Morgunblaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 22
22 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010 ✝ Hanna ÞórannaSamúelsdóttir fæddist í Reykjavík 22. mars 1932, hún lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi 21. apríl 2010. Foreldrar hennar voru Margrét Hann- esdóttir, f. 15.07. 1904 á Núpsstað, Vestur- Skaftafellssýslu, og Samúel Kristjánsson, f. 8.10. 1899 á Kumlá í Grunnavíkurhreppi, d. 26.7. 1965. Systkini Hönnu eru: Jón Valur, f. 21.8. 1933, Elsa, f. 23.11. 1935, Auður, f. 20.12. 1941, d. 15.1. 1993 og Margrét, f. 11.3. 1944. Hanna kvæntist 27.12. 1952, Hreggviði Guðgeirssyni, bygging- arfulltrúa, f. 10.1. 1931 í Reykjavík, d. 23.11. 2004, foreldrar hans voru Kristján Valdemar Kristjánsson, f. 20.4. 1904, d. 18.9. 1974 og Sigurpál- ína Jóhannsdóttir, f. í Eyjafjarð- arsýslu, 20.8. 1910, d. 11.5. 1988. Kjörforeldrar Hreggviðs voru Guð- geir Ágúst Jónasson, f. að Bjarteyj- arsandi í Hvalfirði, 6.8. 1891, d. 3.5. 1981 og Sólveig Jónsdóttir, f. vestur í Dýrafirði 10.5. 1899, d. 22.1. 1967. Hanna og Hreggviður skildu 1973. Börn þeirra eru: 1) Samúel Smári byggingatæknifræðingur, f. 20.7. 1952, eiginkona hans er Sigríður Kristín Jóhannsdóttir, hjúkr- unarfræðingur, f. 29.4. 1953, þau búa í Stóru-Sandvík 4, Svf. Árborg, dætur þeirra eru Hanna Rut, f. 27.3. 1978, en hún á tvo syni, Málfríður Erna, f. 3.6. 1983, hún á einn son og Sólveig Sara, f. 12.5. 1990. 2) Ólafur Magnús, húsasmiður, f. 23.2. 1957, hann býr í Noregi, börn hans eru Reykjavík, lauk hefðbundinni skóla- göngu, vann ýmis þjónustustörf um tíma en aðallega var hún heimavinn- andi húsmóðir. Hún var listfeng og fórst vel öll hannyrðavinna og var mjög áhugasöm bútasaumskona þar til hún varð að hætta því vegna veik- inda. Hún var félagi í Lions- klúbbnum Egla í Borgarnesi og þar áður í Lionessuklúbbnum. Haukur Hafsteinn Gíslason fædd- ist á Flateyri 20. mars 1932. Hann lést á sjúkrahúsi Akraness 20. apríl síðastliðinn. Foreldrar Hauks voru Gísli Frið- rik Jóhannsson múrari, f. 22. janúar 1906, d. 4. nóvember 1980 og Stef- anía Erlingsdóttir, f. 21. apríl 1910, d. 2. október 1992. Gísli sleit sam- vistum við Stefaníu og giftist Jónu Margréti Kristjánsdóttur, f. 13. jan- úar 1915, d. 2. janúar 1971. Alsystir Hauks er Soffía, f. 25. mars 1936. Systkini samfeðra eru Sigurður, f. 8. ágúst 1943, d. 19. september 2008, Ellý, f. 24. ágúst 1945 og Jóhanna, f. 14. júní 1951. Haukur kvæntist árið 1958 Úr- súlu Hauth, f. 17. desember 1938, d. 16. maí 2002, foreldrar hennar voru hjónin Gertrud Sledz, fyrrv . Hauth, fædd Laatsch, f. 1914, d. 1999, og Joachim Hauth, f. 1915, d. 1942. Haukur og Úrsúla slitu samvistum árið 1973. Börn þeirra eru: A) Bryn- dís Gertrud starfsmaður Icelandair, f. 21. nóvember 1958, maki Ólafur Gunnar Gunnarsson sendibílstjóri, f. 26. febrúar 1958, börn þeirra eru Gunnar Haukur, f. 25 júní 1980 og Margrét Úrsúla, f. 3. janúar 1983. B) Ellý rekstarstjóri, f. 21. apríl 