Morgunblaðið - 01.04.2010, Síða 22

Morgunblaðið - 01.04.2010, Síða 22
22 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2010 ÞEGAR kreppa eins og sú sem við upp- lifum nú ríður yfir þjóðfélagið verður að snúast til varnar. Sýna staðfestu og hugrekki. Vopnin sem við höfum eru náttúruauðlindir okkar, atvinnutæki sem til eru á landinu og mannauðurinn. Allt þetta verður að nýta. Það er í mörgum til- vikum hægt að gera án mikils til- kostnaðar. Í sjávarútvegi eru til vinnufúsar hendur, verksvit, skip, hafnir, fiskvinnsluhús og markaðir. Allt er þetta illa nýtt. Á meðan verður þjóðin af miklum verðmæt- um. Á sama tíma er ljóst að ára- tugalöng friðunarstefna stjórnvalda og Hafró, í náinni samvinnu við for- ystu LÍÚ og sjómannasamtakanna, hefur skilað veiðiheimildum flestra nytjastofna í sögulegu lágmarki. Þegar fylgst er með ótrúlegum gunguskap fjölmargra íslenskra stjórnmálamanna þeg- ar kemur að nýtingu fiskistofna, verður manni oft hugsað til Barentshafsins. Þar stjórna Norðmenn og Rússar veiðum í sam- einingu. Í Barentshafi hafa menn um margra árabil stundað veiðar sem eru verulega um- fram ráðgjöf fiskifræðinga. Enda er alvitað að mælingar þeirra eru háð- ar mikilli óvissu og hvergi jafn full- komnar og þeir vilja vera láta. Þær tölur sem fræðingarnir lenda á í sinni ráðgjöf eru mjög varfærnisleg nálgun á stöðuna eins og þeir meta hana. Skoðum aðeins meðfylgjandi töflu. Hún sýnir ráðgjöf fiskifræð- inga um þorskveiðar í Barentshafi frá árinu 2000 til yfirstandandi árs í þúsundum tonna. Heildarkvóti hvers árs eins og hann er ákveðinn af norskum og rússneskum stjórn- völdum, er svo í aftasta dálkinum. Fyrir þetta ár (2010) var kvótinn settur 607.000 tonn. Ráðgjöf fiski- fræðinga hljóðaði upp á 577.000 tonn. Síðan árið 2000 hafa fiski- fræðingar ráðlagt að veiddar yrðu samtals 3.981.000 tonn af þorski í Barentshafi. Stjórnmálamennirnir sem hafa umboðið til að stjórna og þora það hafa hins vegar gefið út kvóta upp á samtals 5.003.000 tonn. Hér munar því um milljón tonnum á milli ráðgjafar og útgefinna þorskkvóta. Við þetta hafa síðan bæst veiðar sem ekki hafa verið skráðar til kvóta. Sú tala er nokkuð á reiki en gæti hafa verið veruleg, sum árin að minnsta kosti. Miðað við þetta ætti þorskstofn- inn í Barentshafi að hafa verið of- veiddur um milljón tonn hið minnsta á síðustu tíu árum. Hefur þetta bitnað á stærð þorskstofns- ins? Svarið er nei. Hann hefur sjaldan verið stærri. Þorskkvótinn í ár er meiri en nokkru sinni fyrr á þessu tímabili. Hefur þessi meinta ofveiði bitnað á alþjóðlegum orðstír Norðmanna og