Morgunblaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 24
24 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010 ✝ Guðmundur Krist-inn Steinsson fæddist í Keflavík 21. október 1978. Hann lést af slysförum við störf á frystitog- aranum Hrafni GK 111 þann 17. apríl s.l. Foreldrar Guð- mundar eru Hildur Guðmundsdóttir, f. í Innstu-Tungu í Tálknafirði 27.4. 1940, og Steinn Erlingsson, f. í Steinshúsi í Gerð- um 14.1. 1939, Steinn og Hildur eru búsett í Reykjanesbæ. Systkini Guðmundar eru, 1 ) Einar Ólafur, f. 22.11.1960, giftur Sigríði Dagbjörtu Jónsdóttur, börn þeirra eru Hildur, Jón, Haukur og Elísabet, sambýlismaður Hildar er Páll Guð- mundur Ásgeirsson, 2) Dagný Alda, f. 29.1. 1962, börn hennar eru Aron Steinn og Magnús Egill, 3) Una, f. 7.11. 1966, gift Reyni Valbergssyni, tvíburadætur þeirra eru Stefanía og Sóley, 4) óskírður Steinsson, f. 21.10. 1978. Guðmundur lætur eftir sig unn- ustu, Berglindi Hörpu Ástþórs- dóttur, f. 24.7.1985. Foreldrar henn- ar eru Margrét Bryndís Haraldsdóttir, f. 6.4. 1957, og Ástþór Bjarni Sigurðsson, f. 20.6. 1956, bú- sett í Garði. Systkini Berglindar eru; Jón Ragnar, Særún Rósa og Sig- urður Freyr. Heimili Guðmundar Kristins og Berglindar Hörpu var að Skúlagötu 54 í Reykjavík. Guð- mundur, eða Gummi eins og hann var oft- ast kallaður, ólst upp í Keflavík í foreldra- húsum að Faxabraut 47. Skólagangan var í Keflavík, að und- anskildu einu ári, þeg- ar hann flutti með for- eldrum sínum til Tucson í Arizona í Bandaríkjunum, þar sem Steinn lagði stund á söngnám. Árið 2001 lauk Gummi einkaflugmannsprófi og árið 2008 lauk hann prófi af við- skipta- og hagfræðisviði frá Keili. Gummi hafði að mestu, en með hléum, unnið við sjómannsstörf og síðustu árin hjá Þorbirni Fiskanesi á Hrafni GK, auk þess sem hann hafði unnið við rafvirkjun í landi. Gummi var mikill áhugamaður um íþróttir og spilaði sjálfur hand- bolta á yngri árum. Guðmundur var hvatamaður að stofnun Handknatt- leiksfélags Reykjanesbæjar sumarið 2008 og var formaður félagsins frá stofnun þess. Útför Guðmundar Kristins verður gerð frá Keflavíkurkirkju fimmtu- daginn 29. apríl og hefst athöfnin kl. 13. Ástin mín, ekki óraði mig fyrir því þegar við keyrðum saman Grindavík- urveginn að þetta yrðu okkar síðustu mínútur saman, að kossinn okkar áð- ur en þú fórst af stað yrði sá síðasti eða að þegar þú snerir þér við í stig- anum, vinkaðir og brostir að það yrði í síðasta sinn sem ég sæi þig. Þú varst svo spenntur fyrir framtíðinni, ætlað- ir bara að taka nokkra túra í viðbót, græja þau mál sem þurfti að græja og svo ætluðum við að koma okkur út. Barcelona var planið og það í haust, við vorum búin að sjá þetta allt fyrir okkur. Þú hlakkaðir líka alltaf svo til að verða pabbi, eignast litla guttann þinn, lítinn Stein og gera pabba þinn stoltasta afann. Þú hefðir orðið frá- bær faðir, við hlökkuðum líka svo til að sjá hvernig blandan okkar yrði. Ég hef líka svo oft hugsað hvað ég væri heppin með föður fyrir börnin mín, að ef það kæmi einhvern tímann upp að ég hefði ekki svörin fyrir börnin okk- ar þá gæti ég alltaf sagt: „Spyrðu pabba þinn, hann veit það.