Morgunblaðið - 01.04.2010, Síða 23

Morgunblaðið - 01.04.2010, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2010 NÝLEGA var lagt fram á Al- þingi frumvarp, ekki samt í fyrsta sinn held- ur fimmta, sem taka á af öll tví- mæli um blátt bann við áfeng- isauglýsingum, útúrsnúning þessa hafa menn af ósvífni nýtt sér, oft með ótrúlegum hætti. Þau Ögmundur Jónasson og Þuríður Backman eru flutningsmenn þessa þarfa frumvarps þar sem lagt er til að við fetum í fótspor Norð- manna um algjört fortaksleysi á banninu. Þingmönnunum færa Bindind- issamtökin kærar þakkir og hvetja alþingismenn til að sýna nú þroskamerki og samþykkja frum- varp þeirra. Við mörg hver teljum raunar að bannið sé fortakslaust nú þegar, en þar sem yfirvöld láta hin augljósu lagabrot viðgangast, þrátt fyrir dóma hér um, þá verð- ur að bregðast hér við svo sem þingmennirnir hafa lagt til. Áhrif áfengisauglýsinga hvers konar eru samkvæmt rannsóknum mest á þá ungu og ómótuðu. Ef menn þrátt fyrir allt efast hér um þá ættu menn að kynna sér grein sem Anna Hulda Norðfjörð hefur þýtt úr tímaritinu The Globe og birt er nú í IOGT fréttum þar sem kynnt er lokaniðurstaða Lands- sambands æskulýðsfélaga á Ír- landi í nýrri rannsókn á þeirra vegum sem þeir kalla: „Náið þeim ungum“. Náið þeim ungum er sem sé æðsta boðorð þeirra markaðs- manna er auglýsa áfengi, þar sem öllum brögðum er beitt, þar sem allt er gjört til að gylla og fegra, en varast að segja sannleikann um áhrifin. Er nema von að manni hitni í hamsi þegar sá tilgangur er helgar aðferðirnar er dreginn í dagsljós fram? Greinina í heild sinni má nálgast á netinu: Bind- indissamtökin IOGT, www.iogt.is . Og sem ég nú tölvuset þetta til- skrif berst mér í hendur sérrit Fréttablaðsins sem ber hið „fagra“ heiti: Vín og veislur, með að sjálfsögðu vínið í forgangi, þar sem þrábent er á þá „nauðsyn“ eða hitt þó heldur, að venjulegs veizlumatar geti fólk því aðeins neytt, að það lepji eitthvert áfeng- issull með. Og vitanlega er hér um að ræða eina birtingarmynd þess lagabrots að auglýsa áfengi og að manni hvarflar spurningin um það, hversu vel hefur verið borgað af söluaðilum. Og vínið er víða lof- sungið án allra fyrirvara. Einhver vínvitringurinn segir m.a. í Morg- unblaðinu: „að vínið geti jafnvel dregið einföldustu máltíð upp á hærra plan“, og þá veit maður hvað maður á að hafa með hafra- grautnum. En allt er þetta svo sem ekkert sérstakt, því margan mat- reiðsluþáttinn rekst maður á t.d. í sjónvarpi þar sem liggur við að slefað sé yfir áfengistegundunum sem „verða“ að vera með matnum og að hvarflar sem áður hversu greitt sé fyrir. Og einmitt þarna liggur hundurinn grafinn, pen- ingahundurinn, sem svo margir láta undan í auðmýkt, af þeim hundum á áfengisauðvaldið gnægð og nýtir þá til hins ýtrasta, ekki hvað sízt á unga fólkið, með fag- urgala fláttskaparins í öndvegi. Það er skylda alþingismanna að hjálpa þeim ekki til við þá óþverraiðju. Þess vegna reynir á þroska þingmanna svo sem minnt er á í fyrirsögn þessa grein- arkorns. HELGI SELJAN, form. fjölmiðlanefndar IOGT. Reynt á þroska þingmanna Frá Helga Seljan Helgi Seljan BRÉF TIL BLAÐSINS HVAÐ vakir fyrir Árna Páli Árnasyni með nýjasta útspili sínu? Fróðlegt væri að fá skýringu honum um nauðsyn þess að halda dómstólum frá, þegar úrskurður á æðra dómstigi nálg- ast. Árni, sem nú tek- ur fram fyrir hendur samráðherra sinna, er enn lagstur í pólitískt keiluspil með kollegum sínum í stjórnmálastétt. Að þessu sinni að því er virðist til að tryggja hagsmuni banka og fjármögnunarfyrirtækja á kostnað almennings. Yfirlýsingar ráð- herrans gefa til kynna ölm- usugreiða við lántakendur. Talað er um niðurfærslu höfuðstóls og látið skína í að þeir sem tóku bíla- lán hafi almennt reist sér hurðarás um öxl með óhóflegum lántökum. Almenningur þarf enga ölmusu eða niðurfærslu höfuðstóls, heldur leiðréttingu, en þó fyrst og fremst starfhæfar eftirlitsstofnanir og embættismenn sem vinna í þágu almennings og taka á augljósum brotum og sinna starfi sínu. Í stað þess að ýja að ábyrgðarleysi al- mennings, ætti Árni Páll og stjórn- málastéttin því að leita skýringa í eigin ranni sem og pólitískt skip- aðra embættismanna er brugðust í starfi að ógleymdum stjórnendum fjármálafyrirtækja í aðför að lán- takendum. Spilling? Siðblinda? Getuskortur? Fjölskyldutengsl? Flokkstengsl? Skýringa