Rússa sem fisk- veiðiþjóða? Svarið er nei. Ekkert hefur bólað á því að þeir hafi lent í neinum vandræðum vegna þessa. Hér á Íslandi er hnípin þjóð í vanda sem líður fyrir kjarkleysi eigin stjórnmálamanna. Atvinnu- tækin eru bundin við bryggjur og fullfrískt fólk látið mæla göturnar með hendur í vösum. Á sama tíma er einmunablíða á miðunum við landið dögum saman um hávertíð- ina. Sjómenn greina frá mikilli fisk- gengd og engin ástæða til að rengja þau orð. Hvernig væri nú að taka mið af reynslunni úr Barentshafi í bland við öll hin rökin sem mæla með því að veiðiheimildir verði auknar? Þorskveiðar og reynslan úr Barentshafi Eftir Magnús Þór Hafsteinsson »Hér munar því um milljón tonnum á milli ráðgjafar og útgef- inna þorskkvóta. Við þetta hafa síðan bæst veiðar sem ekki hafa verið skráðar til kvóta. Magnús Þór Hafsteinsson Höfundur er fiskifræðingur og fyrrverandi alþingismaður. ÞAÐ ER óhugn- anlegt að innan bank- anna sé byrjað að heimta endurreisn bónusmenningarinnar sem átti sinn þátt í hruni þeirra. Bónus- kerfið var siðspillandi hvati að ábyrgð- arlausum ákvörð- unum fjármálasnill- inga bankanna sem verðlaunaði skamm- tímagróða fram yfir langtíma- hagnað. Nú þegar skattborgarar hafa með massífum gjörgæsluað- gerðum fjármagnað skyndihjálp fyrir bankana, eru þeir sem næst- um lögðu landið í rúst á ný til- búnir með danskortin. „Tap, jafnvel vegna óheppni, fjarlægir hina minnstu réttlætingu fyrir bónusgreiðslum,“ hafa Jón Daníelsson og Con Keating skrif- að. „Það versta við þessi rök [fyrir bónusgreiðslum] er að þau gefa til kynna bankastjórnir sem trúa því að framtíð bankanna sé eins og hún var [á árunum fyrir hrun].“ Það er svo margt rangt við bónusgreiðsluhugmyndirnar að maður veit varla hvar skal byrja. 1. Notkun almannafjármuna til bónusgreiðslna er siðferðislega óverjandi. Nú þegar bankarnir eiga tilvist sína að þakka skattfé almennings, en ekki fúsum fjárfestum, er einfaldlega siðlaust að ætlast til að fá bón- usgreiðslur, ég tala nú ekki um þegar þús- undir ganga atvinnu- lausar í kjölfar hruns- ins. Efnahagur þjóðarinnar er enn á ystu nöf, fólk flykkist burt af landinu, þjón- usta hins opinbera síminnkar og við horf- um fram á enn meiri samdrátt. Hver einasta króna sem bankakórinn fær er króna úr vasa einhvers Íslendings sem virkilega þarf á henni að halda. 