Morgunblaðið - 01.04.2010, Page 21

Morgunblaðið - 01.04.2010, Page 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2010 Boltakúnstir Á sýningum Sirkuss Íslands má sjá ýmsar kúnstir. Þótt myndir segi meira en þúsund orð þarf fólk líklegast að skella sér á eina af sýningunum til að átta sig á hvað hér er að gerast. Ernir UNDANFARNA daga hafa ýmsir stuðnings- menn ríkisstjórnarinnar gert sér mat úr þeirri kenningu eins af hag- fræðingum Seðlabank- ans, að 3.300 störf í land- inu geti tapast vegna frekari tafa á afgreiðslu Icesave-samninganna. Þessi spuni stjórnarliða er auðvitað ekkert annað en framhald á þeim hræðsluáróðri, sem rekinn hefur verið frá vori 2009 til þess að fá þing og þjóð til að fallast á full- komlega óviðunandi skilmála vegna þess- ara samninga, sem ekki byggjast á nein- um haldbærum lagalegum forsendum. Hér er líka um að ræða lið í annars konar áróðri stjórnarliða, sem felst í því að af- saka ráðleysi sitt og dáðleysi í öllum öðr- um málum með töfum vegna Icesave. Allt er þetta til þess ætlað draga at- hyglina frá því að lítið hefur þokast í tíð þessarar ríkisstjórnar í þá átt að ná efna- hagslífinu upp úr öldudalnum. Það ætti út af fyrir sig að vera verðugt rannsókn- arefni fyrir reiknimeistara Seðlabankans eða aðra hagfræðinga að leggja mat á hve mörg störf hafa nú þegar tapast eða munu tapast á næstu mánuðum vegna aðgerða eða aðgerðaleysis stjórnvalda. Það mætti til dæmis skoða hvaða áhrif það hefur haft á atvinnuástandið að halda uppi gríðarlega háu vaxtastigi á sam- dráttartímum. Hefðbundin viðhorf í hag- fræði gera ráð fyrir því að háum vöxtum sé beitt gegn þenslu en lágum vöxtum til að örva hagkerfi í niðursveiflu. Hér á landi er í gangi tilraun í peningamálum, sem gengur út á hið gagnstæða. Einnig mætti leggja mat á það hvort gríðarlegar skattahækkanir á almenning og fyr- irtæki séu til þess fallnar að örva efna- hagslífið. Auðvitað sjá allir að áhrifin eru þveröfug. Hækkun tryggingagjalds stór- eykur til dæmis kostnað fyrirtækja af því að hafa fólk í vinnu. Hækkun á fjár- magnstekjuskatti fælir fjárfesta frá því að leggja fé í atvinnurekstur. Hækkun tekjuskatta einstaklinga og fyrirtækja dregur úr getu þeirra til að standa í skil- um vegna skuldbindinga og hefur um- talsverð áhrif á bæði neyslu þeirra og fjárfestingar. Hækkun óbeinna skatta eykur svo enn á þessi áhrif og dregur stórlega úr veltu í samfélaginu. Svona má lengi telja. Skyldu þessar aðgerðir rík- isstjórnarinnar vera til þess fallnar að fjölga störfum eða er hugsanlegt að þær fækki þeim stórlega? Þá eru ótalin áhrif þess stjórnmálalega og stjórn- sýslulega vandræðagangs, sem tafið hefur mánuðum saman fyrir stórfram- kvæmdum, einkum á sviði orkunýtingar. Á það jafnt við um framkvæmdir sem löngu voru ákveðnar og þær, sem enn eru á undirbúningsstigi. Pólitísk óvissa og beinn fjandskapur ann- ars stjórnarflokksins og hluta hins við alla uppbyggingu í þeim geira er að sjálf- sögðu ekki til þess fallinn að auka mönn- um bjartsýni varðandi fjölgun atvinnu- tækifæra á næstunni. Neikvætt viðhorf núverandi rík- isstjórnar til atvinnulífsins