er að leita í öllu framantöldu, enda um al- gengan íslenskan kokteil að ræða þar sem stjórnmálastétt og við- skiptalíf busla saman í forarpytt- inum. Það er stjórnvalda að taka á málum með núverandi úrræðum og lögum. Það stoðar ekki að búa til enn eitt málamynda-embættið. Það hjálpar engum nema lögbrjótunum og þeim er sannarlega reistu sér hurðarás um öxl með háum lántök- um. Boðuð lausn hentar engum betur en fjármögnunarfyr- irtækjum, bönkum og stórskuld- urum, enda slær hún þrjár flugur í einu höggi: Árni Páll slævir lýðinn tímabundið, fjármála- fyrirtækin fá áfram frið til að blóðmjólka lántakendur, auk þess sem lögbrjótarnir sleppa við yfirvofandi dóma og samningsrift- anir. Spuninn með Deutsche Bank er slappur, enda á bank- inn helst kröfu á for- svarsmenn Lýsingar er plötuðu bankann til að lána gegn veði í ólöglegum gjörn- ingum. Hvað með Neytendastofu, má ekki koma þeirri stofnun í starfhæft ástand, ellegar leggja niður og spara ríkinu fé? Tals- maður neytenda, sem væntanlega er þar með „talsmaður skuldara“ var mýldur af Gylfa Magnússyni viðskiptaráðherra um daginn og kýs að taka óþekkta hagsmuni fram yfir hagsmuni eigin umbjóð- enda með þögninni. Fjármálaeft- irlitið er helsta skjól og varnarþing fjármálafyrirtækja sem brjóta á neytendum, enda sofnar allt sem þangað er tilkynnt. Fjármögnunarfyrirtækin sem nú skal bjarga undir því yfirskini að um ölmusu til lántakenda sé að ræða eru meðal annars sökuð eða sek um: Að selja almenningi óskráðar afleiður dulbúnar sem lánasamninga, og þar með ítrekuð brot á lögum og tilskipunum um verðbréfaviðskipti. Gróf brot á vaxtaákvæðum samninga, lántak- endum í óhag. Stjórnarskrárbrot í lánaskilmálum. Innlend lán bundin gengi erlendra gjaldmiðla. Vörslu- sviptingar og innheimta einhliða ákveðinna eftirstöðva í krafti ólög- legra samninga. Skjalafals, hvar SP fjármögnun sendi við- skiptavinum sínum ítrekað falsaða samninga, og gerir kannski enn. Ennfremur ber að nefna möguleg skattsvik í ljósi þess að fyrirtækin hafa hvorki gefið út reikninga vegna sölu bifreiða til viðskiptavina í samræmi við eigin samningsskil- mála, né greitt virðisaukaskatt af viðskiptunum. Enginn hefur stöðu grunaðs, enginn er í gæslu- varðhaldi, það er að eins og ekkert hafi í skorist. Fjármálaeftirlitinu, Neytendastofu, efnahags- brotadeild, skattstjóra og stjórn- völdum hefur ítrekað verið bent á ofangreind atriði, án árangurs. Undirritaður tilkynnti sem dæmi afleiðuviðskipti Avant til FME og studdi tilkynninguna gögnum og yfirlýsingum Hróbjartar Jónatans- sonar lögmanns Avant og nýbak- aðs starfsmanns FME. En Hró- bjartur lýsir ítrekað yfir í nýlegri greinargerð til úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki að lán Avant falli ekki undir lög nr. 38/2001 þar sem um afleiðusamn- inga sé að ræða. FME sér ekki ástæðu til frekari eftirgrennslanar þrátt fyrir yfirlýsingar lögmanns- ins og sannanir. Það hlýtur að vera einsdæmi að fjármálaeftirlit lýð- ræðisríkis hunsi staðhæfingar og ábendingar lögmanns lögbrjóts um lögbrot skjólstæðings. Þá er vert að benda á umsögn Guðjóns Rún- arssonar frá árinu 2001, þá fram- kvæmdastjóra SBV og núverandi forstjóra SFF, til Alþingis vegna laga nr. 38/2001 um vexti og verð- tryggingu, hvar skýrt kemur fram að fjármálafyrirtækjum var full- kunnugt um að þeir mættu ekki binda innlend lán við gengi er- lendra gjaldmiðla. Þá bendir Guð- jón Alþingi í sama bréfi á þær leið- ir er síðar voru farnar hvar hann segir orðrétt: „Þá ýtir þetta undir að aðilar fari aðrar og mun áhættusamari leiðir, t.d. með því að gera afleiðusamning sín á milli fremur en almennan lánssamning, en afleiður eru undanþegnar verð- tryggingu sbr. 2. mgr. 13. gr. frumvarpsins“. Árni, hvers vegna mega dómstól- arnir ekki ljúka verkinu? Af hverju lagið þið ekki frekar þær stofnanir sem fyrir eru og látið þær uppfylla lögboðnar skyldur sínar? Opið bréf til Árna Páls Árnasonar Eftir Jón Þorvarðarson » Vill ríkisstjórn Ís- lands búa til enn eina gervilausn og mála- myndaembætti, í stað þess að koma Neyt- endastofu og Fjármála- eftirliti í stafhæft ástand? Jón Þorvarðarson Höfundur er verkamaður. Alla daga frá: 11:00 - 23:00 OPIÐ ALLA PÁSKANA! alltaf í leiðinni! Kirkjustétt Laugavegur Grensás Hraunbær Skipholt Skúlagata Vestmannaeyjar Þverbrekka

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.