Morgunblaðið - 29.04.2010, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„ÞAÐ er mikill áhugi hjá fjárfestum
á að kaupa svona félag og núna er því
rétti tíminn til að fara með það í opið
söluferli,“ segir Helgi S. Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Regins ehf.,
dótturfélags Landsbankans (NBI
hf.). Bankinn auglýsti í gær til sölu
hlutafé í Eignarhaldsfélaginu
Smáralind, sem á og rekur sam-
nefnda verslunarmiðstöð. Selja á
hlutaféð í heilu lagi og verður kaup-
andinn einn eigandi húsnæðisins.
Helgi segir að innlendir og margir
erlendir aðilar hafi sýnt félaginu
áhuga.
Helgi segir að bankinn vilji losa
sig sem fyrst við þær eignir sem
hann hefur þurft að yfirtaka og
áhersla sé lögð á að hámarka verð-
mætið. Smáralind er gott félag að
sögn hans og í góðum rekstri og hef-
ur verið unnið að því að tryggja fjár-
mögnun félagsins. Áhvílandi skuldir
félagsins eru á bilinu 7 til 8 millj-
arðar kr. Hann vill ekki gefa upp
hvaða verðhugmyndir eru uppi eða
hvaða lágmarksverð félagið sættir
sig við. Í nýútkomnum ársreikningi
Smáralindar ehf. er að finna mat á
fjárfestingareign félagsins. Er bók-
fært verð eignarinnar 12.465 millj-
ónir kr. í lok síðasta árs. Tekið er
fram að raunverulegt gangverð
kunni að vera frábrugðið þessu mati
vegna óvissu í efnahagslífinu. Sölu-
ferlið er opið öllum áhugasömum
fjárfestum, sem standast hæfismat
og sýnt geta fram á fjárfestingar-
getu umfram 500 milljónir kr.
Egilshöll á markað í lok árs
Á næstunni hyggur Reginn á sölu
fleiri eigna, sem teknar hafa verið yf-
ir. „Við munum halda áfram að koma
eignum á sölu. Næsti stóri pakki er
Egilshöll. Við vonum að við verðum
tilbúin með það félag á markað í lok
ársins.“
,,Mikill áhugi fjárfesta“
Eignarhaldsfélagið Smáralind til sölu Fjárfestingaeign félagsins metin 12,5
milljarðar um áramót Allt selt og kaupandi verður einn eigandi húsnæðisins
Morgunblaðið/Ernir
Til sölu. Salan á Smáralind ehf. er opin öllum fjárfestum, sem standast hæf-
ismat og geta sýnt fram á fjárfestingargetu umfram 500 milljónir króna.
Í HNOTSKURN
»Fjárfestar sem uppfylla þátt-tökuskilyrði á fyrra stigi
söluferlisins fá afhent gögn 28.
maí.
»Frestur til að skila óskuld-bindandi tilboði er til 16. júní.
»Síðari hluta sölunnar á aðljúka 12. júlí með skilum fjár-
festa á bindandi tilboði.
ALLUR undirbúningur vegna þátttöku Íslands í heims-
sýningunni Expo 2010 Sjanghæ í Kína hefur gengið vel
og verið í samræmi við áætlanir. Sýningin verður opn-
uð á laugardaginn 1. maí.
Hreinn Pálsson, framkvæmdastjóri þátttöku Íslands,
segir Íslendinga í hópi þeirra þjóða sem eru tilbúnar og
hafa fengið mikla fjölmiðlaathygli í Sjanghæ vegna
þess. Hefur Hreinn verið í viðtölum við dagblöð og
sjónvarpsstöðvar á seinustu dögum. Alls hafa birst yfir
80 fréttir af þátttöku Íslands í stærstu fjölmiðlum í
Kína á síðustu fjórum mánuðum.
„Við höfum verið að taka þátt í prufuopnun EXPO
svæðisins og tekið á móti um 22.000 gestum á fjórum
stuttum dögum,“ segir Hreinn. Allt hefur gengið vel að
sögn hans þó langar raðir hafi myndast við íslenska
skálann, stundum vel yfir 1.000 manns í röð fyrir utan.
Hreinn segir úrvalsstarfslið Íslendinga og Kínverja
vinna við íslensku sýninguna. Eitt af markmiðunum sé
að veita upplýsingar um Ísland í gegnum fjölmiðla og
ná þannig til nokkur hundruð milljóna, ekki bara
þeirra 70 milljóna sem búist er við að muni heimsækja
EXPO sýninguna á næstu mánuðum. Heimssýningin í
Sjanghæ verður sú stærsta og umfangsmesta sem hald-
in hefur verið með þátttöku 197 þjóða.
22 ÞÚSUND GESTIR Á FJÓRUM DÖGUM
Ljósmynd/Hreinn Pálsson
Stjórnmálaflokk-
arnir, sem bjóða
fram til sveitar-
stjórna um land
allt, hafa gert
samkomulag um
að takmarka aug-
lýsingakostnað í
aðdraganda
sveitarstjórna-
kosninganna 29.
maí nk.
Samkomulagið
felur í sér að heildarkostnaður hvers
flokks verði ekki hærri en 11 millj-
ónir króna að viðbættum virð-
isaukaskatti á tímabilinu frá 29. apríl
til 29. maí. Er þetta rúmlega 20%
lægri upphæð en miðað var við fyrir
alþingiskosningarnar 2009. Jafn-
framt er samkomulag um að Credit-
info hafi eftirlit með framkvæmd-
inni.