er reyndar sérstakt áhyggjuefni, einmitt á tímum sem þessum þegar samstarf stjórnvalda, fyrirtækja og launþega er mikilvægara en verið hefur um langt árabil. Rík- isstjórnin virðist engan veginn átta sig á því að aukinn hagvöxtur og verðmæta- sköpun í atvinnulífinu er forsenda þess að unnt verði að ná landinu út úr krepp- unni. Án þess verður ekki hægt að fjölga störfum, auka kaupmátt og bæta lífskjör. Verðmætasköpun í atvinnulífinu er líka forsenda þess að tekjur ríkisins aukist og unnt verði að standa vörð um sameig- inleg verkefni og velferðarþjónustu til frambúðar. Það er skammgóður vermir fyrir ríkissjóð að hækka skattprósentur hvað eftir annað ef skattstofnarnir – tekj- urnar og veltan í samfélaginu – dragast stöðugt saman. Þegar á allt þetta er litið blasa við þær spurningar, sem getið var um hér í upp- hafi: Hve mörg störf hafa tapast vegna stefnu núverandi ríkisstjórnar og hversu mörg störf gætu tapast á næstu miss- erum verði hún áfram við völd? Eftir Birgi Ármannsson »Hve mörg störf hafa tapast vegna stefnu nú- verandi ríkisstjórnar og hversu mörg störf gætu tapast á næstu misserum, verði hún áfram við völd? Birgir Ármannsson Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hve mörg störf tapast vegna ríkisstjórnarinnar? AÐ STANDA vörð um grunnþjón- ustu, gjaldskrár og störf hefur verið meginmarkmið borgaryfirvalda frá því haustið 2008. Strax þá einsetti borgarstjórn sér að leiðarljós Reykja- víkur næstu misseri skyldi vera að standa með borgarbúum og leita allra leiða til hagræðingar, áður en sótt yrði aukið fjármagn til íbúa sjálfra og útgjöld heimilanna hækkuð. Stað- reyndir um lága skattheimtu og lág þjónustugjöld í Reykjavík staðfesta að þessi ákvörðun var farsæl, mark- miðin hafa náðst og niðurstaðan er sannarlega borg- arbúum í hag. Þannig hafa gjaldskrár fyrir grunn- þjónustu verið óbreyttar í nærri tvö ár, auk þess sem skattar hafa ekki verið hækkaðir og álögur því um- talsvert lægri í Reykjavík en í mörgum öðrum sveit- arfélögum. Lág leikskólagjöld Í dag njóta um 6.000 börn þjónustu leikskólanna í Reykjavík. Gjaldið fyrir þessa þjónustu skiptir því mjög margar fjölskyldur miklu máli. Við upphaf kjör- tímabilsins voru leikskólagjöld í Reykjavík lækkuð um 25%, auk þess sem tekinn var upp 100% systk- inaafsláttur, sem þýðir að foreldrar greiða aðeins dvalargjald fyrir eitt barn óháð fjölda barna sem sækja leikskóla. Mánaðargjald fyrir leikskóla (dvalar- og mat- argjald), miðað við átta klukkustundir á dag, er nú 20.655 krónur í Reykjavík en fer yfir 30 þúsund krón- ur í mörgum öðrum sveitarfélögum. Að auki er sér- stök gjaldskrá fyrir fimm ára börn, sem greiða lægra gjald, og einstæðir foreldrar, námsmenn og öryrkjar greiða mun lægra gjald eða 40-75% af dvalargjaldi. Reykjavíkurborg er eitt af fáum sveitarfélögum sem bjóða 100% systkinaafslátt fyrir annað barn. Þetta þýðir að hjón með tvö börn í átta tíma vistun á leikskóla greiða aðeins 26.878 krónur á mánuði en til samanburðar má nefna að í öðrum sveitarfélögum fer gjaldið fyrir tvö börn víða vel yfir 40.000 krónur á mánuði. Á sama tíma hefur ánægja