Morgunblaðið - 29.04.2010, Qupperneq 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010
hækkað mikið, benti bankinn Sigur-
geiri á þann kost að setja jörðina á
sölu. Það var gert. Þá kom tilboð í
jörðina upp á um 230 milljónir. Hann
taldi það of lágt verð og hafnaði til-
boðinu. Eftir áramótin benti bankinn
þeim á að kanna aftur hvort sami aðili
væri tilbúinn til að kaupa jörðina. Í
framhaldi gerði hann tilboð í jörðina
upp á 150 milljónir.
Þrýstu á með því að lækka
yfirdráttarheimildina
„Þegar sá sem keypti lagði fram
kauptilboð mætti útibústjóri Íslands-
banka á Selfossi til að taka afstöðu til
tilboðsins. Hann gerði gagntilboð
vegna þess að við höfðum enga heim-
ild til þess. Tilboðið fór síðan fyrir
nefnd í bankanum þar sem málið var
afgreitt.“
Sigurgeir sagði að á fundinum þar
sem tilboðið var lagt fram hefði útibú-
stjóri Íslandsbanka sagt með skýrum
hætti að ef þau féllust á að vinna að
málinu í samræmi við vilja bankans
yrðu þau ekki gerð gjaldþrota. Ís-
landsbanki var ekki með veð í naut-
gripunum og hann gerði þeim tilboð
um að kaupa gripina.
Sigurgeir og Þórey fengu ekki
langan tíma til að hugsa sig um. Um
miðjan apríl fengu þau upplýsingar
um að bankinn hefði tekið allt mjólk-
urinnlegg fyrir marsmánuð, sem var
um 2 milljónir króna, til sín og lækk-
aði yfirdráttarheimild búsins úr 4
milljónum í 2 milljónir. Sigurgeir
sagði að þessi aðgerð gerði það að
verkum að hann hefði ekki getað
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
„ÉG hef reynt að berjast á móti
þessu, en eins manns stríð endar aldr-
ei vel,“ segir Sigurgeir Runólfsson,
bóndi á Skáldabúðum í Árnessýslu,
sem neyðst hefur til að hætta búskap.
Viðskiptabanki hans tók ákvörðun
um að selja jörðina. Það var gert án
þess að hún væri auglýst til sölu. Þó
að Sigurgeir og Þórey Guðmunds-
dóttir, kona hans, séu óánægð með
vinnubrögð bankans treystu þau sér
ekki til annars en að samþykkja skil-
mála bankans, enda stóðu þau frammi
fyrir því að vera lýst gjaldþrota ef þau
skrifuðu ekki undir samning um sölu
jarðarinnar.
„Ég hélt að bankarnir ætluðu að
hjálpa fólki. Við erum fimm manna
fjölskylda á götunni og ég er atvinnu-
laus,“ sagði Sigurgeir.
Var ráðlagt að taka erlent lán
Sigurgeir er fæddur og uppalinn á
Skáldabúðum. Hann tók við búi for-
eldra sinna árið 2000. Byggt var nýtt
fjós á Skáldabúðum árið 2005, en það
er búið nýjustu tækni, m.a. mjalta-
þjóni. Hann keypti einnig mjólkur-
kvóta samhliða stækkun búsins og
ræktaði tún úr því að vera 38 hekt-
arar í það að vera 103 hektarar.
Upphaflega voru þessar fjárfest-
ingar fjármagnaðar með innlendum
verðtryggðum lánum hjá Íslands-
banka. Þau lán hækkuðu í takt við
verðbólgu og þegar Sigurgeir átti í
erfiðleikum með að standa í skilum
stakk bankinn upp á að breyta lán-
unum í erlend lán. 60 milljóna króna
láni var breytt í erlent lán sem nú er
komið yfir 130 milljónir. Þegar þessi
breyting var gerð stóð gengisvísitalan
í um 130. „Hann sagði við mig í bank-
anum að þegar gengisvísitalan væri
komin niður í 110 yrði láninu aftur
breytt yfir í íslenskt lán og við mynd-
um hagnast á lækkuninni. Manni
þótti þetta allt mjög sniðugt,“ sagði
Sigurgeir sem segir að hann hefði
sett allt sitt traust á ráðleggingar
bankans.
