Morgunblaðið - 29.04.2010, Síða 17
Fréttir 17ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010
TAÍLENSKIR hermenn hleyptu af byssum á mótmæl-
endur í einu úthverfa Bangkok í gær þegar átök hófust
milli öryggissveita og stjórnarandstæðinga. Einn her-
maður beið bana og átján manns særðust í átökunum.
Mótmælendurnir styðja Thaksin Shinawatra, sem var
steypt af stóli forsætisráðherra árið 2006, og vilja að
hann komist aftur til valda.
Þetta er í þriðja skipti sem blóðug átök blossa upp í
Bangkok frá því að mótmælin hófust fyrir nokkrum
vikum. Alls hafa 27 manns beðið bana og nær 1.000
manns særst í átökunum, flestir þeirra 10. apríl þegar
herinn reyndi að binda enda á mótmælin sem hafa orð-
ið til þess að mörgum hótelum og verslunum hefur ver-
ið lokað. Talsmaður hersins sagði að öryggissveitir
biðu nú eftir „rétta tímanum“ til að leggja aftur til at-
lögu við mótmælendurna.
„Þetta er eins og stríð. Þeir berjast við óvopnað fólk,“
sagði einn leiðtoga mótmælendanna.
Reuters
SKOTIÐ Á MÓTMÆLENDUR Í BANGKOK
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
BANDARÍSKA strandgæslan íhug-
ar nú að kveikja í risastórum olíu-
flekk í Mexíkóflóa til að koma í veg
fyrir að hann berist að strönd
Bandaríkjanna og valdi miklum
umhverfisspjöllum.
Flekkurinn myndaðist eftir að
sprenging varð í borpalli 20. apríl.
Óttast er að olíulekinn verði að einu
mesta olíumengunarslysi í sögu
Bandaríkjanna.
Olíuflekkurinn nær nú yfir 74.000
ferkílómetra svæði og var í gær um
32 kílómetra frá strönd Louisiana.
Talið er að flekkurinn geti borist á
land um helgina.
Mikilvæg varp- og
hrygningarsvæði í hættu
Við strönd Louisiana eru um 40%
af votlendi Bandaríkjanna og talið er
að olíumengunin geti ógnað varp-
stöðvum margra fugla, m.a. fágætra
tegunda. Á þessum slóðum eru einn-
ig mikilvæg hrygningarsvæði fiska.
Bandarískir embættismenn sögð-
ust í gær vera að íhuga þann mögu-
leika að kveikja í olíuflekknum þótt
hætta gæti einnig stafað af eldinum
og loftmenguninni af völdum hans.
Sérfræðingar segja að fuglar og
önnur dýr séu líklegri til að sleppa
frá brennandi olíu en olíuflekknum
þótt dýrunum geti einnig stafað
hætta af eiturgufum frá eldinum.
Olíufyrirtækið BP, sem leigði bor-
pallinn, hefur meðal annars notað
fjarstýrða kafbáta til að reyna að
stöðva lekann. Einnig er stefnt að
því að flytja annan borpall á svæðið
til að bora nýja holu í því skyni að
stöðva olíustreymið. Sú vinna gæti
þó tekið of langan tíma, eða tvo til
þrjá mánuði.
Nær fimmtíu bátar og skip eru á
svæðinu til að reyna að hreinsa sjó-
inn og stöðva útbreiðslu olíu-
flekksins.
Íhuga að kveikja í
olíubrák í Mexíkóflóa
Reynt að afstýra miklu umhverfisslysi í Bandaríkjunum
20 km
1
2
2
1
Heimildir: BP, NOAA Office of Response and Restoration
HÆTTULEGUR OLÍULEKI Í MEXÍKÓFLÓA
Risastór olíuflekkur eftir mannskæða sprengingu í olíuborpalli í Mexíkóflóa gæti borist að strönd Bandaríkjanna um
helgina. Forsetinn og þingið í Washington hafa hafið rannsókn á málinu og óttast er að í uppsiglingu sé eitt mesta
olíumengunarslys í sögu Bandaríkjanna
Náttúruverndarsvæði
(Chandeleurs-eyjar)
Náttúruverndarsvæði
Deepwater Horizon
Eldur blossaði upp í olíuborpallinum
eftir sprengingu 20. apríl;
Pallurinn sökk 22. apríl
Olíubrák3,2 km hringlaga
svartur olíuflekkur
Mexíkóflói
Gulfport Biloxi
MobileBANDARÍKIN
LOUISIANA
MISSISSIPPI
ALABAMA
BANDARÍKIN
KANADA
Fjarstýrðir kafbátar eru notaðir til að
fylgjast með Macondo-borholunni
og hugsanlegt er að þeir verði
notaðir til að gangsetja BOP-búnað
sem getur lokað holu sem verið var
að bora
Borpallur sem nefnist
Development Driller III
(DDIII) verður fluttur á
staðinn og á að bora nýja
holu sem á að fara inn í
Macondo-borholuna
Nýja holan verður notuð til
að dæla þungum vökva í
borholuna til að stöðva
olíustreymið þannig að
hægt verði að vinna að því
að loka henni varanlega
1.525 m
Fjöldi skipa er á staðnumDDIII
Borpallurinn
sem sökk
Uppstreymis-
pípa Horizon
Kafbátar
ÁÆTLUN BP UM NEYÐARVIÐBÚNAÐ
Olíulind
5.500 m
dýpi
BOP-loki
Horizon
Macondo-
borholan
Fyrirhuguð
borhola
SAMKOMULAG Rússa og Norð-
manna um skiptingu 176.000 ferkíló-
metra svæðis í Barentshafi er gulls
ígildi fyrir sjávarútvegsfyrirtæki og
olíuiðnaðinn í Noregi, að sögn
norskra sérfræðinga.
