frá
kl. 7-13 og á laugardag frá kl. 7-
13. Blaðberaþjónusta Morgun-
blaðsins verður opin í dag, skír-
dag, frá kl. 5-11 og á laugardag
frá kl. 5-11. Lokað föstudaginn
langa, páskadag og annan í
páskum.
Andlátstilkynningar er hægt
að bóka alla páskana í gegnum
forsíðu mbl.is.
Skiptiborð Morgunblaðsins
verður lokað um páskana. Síma-
númer Morgunblaðsins er 569-
1100 og netfang blaðsins er rit-
stjorn@mbl.is.
Fréttaþjón-
usta um páska
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
SKÖMMU fyrir miðnætti var enn
verið að reyna að finna lausn á deil-
unni um nýtt vaktakerfi aðstoðar- og
deildarlækna á Landspítalanum en
þeir höfðu hótað að ganga út í dag.
Spítalinn hyggst gefa út tilkynningu
um stöðuna fyrir hádegi í dag.
Ólafur Baldursson, framkvæmda-
stjóri lækninga á Landspítalanum,
sagði að búið væri að grípa til ráð-
stafana til að tryggja að öryggi sjúk-
linga yrði ekki ógnað og spítalinn
réði vel við það verkefni.
„Við höfum gert ráðstafanir til að
fylla í skörðin,“ segir Ólafur. „Ör-
yggið hefur verið algerlega tryggt
með ítarlegum ráðstöfunum og fólk
þarf ekki að hafa áhyggjur. Yfir 400
læknar vinna á öllum spítalanum og
við höfum úrræði til að tryggja ör-
yggi sjúklinga við þessar aðstæður.“
Um er að ræða samtals 40 aðstoð-
ar- og deildarlækna, bæði á Hring-
braut og í Fossvogi, 20 þeirra hugð-
ust ganga út í dag og aðrir 20 á
morgun, föstudag. Þeir eru afar
ósáttir við nýja vaktakerfið sem tek-
ur gildi á morgun, segja að með því
sé þeim gert að vinna mun fleiri
stundir í mánuði en hingað til.
Vinnuálagið verði allt of mikið,
þreyttir læknar séu ógn við öryggi
sjúklinga. Álagið sé einnig óviðun-
andi fyrir barnafólk í stéttinni og sé
brot á evrópskri vinnutímalöggjöf.
Læknaráð Landspítalans sendi í
gær frá sér ályktun þar sem lýst var
þungum áhyggjum af ástandinu.
„Læknaráð mælist til þess að fyr-
irhuguðum breytingum á vaktafyr-
irkomulagi verði frestað. Læknaráð
lýsir sig reiðubúið til að miðla mál-
um í þessari deilu,“ segir í álykt-
uninni.
Deilan um nýtt vakta-
kerfi lækna enn í hnút
Talsmenn Landspítalans segja öryggi sjúklinga tryggt
Morgunblaðið/Ómar
SKÍÐAVIKAN á Ísafirði var sett í gær með
skrúðgöngu og sprettgöngu í miðbænum. Fjöl-
breytt dagskrá er á Ísafirði fram á mánudag.
Sprettgangan fór þannig fram að snjór var sett-
ur í Hafnarstræti og síðan fór fram útsláttar-
keppni á gönguskíðum. Sigurvegarar keppn-
innar voru Kristbjörn Sigurjónsson og Stella
Hjaltadóttir en hér má sjá Stellu og Jorunn Halt-
bakk frá Noregi koma í mark.
SKÍÐAVIKAN Á ÍSAFIRÐI HEFUR VERIÐ HALDIN Í 75 ÁR
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
SKRIÐUR er kominn á undirbún-
ing stórtækra verkefna í vegagerð
og hefur verið blásið nýju lífi í
áform um einkaframkvæmd verk-
efnanna með innheimtu veggjalda.
Lífeyrissjóðirnir eru viljugir að fjár-
magna framkvæmdirnar sem fyrir-
hugaðar eru, þ.e. breikkun Suður-
landsvegar og Vesturlandsvegar, og
einnig að ljúka framkvæmdum við
stækkun Reykjanesbrautar, auk
Vaðlaheiðarganga. Til að svo megi
verða er gert ráð fyrir að tekin
verði upp veggjöld af vegfarendum
á öllum stofnæðunum þremur til og
frá höfuðborgarsvæðinu. Hugmynd-
ir eru m.a. um, skv. heimildum
blaðsins, að stofnuð verði félög um
hvert verkefni fyrir sig.
Ríkisstjórnin fjallaði um málið sl.
þriðjudag og voru forystumenn líf-
eyrissjóðanna boðaðir til fundar
með samgönguráðherra síðar um
daginn. Þar var þeim kynnt nýtt
minnisblað um þessi vegagerðar-
verkefni. Fram kom að enn sé and-
staða á meðal Vinstri grænna við
einkaframkvæmd með vegtollum en
samkomulag er þó sagt í sjónmáli
og góðar líkur taldar á að búið verði
að greiða götuna fljótlega eftir
páska. Þegar endanlegt samkomu-
lag lægi fyrir yrði strax hægt að
ganga til samninga við lífeyrissjóð-
ina.
Lána ríki og sveitarfélögum 9
milljarða til viðhaldsverkefna
Einnig hefur náðst samkomulag
lífeyrissjóðanna við fjármálaráðu-
neyti og Lánasjóð sveitarfélaga um
að lífeyrissjóðirnir láni ríki og sveit-
arfélögum um níu milljarða kr.
vegna viðhaldsverkefna á næstu
þremur til fjórum árum.
Vegtollar yrðu á öllum
stofnbrautum við borgina
» Suðurlandsvegur, Reykjav.-Selfoss, 13 milljarðar
» Vesturlandsvegur um Kjalarnes 2,8 milljarðar
» Gerð Vaðlaheiðarganga talin kosta 8,6 milljarða
Í́SLANDSMÓTIÐ í skák byrjaði
með látum í Lágafellinu í Mos-
fellsbæ í gær. Fjörlega var teflt í
landsliðsflokki. Dagur Arngríms-
son vann Björn Þorfinnsson í skák
fyrstu umferðarinnar. Hannes Hlíf-
ar Stefánsson vann Daða Ómarsson
og Guðmundur Gíslason lagði Þor-
varð F. Ólafsson.
Bragi Þorfinnsson sigraði Róbert
Lagerman og Stefán Kristjánsson
hafði betur í seiglusigri gegn Ingv-
ari Þór Jóhannessyni í lengstu skák
umferðarinnar. Hinn ungi og efni-
legi skákmaður Sverrir Þorgeirs-
son gerði sér svo lítið fyrir og gerði
jafntefli við stórmeistarann Þröst
Þórhallsson.
Önnur umferð í landsliðsflokki
fer fram kl. 14 á morgun. Þá mæt-
ast m.a. Hannes og Dagur.
Íslandsmót byrj-
aði með látum
Morgunblaðið/Ómar
Pressa Hannes Hlífar Stefánsson
hefur unnið mótið tíu sinnum.