Morgunblaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010 Alþingi ræðir nú tvö frumvörp iðn-aðarráðherra um fjárfestinga- samninga og ívilnanir vegna þeirra. Annað er almennt en hitt sértækt og snýr að Verne Hold- ing, félagi að stórum hluta í eigu Novators Björgólfs Thors Björgólfssonar.     Nú liggur fyrirsamþykkt iðnaðarnefndar þingsins um að koma í veg fyrir fjárhags- legan ábata Nova- tors af sértæka samningnum. Í því samhengi er vísað til aðkomu Björgólfs Thors að útrásinni.     Sú afstaða iðn-aðarnefndar að óeðlilegt sé að fyrirtæki útrásarvíkings njóti íviln- unar er eðlileg. Í raun má furðu sæta að til standi að gera þennan sérstaka samning við Verne nú, fyrst málið hefur dregist og almennt frumvarp liggur fyrir. Getur verið að ástæða þess sé tenging stjórnarformanns Verne við Samfylkinguna?     Annað sem vekur þó enn meirifurðu er að á sama tíma og sum- ir þingmenn og ráðherrar vilja ekki leyfa Novator að njóta ívilnunar, þá skuli þeir vilja að stærsti gerandinn í hruninu sé enn á sérkjörum.     Jón Ásgeir Jóhannesson er enn ásérkjörum í bönkunum, m.a. í rík- isbanka. Hann skuldar samt lang- mest og hefur gengið fram af fólki með ýmsum hætti, t.d. afskiptum sínum af útlánum Glitnis, almenn- ingshlutafélagi sem hann réð yfir.     Hver er skýringin á því að sam-fylkingarfólkið Skúli Helgason, formaður iðnaðarnefndar, og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra vill að Jóni Ásgeiri sé hyglað en Björgólfi Thor ekki? Skúli Helgason Katrín Júlíusdóttir Einum hyglað, öðrum ekki Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ENN liggur ekkert fyrir um hvort lífeyrissjóðir koma að fjármögnun Búðarhálsvirkjunar, en Landsvirkjun hefur leitað fyrir sér með erlenda fjármögnun og einnig hafa verið uppi hugmyndir um stofnun sérstaks hlutafélags fjármögnunar- aðila og Landsvirkjunar um virkjunina. Forsvars- menn lífeyrissjóðanna hafa farið yfir stöðuna í við- ræðum við ríkið um mögulega fjármögnun ýmissa stórframkvæmda. Á nýju minnisblaði um stöðu mála kemur fram að engar viðræður hafi verið í gangi milli lífeyrissjóða og Landsvirkjunar um nokkurt skeið. Framhaldið ráðist af því hvenær Landsvirkjun gengur frá langtíma raforkusamn- ingi og ekki verður haldið áfram fyrr en niður- staða í raforkusölu liggur fyrir. Óvíst að sjóðirnir fjármagni LSH-byggingu Þá er ekki heldur frágengið hvort lífeyrissjóð- irnir koma að fjármögnun nýbyggingar Landspít- alans. Viljayfirlýsing um verkefnið var undirrituð í nóvember sl. um þetta 33 milljarða verkefni. Stað- an í dag er sú að frumhönnun er í fullum gangi en gert er ráð fyrir stofnun opinbers hlutafélags. Verkefnið fellur undir lög og reglur um opinber innkaup og er öllum frjálst að bjóða í fjármögnun þess. „Það er því alls ekki víst að lífeyrissjóðirnir komi að fjármögnun þess, en það breytir því ekki að framundan eru frekari viðræður við fulltrúa stjórnvalda og verkefnisstjórn LSH um næstu skref í málinu,“ segir á minnisblaðinu. Óvissa um þátttöku sjóðanna  Engar viðræður í gangi milli lífeyrissjóða og Landsvirkjunar um nokkurt skeið Ársfundur Úrvinnslusjóðs Ársfundur Úrvinnslusjóðs verður haldinn á Grand Hótel, 4. hæð, Háteigi B, fimmtu- daginn 29. apríl kl. 14:00 • Formaður stjórnar setur fundinn • Ávarp umhverfisráðherra • Ávarp formanns stjórnar Úrvinnslusjóðs • Ársreikningur 2009 kynntur • Yfirlit yfir starfsemi Úrvinnslusjóðs • Umræður Dagskrá Fundargögn munu liggja frammi á fundarstað Stjórn Úrvinnslusjóðs Veður víða um heim 28.4., kl. 18.00 Reykjavík 9 rigning Bolungarvík 3 skýjað Akureyri 5 alskýjað Egilsstaðir 4 alskýjað Kirkjubæjarkl. 