“ Þú vissir allt, kunnir allt, það lá allt svo vel fyrir þér og eins og ég hef svo oft sagt, þú hefðir getað orðið hvað sem þér sýnd- ist. Það getur á tímum verið svo sárt og erfitt að sætta sig við þetta, ég óska þess oft að þetta sé bara allt ljótur draumur og að þú komir aftur heim til mín, heim á Skúlagötuna. Hendir þér í rifnu náttbuxurnar þínar, gyrðir þær ofan í ullarsokkana þína sem þú gast ekki verið án; og svo indverska mussan eins og ég kallaði hana, þetta var heimadressið. Þér leið alltaf best í komfó fötunum þínum uppi í sófa með góða mynd í tækinu. Kvikmyndir voru líka eitt af þínum aðaláhugamál- um. Ég gleymi seint sumrinu síðasta, rétt áður en við fluttum í borgina, ég hafði rekist á heilu staflana af vhs- myndum fyrir utan eina vídeóleiguna í borginni, auðvitað varð ég að láta þig vita og stuttu seinna vorum við komin á staðinn og það var ekkert annað inni í myndinni en að skoða hverja einustu mynd. Ég held að afraksturinn hafi verið 93 vhs-spólur, fékkst þrjár í kaupbæti og þú brostir allan hring- inn. Ég veit ekki hvað við fórum margar ferðir út í bíl eftir myndunum þegar heim var komið, þær tóku alla- vega stóran part af stofunni. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér, ástin mín, en á móti svo reið yfir að hafa ekki fengið að hafa þig lengur hjá mér, ég þarfn- aðist þín svo mikið. Þú gerðir svo margt fyrir mig, kenndir mér svo margt, passaðir svo vel upp á mig. Þú varst alltaf svo glaður og það var allt- af svo stutt í brosið þitt og þennan ótrúlega smitandi skemmtilega hlát- ur og fíflalætin, við gátum verið svo skemmtilega misheppnuð saman. Gleðin og kímnin sem þú bjóst yfir hefur samt hjálpað okkur öllum alveg ótrúlega mikið í allri sorginni, það hafa ótal sögur verið sagðar af þér og mikið hlegið, þú varst svo uppátækja- samur. Það eru líka svo margir sem finna til, þú snertir svo marga. Elsku Gummi minn, ég elska þig og mun elska þig, alltaf. Þú munt alltaf eiga stóran stað í mínu hjarta. Hvíldu í friði, ástin mín. Þín að eilífu. Berglind Harpa. Það er sárt að missa mág og ekki síður vininn sem ég átti í honum Gumma, sem lést svo sviplega af slys- förum. Þegar ég hugsa til baka þá koma upp í hugann minningarbrot um ljúf- an dreng; skemmtilegan, grallara, keppnismann, vin vina sinna, for- dómalausan og opinn. Ekki má gleyma fallega brosinu hans Gumma og hvernig það snerti strengi í okkur öllum. Hann gat reyndar spilað heilu sinfóníurnar á strengina í sumum okkar – eins og að mæta klukkustund of seint í jólamatinn til systur sinnar af því að honum datt í hug að fara í messu – þá dugði brosið eitt til að bræða hennar hjarta. Ég kynntist Gumma þegar hann var 10 ára og sá þá strax að hann var ekki bara litli bróðir Unu, á milli þeirra voru sterk bönd. Honum fannst gaman að taka rútuna til Reykjavíkur og fá að gista hjá okkur um helgar og það var í einni þannig heimsókn að ég uppgötvaði eina af ástríðum hans, sem voru kvikmyndir. Gummi elskaði góðar kvikmyndir – hafði bókstaflega séð allt sem vert var að sjá og var eins og gangandi al- fræðiorðabók í þeim efnum. Ég man eitt sinnið þegar Gummi var hjá okkur stuttu eftir fermingu. Við höfðum skroppið frá og þegar við komum heim tók hann á móti okkur afar stoltur því hann hafði tekið upp myndina RoboCop úr sjónvarpinu fyrir mig. En það sem hann vissi ekki var að hann notaði til þess spólu sem hafði að geyma uppáhalds bíómynd- ina mína. Það var ekki hægt annað en að brosa – þetta var vísirinn að því sem koma skyldi. Hann gerði þetta fyrir mig og þetta var eitt af sem síðar einkenndi Gumma – hann var alltaf boðinn og búinn til aðstoðar, hvort heldur þegar vinir kölluðu eða fjöl- skyldan. Gummi var óþreytandi að drífa mig með sér út á golfvöll og áttum við ófá- ar stundirnar þar ásamt tengda- pabba. Gagnvart mér, sem ekkert kunni í golfinu, átti hann eins og pabbi hans ótakmarkaða þolinmæði. Það fór þó lítið fyrir þessari þolinmæði þegar kom að honum sjálfum, því hann var mikill keppnismaður og þoldi enga meðalmennsku í eigin leik. Handboltinn var ein af ástríðum hans og það verkefni vann hann með brosið og þolinmæðina að vopni. Hann vissi að þar