1962, maki Jón Viðar Gunnarsson kerf- isforritari, f. 13. nóvember 1958, börn þeirra eru Andrea Sif, f. 30. janúar 1985, Óskar Aron, f. 15. febr- úar 1987, hann á eina dóttur, og Tómas Bragi, f. 13. desember 1995. C) Gísli Friðrik málari, f. 8. mars 1965, maki Ragnheiður Kristín Óla- dóttir leikskólaliði, f. 7. september 1967, þau eiga eitt barn, Óla Haf- stein, f. 30 mars 1997, fyrrverandi sambýliskona Gísla er Soffía Guð- nýjardóttir, f. 25. febrúar 1966. Dætur þeirra eru Eva Rós, f. 21. júlí 1989, hún á eina dóttur og Helga Björk, f. 20. september 1991. Hauk- ur kvæntist á ný, Hönnu Þórönnu Samúelsdóttur, árið 1978. Foreldrar hennar voru Margrét Hannesdóttir f. 15.7. 1904 á Núpsstað, Vestur- Skaftafellssýslu og Samúel Krist- jánsson, f. 8.10. 1899 á Kumlá í Grunnavíkurhreppi, d. 26. júlí 1965. Börn Hönnu eru Samúel Smári, f. 20 júlí 1957, Ólafur Magnús, f. 23.febr- úar 1957, Guðgeir Veigar, f. 6. októ- ber 1964 og Margrét Dögg, f. 22.júní 1966. Haukur ólst upp á Flateyri til 6 ára aldurs en síðan í Reykjavík og Vestmannaeyjum. Hann stundaði nám í Iðnskóla Vestmannaeyja, hóf rakaranám hjá Þórði rakara í Vest- mannaeyjum og lauk sveinsprófi í rakaraiðn í Reykjavík árið 1957. Hann stundaði hljóðfæranám við Tónlistarskólann í Reykjavík og síð- an við tónmenntakennaradeild sama skóla og lauk þaðan prófi árið 1961. Hann lauk stúdentsprófi frá FSA á Akranesi 1987. Hann rak rakara- stofu í Borgarnesi frá 1961-2004, en kenndi jafnframt tónmennt við Barna- og miðskóla Borgarness 1961-1966. Hann hefur leikið með ýmsum hljómsveitum í Vest- mannaeyjum, Reykjavík og Borg- arnesi, auk þess sem hann spilaði á kontrabassa með Freyjukórnum í Borgarnesi á árunum 1999-2008. Hann var félagi í Lionsklúbbi Borg- arness og var formaður hans 1980- 1981. Haukur og Hanna verða jarð- sungin í dag, fimmtudaginn 29. apríl 2010, frá Langholtskirkju og hefst athöfnin kl. 13. Atli Þór Þorgeirsson, f. 26.9. 1974, Brynja Mjöll, f. 6.4. 1976, hún á 3 börn og Margrét Guðbjörg, f. 18.3. 1984, hún á 2 börn. 3) Guðgeir Veig- ar húsasmiður, f. 6.10. 1964, eig- inkona hans er Sigrún Gestsdóttir, verslunarmaður, f. 25.8. 1966, þau búa að Miðtúni 5, Selfossi, dætur þeirra eru Hrafnhildur Björk, f. 20.6. 1985 og Þóranna Ýr, f. 10.4. 2001. 4) Margrét Dögg versl- unarmaður, f. 22.6. 1966, sambýlis- maður hennar er Hallgrímur Sig- urðsson, vélstjóri, f. 4.7. 1964, þau búa að Möðrufelli 1 Reykjavík, börn hennar eru Dísa Eyfjörð Haralds- dóttir, f. 5.10. 1986 hún á tvö börn og Daði Snær Haraldsson, f. 7.6. 1990. Hanna giftist Hauki Hafsteini Gíslasyni, rakara í Borgarnesi, árið 1978. Foreldrar hans voru Gísli Friðrik Jóhannsson múrari, f. 22. janúar 1906, d. 4. nóvember 1980 og Stefanía Erlingsdóttir, f. 21. apríl 1910, d. 2. október 1992. Börn Hauks eru: Bryndís f. 21.11. 1958 , Ellý, f. 21.4. 1962 og Gísli, f. 8.3. 