Morgunblaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010 SÉRSTAKT samkomulag milli stjórn- valda og Novators, félags Björgólfs Thors Björgólfssonar, var forsenda þess að iðnaðarnefnd afgreiddi frum- varp um heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ. Samkomu- lagið er umdeilt og segir formaður iðn- aðarnefndar að Alþingi verði að skoða hvort ekki beri að setja almennar regl- ur um samskipti við fyrirtæki við- skiptamanna sem tengjast efnahags- hruninu. Þingmaður Sjálfstæðisflokks og nefndarmaður í iðnaðarnefnd telur Novator þvingað til samkomulags og spyr hvaða áhrif það kunni að hafa. Hugmyndin um að Novator falli frá fjárhagslegum ábata af fjárfestingarsamningnum kom fyrst fram í bréfi frá fyrirtækinu til nefndarinnar, að sögn Skúla Helgason- ar, formanns iðnaðarnefndar. „Novator hefur skilning á því að Björgólfur Thor er í viðkvæmri stöðu og ber sína ábyrgð, alla vega siðferðilega.“ Einnig var skoðað hvort ríkið gæti krafist þess að Björgólfur Thor færi út úr fjárfestingunni en Skúli segir að það hefði brotið gegn jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Hann segir í þessu ljósi heillavænlegast að þingið setji við- mið og móti stefnu til að tryggja að jafnt sé tekið á málum ólíkra einstak- linga. Jón Gunnarsson, Sjálfstæðisflokki og nefndarmaður í iðnaðarnefnd, fagn- ar því að frumvarpið hafi loksins verið afgreitt úr nefnd- inni. Hann segir þingið hins vegar kveða upp siðferðisleg- an dóm yfir Björgólfi Thor með samkomulaginu „Ég tel Alþingi komið út á hála braut í löggjöf þegar farið er að þvinga fram samkomulag með þessum hætti. Auðvitað er hægt að segja, að samkomulagið komi til vegna yfirlýs- ingar Björgólfs Thors en hún er að sjálfsögðu gefin út vegna þess að fyrir lá að málið var öðrum kosti stopp.“ Jón hyggst taka málið upp á vettvangi þingsins. andri@mbl.is Setja þarf almennar reglur og móta stefnu Alþingis Í HNOTSKURN »Frumvarpið kom til um-fjöllunar hjá iðnaðarnefnd í upphafi árs. Þar vildu menn m.a. bíða skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis vegna eign- arhluts Novators. »Novator á 21,8% hlut í fyr-irtækinu en með tilkomu nýs hluthafa, þ.e. breska sjóðs- ins Wellcome Trust, minnkar hluturinn verulega. »Um fimmtán prósenta at-vinnuleysi mælist á Suð- urnesjum, hæst á landsvísu.  Samkomulag gert við Novator um að fyrirtækið njóti ekki fjárhagslegs ávinn- ings af fjárfestingarsamningi vegna reksturs gagnavers Verne á Suðurnesjum Jón GunnarssonSkúli Helgason ÚTFÖR Þorvaldar Garðars Kristjánssonar, fv. forseta Alþingis, fór fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær að viðstöddu fjölmenni. Séra Bernharður Guðmunds- son jarðsöng. Karlakór Reykjavíkur söng sem og Sig- rún Hjálmtýsdóttir. Organisti var Jón Stefánsson. Lík- menn voru, í vinstri röð; Davíð Oddsson, Salóme Þorkelsdóttir, Björg Þorleifsdóttir og Helgi Bernódus- son. Í hægri röð; Þorvaldur Garðar Kvaran, barnabarn hins látna, Halldór Blöndal, Friðrik Páll Jónsson og Einar Kristinn Guðfinnsson. Morgunblaðið/Golli Útför Þorvaldar Garðars LÖGREGLAN á höfuðborgar- svæðinu stöðv- aði í vikunni kannabisræktun í húsum í Reykjavík og Kópavogi. Alls fundust 250 kannabisplöntur og voru tveir karlmenn hand- teknir. Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlis- húsi í Breiðholti í fyrrakvöld og við húsleit fundust 200 kannabis- plöntur. Karlmaður á þrítugs- aldri var handtekinn í þágu rann- sóknarinnar og viðurkenndi hann aðild sína að málinu. Sama kvöld stöðvaði lögreglan kannabisræktun í íbúð í fjölbýlis- húsi í Kópavogi og þar fundust 20 plöntur á lokastigi ræktunar. Lögðu hald á 250 kannabisplöntur Kannabis Enn fleiri plöntur. Ríkisútvarpið skilaði hagnaði upp á rúmlega 33 milljónir króna fyrstu sex mán- uði yfirstandandi rekstrarárs, frá 1. september sl. til loka febrúar á þessu ári. Er þetta viðsnún- ingur upp á nærri 400 milljónir króna miðað við sama tímabil á síðasta rekstrarári, þegar tap félagsins var rúmlega 365 milljónir króna. Eignir í lok tímabilsins námu um 5,8 milljörðum króna. 33 milljóna króna hagnaður hjá RÚV RÚV Viðsnúningur í rekstrinum. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „FLUGVÉLIN er í eigu þýsku loftrannsóknarmið- stöðvarinnar og er búin leysitækjum og nemum til að greina ösku. Vélin getur sagt okkur hver stærðar- dreifingin á öskunni er og hún getur flogið að ein- hverju marki inn í ösku, þó ekki mjög mikla ösku,“ seg- ir Haraldur Ólafsson, pró- fessor við Háskóla Íslands, um fyrirhugaðar mælingar á gjóskunni frá Eyjafjallajökli. Fjórða rannsóknarferð þotunnar til Íslands Vélin hefur þrisvar verið notuð við rann- sóknir hér á landi og átti Haraldur frum- kvæðið að komu þotunnar, ásamt Flugstoðum, en hann segir kostnaðinn um 30 milljónir. Þar leið og menn sjá að gildin eru farin að verða eitthvað skuggalega há er hægt að snúa henni við á staðnum. Þetta er ekki eins og ef um væri að ræða farþegaþotu þar sem menn gerðu sér litla grein fyrir loftgæðunum,“ segir Haraldur Ólafsson. af greiði þýska samgönguráðuneytið og breska veðurstofan stóran hluta og segir Haraldur að þegar upp verður staðið muni Íslendingar bera lítinn hluta kostnaðarins. Miklir hags- munir séu í húfi. „Undanfarna daga hafa spárnar sem koma frá bresku veðurstofunni verið nokkuð dökkar og heldur svartsýnni en manni hefur þótt ástæða til að ætla að væri raunsætt miðað við stöðu gossins eins og það er núna. Það hefur ýtt á það að þessi mæling yrði gerð. Aðdrag- andinn er sá að það er kostnaðarsamt að loka loftrýminu og það er gríðarlega brýnt að fá staðfestingu á því hvort um raunverulega hættu sé að ræða. Við fljúgum þotunni í um 6 km hæð og sendum leysigeisla niður í gegnum gosmökk- inn um 50-100 km frá gígnum og síðan flýgur hún í mismikilli hæð þar fyrir neðan, þvers og kruss og í gegnum strókinn þar sem hann hef- ur lagst undan vindi frá fjallinu. Ef þetta reynist mikil aska þá munu þeir sveigja frá. Vélin mælir öskugildið samfellt, þannig að um Flýgur inn í öskustrókinn  Þýsk rannsóknarþota verður notuð til að greina gjóskuna frá gosinu í Eyjafjallajökli  Mikill þrýstingur uppi um að mælingin fari fram hér á landi Fullkomin Fjórir eru í áhöfn, þar af tveir flug- menn. Myndin er tekin við rannsóknir í fyrra. Haraldur Ólafsson GERT er ráð fyr- ir að minnst 100 sjálfboðaliðar sinni hreinsunar- og björgunar- störfum undir Eyjafjöllum um helgina. Áhersla verður lögð á að hreinsa ösku í þorpinu í Skógum undir Eyjafjöll- um auk þess sem ýmsum tilfallandi verkefnum verður sinnt. Fjölmargir úr Eyjum hafa boðað komu sína, en margir þar eiga ættartengsl undir Fjöllin. „Þá vilja ýmsir leggja okkur lið með öðrum hætti, koma til dæmis með heimabakað kaffibrauð fyrir þá sem sinna hreinsunarstarfi,“ segir Vagn Kristjánsson lögreglumaður sem stýrir aðgerðum frá þjónustu- miðstöðinni á Heimalandi. Hann gerir ráð fyrir að um tutt- ugu sjálfboðaliðar verði við hreins- unarstörf í dag sem fari svo fjölg- andi eftir því sem líður á vikuna sem fyrr segir. sbs@mbl.is 100 sjálf- boðaliðar um helgina Eyjamenn fjölmenna Hreinsað af þökum undir Eyjafjöllum. „Það er nefnilega það sem er. Það hefur ekki verið mælt með beinum hætti,“ seg- ir Haraldur aðspurður hvaða mælingar hafi legið til grundvallar spám um dreif- ingu öskunnar í háloftunum. „Það hefur verið metið sjónrænt og svo hafa menn mælt hæð stróksins með ratsjá og sjónrænt með flugi. Það hefur verið mikil óvissa í mati sem byggist á þessum mælingum sem er líklega bak- grunnur þess að spárnar hafa verið vafa- samar.“ – Hvernig hefur breska veðurstofan unnið öskuspárnar? „Hún metur þetta út frá þeim upplýs- ingum sem hún fær héðan.“ – Samkvæmt spá bresku veðurstof- unnar hefur umfang gosskýsins snar- minnkað frá því á þriðjudag. Hvað skýrir svo öra minnkun svæðisins? „Breska veðurstofan ákvað að breyta spánni eftir viðræður við vísindamenn hér á Íslandi. Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands hefur greint kornastærðir í gjósku sem hefur fallið til jarðar. Þær niðurstöður þykja gefa tilefni til að ætla að dreifing öskunnar nái yfir mun minna svæði en talið hefur verið síðustu daga.“ Hefur ekki verið mælt BRIMBORG hef- ur kært til um- boðsmanns Al- þingis máls- meðferð Reykja- víkurborgar vegna lóðar, sem fyrirtækið fékk úthlutað og ekki fengið að skila aftur. Fer Brim- borg fram á, að umboðsmaður skili rökstuddu áliti um hvort Reykjavíkurborg hafi með ákvörðun sinni brotið gegn lögum um gatnagerðargjald, stjórnsýslulögum og stjórnarskrá. Hefur Brimborg áður kært borgina til ráðuneytis sveitarstjórnarmála og haft sigur þar. Brimborg kærir Reykjavíkurborg Egill Jóhanns- son forstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.