var um langhlaup að ræða og litlu sigrarnir voru í hans huga stórir. Ég vil að lokum þakka Gumma trausta vináttu og allar góðu minning- arnar og sendi öllum þeim sem þekktu hann hugheilar kveðjur með orðum ömmu minnar: „Immer wenn du denkst es geht nicht mehr, kommt irgendwo ein Lichtlein her“, sem má útleggja nokkurn veginn á þennan hátt: Það er ljós við enda ganganna. Reynir Valbergsson. Elskulegur bróðir minn Guðmund- ur Kristinn er látinn, 31 árs að aldri. Gummi var yngstur okkar syst- kina, örverpið í fjölskyldunni. Ég var 12 ára þegar hann fæddist og tók strax stöðu stóru systur með tilheyr- andi ábyrgðartilfinningu. Ást mín og væntumþykja til litla bróður var mik- il. Gummi fæddist ljós og fallegur og varð bara bjartari og fallegri með ár- unum. Brosið hans var þeim gæðum gætt að það bræddi alla og hlátur hans og góð nærvera voru hans að- alsmerki og hann hafði einstakt lag á að laða fólk að sér. Margar frænk- urnar hafa sagt í gegnum árin að þær óskuðu að Gummi væri ekkert skyld- ur þeim, þær myndu þá giftast sjar- matröllinu. Gummi var alltaf á við tvo stráka með tilheyrandi óþekkt og prakkara- skap. Ég skrifaði það oft á þá stað- reynd að Gummi var tvíburi, en bróð- ir hans lést í fæðingu. Gummi var hrifnæmur og átti auðvelt með að samgleðjast öðrum. Hann var t.a.m. einn af þeim sem glöddust það mikið yfir árangri karlalandsliðsins í hand- bolta á Ólympíuleikunum að hann gekk ásamt öðrum í að endurreisa handboltann í Reykjanesbæ. Ég var svo stolt af honum að taka þetta óeig- ingjarna verkefni að sér. Endalausan áhuga hafði hann svo á fótbolta og tal- aði óskiljanlegt fótboltatungumál, m.a. við Reyni mág sinn. Reynir mun ávallt muna daginn þegar Gummi fór í sína síðustu sjóferð. Hann kom þá við hjá okkur og bað Reyni að taka ekki nærri sér þótt hans lið tapaði og kvaddi svo innilega. Það kom fyrir að áttavitinn bilaði á stundum og leitaði hann þá yfirleitt til okkar í fjölskyldunni, ræddi málin og fékk ráð. Ég var auðvitað alltaf með ráð fyrir hann, enda ráðrík með ein- dæmum og stundum gaus upp úr, eins og í eldfjöllum Íslands. Það er ekkert verra fyrir sálina en að geta ekki tjáð og rætt sínar áhyggjur og deilt gleði og þrá með sínum nánustu. Það finn ég svo sterkt nú, þegar sorg- in kveður dyra, að það var fátt sem við Gummi höfðum ekki rætt, það er góð tilfinning. Ég veit ekki af hverju, en þegar við kvöddumst fyrir síðustu ferðina, bað ég hann að fara varlega og koma heilan heim. Við höfðum annars aldrei áhyggjur af Gumma og sjómennskunni því hún var honum í blóð borin og allir vita að hann var hörkuduglegur og góður sjómaður eða 100% eins og skipsfélagi lýsti hon- um. Þetta slys er okkur öllum óskilj- anlegt, en þannig eru slysin, alltaf óvænt og ósanngjörn. Það voru þung spor fyrir fjölskylduna að sækja Gumma okkar snemma sunnudags hinn 18. apríl sl. við Grindavíkurhöfn. Ég vildi óska þess að ég hefði verið að sækja þig til að fara með þig heim í sunnudagssteikina en svo var ekki. Eftir situr fjölskyldan sorgmædd og harmi slegin, en ákveðin í því að ylja sér um ókomna tíð við minningu bróð- ur og sonar. Tilveran verður aldrei söm og sorgin mun nú takast á við systur sína gleðina. En ég veit að gleðin kemur aftur og verður hún þá betri og dýpri en áður vegna þín. Sorgin hefur minnt mig á að hamingj- an er bæði sorg og gleði en umfram allt er hamingjan að kunna að vera þakklátur. Ég er þakklát fyrir árin og stund- irnar með þér elsku bróðir og fel þig á hendur guði. Þín systir, Una. Elsku Gummi frændi, ég hef ávallt verið stolt af því að vera frænka þín. Þú varst bróðir hans pabba míns en það voru einungis tvö ár á milli