Morgunblaðið - 01.04.2010, Page 17

Morgunblaðið - 01.04.2010, Page 17
Fréttir 17INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2010 VITA er lífið VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is Spánn og VITA er í eigu Icelandair Group. GROUP Verð frá 108.240kr. og 15.000 Vildarpunktar Paladim 09. – 27. maí á mann m.v. 2 í stúdíóíbúð með Gott Fólk 60+ afslætti. Verð án Vildarpunkta og Gott fólk 60+ afslætti: 123.240 kr. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn. VITA Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is Portúgal með Isla Canela í Andalúsíu Iberostar Isla Canela 09. – 27. maí Verð frá 169.860 kr. og 15.000 Vildarpunktar á mann í tvíbýli. Verð án Vildarpunkta 179.860 kr. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting m/ morgunmat og íslensk fararstjórn. Í ferðinni er hægt að bóka skemmtilegar skoðunarferðir um svæðið í fylgd fararstjórans Friðriks G. Friðrikssonar. Lilja Jónsdóttir verður fararstjóri í þessari ferð. Hún hefur áralanga reynslu af skipulagningu og fararstjórn. Evrópurútur Frissa Menning, fróðleikur og veðursæld. Skemmtileg ferð þar sem fararstjóri er Friðrik G. Friðriksson, Frissi. Farið er í 5 skoðunarferðir sem eru innifaldar í pakkanum. Iberostar Isla Canela 09. – 27. maí Verð frá 257.200 kr. á mann í tvíbýli. Innifalið: Allt er innifalið í gistingunni, þ.m.t. allur matur, drykkir og afnot af heilsulind hótelsins auk 5 skoðunarferða um svæðið með Frissa. Hjá VITA getur þú lækkað verðið á ferðinni þinni um allt að 10.000 kr. með 15.000 Vildarpunktum. Auk þess eru veittir 2.500 Vildarpunktar fyrir allar keyptar ferðir í leiguflugi með VITA. Þannig öðlast þú stöðugt fleiri tækifæri til þess að njóta lífsins. Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur Ferð á vegum klúbbsins í vorsólina í Portúgal. Flogið er með beinu leiguflugi með Icelandair. Félagar í Gott Fólk 60+ klúbbnum fá 5.000 kr. afslátt af þessari ferð. Skapti Hallgrímsson Það hvarflaði að mér á dögunum að farið væri að bræða skemmt sjávar- fang í Krossanesi (eins og stundum kom fyrir í gamla daga) en mundi svo að verksmiðjan var tekin niður fyrir nokkrum árum. Nú er komið í ljós að sá megni óþefur sem leggst einstaka sinnum yfir bæinn er frá jarðgerðarstöðinni í Eyjafjarðar- sveit.    Fólk mun hafa kvartað til heilbrigð- isyfirvalda og verið er að kanna hvort hreinsibúnaður virkar ekki eins og hann á að gera. Ég veit auð- vitað ekki hver ástæðan er, en lyktin er hroðalega vond. Það get ég stað- fest!    Hetjurnar, styrktarfélag lang- veikra barna á Norðurlandi, njóta nú góðs af því að leikmenn meistara- flokks Þórs í knattspyrnu mættu stundum of seint á æfingu í vetur!    Hetjurnar fá afhentar alls 120 þús- und krónur frá Þórsurum í dag. Ekki er hægt að kenna óstundvísi leikmanna Þórs um alla upphæðina; Í sektarsjóðnum eru rúmlega 30 þúsund krónur, leikmannaráð karla ákvað að tvöfalda upphæðina og að- alstjórn Þórs tvöfaldar svo þá upp- hæð!    Fulltrúar Hetjanna taka við pen- ingunum í Boganum í dag, fyrir leik Þórsara gegn Njarðvíkingum sem hefst kl. 13.00.    Unnendur góðra lista geta haft nóg fyrir stafni í höfuðstað Norðurlands um páskana. Tónlist, leiklist, mynd- list, matarlyst … Varla hægt að telja þetta allt upp og best að benda á vef- síðuna www.visitakureyri.is.    Óhjákvæmilegt er þó að nefna tónleika Sinfóníuhljómsveitar Norð- urlands í Glerárkirkju kl. 16 í dag þar sem Bryndís Halla Gylfadóttir verður einleikari í sellókónsert nr 1. eftir Dmitri Shostakovich. Á laug- ardaginn treður akureyrski stórten- órinn Kristján Jóhannsson upp í KA-heimilinu ásamt Diddú og fleiri góðum söngvurum. Meðal þeirra sem verða með tónleika á Græna hattinum eru hinir einu, sönnu Skriðjöklar. „Konur athugið! Skrið- jöklar á ferð,“ sagði í tilkynningu … AKUREYRI Morgunblaðið/Kristinn Söngur Diddú og Kristján koma fram á tónleikum á laugardaginn. Góð list og vond lykt ÚR BÆJARLÍFINU Eftir Björn Björnsson Í ALMANAKI Hins íslenska þjóðvinafélags er 16. mars skráður dagur Gvendar góða, hins sæla Hólabiskups, er sat stólinn í upphafi þrettándu aldar. Ekki verður um Guðmund biskup sagt að hann hafi setið á friðarstóli, eða að um embætti hans hafi ríkt sátt og ein- drægni, því fljótlega eftir embættistöku hans kom í ljós að hann var ekki eins þægur þeim veraldlegu höfðingjum, sem studdu hann til embættis, og ætlast var til. Hinsvegar var Guðmundur biskup elskaður og virtur af allri alþýðu og hafði áunnið sér kenninafnið „góði“ meðan hann enn sinnti prestsembætti. En allar götur frá biskupstíð Gvendar góða er vitað að nafn hans þótti gott til áheita, og nú síðastliðinn „Gvendardag“ var boðað til at- hafnar í Auðunarstofu á Hólum, þar sem Guð- mundar biskups var minnst, og hófst athöfnin með því að Gunnar Þorgeirsson óbóleikari lék nokkur lög, en síðan flutti Óskar Guðmunds- son rithöfundur erindi sem hann nefndi: Bisk- upinn og skáldið, vinátta Guðmundar góða og Snorra Sturlusonar. Að loknu erindi Óskars afhenti Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslu- biskup styrk úr hinum forna áheitasjóði, en að þessu sinni voru veittar 150 þúsund krónur til Marie Ann Hauksdóttur, tuttugu og tveggja ára konu frá Hvammstanga sem bar- ist hefur við krabbamein frá 18 ára aldri, en það var eins árs gömul dóttir Marie og sam- býlismanns hennar sem veitti styrknum við- töku. Enn er Gvendur góði drjúgur til áheita Morgunblaðið/Björn Björnsson Styrkur Dóttir Marie Ann veitir styrknum móttöku úr hendi Jóns Aðalsteins Baldvinssonar biskups.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.