2. Bónusar eru ekki nauðsyn- legir til að halda í starfsmenn. Í dag er fullt af atvinnulausu bankafólki á Íslandi (og annars staðar). Ef bankamönnum líka ekki núverandi launakjör sín er þeim frjálst að opna sinn eigin banka (með eigin fjármagni) eða að finna sér aðra betur launaða atvinnu. Ég get ímyndað mér atvinnuviðtal þeirra við fyrirtæki í New York eða London: „Já, fyrrverandi at- vinnurekandi minn fór hrottalega á hausinn, ég átti þátt í því … Gefðu mér endilega tækifæri til að sýna hvað í mér býr!“ Tilhugsunin um þessa ósáttu, eirðarlausu banka- snillinga, hugsandi eins og Scar- lett: „Hvert á ég að fara, hvað á ég að gera?“ nema þeir fái bónus- greiðslur, minnir mann á svar Rhetts Butlers: „Satt best að segja góða mín, mér er fjandans sama.“ 3. Það er ekkert sem réttlætir það að borga bankastjórnendum meira en öðru fagfólki. Er okkur, sem þjóð, eitthvert gagn í því að hæfileikamesta fólkið okkar fari allt í bankastarfsemi frekar en til dæmis læknisfræði, verkfræði eða kennslu? Ég skil þörfina á því að hafa fjármagn til að stofna ný fyrirtæki og stækka þau sem vel ganga, en veltur ekki framtíð okkar á meiru en að taka peninga úr einum vasa og setja þá í annan, sem er í raun það sem bankastarfsemi snýst um? Þurfum við ekki á alls konar fagfólki að halda til að vera samkeppnisfær meðal annarra þjóða? Hvers vegna ekki að verðlauna vísindamenn, lækna, kennara, hönnuði með bón- usum? Hvað er svona sérstakt við bankastjórnendur á Íslandi (annað en það að þeir hafa sett þjóðina á hausinn)? 4. Bónuskerfið var í eðli sínu spillt. Bónuskerfi bankanna hvatti til framleiðslu sviksamlegra bók- haldspappíra og annarra misvís- andi aðgerða til að slá ryki í augu greiningaraðila og fjárfesta. Nema nýtt bónuskerfi fylgi dæmi Gold- man Sachs – greiði hlutafé (en ekki reiðufé) og krefjist að við- komandi sé í starfi hjá bankanum í langan tíma (a.m.k. fimm ár) áð- ur en unnt er að selja hlutaféð – verðum við komin í nákvæmlega sömu ógæfusporin og fyrir hrun. Ef bankamenn eru reiðubúnir að skila þeim bónusgreiðslum sem þeir fengu fyrir hrun (sem þeir greinilega verðskulduðu ekki), þá og aðeins þá er hægt að athuga með bónusgreiðslur í framtíðinni. 5. Það eru engin rök fyrir virkni bónusgreiðslna. Eru bankastjórnendur að segja okkur að þeir séu ekki að gera sitt besta? Þurfa þeir virkilega þessar aukagreiðslur til að geta skilað af sér hámarksárangri? Það hefur aldrei verið sýnt fram á já- kvætt samband milli bónusa og kerfisbundins árangurs – reynslan hefur þvert á móti leitt annað í ljós. 6. Þið eruð ekki eins gáfuð og þið haldið. Bankastjórnendur virðast álíta að þeir eigi skilið hærri þóknun en nokkrar aðrar starfsstéttir því þeir séu svo sérstakir. Ég hef bara eina spurningu fyr- ir þá: Ef þið eruð svona ári hæfi- leikarík, hvernig útskýrið þið þá bankahrunið? Jared Bibler