Selja átti „eins hratt
og hljóðlega“ og hægt væri
Heildarskuldir búsins á Skáldabúð-
um voru vel yfir 200 milljónir þegar
jörðin var seld, en þær voru nær allar
við Íslandsbanka.
„Það sem við erum ósátt við er
hvað bankinn kom óheiðarlega fram
við okkur. Hann laug að okkur. Í des-
ember 2008 fengum við tölvupóst frá
bankanum þar sem sagði: „Ykkar mál
voru samþykkt, megum frysta lánin
og bjarga ykkur aur fyrir heyi. Þurf-
um að útbúa pappírana, læt ykkur
vita þegar þeir eru tilbúnir.“
Fulltrúar bankans komu til okkar í
september í vetur og spurðu hvað við
vildum gera. Við sögðum að við vild-
um halda áfram að búa, en sögðum að
það væri kannski ekki í okkar hönd-
um að ákveða það vegna þess að
bankinn hefði þetta allt í hendi sér.
Þeir sögðu engu að síður að þeir
myndu ganga í málið og gera okkur
kleift að búa áfram. Í kjölfarið var aft-
ur gerð úttekt á fjárhagsstöðunni og
búin til rekstraráætlun þar sem m.a.
var reiknað með kostnaði við endur-
bætur á íbúðarhúsinu.
Um áramót urðu eigendaskipti á
Íslandsbanka og í fyrstu vikunni í jan-
úar fengum við hins vegar þau svör að
það eigi að selja þetta „eins hratt og
hljóðlega og hægt er“ eins og það var
orðað,“ sagði Sigurgeir.
Sigurgeir sagði að eftir að þessi
ákvörðun lá fyrir hefðu mál gengið
hratt fyrir sig. Fyrir um tveimur ár-
um, þegar höfuðstóll lánanna hafði
borgað reikninga vegna reksturs bús-
ins og raunar hefði fjölskyldan ekki
haft neitt til að lifa af. Sigurgeir var
kallaður á fund til útibústjórans á
föstudegi og þar var honum tilkynnt
að á mánudegi eftir viku yrðu öll lán
sett í lögfræðiinnheimtu hjá bank-
anum ef hann gengi ekki frá sölu á
jörðinni.
„Við stóðum frammi fyrir því að
skrifa undir og fá smá pening eða
verða lýst gjaldþrota.“
Afstaða bankans var síðan undir-
strikuð með tölvupósti 20. apríl þar
sem lækkun á yfirdráttarheimildinni
var til umfjöllunar: „Þegar samning-
urinn er undirritaður munum við
hækka heimildina hjá Geira [Sig-
urgeir] aftur í 4 mkr.“
Sigurgeir sagði að áður hefði bank-
inn upplýst bréflega að yfirdráttar-
heimildin myndi falla úr gildi 20. apr-
íl. Heimildin var hins vegar lækkuð
13. apríl.
Sigurgeir sagði að vinnubrögð Ís-
landsbanka í þessu máli væru ekki í
samræmi við vinnubrögð sem banka-
stjóri Íslandsbanka lýsti á aðalfundi
Samtaka atvinnulífsins fyrir nokkrum
dögum. „Að vísu hefur bankinn alltaf
sagt út á við að hann hafi ekki selt
jörðina heldur að við höfum gert það.
Vissulega vorum það við sem skrif-
uðum undir sem seljendur, en það
fylgir ekki sögunni hvaða þvingunar-
aðgerðum bankinn beitti okkur.“
Sigurgeir sagði að hann hefði sagt
við bankann að eðlilegt væri að aug-
lýsa jörðina og sjá hvort fleiri tilboð
kæmu, en bankinn hefði þá sagt að
Sigurgeir yrði sjálfur að bera kostnað
af því að auglýsa og selja jörðina.
