Morgunblaðið - 01.04.2010, Page 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2010
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ÁRNI Páll Árnason félagsmálaráð-
herra hefur lagt fram frumvarp um
breytingu á lögum frá 2009 um tíma-
bundna greiðsluaðlögun fasteigna-
veðkrafna á íbúðarhúsnæði. Bætt er
við ákvæði um að aðlögunin skuli
einnig taka til lána sem skuldari not-
aði sannanlega til að borga kaup-
verðið eða vegna nauðsynlegra end-
urbóta á eigninni.
Einnig er bætt við kafla um úr-
ræði einstaklinga sem borga af
tveim fasteignum til heimilisnota og
öðrum um ráðstöfun afborgana lána-
samninga einstaklinga við fjármála-
fyrirtæki.
Frumvarpið er flutt samhliða
frumvörpum um greiðsluaðlögun
einstaklinga og umboðsmann skuld-
ara. „Í frumvarpi um greiðsluaðlög-
un einstaklinga er lagt til að lögfest-
ar verði sérstakar reglur um frjálsa
og þvingaða greiðsluaðlögun fyrir
einstaklinga. Markmiðið er að gera
fólki í greiðsluvanda kleift að ná tök-
um á fjármálum sínum og byrja upp
á nýtt. Skilyrði fyrir greiðsluaðlögun
er að skuldari sé ófær um að standa í
skilum og verði það um fyrirséða
framtíð,“ segir í athugasemdum.
Skuldarar fái
aukna aðstoð
Félagsmálaráðherra leggur fram þrjú
frumvörp sem eiga að bæta stöðuna
MARSMÁNUÐUR var óvenjuþurr á höfuðborgarsvæðinu og því úr vöndu
að ráða fyrir snyrtilega starra sem vildu skola af sér óhreinindin.
Þessi brá á það ráð að tylla sér á mosavaxna vegginn við ráðhúsið og láta
streymandi vatnið sjá um að fríska sig.
Morgunblaðið/Ómar
FUGLABAÐ Á RÁÐHÚSI
SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur
ákveðið að leggja sérstakt farþega-
gjald á alla farþega sem fara um
Keflavíkurflugvöll. Gjaldið nemur
150 krónum á hvern farþega. Til
viðbótar hækkar flugverndargjald
úr 620 í 950 fyrir fullorðna farþega
og fyrir börn 2-12 ára úr 285 krón-
um í 435 krónur.
Farþegagjald lagt á
alla farþega á
Keflavíkurflugvelli
LÖGÐ hefur ver-
ið fram þings-
ályktunartillaga
um þjóðar-
atkvæðagreiðslu
um framtíð-
arskipan ís-
lenskrar fisk-
veiðistjórnunar.
Flutningsmenn
eru m.a. stjórnarþingmennirnir Ól-
ína Þorvarðardóttir, Atli Gíslason
og Helgi Hjörvar.
Lagt er til að spurt verði hvort
taka eigi upp nýtt veiðistjórn-
unarkerfi, hvort setja eigi sérstakt
stjórnarskrárákvæði um eign-
arhald auðlindarinnar, einnig hvort
innkalla eigi veiðiheimildir og
„endurúthluta þeim gegn gjaldi til
þjóðarinnar“.
Vilja þjóðaratkvæði
um veiðistjórnun
MANNANAFNANEFND hefur
samþykkt að færa kvenmanns-
nöfnin Febrún, Bentey og Elíndís á
mannanafnaskrá og karlmanns-
nafnið Lunda.
Nefndin hafnaði hins vegar nafn-
inu Alexsöndru og taldi það ekki
vera í samræmi við venjulegan ís-
lenskan framburð nafnsins Alex-
andra eða íslenska hefð í ritun þess.
Nöfnin Febrún og
Lundi samþykkt
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ er
langt komið með samkomulag við
fjármögnunarfyrirtækin vegna bíla-
lána, en unnið er að skattalegri með-
ferð málsins í fjármálaráðuneytinu
sem ætti að skýrast fljótlega. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins er stefnt
að því að kynna lausn á bílalánavand-
anum fljótlega eftir páska.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins gengur hugmyndin út á að
bílalán verði færð niður að höfuðstól
með 15% álagi sem þýðir að þeir sem
tóku gengistryggð bílalán verða ekki
í verri stöðu en hefðu þeir tekið verð-
tryggð lán á sínum tíma.
Hvað skattameðferðina varðar er
enn óljóst hvort og þá hvernig af-
skriftirnar verða skattlagðar, en við-
mælendur blaðsins benda á að við
þessa leið sé ekki um neina eigna-
myndun að ræða.
Talið er að um 110 milljarðar liggi í
gengistryggðum bílalánum, en reikna
má með að lánin verði færð niður um
25-40% allt eftir samsetningu lán-
anna og lengd. Niðurfellingin lendir á
fjármögnunarfyrirtækjunum, þ.e. SP
fjármögnun, Íslandsbanka fjár-
mögnun, Avant og Lýsingu.
