Morgunblaðið - 01.04.2010, Side 10
Stofnandinn Guðsteinn í verslun sinni rétt fyrir jólin árið 1963.
upp á einn daginn með útprentaða
mynd af þessu og spurði hvort hann
mætti mála þetta á vegginn hjá okk-
ur. Mér fannst þetta alveg frábært
og gaf honum leyfi og þetta vekur
ótrúlega mikla athygli. Ferðamenn-
irnir taka myndir af þessu og þetta
hefur komið í veg fyrir veggjakrot.“
Allir jafnir, rónar og ráðherrar
Það segir mikið um fyrirtækið
hversu mikilli tryggð margt starfs-
fólkið heldur við búðina, en þar hefur
til dæmis sama saumakonan unnið í
20 ár. Hanna Benediktsdóttir sér um
að laga og breyta flíkum sem keyptar
eru í versluninni.
„Að vinna hér hefur verið ynd-
islegur tími. Þetta er mitt annað
heimili og ég hlakka alltaf til að fara í
vinnuna. Hér hefur aldrei verið
snobb og engir yfirmannastælar við
okkur saumakonurnar. Eyjólfur
kenndi mér að sníða og hann var
minn fyrsti yfirmaður. Fyrir honum
eftir hrun til að segja okkur að við
mættum ekki hætta. Að vonandi lifð-
um við þetta af. Okkur þykir vænt
um að finna fyrir þessari velvild. Og
vonandi lifum við af. Enda leggjum
við áherslu á gæði, að vera með vand-
aða vöru á hagstæðu verði. En það
hefur vissulega verið mjög erfitt eftir
að gengi krónunnar féll. Ég ákvað að
fara ekki út í minni gæði, vegna þess
að viðskiptavinir okkar þekkja gæðin
hér og treysta okkur. Ég hélt því
sömu vöru og gæðum en þurfti auð-
vitað að hækka verðið, en þó um
miklu minna en ég hefði þurft, til að
geta verið með boðlegt verð.“
Bindishnútar á vegg
vekja athygli
Margir kannast við veggjamynd-
irnar utan á húsinu þar sem kennt er
á myndrænan hátt hvernig hnýta
skal bindishnút á ýmsa vegu. „Ungur
strákur sem heitir Harry og er graf-
ískur hönnuður, hann bankaði hér
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Afi reykti alltaf vindla hér íbúðinni og það eru ennbrunaför inni í skápunumþar sem hann lagði frá sér
vindlana,“segir Svava Eyjólfsdóttir
meðeigandi herrafataverslunar Guð-
steins á Laugavegi.
Svava er barnabarn Guðsteins
Eyjólfssonar sem stofnaði verslunina
fyrir 92 árum og hún er því þriðja
kynslóð fjölskyldunnar sem stendur í
brúnni.
„Það stóð aldrei til að ég tæki við,
þetta æxlaðist bara svona í framhaldi
af því að ég var hér klukkutíma á
hverjum degi að hjálpa pabba eftir að
heilsu hans hrakaði en hann féll frá
árið 2004. En nú eru árin næstum
tuttugu sem ég hef séð um þessa
verslun.“
Eyjólfur faðir Svövu tók við af
Guðsteini afa hennar en þeir voru
saman með búðina lengi vel. „Pabbi
vann hér fram til dauðadags og gaf
sig allan í starfið.“
Miklu meira af ungu fólki núna
Svava segir að hjá verslun Guð-
steins hafi ævinleg verið lögð áherslu
á að sinna mönnum á miðjum aldri og
uppúr.
„Þeir sýna okkur mikla tryggð og
við viljum sinna þeim vel. En við
fáum miklu meira en áður af ungu
fólki inn til okkar og það finnst okkur
sérlega ánægjulegt og við stýrum
okkar innkaupum eftir því. Við höf-
um alla tíð haldið tryggð við gömlu
góðu sígildu merkin, en framleið-
endur fylgjast að sjálfsögðu með nýj-
ustu tísku og straumum. Unga fólkið
virðist kunna að meta þetta,“ segir
Svava og bætir við að hún finni mjög
sterkt fyrir því að gildin í þjóðfélag-
inu séu önnur en var fyrir kreppu.
„Hingað gerði margt fólk sér ferð
Gamla góða stemningin
Það er gott að koma inn í Herrafataverslun Guðsteins. Þar er ekki ærandi tónlist
heldur rólegt yfirbragð og gömlu góðu innréttingarnar gegna enn hlutverki sínu.
10 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2010
Í fyrstu getur það virst jafnflókið og
geimvísindi að hnýta bindishnút. Það
virðist kannski einfalt þegar pabbi
gamli gerir það og lýsir um leið en
einn og óstuddur er þetta ávísun á
flækju. Því er gott að hafa tölvuna við
hliðina á sér opna á Tie-a-tie.net.
Samkvæmt síðunni eru til fjórar
gerðir af bindishnútum; Four in Hand,
Half Windsor, Windsor og Pratt. Þeir
virðast við fyrstu sýn allir eins en
hver hefur sín einkenni; einn er fín-
gerður, annar þríhyrningslaga og enn
einn feitur. Einnig eru upplýsingar á
síðunni um hvernig á að binda al-
mennilega slaufu.