1965. Þau bjuggu öll hjúskaparár sín í Borgarnesi og lengst af að Garðavík 3. Hanna ólst upp í Elsku amma og afi í Borgarnesi. Nú er baráttu ykkar við erfiða sjúkdóma lokið og þið hafið fengið hvíldina. Þið voruð alltaf svo sam- rýmd og elskuðuð hvort annað heitt. Voruð eins og ástfangnir unglingar. Það voru margar ferðirnar sem við fórum með rútu frá Selfossi upp í Borgarnes. Þar var alltaf glatt á hjalla og mikið sprellað. Horft á myndirnar Annie og Mary Poppins. Fórum líka mörg ár í röð og héldum upp á 17. júní í Borgarnesi. Í minn- ingunni var alltaf gott veður og skemmtilegt að taka þátt í hátíðar- höldunum í Skallagrímsgarði. Þið tókuð vel á móti okkur þegar við komum í heimsókn, kökur og kaffi á boðstólum eða góðu borgarnes- snúðarnir. Amma þú varst bæði hlý og góð. Þú áttir alltaf eitthvert sælgæti í veskinu þínu handa okkur. Komst alltaf í afmæli til okkar þó langt væri að fara. Kunnir bæði fugla- og barna- mál. Okkur fannst merkilegt að þú vissir hvað fuglarnir og litlu börnin væru að segja. Þú varst dugleg í höndunum og gerðir marga fallega hluti sem munu minna okkur á þig. Eigum bútasaumsteppi frá þér sem hlýja okkur. Afi, þú varst alltaf svo jákvæður og brosmildur, spilaðir á píanó og kontrabassann fyrir okkur. Þú varst sá eini sem máttir klippa okkur fram að fermingu og gerðir það býsna vel. Þú varst tölvuvæddur og mjög snemma kominn með tölvu. Skrifaðir e-mail til Hönnu sem bjó erlendis. Prentaðir út svörin frá henni og last fyrir ömmu áður en þið fóruð að sofa. Svo varst þú líka inni á msn og var oft spjallað þar. Aldrei munum við gleyma brandaranum hans afa: „Einu sinni var minkabú sem minnk- aði og minnkaði alveg þangað til það var búið“. Einu sinni fórum við hringinn sam- an ásamt fleirum. Þar festi afi bílinn og amma fór í bílstjórasætið, afi og fleiri fóru að ýta og bíllinn losnaði. Þá sagði Málfríður: „Amma gat en afi ekki“. Sumarbústaðaferðirnar á Núpstað voru margar með ykkur. Þaðan eig- um við góðar minningar. Einnig fóru þið í lengri ferðir. Eru ógleymanleg- ar þær tvær ferðir þegar þið heim- sóttuð Hönnu Rut til Danmerkur 2006 og 2007. Ykkur fannst ekki mik- ið mál að koma í heimsókn þó ferða- lagið væri langt. Amma, þú sast lengi og spjallaðir við Jóhann Má sem þá var nokkurra mánaða gamall. Afi minn og amma mín, ykkar minning lifi, þið eruð bæði sæt og fín, hvílið nú í friði. Við kveðjum elsku ömmu okkar og afa í Borgarnesi með söknuði og þakklæti fyrir allt. Blessuð sé minn- ing ykkar. Hanna Rut, Málfríður Erna og Sólveig Sara Samúelsdætur. Í fáeinum orðum langar mig til að minnast þeirra hjóna, Hauks Gísla- sonar og Hönnu Samúelsdóttur. Frá því ég kynntist þeim snemma á níunda áratugnum var alltaf jafn notalegt að njóta návistar þeirra í Borgarnesinu þar sem þau höfðu bú- ið sér snoturt heimili í Garðavík. Heimili þeirra Hauks og Hönnu var ætíð opið fyrir heimsóknum og aldrei höfðu gestir stoppað lengi hjá þeim, áður en Hanna og Haukur voru búin að fylla borðið af kræsingum og bjóða til sætis. Ég veit að börn þeirra öll eiga slíkar minningar sem og barna- börn