Bankinn hefði raunar farið fram á að
hann greiddi sölulaunin til fast-
eignasalans, en hann sagðist ekki
hafa tekið það í mál.
Kvótinn og kýrnar
fluttar af jörðinni
Sigurgeir sagðist vita um bændur í
sveitinni sem hefðu haft áhuga á að
bjóða í jörðina. Einn bóndi hefði haft
samband við bankann og lýst áhuga á
að kaupa, en hann hefði fengið þau
svör að það væri ekkert að gerast í
þessu máli af hálfu bankans. Ábú-
endur á Skáldabúðum væru hins veg-
ar að selja jörðina. Bóndinn hefði líka
haft samband við fasteignasalann og
fengið þar sömu svör.
Sigurgeir sagði að 150 milljónir
væru lágt verð. Þetta dygði varla fyr-
ir meiru en mjólkurkvótanum, bú-
stofni og tækjum. Kaupandinn fengi í
reynd þúsund hektara jörð frítt.
Sigurgeir sagðist hafa fengið þær
upplýsingar að kvótinn og kýrnar
yrðu fluttar af jörðinni sem fyrst. Þar
með færi enn ein jörðin í sveitinni í
eyði. Hann sagði að þessi niðurstaða
væri ekki í samræmi við yfirlýsingar
landbúnaðarráðherra.
„Fjölskylda mín er búin að búa á
jörðinni í um hundrað ár. Ég hef
reynt allt sem ég hef getað til að
bjarga málum. Ég bauð bankanum
m.a. að kaupa hálfa jörðina, en það
virðist ekki vera inni í myndinni. Það
virtist ekki vera hægt að gera neitt
fyrir okkur þó að það sé hægt að gera
ýmislegt fyrir aðra. Ég talaði við alla
sem mér datt í hug að gætu aðstoðað
mig, en enginn virtist telja sig geta
stigið fram og stöðvað þetta. Ég hef
reynt að berjast á móti þessu, en eins
manns stríð endar aldrei vel,“ sagði
Sigurgeir.
Flytja til Hveragerðis
Í vetur var haldinn á Hvolsvelli
fundur skuldugra bænda. Á fundinn
mættu um 30 bændur. Sigurgeir
sagði að hann hefði verið sá eini á
fundinum sem var með viðskipti hjá
Íslandsbanka. „Ég er sá eini í þessum
hópi sem hef fengið svona útreið. Mín
sérstaða var kannski sú að ég var
ekki með viðskiptaskuldir. Þess
vegna var svo auðvelt að afgreiða mín
mál með þessum hætti því að það
þurfti ekki að semja við aðra lánar-
drottna.“
Sigurgeir og Þórey flytja í næsta
mánuði til Hveragerðis. Þórey er búin
að fá vinnu en Sigurgeir er atvinnu-
laus. „Ég er búinn að reyna mikið. Ef
einhvern vantar mann í vinnu þá má
hann hafa samband við mig.“
Strax og búið var að skrifa undir
söluna á jörðinni afhentu Sigurgeir og
Þórey fjósið til nýs eigenda, en þau
mega búa í íbúðarhúsinu til 1. júní.
Þau sögðu það einkennilega tilfinn-
ingu að kveðja kýrnar og hætta bú-
skap. Sigurgeir sagðist ekki geta lýst
tilfinningum sínum til þessara breyt-
inga. Hann sagðist kannski ekki vera
búinn að átta sig fyllilega á því ennþá
að hann væri yfirgefa lífsstarf sitt og
flytja á mölina.
Morgunblaðið/RAX
Kveðja Sigurgeir og Þórey eru að undirbúa sig undir að kveðja Skáldabúðir. Leiðin liggur til Hveragerðis. Sigurgeir er að leita sér að vinnu.
