Morgunblaðið - 29.04.2010, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 29.04.2010, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010 10 Daglegt líf Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Þetta er kjöt- og fiskbúð,með ferskborð og býðurupp á heitan mat í hádeg-inu, heimilismat á góðu verði,“ segir Jóhann Ólafur Ólason matreiðslumaður um verslunina Til sjávar og sveita sem hann opnaði í Ögurhvarfi í Kópavogi í febrúar. „Það eru til dæmis kótelettur í raspi og plokkfiskur núna í hádeg- inu, það er alltaf í þessum dúr nema á föstudögum þegar við höfum þá reglu að bjóða upp á lambakjöts- steikur og pörusteik,“ sagði Jóhann um matseðil dagsins þegar blaða- maður ræddi við hann í gær. Jóhann var áður verslunarstjóri í Nóatúni í um tuttugu og fimm ár. „Ég er búinn að vera í þessum verslunarbransa í áraraðir. Ég hætti fyrir um tveimur árum í Nóa- túni og datt síðan niður á þetta hús- næði hér og fannst það henta mjög vel fyrir þessa starfsemi. Mér fannst vanta svona verslun, þetta er nánast eins og kaupmað- urinn á horninu, við erum líka með salatbar og frosnar fiskafurðir, fros- in ber, allskonar villibráð, mjólk- urvörur, grænmeti og þurrvörur, ol- íur og krydd og allskonar svoleiðis dót,“ segir Jóhann og bætir við að aðsóknin að versluninni hafi farið fram úr björtustu vonum. „Það hefur verið allt vitlaust að gera hjá okkur í hádeginu. Þeir sem eru að koma í heita matinn eru að- allega hestamenn, enda mikið af „Þetta er bara fjölskyldufyrirtæki“ Jóhann Ólafur Ólason opnaði kjöt- og fiskverslunina Til sjávar og sveita í Kópa- vogi í febrúar. Hann segir alveg brjálað að gera hjá sér í heitum heimilismat í há- deginu og að fólk sæki í að kaupa kjöt og fisk af fólki með reynslu og þjónustulund. Morgunblaðið/Ernir Örtröð Mikið af verka- og hestamönnum borða í hádeginu á staðnum. Heiti maturinn er afgreiddur á neðri hæðinni og svo borðaður í matsalnum uppi. Það verður að segjast að CafeSigr- ún er án efa einn besti hérlendi uppskriftavefurinn. Á honum er hægt að finna mjög mikið af holl- um uppskriftum, sem innhalda ekki hvítt hveiti, ger eða hvítan sykur. Það er Sigrún Þorsteinsdóttir sem heldur síðunni úti og á hún margar þakkir skildar fyrir það. Hún setti vefinn á laggirnar árið 2003, upphaflega til að hafa yfirlit yfir uppskriftirnar sínar. Á síðunni er líka mikið af góðum upplýsingum og ráðleggingum um matargerð. Til dæmis eru ráðlegg- ingar um hvernig má lifa ódýrt og hollt og hvernig er best að útbúa gott nesti. Flokkunum á síðunni er vel skipt niður svo auðvelt er að finna það sem leitað er að, auk þess sem hægt er að leita í uppskriftunum í sérstakri leitarvél á síðunni. Upp- skriftunum er t.d skipt í; brauð, súpur, fiskrétti, kökur og eftirrétti, glúteinlaust og fyrir smáfólkið. Í liðnum Fyrir smáfólkið eru mjög sniðugar uppskriftir fyrir foreldra ungabarna. Þar er hægt að finna uppskriftir að fyrsta grautnum, allskonar grænmetis- og ávaxta- mauki sem hentar fyrir 6 til 9 mánaða börn og svo mauki sem er fyrir 9 til 12 mánaða börn, m.a. er í þeim flokki uppskrift að fyrsta kexinu. Vefsíðan: www.cafesigrun.com Morgunblaðið/Ásdís Kökur Dökk súkkulaðikaka sem er þó án súkkulaðis af CafeSigrún. Frábær uppskriftavefur Það er oft freistandi eftir strembinn vinnudag að kaupa skyndibitamat í kvöldmatinn, eina pitsu eða tilbúinn rétt til að hita upp. Að þurfa að eyða hluta af kvöldinu í að elda og vaska upp vex mörgum í augum en er yfirleitt mjög einfalt þegar til kastana kemur. Maturinn á hversdagskvöldi þarf heldur ekkert að vera merkilegur. Að gera plokkfisk frá grunni er mjög einfalt, hvað þá kjötbollur, grænmetisbuff eða bara að sjóða slátur með kartöflum. Að elda heima eitt kvöldið þýðir líka oft að það er afgangur fyrir það næsta, svo það þarf í raun og veru ekki að hafa fyrir elda- mennskunni nema annan hvern dag. Endilega... ...eldið kvöldmatinn heima Matur Dragið eldhúsáhöldin fram. Bónus Gildir 29. apr. - 2. maí verð nú áður mælie. verð Ks frosin lambalæri .................... 