og vinafólk. Notalegheit og hlýja þeirra hjóna gæddi heimili þeirra kærleik, sem svo gjörla mátti finna fyrir. Margt var skrafað á góð- um stundum hjá þeim hjónum. Haukur rakari í Borgarnesi gerði gjarnan að gamni sínu. Þannig sagð- ist hann „hafa haft hendur í hári fleiri Borgfirðinga en flestir ef ekki allir aðrir“. Hanna og Haukur gerðu einn- ig oft góðlátlegt grín hvort að öðru og slógu á létta strengi sem kallaði fram bros viðstaddra, ekki síst nú í seinni tíð. Eftir að veikindi þeirra urðu erf- iðari þá kom umhyggja þeirra hvors fyrir öðru mjög vel í ljós og vakti að- dáun þeirra sem álengdar stóðu. Þeim tókst þrátt fyrir mjög erfið veikindi að búa á heimili sínu allt til þess dags er þau lögðust hinsta sinni. Starfsfólk Sjúkrahúss Akraness hlúði að þeim hjónum af ástúð og um- hyggju, Guð blessi þau og störf þeirra. Ó, hvað þú, Guð, ert góður, þín gæska’ og miskunn aldrei dvín. Frá lífi minnar móður var mér æ nálæg aðstoð þín. Mig ávallt annazt hefur og allt mitt blessað ráð, og mér allt gott æ gefur, ó, Guð, þín föðurnáð. Það mér úr minni’ ei líði, svo mikli’ eg nafnið þitt og þér af hjarta hlýði, þú hjartans athvarf mitt. (Páll Jónsson.) Hanna og Haukur komu í heiminn á nær sama tíma og voru svo lánsöm að fá að kveðja á nær sama tíma. Við fæðingu voru tveir dagar á milli þeirra, í mars árið 1932, þegar hann fæðist þann 20. en hún 22. mars. Þeg- ar kemur að leiðarlokum þá kveður Haukur þann 20. april og Hanna síð- an daginn eftir 21. april. Blessuð sé minning þeirra hjóna Hauks og Hönnu. Ljós þeirra mun lifa áfram í hjörtum okkar sem enn búum þenn- an heim og þekktum mannkosti þeirra. Guð sem skapar líf og ljós, lætur vakna hverja rós. Hann er Guð sem gefur þér góðan dag og einnig mér. Myrkrið hrekur hann á braut, hjálpar vel í sorg og þraut. Hvert sem leiðin liggur þín lýsir hann þér heim til sín. (Kristján Valur Ingólfsson.) Megi kærleiksljós Krists, hinn ei- lífi logi, sem vermir og lýsir, verða þinn vegvísir. Ég votta aðstandend- um öllum mína dýpstu samúð. Jón Viðar Gunnarsson. Það er sárt að sjá afa og ömmu fara á sama tíma en það er gott að vita að þjáning þeirra er liðin. Minningar mínar eru eins og ljósmyndir úr for- tíðinni, flestar frá barnæsku. Ég man að við fórum oft um helgar í heim- sókn til ykkar, afa og ömmu í Borg- arnesi. Ég man eftir að hafa leikið mér að spila á píanóið, lögin Góða mamma og María átti lítið lamb. Það var alltaf jafn vinsælt að leika sér á píanóinu. Ég man eftir að það var alltaf eitt- hvað á boðstólum hjá ykkur, oftar en ekki hlaðborð af kræsingum og ég man vel eftir brúnum osti sem ég sá aldrei annars staðar, ég veit það núna að þetta var geitaostur sem var send- ur sérstaklega frá Noregi því þá var hann ekki seldur á Íslandi. Þegar við krakkarnir vorum búin að borða fór- um við að píanóinu eða horfðum á teiknimyndir. Ég sé fyrir mér mömmu og pabba að spjalla við þau inni í eldhúsi á með- an Óskar er á píanóinu og ég að dást að