Bílalausn kynnt eftir páska
Beðið er eftir úr-
lausn á skattalegri
meðferð afskrifta
Ráðherra efna-
hags- og við-
skiptamála,
Gylfi Magn-
ússon, leggur
fram frumvarp
um rannsókn á
fjárhagsstöðu
skuldugra
heimila. Vill
hann fá heimild til að afla upp-
lýsinga frá fjölmörgum aðilum,
þ.á m. Íbúðalánasjóði, Trygg-
ingastofnun ríkisins og fjár-
málafyrirtækjum.
Fjárhagur kannaður
Gylfi
Magnússon
HUMAR 1 kg
SKELBROT 999 kr/pk.
Tilboð gildir meðan birgðir endast Birt með fyrirvara um prentvillur
m
ar
kh
on
nu
n.
is
Af FRUMVARPI Ólafar Nordal, þingmanns
Sjálfstæðisflokks, um að Alþingi ákveði að
fara skuli í framkvæmdir við neðrihluta
Þjórsár má sjá að henni virðist eðlilegt að
þingmeirihluti, sem hún ætlar þá vænt-
anlega að leiða, geti valtað yfir sveitarfélög
og íbúa þeirra, Skipulagsstofnun, umhverf-
isráðherra og stjórn Landsvirkjunar. Þetta
segir Svandís Svavarsdóttir umhverf-
isráðherra.
Í Morgunblaðinu í gær var sagt frá frum-
varpi Ólafar sem hún hugðist leggja fram á
Alþingi síðdegis í gær. Í samtali við blaða-
mann sagði Ólöf að öll rök væru fyrir því að
neðrihluti Þjórsár yrði virkjaður. Alþingi
gæti ákveðið að setja lög um að fara í virkj-
anirnar.
„Ýmislegt er furðulegt við þetta,“ segir
Svandís. „Fyrir það fyrsta; hvaða sýn þetta
endurspeglar hjá Ólöfu Nordal og þá vænt-
anlega sjálfstæðismönnum. Hvernig þeir
myndu fara fram ef þeir væru við völd. Þá
myndu þeir væntanlega ákveða virkj-
anakosti á flokksskrifstofunum og fara fram
með það í lagasetningu.“ Svandís segir að
sem betur fer sé annað fyrirkomulag við lýði
á Íslandi. Mál þurfi að fara í gegnum nokk-
ur þrep. Þannig fari sveitarfélög með skipu-
lagsgerðina og hún fari í kjölfarið í kynning-
arferli. Síðan þurfi skipulagið að hljóta
staðfestingu bæði Skipulagsstofnunar og
umhverfisráðherra. Þá þurfi stjórn Lands-
virkjunar að hafa einhverja skoðun á málinu.
„Ég veit ekki hvort Ólöf Nordal vill fara
þvert á alla þessa ferla. Þetta lýsir kannski
fyrst og fremst hefðbundnum yfirgangi
virkjanasinna og einnig mjög sérkennilegum
skilningi á lýðræðinu.“
Rammaáætlun í kynningarferli
Ólöf sagði einnig í samtali við Morg-
unblaðið breiður stuðningur væri fyrir virkj-
unum í neðrihluta Þjórsár á þingi. Þó svo að
það kunni að vera rétt er ekki þar með sagt
að frumvarp hennar fái hljómgrunn.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra bend-
ir á að í tíð ríkisstjórnar Samfylkingar og
Sjálfstæðisflokks – sem Ólöf studdi – var
neðrihluti Þjórsár settur í ákveðið ferli,
rammaáætlun.
„Rammaáætlunin er í kynningarferli til
19. apríl nk. og eftir það verður unnið úr
niðurstöðum hennar. Ég geri ráð fyrir að
rammaáætlunin komi inn í þingið í lok apríl
eða byrjun maí,“ segir Katrín og einnig að
eðlilegt sé að þetta ferli haldi áfram. „Ég sé
ekki ástæðu til að taka þetta sérstaklega út
úr rammaáætluninni.“
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður
framsóknarmanna á Suðurlandi, er hlynntur
tillögu Ólafar en sagðist ekki hafa rætt mál-
ið við aðra í þingflokknum enn þá. „Þetta er
samkvæmt rammaáætluninni eitt af því sem
er skynsamlegast að virkja. Eftir alla bar-
áttu umhverfisverndarsinna er þetta orðin
miklu betri framkvæmd en leit út fyrir upp-
runalega og orðið ásættanlegt.“
„Hefðbundinn yfirgangur“
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra furðar sig á tillögu Ólafar Nordal um virkjanir í Þjórsá
Ráðherra segir að ef sjálfstæðismenn réðu myndu þeir ákveða virkjanakosti á flokksskrifstofunni
Katrín
Júlíusdóttir
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Virkjunarsvæði Frá neðri hluta Þjórsár
Svandís
Svavarsdóttir