okkar og þar af leiðandi varð amma mín ný- bökuð mamma og amma nánast á sama tíma. Við vorum því meira eins og systkini þegar við vorum yngri. Ég mun seint gleyma og vonandi aldrei þeim tíma þegar við fórum sam- an í dans í Dansskóla Jóns Péturs og Köru. Þá vorum við bæði búsett á höf- uðborgarsvæðinu og stunduðum nám. Mér datt í hug að skella mér í dans en það var eiginlega ekki hægt nema að vera með dansfélaga og eini maðurinn sem mér datt í hug að spyrja varst þú. Ég var búin að íhuga málið vandlega hvernig ég ætti að spyrja þig svo að ég fengi ekki strax nei og þar með væri það útrætt mál. Ég undirbjó svo jarð- veginn vel og sagði að ég ætlaði að spyrja þig að dálitlu en þú þyrftir ekki að svara strax og að þú ættir að hugsa málið og fleira í þessum dúr. En svo þegar ég spurði, skömmustuleg á svip, hvort þú værir til í að koma og æfa dans með mér þá kom bara stórt „já“ frá þér án þess að hika. Ég varð mjög hissa og nú varð ég líka að skella mér. Við skemmtum okkur konunglega og okkur fannst tjútt-dansinn skemmtilegastur en í þeim dansi var mikill hraði og þú snerir mér og snerir mér. Með okkur í þessari kennslu voru bara önnur pör og við höguðum okkur að sjálfsögðu ekki eins og par. Margir hafa eflaust pælt í því hvers konar samband væri á milli okkar. Það var í einum kennslutímanum sem við lærð- um að dansa tangó og það var pínu pínlegt því sá dans er svolítið innilegri heldur en hinir en annars var þetta bara ein stór skemmtun. Gummi, ég vil þakka þér fyrir allar stundir okkar saman, það sem stóð hæst upp úr í fari þínu er þitt fallega bros og hinn endalausi sjarmur sem þér fylgdi. Þeir fóru ekki framhjá neinum þeir persónutöfrar sem þú bjóst yfir og munt ávallt búa yfir. Það er kannski aldrei of oft sagt hvað það er sorglegt og sárt þegar ungt fólk er tekið frá okkur. Allt lífið blasti við þér og það sem ég sá fyrir mér var að þú myndir stofna fjöl- skyldu en ég er einmitt í þessum spor- um núna. Við vorum bæði komin í samband og nú geng ég með barn og það hefði verið yndislegt ef þú hefðir fengið að hitta litla krílið mitt. Von- andi fylgistu vel með okkur og verður hjá okkur en annars vil ég óska þér alls hins besta í því verkefni sem þér verður falið. Gummi frændi, megir þú hvíla í friði og við söknum þín öll. Þín frænka, Hildur Einarsdóttir. Það var símtal á sunnudagsmorgni sem eins og hendi væri veifað breytti öllu. Fréttirnar um að hann Gummi frændi væri dáinn voru meiri en ég réð við. Skyndilega tók við mikill dofi, tómleiki og sársauki í hjarta. Gummi frændi var einstaklega vel gerður maður. Hann hafði góða nærveru, var blíður, góður, skemmtilegur og hæfi- lega kærulaus. Hann bjó yfir miklum töfrum og bræddi allt og alla sem á vegi hans urðu. Fallega brosið hans var ómótstæðilegt og manni leið alltaf vel eftir að hafa hitt hann. Þó svo að við Gummi höfðum ekki verið í daglegu sambandi þá var alltaf kært á milli okkar. Manni fannst alltaf eins og maður hefði síðast hitt hann í gær, hann knúsaði og kyssti mann alltaf. Í fjölskylduboðum var hann allt- af sá sem ég settist hjá og spjölluðum við um lífið og tilveruna og hlógum mikið. Í grunnskóla er minningin um krúnurakaða drenginn í hettupeys- unni ljóslifandi. Það var sama hvernig viðraði, aldrei fór Gummi í úlpu og skýringin sem hann gaf var sú að hann myndi pottþétt týna henni. Eftir fermingu var Gummi orðinn töluverður töffari og var hrókur alls fagnaðar. Við stunduðum bæði íþróttir og kepptum oft úti í frímínútum. Reglulega hélt hann partí á Fax- abrautinni þar sem allir skemmtu sér vel. Gummi breyttist úr litlum krúnu- rökuðum dreng í fjallmyndarlegan ungan mann sem