998 1.139 998 kr. kg Ks. frosin lambasvið................... 209 298 209 kr. kg Bónus ferskar kjúklingabringur .... 1.598 1.798 1.598 kr. kg Dole bananar ............................ 259 275 259 kr. kg Es bitakökur 150 g .................... 98 139 653 kr. kg Pepsi 2 ltr ................................. 179 219 90 kr. ltr BKI kaffi 500 g .......................... 398 498 796 kr. kg My möndlukaka 420 g ............... 259 398 259 kr. kg My speltbrauð 500 g.................. 229 265 458 kr. kg Bónus hamborgarabrauð 4 stk.... 139 159 35 kr. kg Fjarðarkaup Gildir 29. apr. - 30. apr. verð nú áður mælie. verð Svínakótilettur úr kjötborði.......... 998 1.398 998 kr. kg Svínahnakki úrb. úr kjötborði ...... 998 1.498 998 kr. kg FK ferskur kjúklingur................... 639 799 639 kr. kg Móa kjúklingalæri ...................... 649 998 649 kr. kg KF frosið kjötfars........................ 543 776 543 kr. kg SS blandað saltkjöt ................... 734 1048 734 kr. kg FK bayonne skinka..................... 1.098 1.373 1.098 kr. kg Hagkaup Gildir 29. apr - 02. maí verð nú áður mælie. verð Íslandsnaut ungnauta ribeye....... 2.517 3.595 2.517 kr. kg Íslandsnaut ungnauta entrecote.. 2.517 3.595 2.517 kr. kg Íslandsnaut ungnauta prime....... 2.517 3.595 2.517 kr. kg Jack Daniel’s mar. svínarif .......... 1.119 1.598 1.119 kr. kg Boston skinka ........................... 1.019 1.698 1.019 kr. kg Holta kalkúnabringur.................. 2.097 2.995 2.097 kr. kg Holta kalkúnaleggir .................... 601 859 601 kr. kg Myllu amerískir kleinuhr. m/skra . 109 189 109 kr. stk. Heinz tómats. Top down 2fyrir1 ... 359 718 359 kr. stk. Ariel þvottaefni 25 sk. 2 teg........ 1.299 1.499 1.299 kr. pk. Krónan Gildir 29. apr. - 2. maí verð nú áður mælie. verð Grísalundir ................................ 1.559 2.598 1.559 kr. kg Grísakótilettur............................ 899 1.498 899 kr. kg Grísahnakki úrb. sneiðar............. 899 1.698 899 kr. kg Grísasnitsel ............................... 899 1.698 899 kr. kg Grísagúllas................................ 899 1.598 899 kr. kg Grísahakk ................................. 399 798 399 kr. kg Grísaskankar............................. 250 298 250 kr. kg Grísa spare ribs ......................... 419 698 419 kr. kg Grísabógur hringskorinn ............. 499 598 499 kr. kg Grísasíður pörusteik ................... 559 798 559 kr. kg Nóatún Gildir 29. apr. - 2. maí verð nú áður mælie. verð Nóatúns tvírifjur salt & pip. ......... 2.208 2.598 2.208 kr. kg Nóatúns læriss. salt & pipar ....... 2.293 2.698 2.293 kr. kg Ungnautafille ............................ 2.598 3.898 2.598 kr. kg Ungnautafille með sítrónup......... 2.598 3.898 2.598 kr. kg Íslenskt úrvals hrefnukjöt............ 1.598 1.798 1.598 kr. kg Lambaprime ............................. 2.249 2.998 2.249 kr. kg Ungnautahakk........................... 948 1.398 948 kr. kg Nóatúns skinka ......................... 328 469 328 kr. pk. Fiskibollur ................................. 896 1.149 896 kr. kg Axxento kaffibaunir 1 kg ............. 1.182 1.390 1.182 kr. kg Þín Verslun Gildir 29. apr. - 2. maí verð nú áður mælie. verð Svínalundir úr kjötborði .............. 1.695 2.398 1.695 kr. kg Svínakótelettur úr kjötborði......... 998 1.698 998 kr. kg Svínahnakki úr kjötborði............. 998 1.798 998 kr. kg Ísfugls kjúklingur heill................. 682 975 682 kr. kg Merrild Sens.kaffip. Kenya 111 g 398 525 3.586 kr. kg Daloon Kínarúllur 720 g ............. 798 998 1.109 kr. kg La Choy Teriyaki sósa 296 ml...... 398 519 1.345 kr. ltr Neutral barnablautklútar 63 stk. . 545 675 545 kr. pk. Zendium Classic tannkrem 75 ml 375 489 5.000 kr. kg Helgartilboðin Morgunblaðið/Golli Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið laugardaginn 3. apríl kl. 11–14 Listmunauppboð í apríl Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í síma 551-0400, 896-6511 (Tryggvi), 845-0450 (Jóhann) Síðustu forvöð að koma verkum inn á næsta listmunauppboð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.