skrautmunum. Það hefur alltaf verið ríkt í mér að dást að fallegum hlutum, alveg síðan ég man eftir mér, Og það var þess vegna sem ég var sérstaklega hrifin af fingurbjarga- safni ömmu, og sem táningur ákvað ég að byrja að safna þeim eins og hún. Þessi ákvörðun snemma á ung- lingsárunum er ein af þeim sem hafa fylgt mér eftir það. Nú er ég farin að halda kynningar og hafa samskipti við fólk úti í heimi sem ég hefði aldrei gert nema fyrir þessa heimsókn til þeirra sem barn. Ég man eftir að við fórum í berja- mó þarna nálægt, pabbi fór oft í göngutúr í nágrenninu þarna líka, enda fallegt þar og skemmtilegar gönguleiðir. Ekki skemmdi fyrir að fjaran var rétt utan við eldhúsglugg- an og Hafnarfjallið í beinni sjónlínu. Ég man svo vel eftir því að ganga um fjöruna og safna steinum þaðan. Ég man líka eftir því hvað það var spenn- andi að fara á rakarastofuna til afa og fá klippingu hjá honum. Afi spilaði á ýmis hljóðfæri og þeg- ar ég var lítil fór ég með mömmu og pabba á leikrit þar sem afi spilaði undir á kontrabassa, það var mjög gaman. Afi var líka afskaplega mikið fyrir krossgátur, sérstaklega sunnu- dagskrossgátu Moggans, og hann og mamma eyddu löngum tíma í síman- um við að reyna að leysa þær. Okkur þótti líka sérstaklega gaman að segja afa brandara því þegar hann hló þá beinlínis heyrðist ekki í honum annað en tíst, og tárin runnu í stríðum straumum niður kinnarnar. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Kæru ættingjar og vinir. Ég votta ykkur öllum mína dýpstu samúð. Andrea Sif Jónsdóttir Hauth. Síðasta vetrardag berast okkur fréttir af því að sameiginleg lífsganga hjónanna Hauks og Hönnu sé á enda runnin. Það er örugglega nokkuð sjaldgæft að lífsklukka hjóna sé svo samstillt að endirinn sé nánast á sama augnablikinu. Í þessu tilfelli kemur það ef til vill ekki á óvart, þar sem samvera þeirra og vinátta var al- ger, þau voru eitt, hvort í öðru. Hún var hans og hann var hennar, þannig var upphafið og þannig var endirinn. Kynni mín af Hauki ná yfir allan minn æviveg, við erum bræðrasynir og naut ég samvista við hann á mín- um fyrstu æviárum í Hlíðarhúsi í Hanna Þóranna Samúelsdóttir og Haukur Hafsteinn Gíslason ✝ Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR EINARSSON, Grenigrund 18, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 23. apríl. Útförin fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 3. maí kl. 14.00. Ásta Kristjánsdóttir, Ragnar Bergþór Sigurðsson, Guðný Sjöfn Sigurðardóttir, Ingólfur Valdimarsson, Einar Bragi Sigurðsson og afabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn og faðir, JÓN EYJÓLFSSON, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést á dvalarheimilinu Höfða þriðjudaginn 27. apríl. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 4. maí kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á dvalar- heimilið Höfða, Akranesi. Svava Gunnarsdóttir, Gunnar Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.