allir tóku eftir. Þó svo að ýmislegt hafi breyst á stuttri ævi Gumma þá var eitt sem einkenndi hann alltaf, hann elskaði að bera höf- uðföt, ef ekki húfur þá hatta. Þegar ég horfi til baka hugsa ég til þess sem við Gummi ætluðum oft að gera en gerð- um aldrei því við vorum svo upptekin. Við töluðum um að setja á laggirnar fjölskyldu-golfmót og spilakvöld voru líka á döfinni en aldrei létum við verða af þessu. Í dag vildi ég óska þess að við hefðum gefið hvort öðru þennan tíma. Stundir með fjölskyldu og vin- um eru í raun það eina sem skiptir máli, öll vandamál í samfélaginu eru smámál miðað við þá sorg og missi sem fjölskylda og vinir Gumma upp- lifa núna. Ekkert verður framar eins! Það er mér þyngra en tárum taki að skrifa þessi orð. Aldrei hefði mér dott- ið í hug að Gummi frændi færi næstur á eftir ömmu Gunnu. Ég veit að hún hefur verið steinhissa að sjá hann og ég heyri hana segja „Gudbevaros Gummi minn“ . Amma hefur tekið vel á móti honum eins og tvíburabróður hans sem hann hefur nú loks fengið að hitta. Þegar svona hræðileg slys ger- ast þá situr maður eftir með ótal spurningar en fátt er um svör. Það er huggun harmi gegn að vita að Gummi var hamingjusamur og ástfanginn af henni Berglindi sinni. Allir ástvinir Gumma eru ríkir af minningum um yndislegan dreng sem tekinn var frá okkur alltof, alltof fljótt. Megi góður Guð styrkja og blessa unnustu, foreldra, systkini og fjöl- skyldur þeirra á þessum erfiðu tím- um. Síðustu orðin í ljóðinu fagra Í fjarlægð eiga nú vel við: „Þú fagra minning eftir skildir eina sem aldrei gleymist, meðan lífs ég er“. Hvíl í friði, elsku frændi. Erla Þorsteinsdóttir. Fréttirnar sem bárust mér þann 18. apríl síðast liðinn um sviplegt fráfall þitt reyndust mér ólýsanlega erfiðar og átti ég bágt með að trúa þeim. En um leið streymdu fram endalausar minningar af þér og öllu því sem við gerðum saman. Með þessum fáu orðum langar mig að minnast þín, Gummi vinur minn. Þú varst sannur vinur vina þinna, brosmildur með eindæmum, grallari mikill, hress og skemmtilegur. Það var alltaf stutt í hláturinn hjá þér og umfram allt varstu alveg ofboðslega sterkur persónuleiki. Ég á eingöngu góðar minningar um þig, kæri vinur, handboltinn, streetball í Myllu, vid- eógláp, partíin á Faxabrautinni, ung- lingsárin með öllu sem þeim fylgdi og svo að sjálfsögðu golfið. Þessar minn- ingar fá nú enn stærri stað í hjarta mínu. Ég verð ævinlega þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast þér og eiga þig sem vin. Ég veit að þessar minningar verða til þess að þétta okk- ur sem eftir stöndum úr gamla vina- hópnum enn betur saman. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. svefnsins draumar koma fljótt. svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Hvíl í friði, kæri vinur. Minning þín mun lifa. Þinn vinur, Einar Snorrason. Elsku Gummi. Það er svo sorglegt að þú sért dáinn og ég trúi því ekki að ég sé að skrifa þessa minningargrein með tárin í aug- unum. Það er svo margt sem mig langar að segja en ég vildi að við gæt- um bara talað saman, ég og þú, það var svo gott að tala við þig. Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa kynnst þér og stoltur af því að vera einn af þínum betri vinum. Ég er búinn að hugsa stanslaust um þig frá því ég fékk þessar skelfilegu fréttir, sunnudaginn 18. apríl. Að hugsa um þig, slasaðan úti í ólgusjó og enginn gat hjálpað þér, finnst mér hræðilegt. Ég er með samviskubit yfir því að hafa ekki skynjað hættuna sem þú varst í, meðan ég var heima í hlýj- unni endaðir þú líf þitt í sjónum. Guðmundur Kristinn Steinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.