Að samkomulaginu standa Fram-
sóknarflokkur, Samfylkingin, Sjálf-
stæðisflokkurinn og Vinstrihreyf-
ingin – grænt framboð. Flokkarnir
gerðu fyrst samkomulag af þessu
tagi fyrir alþingiskosningarnar árið
2007 og síðan aftur 2009. Þá var há-
marksfjárhæðin 14 milljónir króna.
Flokkarnir
semja um
kostnað
Hámarksupphæð
11 milljónir króna
Smáralind er stærsta versl-
unarmiðstöð landsins og telur
62.730 fermetra.
Sverrir Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri fasteignasöl-
unnar Eignamiðlunar, hefur
langa reynslu af sölu fast-
eigna. Hann segist ekki minn-
ast þess að svo stór bygging
hafi komið í einu lagi í sölu á
fasteignamarkaðinum.
Sverrir segir að þó ekki sé
gróska á fasteignamarkaði á
höfuðborgarsvæðinu með at-
vinnuhúsnæði um þessar
mundir, sé alltaf einhver hreyf-
ing. Nokkur eftirspurn sé eftir
ýmsum tegundum atvinnu-
húsnæðis en lítið sem ekkert
af slíkum fasteignum hafa
komið í sölu.
„Við höfum verið að auglýsa
eftir skrifstofubyggingum mán-
uðum saman sem ekki hafa
fengist,“ segir hann.
Kaupendur séu til staðar og
jafnvel staðgreiðsla í boði en
framboðið hefur verið sáralítið,
hvað sem veldur, að sögn
Sverris Kristinssonar.
Stærsta byggingin
VALIÐ á veit-
ingahúsinu Noma
á Íslandsbryggju
í Kaupmannahöfn
sem besta veit-
ingahús í heimi,
er að mati Frið-
riks V. Karls-
sonar mat-
reiðslumeistara
til vitnis um vin-
sældir þeirrar stefnu að nýta hráefni
úr nærumhverfinu. „Það er ekki
hægt að lesa listann öðruvísi,“ segir
Friðrik og spáir því að næsta stóra
sprengja í matargerð verði sú nor-
ræna. „Rene Redzepi [yfirmat-
reiðslumaður Noma] heldur mjög
fast í að nýta bara norrænar afurð-
ir.“ Sjálfur hefur hann talað fyrir
svipaðri stefnu á Íslandi sl. tíu ár.
Friðrik var í hópi þeirra mat-
reiðslumeistara og veitingahúsa-
gagnrýnenda sem tóku þátt í valinu.
„Þetta er mjög stíft og við megum
t.d. ekki dæma neina staði sem við
höfum ekki borðað á síðustu 18 mán-
uði.“ Hann þekkir líka Redzepi
ágætlega og segir hann mikinn Ís-
landsvin, sem nokkrir íslenskir mat-
reiðslumeistarar hafi unnið fyrir.
„Hann hefur oft komið hingað og ég
upplifi listann í ár sem viðurkenn-
ingu á þeim hugsunarhætti sem ég,
Gunnar Karl [Gíslason yfirmat-
reiðslumeistari á Dill] og fleiri höf-
um staðið fyrir. Við höfum sett okk-
ur ramma sem byggist á hráefni úr
næsta nágrenni sem við leggjum
okkur mikið fram um að fara eftir.“
Norræn sprengja næst
Val tíu bestu veitingahúsanna sýnir vaxandi vinsældir
þess að nýta hráefni úr næsta nágrenni til matseldar
Friðrik V. Karlsson
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt Byggingafélag námsmanna
ses. til að greiða byggingarfyrirtækinu
Þórtaki rúmar 143 milljónir króna en
Þórtak byggði hús fyrir bygginga-
félagið í Hafnarfirði. Byggingafélagið
gagnstefndi Þórtaki og krafðist 146
milljóna króna greiðslu en héraðs-
dómur féllst ekki á þá kröfu.
Málavextir eru þeir helstir að tveir
verksamningar voru gerðir um bygg-
ingarnar, fyrst árið 2005 og svo aftur
2006. Málið fyrir héraðsdómi snerist
um hvort verksamningurinn frá árinu
2005 gilti eða hvort sá síðari frá árinu
2006 ætti að gilda. Fram kemur í
dómnum, að síðla árs 2007 hafi vaknað
grunur, hjá ákveðnum stjórn-
armönnum Byggingafélags náms-
manna, um að ekki væri allt með felldu
varðandi stjórnarhætti félagsins. Hófu
þeir þá að kanna ýmsa fjármálagern-
inga sem fyrrum framkvæmdastjóri,
stjórnarformaður og rekstrarstjóri
komu að. Þá hafi meðal annars komið í
ljós að samningurinn, sem undirrit-
aður var 8. nóvember 2005, hafði verið
endurgerður með dagsetningunni 4.
apríl 2006 án þess að stjórn væri kunn-
gert. Héraðsdómur telur að samning-
urinn frá 2006 gildi.
Greiðir
143 millj-
ónir
Deilt um íbúðir náms-
manna í Hafnarfirði
Friðrik tilheyrir hópi fimm kokka
sem hittast árlega og elda sam-
an. Einn kokkur er frá hverju
Norðurlandanna og er Rene Red-
zepi fulltrúi Dana. „Við hittumst
einu sinni á ári einhvers staðar
úti í náttúrunni og eldum þá úr
nærumhverfinu,“ segir Friðrik. Í
fyrra hafi þeir dvalið í sumarhúsi
í Svíþjóð og fengið afhent elgs-
læri, en annað hafi þeir veitt og
tínt sér til matar úr nánasta um-
hverfi. „Við gerum þetta venju-
lega á haustin og það er ekki enn
ákveðið hvar við verðum næst.“
Elda úti í náttúrunni