7 rigning Nuuk 0 skýjað Þórshöfn 9 súld Ósló 5 skúrir Kaupmannahöfn 14 skýjað Stokkhólmur 8 skýjað Helsinki 10 heiðskírt Lúxemborg 21 heiðskírt Brussel 23 heiðskírt Dublin 16 skýjað Glasgow 14 léttskýjað London 20 heiðskírt París 25 heiðskírt Amsterdam 22 heiðskírt Hamborg 19 heiðskírt Berlín 19 heiðskírt Vín 18 léttskýjað Moskva 9 skúrir Algarve 24 heiðskírt Madríd 27 léttskýjað Barcelona 21 heiðskírt Mallorca 21 heiðskírt Róm 20 þrumuveður Aþena 17 heiðskírt Winnipeg 17 alskýjað Montreal 9 skýjað New York 9 alskýjað Chicago 13 léttskýjað Orlando 21 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ STAKSTEINAR VEÐUR 29. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:07 21:45 ÍSAFJÖRÐUR 4:57 22:05 SIGLUFJÖRÐUR 4:39 21:48 DJÚPIVOGUR 4:32 21:18 Í SLIPPNUM í Reykjavík hamra menn járnið meðan heitt er og þegar skera þarf þykkt stálið í sundur er logskurðartækið mikið þarfaþing. Þaulæfðir höfðingjar smiðjunnar vita hvaða handtök hæfa og hvaða vinnubrögð er best að viðhafa við endurgerð skipa, stórra sem smárra. Allt vill lagið hafa eins og stundum er sagt og sinni með sínu af útsjónarsemi og dugnaði má leysa sérhverja þraut af listfengi. LEIKINN LOGSKURÐARMAÐUR Í SLIPPNUM Morgunblaðið/Árni Sæberg Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is ÁKVEÐIÐ hefur verið að reisa um 9.500 fermetra líkamsræktar- miðstöð á fjórum hæðum við íþróttaskóla Manitobaháskóla (UM) í Winnipeg í Kanada og hafa stjórn- endur háskólans samþykkt fyrstu teikningar Batterísins arkitekta og Cibinel Architects í Winnipeg. Gert er ráð fyrir að húsið verði tilbúið til notkunar 2013 og kosti sem sam- svarar rúmlega fjórum milljörðum króna. Batteríið og Cibinel voru valin úr hópi umsækjenda og vinna sameig- inlega að hönnuninni, en þau hafa ráðið kanadíska verkfræðinga sem undirráðgjafa við verkið. Jón Ólaf- ur Ólafsson, arkitekt og einn eig- enda Batterísins, segir að á næst- unni verði unnið úr drögunum og stefnt sé að því að hönnunin hefjist síðan í haust. Opin líkamsræktaraðstaða með tækjum verður í stórum hluta byggingarinnar en þar verða líka lokaðir æfingasalir og sérstakur salur fyrir íþróttalið skólans. Enn- fremur stór klifurveggur og um 200 m hlaupabraut efst uppi auk nauðsynlegrar skrifstofuaðstöðu, meðal annars fyrir heilsuráðgjöf. Jón Ólafsson segir að verkefnið styrki rekstur fyrirtækisins því lítið sé að hafa á innanlandsmarkaði eft- ir bankahrunið. „Það lætur nærri að erlend velta sé orðin um 30% af rekstrinum í ár,“ segir hann, en Batteríið er með verkefni á Gimli í Manitoba og í Noregi. Batteríið hannar líkams- ræktarstöð í Winnipeg Teikning/Batteríið og Cibinel Hönnun Líkamsræktarstöð University of Manitoba í Winnipeg í Kanada.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.