Það er hann Caspar sem heldur úti
þessari gagnlegu síðu til leiðbein-
ingar fyrir þá sem eru að byrja að
fóta sig í heimi bindishnútanna og
líka fyrir þá sem vilja auka fjölbreytn-
ina í bindishnútunum.
Caspar er með gagnlegar upplýs-
ingar á síðunni, t.d. hvernig á að losa
um bindishnút en það skiptir máli
hvernig það er gert, til að skemma
ekki bindið. Hann fjallar líka um
lengd á hálsbindum og er með reikni-
vél sem reiknar út lengd bindis sem
þú þarft m.v. hæð og hálskragastærð.
Smákafla um skraut og skart fyrir
hálsbindi má svo finna.
Vefsíðan: www.tie-a-tie.net
Morgunblaðið/Eyþór
Bindi Nokkrar gerðir eru til af bindishnútum sem vert er að kunna.
Bindin og blessaðir hnútarnir
Á skírdagur er minnst heilagrar
kvöldmáltíðar og þess að Kristur
þvoði fætur lærisveina sinna. Þennan
dag var altarið þvegið og olía vígð í
katólskum sið, og varð hann fljótt af-
lausnardagur syndara. Að slíkri
hreinsun lýtur skírdagsheitið. Eftir
siðaskipti hefur loðað við að halda til
skírdagsins sem föstuloka í mat og
eru heimildir frá 18. og 19. öld um
sérstakan grjónagraut þann dag,
skírdagsgraut. Fátt er vitað um sér-
staka skírdagssiði utan kirkju nema
lítilsháttar um mat og drykk.
Saga daganna eftir Árna Björnsson.
Endilega …
… fræðist um
skírdag
Morgunblaðið/RAX
Altaristafla Skarð á Skarðsströnd.
Lamb er mikið borðað á Ítalíu en
matreiðslan yfirleitt með nokkuð
öðrum hætti en við Íslendingar eig-
um að venjast. Hér er uppskrift frá
héraðinu Púglia syðst á Ítalíu þar
sem lærið er eldað með kartöflum
og lauk. Best er að nota lítið læri
sem kemst fyrir í góðum potti eða
ofnskúffu ef hækillinn er sagaður
af.
1 lambalæri
2 laukar, grófsaxaðir
1 rauður chilipipar, fræhreinsaður
og saxaður
500 g kartöflur, flysjaðar og
skornar í 2-3 sm bita
2 msk óreganó, saxað
2 msk rósmarín, saxað
1 dl hvítvín
ólívuolía
Hitið olíu í pottinum (eða ofn-
skúffunni) og brúnið kjötið á öllum
hliðum. Þegar búið er að brúna
kjötið er það tekið upp úr og lauk-
urinn settur út í ásamt salti og
steiktur þar til hann er orðinn
mjúkur. Bætið nú kjötinu aftur út í
ásamt chilipipar. Saltið örlítið í
viðbót. Hellið nú hvítvíninu í pott-
inn og leyfið því að malla í um
mínútu en þá er kartöflunum bætt
við ásamt kryddjurtunum. Hrærið
öllu vel saman.
Setjið lok á pottinn (eða álpapp-
ír yfir ofnskúffuna) og færið yfir í
200 gráðu heitan ofn. Eldið í um
45 mínútur eða þar til kjötið er
eldað í gegn og kartöflurnar eru
orðnar alveg mjúkar. Fylgist með
því að allur vökvinn gufi ekki upp,
ef hætta er á því má bæta um dl
af vatni út í pottinn.
Berið fram beint úr ofninum.
Með þessu að sjálfsögðu rauðvín
frá Púglía, t.d. A Mano eða Feudi di
San Marzano Negroamaro.
Steingrímur Sigurgeirsson
Uppskriftin
Lambalæri frá Púglía
Fleiri uppskriftir má finna á Matur
og vín-vef Morgunblaðsins:
www.mbl.is/matur/
Sp
ör
eh
f.
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Hálftfæðiogallarskoðunarferðirinnifaldar
Stralsund er ótrúlega fögur borg með heildstæðan miðaldarblæ og er saga Stralsund
samofin sögu hansakaupmannanna. Ferðin hefst á flugi til Berlínar og er haldið þaðan
til Stralsund þar sem gist er í 3 nætur. Förum í dagsferð til drottningar hansaborgara,
Lübeck, skoðum hið fræga borgarhlið, förum á safn og smökkum á marsipani sem
Lübeck er fræg fyrir. Leiðin liggur síðan til Rostock þar sem er áhugavert miðaldasafn
og endum á eyjunni Rügen sem er þekkt fyrir náttúrufegurð. Gistum í 4 nætur í
bænum Sellin og njótum strandmenningarinnar. Farið verður í skoðunarferð um
Jasmund þjóðgarðinn, til Putbus sem er miðstöð menningar á Rügen og skoðum
veiðihöllina Göhren. Komum einnig á Usedom eyjuna, förum í gönguferð yfir til
Swinoujscie í Póllandi og siglum um Müritz-vatnasvæðið. Ferðin endar í höfuðborginni
Berlín þar sem farið verður í skoðunarferð áður en flogið er heim á leið.
Fararstjóri: Kristín Jóhannsdóttir
Verð: 164.400 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, allar skoðunarferðir með rútu,
hálft fæði og íslensk fararstjórn.
Marsipan &
12. - 19. ágúst
SUMAR 9
Hansakaupmenn