Samkomulagið þýðir að olíu- og
sjávarútvegsfyrirtæki geta þegar í
stað byrjað að kortleggja auðlindirn-
ar á hafsvæðinu sem gæti reynst
mikil „gullnáma“, að sögn Johans
Petters Barlindhaugs, prófessors og
stjórnarformanns olíufyrirtækisins
North Energy. Hann segir að norsk
stjórnvöld þurfi að leggja þegar í
stað fé í rannsóknir á svæðinu. „Nú
hefst kapphlaupið, það vita Rússarn-
ir líka,“ hefur norska dagblaðið
Aftenposten eftir Barlindhaug.
Øystein Noreng, prófessor í olíu-
hagfræði, tekur í sama streng og
segir að það sé „óhugsandi“ að Norð-
menn geti ekki hafið olíu- og gas-
vinnslu á svæðinu.
Fréttavefur norska ríkisútvarps-
ins hefur einnig eftir talsmanni
Statoil, Ola Morten, að miklar olíu-
og gaslindir séu á svæðinu.
Í samræmi við þjóðarétt
Norsk sjávarútvegsfyrirtæki
hugsa einnig gott til glóðarinnar og
samtök norskra atvinnurekenda
fögnuðu samkomulaginu. „Ný og
stór matarkista hefur verið opnuð,“
sagði talsmaður samtakanna.
„Þetta hefur mikla þýðingu fyrir
norskan sjávarútveg. Við getum nú
hafið nýtingu á stóru hafsvæði,“
sagði Reidar Nilsen, formaður
Norges Fiskarlag, heildarsamtaka í
sjávarútvegi.
Norska stjórnin hefur þó einnig
verið gagnrýnd fyrir að falla frá
þeirri kröfu að farið yrði eftir mið-
línureglunni við skiptingu svæðisins.
Norski hafréttarsérfræðingurinn
Carl August Fleischer sagði þó að
tilslökunin væri eðlileg og í samræmi
við þjóðarétt. bogi@mbl.is
Telja að haf-
svæðið verði
mikil gullnáma
„Stór matarkista hefur verið opnuð“
GORDON Brown, forsætisráðherra
Bretlands, baðst í gær afsökunar
eftir að hafa komið sér í klípu með
því að móðga kjósanda rúmri viku
fyrir kosningar. Brown lét óvart
heyrast til sín þegar hann uppnefndi
66 ára gamla ekkju og sagði hana
„fordómafulla“, eftir að hafa spjallað
við hana fyrir framan hljóðnema.
Konan ræddi við hann um skuldir
hins opinbera, skatta og málefni inn-
flytjenda í bænum Rochdale í norð-
vesturhluta Englands. Eftir sam-
talið steig Brown upp í bíl og honum
var ekið burt. Þá var forsætisráð-
herrann enn með þráðlausan hljóð-
nema í barminum og í beinni útsend-
ingu. Þar heyrðist hann eiga samtal
við aðstoðarmann sinn.
„Þetta var algjört stórslys,“ sagði
Brown. „Þetta var bara einhver for-
dómafull kona.“
Eftir að fjölmiðlar skýrðu frá at-
vikinu fór forsætisráðherrann í
heimsókn til ekkjunnar og bað hana
auðmjúklega afsökunar. „Ég blygð-
ast mín fyrir það sem gerðist,“ sagði
hann.
Brown kom sér í
klípu með skyssu