hjá FME benti á hér í Morgunblaðinu að hrun bankanna þriggja myndi jafngilda þriðja stærsta gjaldþroti Ameríku, fyrr og síðar. Þið hafið lagt þjóðina í rúst. Manni er spurn – eins og bandaríska lögmanninum Joseph Welch sem spurði öldungadeild- arþingmanninn og nornaveiðarann Joseph McCarthy: „Hefur þú enga sómatilfinningu … eftir allt sem á undan er gengið? Hefurðu ekki nokkra einustu sómatilfinn- ingu?“ Banvænn bónuskúltúr bankanna Eftir Írisi Erlingsdóttur »Ef bankasnilling- unum líka ekki nú- verandi launakjör sín er þeim frjálst að opna sinn eigin banka (með eigin fjármagni) eða að finna sér aðra atvinnu. Íris Erlingsdóttir Höfundur er fjölmiðlafræðingur. V i n n i n g a s k r á 48. útdráttur 31. mars 2010 A ð a l v i n n i n g u r Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 7 2 2 2 V i n n i n g u r Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 8 2 9 6 2 0 7 0 5 3 5 1 5 2 4 6 4 8 2 V i n n i n g u r Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 6061 9647 25367 45333 60220 71606 7160 12462 31559 55235 60888 72137 V i n n i n g u r Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) 9 5 0 8 3 4 1 1 9 1 0 0 2 7 0 9 8 4 2 0 3 8 5 4 9 4 8 6 4 0 4 9 7 2 1 8 1 9 8 0 8 3 4 3 1 9 3 3 1 3 2 0 6 7 4 2 6 2 2 5 5 1 5 4 6 4 1 7 2 7 3 8 0 1 1 1 0 0 9 3 3 4 2 1 4 2 7 3 2 2 5 4 4 3 7 1 7 5 5 6 5 1 6 4 4 1 4 7 3 8 6 8 1 3 5 9 9 7 1 0 2 1 9 2 9 3 4 6 0 8 4 5 1 8 7 5 6 0 9 8 6 5 0 3 3 7 5 3 4 9 1 7 3 5 1 0 1 1 2 2 2 2 1 6 3 5 4 1 0 4 7 4 3 4 5 6 7 3 6 6 5 5 5 3 7 6 6 1 4 3 1 6 3 1 0 6 2 7 2 2 7 6 9 3 5 4 4 5 4 9 1 7 2 5 6 9 1 0 6 6 3 6 4 7 7 2 1 9 3 6 9 8 1 1 0 9 3 2 3 5 7 1 3 6 7 5 6 5 0 9 3 3 5 7 0 8 3 6 7 5 2 3 7 7 9 4 3 3 8 2 7 1 1 1 3 5 2 4 1 9 8 3 7 1 6 8 5 1 1 8 5 5 7 4 3 3 6 8 4 0 2 7 9 3 9 5 3 8 4 5 1 3 1 5 6 2 4 7 6 3 3 7 4 9 5 5 1 3 9 8 5 8 7 7 6 6 8 4 2 8 7 9 4 8 8 5 4 9 4 1 4 1 7 8 2 5 5 4 5 3 9 0 2 5 5 1 7 6 2 5 8 8 5 2 6 8 6 9 8 5 9 3 3 1 4 1 8 0 2 5 9 9 3 3 9 0 8 5 5 2 7 7 3 6 2 5 2 8 7 0 9 3 9 7 8 5 4 1 5 6 2 6 2 6 2 1 3 3 9 2 6 3 5 3 2 3 8 6 3 1 2 2 7 1 3 5 5 7 9 6 1 1 5 9 3 8 2 6 7 3 6 3 9 5 4 7 5 4 0 8 1 6 3 3 7 9 7 2 0 6 2 V i n n i n g u r Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur) 6 6 8 2 8 0 1 7 2 9 1 2 5 9 9 9 3 5 5 3 5 4 6 9 4 8 5 7 9 2 6 7 2 2 1 3 7 1 8 9 3 2 1 7 3 9 2 2 6 0 6 0 3 5 8 8 6 4 7 1 5 7 5 9 0 2 4 7 2 4 3 5 4 2 1 9 6 2 6 1 7 5 4 3 2 7 9 6 4 3 6 4 0 5 4 7 3 2 9 5 9 8 8 7 7 2 5 5 8 5 0 3 1 0 9 0 4 1 7 7 0 9 2 8 3 0 6 3 6 7 2 3 4 7 4 8 5 6 0 1 4 2 7 3 3 0 4 5 2 9 1 1 1 8 3 1 7 9 8 2 2 8 6 6 4 3 7 8 8 1 4 8 0 8 3 6 0 4 4 6 7 3 3 0 7 6 7 2 1 1 1 9 7 1 8 1 3 0 