foreldra með leikskóla Reykjavíkur aukist en samkvæmt nýlegri könnun eru 95% foreldra ánægð með leikskóla borgarinnar. Lág gjöld fyrir skólamáltíðir og frístundaheimili Tæplega 14.000 börn stunda nám í grunnskólum borgarinnar en af þeim nýta 84% sér daglega heita máltíð í skólanum í hádeginu. Gjald fyrir skóla- máltíðir var samræmt og lækkað og kostar hver mál- tíð nú 250 krónur, sem er lægsta gjald á höfuðborg- arsvæðinu. Mánaðargjald á frístundaheimilum á höfuðborg- arsvæðinu er einnig lægst í Reykjavík. Fyrir þrjá tíma á dag og síðdegishressingu greiða foreldrar í Reykjavík 10.515 krónur en gjaldið getur verið nærri tvöfalt hærra í öðrum sveit- arfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður nýlegrar viðhorfskönn- unar meðal foreldra grunnskólabarna í Reykjavík sýna vaxandi ánægju þeirra með grunnskólann. Þá eru foreldrar ánægðari nú en fyrir tveimur árum með aðstæður barna sinna til að matast í skól- anum svo og með þann mat sem boðið er upp á í mötuneytum skólanna. Níu af hverjum tíu telja gjaldið fyrir skóla- máltíðir vera sanngjarnt. Í upphafi þessa kjörtímabils, eftir 12 ára valdatíma vinstrimanna í Reykjavík, var útsvarið í höfuðborginni í hámarki. Á þessu kjör- tímabili hefur áherslan verið önnur og hafa skattar ekki verið hækkaðir undanfarin fjögur ár. Reykjavík nýtir sér þannig ekki hámarksheimild til skatt- heimtu, enda hefur núverandi meirihluti lagt áherslu á að hagræða í rekstri borgarinnar fremur en að seil- ast dýpra í vasa íbúa. Fasteignaskattsprósentan af íbúðarhúsnæði var lækkuð á kjörtímabilinu úr 0,25% af fasteignamati í 0,214%. Þetta þýðir t.d. að ef miðað er við vísitölu- fjölskyldu Hagstofunnar sem býr í 125 fermetra íbúð og mat fasteignar og lóðar er 18,8 m.kr., kemur í ljós við samanburð á fasteignagjöldum á höfuðborg- arsvæðinu, að þau eru lægst í Reykjavík, að Seltjarn- arnesi einu undanskildu. Þá hafa viðmið fyrir tekju- lága eldri borgara og öryrkja verið hækkuð þannig að þeir njóta aukins afsláttar af fasteignagjöldum. Í þágu borgarbúa Eins og vel má sjá af þessari stuttu samantekt hafa aðgerðir núverandi borgarstjórnar haft veruleg áhrif á hag þeirra sem búa í höfuðborginni. Ýmis þjónustugjöld fyrir barnafjölskyldur eru nú með því lægsta sem þekkist og engir skattar á íbúa hafa verið hækkaðir. Hvað varðar lága skattheimtu og lág þjón- ustugjöld er höfuðborgin því aftur komin í forystu. Og þannig á það að vera áfram. Reykjavík er lang- stærsta sveitarfélagið og á sem slíkt að geta boðið fyrsta flokks þjónustu á verði sem stenst samanburð við önnur sveitarfélög. Þetta hefur tekist á und- anförnum árum. Á sama tíma hefur ánægja með þjónustu Reykjavíkurborgar aukist. Það eru já- kvæðar staðreyndir sem skipta máli fyrir alla borg- arbúa. Eftir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur Hanna Birna Kristjánsdóttir Lágir skattar og lág þjónustugjöld fyrir Reykvíkinga Höfundur er borgarstjóri. » Ýmis þjónustugjöld fyrir barnafjölskyldur í Reykjavík eru nú með því lægsta sem þekk- ist og engir skattar á íbúa hafa verið hækkaðir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.