Morgunblaðið - 01.04.2010, Side 18
18 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2010
SVO gæti farið að Gordon Brown,
forsætisráðherra Bretlands, héldi
embættinu í nokkrar vikur þótt
flokkur hans missti meirihluta sinn í
neðri deild breska þingsins í næstu
kosningum, að sögn breskra dag-
blaða í gær.
Blöðin segja að breskir embættis-
menn séu að leggja lokahönd á áætl-
un um hvernig bregðast eigi við ef
enginn flokkur fær meirihluta á
þinginu í kosningum sem eiga að
fara fram ekki síðar en í júní.
Embættismennirnir hafa miklar
áhyggjur af því að gert verði áhlaup
á breska pundið ef enginn flokkur
fær meirihluta og fjármálamarkaðir
telja að það geti orðið til þess að ekki
verði gerðar nægar ráðstafanir til að
minnka fjárlagahallann, að sögn The
Daily Telegraph. Blaðið segir að ef
Íhaldsflokkurinn fær flest þingsæti,
án þess að fá meirihluta, þurfi
Brown ekki að láta af embætti strax
þótt hann myndi líklega gera það ef
munurinn væri mikill.
The Guardian segir að markmið
með áætlun embættismannanna sé
að afstýra stjórnlagakreppu og
áhlaupi á pundið. Samkvæmt til-
lögum þeirra eigi þingið ekki að
koma saman fyrr en tæpum þremur
vikum eftir kosningarnar til að gefa
forsætisráðherranum færi á að
mynda starfhæfa stjórn. Þingið er
yfirleitt sett um sex dögum eftir
kosningar. Í áætluninni er gert ráð
fyrir því að íhaldsmenn geti lagt
fram vantrauststillögu gegn stjórn-
inni átján dögum eftir kosningarnar.
Vilja hindra áhlaup á pundið
Reuters
Broshýr Gordon Brown og eiginkona hans, Sarah, á flokksþingi í Skotlandi.
Brown gæti verið
við völd í nokkrar
vikur þótt hann tapi
Í HNOTSKURN
» Þótt enginn stjórn-málaflokkur fái meirihluta
á þinginu í næstu kosningum
getur Elísabet Bretadrottning
neitað að rjúfa þing og boða til
nýrra kosninga ef hún telur
þingrof geta skaðað efnahag
landsins.
PRESTAR grísku rétttrúnaðarkirkjunnar
sleppa dúfu við skírnarathöfn sem fram fór í gær
í Qasr el-Yahud, staðnum þar sem talið er að Jó-
hannes skírari hafi skírt Krist. Staðurinn er í
ánni Jórdan, austan við Jeríkó, og er þriðji helg-
asti staður kristinna pílagríma í Landinu helga,
á eftir Jerúsalem og Betlehem. Áætlað er að á
ári hverju komi um 100.000 manns á þennan stað
til að taka skírn.
Reuters
SKÍRNARATHÖFN Í ÁNNI JÓRDAN
VÍSINDA- og
tækninefnd
neðri deildar
breska þingsins
hefur rannsakað
mál Phils Jones,
stjórnanda lofts-
lagsdeildar há-
skólans í Aust-
ur-Anglíu
(CRU), og kom-
ist að þeirri niðurstöðu að engin
ástæða sé til að ætla að Jones eða
samstarfsmenn hans hafi brengl-
að eða falsað niðurstöður rann-
sókna á hitafari í gegnum söguna.
Vísindanefndin hvetur hins veg-
ar loftslagsvísindamenn til þess
að gera fleiri upplýsingar um
mælingar sínar opinberar sjálf-
krafa til að koma í veg fyrir að
slíkar deilur geti komið upp aft-
ur.
Þetta var fyrsta rannsóknin af
þremur á málinu. Óháð nefnd sér-
fræðinga á að kanna hvort vís-
indamennirnir hafi falsað gögn
og þriðja nefndin á að rannsaka
vísindalegt gildi rannsókna
þeirra.
Falsaði
ekki vís-
indagögn
Hvattir til að gera
fleiri gögn opinber
Phil Jones
KÖRTUR virðast geta skynjað fyrir-
boða jarðskjálfta og forða sér af
hættusvæðinu nokkrum dögum áður
en jarðskjálfti ríður yfir.
Þetta er niðurstaða líffræðinga
sem segja í grein í tímaritinu Journal
of Zoology að körtur hafi flúið æxl-
unarstöðvar sínar þremur dögum
fyrir jarðskjálfta sem kostaði hátt í
300 manns lífið í Abruzzo-héraði á
Ítalíu fyrir tæpu ári.