2 8 6 7 8 3 7 9 1 4 4 8 6 3 2 6 0 9 7 8 7 3 5 1 3 1 2 4 2 1 1 3 9 1 1 8 2 7 0 2 8 8 5 3 3 8 1 0 4 4 9 8 1 5 6 1 0 3 1 7 3 5 7 2 1 2 8 5 1 1 4 1 8 1 8 5 6 7 2 8 9 6 2 3 8 4 6 1 4 9 8 5 0 6 1 1 1 4 7 4 0 4 0 1 6 5 5 1 2 4 8 8 1 8 7 8 1 2 9 0 7 9 3 8 4 6 3 5 0 0 4 8 6 2 2 3 9 7 4 3 3 3 2 4 1 0 1 2 6 5 8 1 9 1 0 1 2 9 2 4 9 3 9 0 5 0 5 0 3 9 6 6 2 5 3 5 7 4 7 3 3 2 5 3 6 1 3 5 2 5 1 9 1 3 8 2 9 3 8 2 3 9 1 2 4 5 0 5 5 5 6 2 8 6 2 7 4 7 3 4 2 7 3 7 1 3 9 9 6 1 9 2 2 8 2 9 4 0 3 3 9 3 9 3 5 0 9 1 6 6 3 7 0 5 7 5 1 5 1 3 6 3 5 1 4 1 0 5 1 9 3 6 2 3 1 1 5 7 4 0 0 6 4 5 1 0 5 4 6 4 1 4 8 7 5 2 9 8 3 9 2 8 1 4 1 1 0 1 9 4 7 0 3 1 2 7 4 4 0 2 4 8 5 1 3 4 2 6 4 2 0 7 7 5 4 9 4 4 0 3 9 1 4 3 3 9 2 0 2 7 0 3 1 4 1 0 4 0 3 4 7 5 2 0 3 1 6 4 7 5 9 7 5 8 1 5 4 0 8 3 1 4 4 3 7 2 0 5 6 4 3 1 5 5 8 4 0 3 8 3 5 2 2 6 9 6 4 9 3 1 7 5 9 0 3 4 8 4 9 1 4 4 9 8 2 0 5 6 7 3 1 6 2 3 4 0 9 8 7 5 2 8 7 7 6 4 9 9 3 7 6 1 4 4 5 2 1 2 1 4 5 7 0 2 1 2 9 6 3 1 7 1 8 4 1 4 2 8 5 2 9 6 6 6 5 6 6 1 7 6 1 7 0 5 3 5 9 1 4 8 3 2 2 1 3 6 4 3 1 7 4 4 4 2 1 9 7 5 3 2 9 6 6 6 2 3 9 7 7 0 6 0 5 4 8 9 1 4 8 5 0 2 1 4 7 3 3 1 7 4 6 4 2 2 0 5 5 3 7 2 1 6 6 5 1 9 7 7 3 5 1 5 7 7 7 1 4 8 7 9 2 1 7 5 8 3 2 1 6 4 4 2 8 1 4 5 3 7 8 4 6 6 6 5 1 7 8 3 3 5 5 8 8 0 1 5 1 3 8 2 1 9 3 5 3 2 2 1 3 4 3 2 2 6 5 4 0 4 5 6 7 0 1 3 7 9 1 6 6 5 8 9 2 1 5 2 9 6 2 2 2 2 5 3 2 2 7 8 4 3 7 0 5 5 4 5 8 5 6 7 0 4 0 7 9 3 1 0 6 3 4 0 1 5 4 2 0 2 2 3 3 0 3 2 8 1 5 4 4 5 1 0 5 4 8 0 3 6 7 3 6 1 7 9 5 9 5 6 4 4 9 1 5 6 2 1 2 2 7 4 1 3 3 0 4 2 4 4 6 2 8 5 5 0 7 7 6 7 3 9 2 7 9 8 1 2 6 6 7 0 1 5 6 6 8 2 3 1 2 3 3 3 1 4 6 4 4 6 7 1 5 5 9 5 3 6 8 6 5 0 7 9 8 3 2 6 6 7 9 1 5 8 1 9 2 3 8 1 8 3 3 1 6 4 4 5 0 0 7 5 6 3 7 0 6 9 7 6 6 6 9 6 6 1 5 9 3 7 2 3 9 4 3 3 3 5 1 8 4 5 1 1 2 5 6 5 7 8 7 0 3 7 5 7 1 5 4 1 6 1 7 7 2 4 3 0 5 3 3 6 3 3 4 5 4 8 3 5 6 6 4 5 7 1 2 1 3 7 1 9 5 1 6 7 3 3 2 4 4 0 2 3 4 4 0 7 4 5 7 0 6 5 7 3 6 7 7 1 2 6 8 7 9 4 0 1 6 8 7 5 2 5 1 8 7 3 4 5 2 1 4 6 2 6 2 5 7 4 2 4 7 1 3 2 9 7 9 9 7 1 6 9 9 6 2 5 6 5 6 3 5 0 4 3 4 6 6 6 0 5 7 6 5 7 7 1 6 5 0 Næstu útdrættir fara fram 8. apr, 15. apr, 21. apr & 29. apr 2010 Heimasíða á Interneti: www.das. MORGUNBLAÐIÐ birtir alla útgáfudaga aðsendar um- ræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í um- ræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða sam- taka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem þurfa að senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Formið er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is. Móttaka að- sendra greina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.