Morgunblaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is „AUÐVITAÐ er krökkunum brugðið eftir þetta atvik enda þó svo þau hafi sloppið ómeidd. Án nokkurs vafa er það beltunum að þakka,“ segir Helga Dögg Sverrisdóttir á Akureyri. Hún er móðir 18 ára stúlku sem velti bíl sín- um á þjóðveginum í Kræklingahlíð, skammt norðan við Akureyri, aðfaranótt sumardagsins fyrsta. Fjórir farþegar, auk bílstjóra, voru í bílnum og sluppu allir án meiðsla. Krakkarnir voru að koma af skemmtun í Skagafirði þegar bílinn rann til í hálku og fór tvær og hálfa veltu ofan í skurð við veginn. Þau náðu að smokra sér út úr bílnum og koma sér upp á veg. Þegar lögregla og sjúkralið komu á vettvang þótti nánast ótrúlegt að enginn skyldi slasast, nema hvað einhverjir eru bláir og marðir undan bílbeltunum. Bíllinn, sem er af gerðinni Nissan, er ónýtur eftir velt- una. „Það hefur tekið talsvert á krakkana okkar að að- faranótt laugardagsins varð alvarlegt bílslys á Suður- nesjum þar sem tvær stúlkur létust. Í því samhengi eru þau afar þakklát því að ekki fór verr,“ segir Helga Dögg Sverrisdóttir. sbs@mbl.is Veltu bílnum við Akureyri – allir sluppu ómeiddir  Marin eftir beltin sem björguðu  Fimm þakklát Ónýtur Bíllinn eyðilagðist í veltunni en allir sluppu ómeiddir enda var fólk í beltum sem vörðu við höggið. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ÞRÁTT fyrir að ekkert bendi til loka gossins í Eyjafjallajökli eru teikn á lofti um að gjóska muni ekki raska flugi til og frá landinu á næstu dögum. Allur er þó varinn góður. „Bæði veðurspáin og þær breyttu forsendur sem orðið hafa í rannsóknum á dreifingu gjósk- unnar gefa okkur tilefni til töluverðrar bjartsýni. Það er útlit fyrir að þetta sé allt að koma,“ sagði Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Ice- landair, um útlitið eins og það var í gærkvöldi. „Samkvæmt því sem við höfum verið að vinna að á áætlun að standa í fyrramálið og á morgun og inn í helgina að minnsta kosti,“ sagði Guðjón, en greinilegt var að þungu fargi var af honum létt. Nota daginn til að vinna upp seinkanirnar Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, taldi einnig tilefni til bjartsýni með horfurnar. „Útlitið er mjög gott [í dag]. Við verðum að vinna upp þær seinkanir sem hafa orðið. Það verða því einhverjar seinkanir á morgun, en á föstudag verður þetta komið í samt lag,“ segir Matthías, sem kveðst bjartsýnn um framhaldið. „Ég vona að þessu sé lokið í bili. Mér sýnist að þetta gæti markað lok þessa leiðindatímabils.“ Askan nær nú yfir mjög lítið svæði Gjörbreytt spá um dreifingu gjóskunnar frá Eyjafjallajökli skýrir opnun Keflavíkurflugvallar, en eins og sjá má á kortinu hér til hliðar nær ask- an nú yfir mjög lítið svæði. Hjá Flugstoðum fengust þær upplýsingar að útlitið í dag væri gott og að flug yrði með eðlileg- um hætti. Það ætti bæði við um innanlands- og millilandaflug. Hins vegar gæti verið spurning með flug til Vestmannaeyja: Á ellefta tímanum í gær leit út fyrir að flug til Eyja félli niður í dag. Hlutirnir geta þó breyst hratt og hvetja flug- félögin farþega til að fylgjast með þróuninni. Flug frá Keflavík í eðlilegt horf  Öskuskýið á undanhaldi og flugfélögin anda léttar  Flest bendir til að flug Icelandair frá Keflavík verði á áætlun í dag  Einhverjar tafir hjá Iceland Express fram eftir degi  Óvíst með flug til Eyja Spá um öskudreifingu Heimild: MetOffice Spá umöskudreifingu undir 20.000 fetum,gefin út kl. 18.00 í gær.Gildir til kl. 12.00 í dag. ARION banki vill ekki svara fyrir- spurn Morgunblaðsins um hvort eðlilegt geti talist að fyrrverandi eigendur Haga hafi notið hlunninda og fríðinda á kostnað fyrirtækisins þar til fyrir skömmu. Vísar bankinn í tilmæli Samkeppniseftirlitsins um að fyrirtæki í eigu bankans verði að njóta rekstrarlegs sjálfstæðis. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri eft- irlitsins, segir að ákvörðunin sem um ræðir útiloki ekki að bankar svari fyrirspurnum um fyrri ráðstaf- anir fyrirtækja í þeirra eigu. „Ekki er hægt að víkja sér undan öllum spurningum með vísan í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Ég vil þó ekki leggja dóm á þetta einstaka mál er varðar Haga.“ | Viðskipti Svarar engu um hlunnindi GAS kemur með vatninu undan Gíg- jökli og í gær var sterk gaslykt á svæðinu. Gasið getur verið hættu- legt og ástæða þykir til að vara fólk við að fara inn fyrir jökulgarðana á svæðinu. Vatnsflæði undan jökli jókst í gærmorgun en minnkaði fljótlega. Gufumökkur sást í gær stíga ofarlega úr Gígjökli og telur Magnús Tumi Guðmundsson jarð- eðlisfræðingur líklegast að mökk- urinn stafi frá heitu vatni sem renni frá nýrunnu hrauninu og undir jök- ulinn. Gas og mökk- ur frá Gígjökli „VIÐ sjáum ekki fram á neitt nema dauðann í þessum sjóði. Skulda- staðan er svo ískyggileg og upplýs- ingum er leynt fyrir okkur,“ sagði Jóhann Páll Símonarson sjómaður að loknum miklum hitafundi sjóðs- þega í Gildi – lífeyrissjóði á Grand hóteli í Reykjavík í gærkvöldi. Krafa Jóhanns Páls og hátt í 40 sjóðsþega um að stjórn sjóðsins víki vegna meintra afglapa í umsýslu með fé félagsmanna var felld. Þau tíðindi urðu að Tryggvi Tryggvason sjóðsstjóri sagði starfi sínu lausu en Jóhann Páll og nokkrir sjóðsfélagar höfðu krafist þess að stjórn og framkvæmdastjóri vikju. Að sögn Jóhanns Páls hyggst stjórn sjóðsins svara gagnrýninni bréflega á næstu vikum en sjálfur hefur hann tekið ákvörðun í félagi við nokkra sjóðsfélaga um að beina iðgjöldum sínum annað í mótmæla- skyni við rekstur sjóðsins. Öskuillir félagsmenn „Það var sjómaður sem var svo öskuillur að hann tók gamlan skó og barði honum í fundarborðið. Það kraumar mikil reiði undir niðri. Fólk á ekki orð. Það lét stjórnina heyra það. Ég er ákveðinn í að nú verður farið í herferð gegn stjórninni. Spurningin er hvert við getum farið með okkar fé í framhaldinu.“ Frammíköll og barið í borð á löngum hitafundi lífeyrissjóðsins Gildis í gærkvöldi Sjóðsstjóri Gildis vék úr starfi Morgunblaðið/Golli Hitafundur Vilhjálmur Egilsson, formaður stjórnar í Gildi, og Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri ganga til fundarins. Gildi er með um 40 þúsund sjóðfélaga og 165 þúsund manns eiga rétt á greiðslu úr lífeyrissjóðnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.