Líffræðingarnir segja að hegðun
kartnanna hafi verið mjög óvenjuleg
síðustu dagana fyrir hamfarirnar og
þær hafi forðað sér þótt þær hafi ver-
ið um 74 km frá upptökum skjálft-
ans.
Breski líffræðingurinn Rachel
Grant rannsakaði körtur í San Ruff-
ino-vatni á Ítalíu í 29 daga fyrir og
eftir skjálftann og tók eftir því að
körturnar byrjuðu að hegða sér
undarlega fimm dögum fyrir ham-
farirnar. Karldýrunum fækkaði þá
um 96% á svæðinu þótt þau séu yfir-
leitt miklu lengur á æxlunarstöðv-
unum og ekkert í veðurfarinu er talið
geta skýrt þessa undarlegu hegðun.
Þremur dögum fyrir jarðskjálft-
ann var svo komið að engar körtur
voru lengur á æxlunarstöðvunum.
Körtur höfðu orpið eggjum sex dög-
um fyrir skjálftann og varpið hófst
að nýju sex dögum eftir hamfarirnar
en ekkert varp var á æxlunarstöðv-
unum frá fyrsta skjálftanum til síð-
asta eftirskjálftans.
Tengt sveiflum í radonstyrk?
Ekki er vitað hvernig körtur geta
skynjað fyrirboða jarðskjálfta.
Hegðun kartnanna tók að breytast á
sama tíma og breytingar urðu á jóna-
hvolfinu, efri hluta lofthjúps jarðar
ofan við 70 km hæð. Nokkrir vís-
indamenn hafa sett fram þá kenn-
ingu að þessar breytingar hafi orðið
vegna losunar radons, geislavirks
gass, en sveiflur í radonstyrk kunna
að tengjast spennuástandi í jarð-
skorpunni og hugsanlega vera fyrir-
boði jarðskjálfta. „Niðurstöður okk-
ar benda til þess að körtur geti
skynjað fyrirboða jarðskjálfta, svo
sem losun gass og hlaðnar eindir,“
hafði fréttavefur breska ríkis-
útvarpsins eftir Grant. bogi@mbl.is
Skynja hættu á jarðskjálfta
Reuters
Forspá froskdýr Körtur virðast hafa skynjað hættu á jarðskjálfta nokkrum
dögum áður en mannskæður skjálfti reið yfir Ítalíu fyrir tæpu ári.
Körtur flúðu
nokkrum dögum
fyrir skjálftann
PÁSKAEGG,
sem og annað
súkkulaði, geta
verið góð fyrir
hjartað og lækk-
að blóðþrýsting-
inn ef fólk borð-
ar súkkulaðið í
hófi á hverjum
degi og velur
dökkt súkkulaði.
Þetta er niðurstaða þýskra nær-
ingarfræðinga sem fylgdust með
19.357 manns á aldrinum 35-65
ára í a.m.k. tíu ár. Þeir sem borð-
uðu mest súkkulaði (eða 7,5
grömm að meðaltali á dag) reynd-
ust vera með lægri blóðþrýsting
og 39% ólíklegri til að fá hjarta-
sjúkdóma en þeir sem borðuðu
minnst súkkulaði (1,7 grömm eða
minna).
Rannsóknir hafa áður bent til
þess að dökkt súkkulaði í smáum
skömmtum geti styrkt hjartað en
þetta er fyrsta rannsóknin á áhrif-
um þess á svo löngu tímabili.
Páskaegg
holl í hófi
Egg Gott í hófi.
SÆNSKUR
ferðamaður fórst
í gær þegar hann
féll 150 metra of-
an í gíg eldfjalls-
ins Batur á indó-
nesísku eyjunni
Balí. Svíinn, sem
var 25 ára gam-
all, rann þegar
hann reyndi að
gægjast ofan í
gíginn eftir síðdegisgöngu á tind-
inn sem er 1.700 metra hár.
„Hann var að horfa ofan í gíginn
þegar hann rann og féll 150 metra,“
sagði lögreglustjórinn Made Oka.
Björgunarsveit var send á stað-
inn til að ná líki mannsins upp.
Batur-fjall er auðvelt uppgöngu
miðað við mörg önnur eldfjöll í
Indónesíu og hefur m.a. þess vegna
orðið vinsæll áningarstaður ferða-
langa á Balí.
Fórst í gíg
eldfjalls
Batur Eldfjallið
Batur á Balí.