Jörðin seld án auglýsingar
Eftir að hjónin á Skáldabúðum höfðu lenti í ógöngum með erlend lán tók viðskiptabanki þeirra
ákvörðun um að selja jörðina Hún var seld án auglýsingar á mun lægra verði en var í boði árið 2008
„Íslandsbanki mun í næstu viku
hefja að bjóða fyrirtækjum sem
eru með tekjur í íslenskum krón-
um og lán í erlendri mynt að
sækja um höfuðstólslækkun þann-
ig að höfuðstóll lánanna færist
eins og hann var 29. september
2008. Um leið verður lánunum
breytt í verðtryggð eða óverð-
tryggð lán í íslenskum krónum og
við það getur höfuðstóll erlendra
lána til fyrirtækja lækkað allt að 30%.“
Þetta sagði Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslands-
banka, á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins 23. apríl
sl.
Birna sagði ennfremur að „ef að Íslandsbanki
lendir í þeirri aðstöðu að þurfa að leysa til sín fyrir-
tæki vegna skulda er það markmið okkar að koma
þeim sem fyrst í hendur á áhugasömum fjárfestum
og rekstraraðilum í gagnsæju og opnu söluferli.“
Sagði að selja ætti eignir í
„gagnsæju og opnu söluferli“
Birna Einarsdóttir
EFTIR því sem best er vitað hefur tveimur
skuldugum bændum verið gert að selja jarðir
sínar. Þetta eru bændurnir á Skáldabúðum og
Refsstöðum í Borgarfirði. Kaupþing auglýsti
búið á Refsstöðum til sölu og komu átta tilboð.
Hæsta tilboðið kom frá Jóhannesi Kristins-
syni, eiganda kúabúsins í Þverholtum í
Borgarfirði, en Jóhannes er fyrrverandi við-
skiptafélagi Pálma Haraldssonar í Fons. Einn-
ig bárust tilboð af Suðurlandi og úr Skaga-
firði. Kaupfélag Skagfirðinga stóð að baki
tilboði bænda í Skagafirði.
Fyrri eigendur Refsstaða voru hins vegar
með forkaupsrétt sem þeir ákváðu að nýta sér.
Niðurstaðan varð engu að síður sú að kvótinn
frá Refsstöðum fer í Skagafjörðinn og búið
verður lagt niður. Fjósið á Refsstöðum var
tekið í notkun vorið 2008.
Um 500 þúsund lítra kvóti er á Refsstöðum,
en kvótinn á Skáldabúðum er um 300 þúsund
lítrar. Verðmæti mjólkurkvótans á þessum
tveimur búum er samtals um 190 milljónir ef
tekið er mið af þeim kvótaviðskiptum sem átt
hafa sér stað í vetur.
Vilja kvótamarkað
Aðalfundur Landssambands kúabænda
samþykkti í vetur áskorun til landbúnaðar-
ráðherra um að koma á fót kvótamarkaði og
að öll viðskipti með mjólkurkvóta, þar sem eru
aðilaskipti, færu um markaðinn. Baldur Helgi
Benjamínsson, framkvæmdastjóri Lands-
sambands kúabænda, sagði að menn hefðu
áhyggjur af ógagnsæi við þá fjárhagslegu
endurskipulagningu sem nú stæði yfir hjá
skuldugum kúabændum. Með kvótamarkaði
væri tryggt að allir stæðu við sama borð.
Fyrirmynd að kvótamarkaði í mjólkurfram-
leiðslu er sótt til Danmerkur þar sem slíkur
markaður hefur verið starfandi í um 10 ár.
Slíkur markaður er einnig í Þýskalandi.
Eftir að kúabændur samþykktu sína álykt-
un setti landbúnaðarráðherra af stað vinnu í
ráðuneytinu við gerð frumvarps um málið.
Átta tilboð komu í Refsstaði