Morgunblaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 31
Menning 31FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010
NÚ STENDUR í Hafnarhús-
inu útskriftarsýning nemenda í
Listaháskólanum. Liður í einu
verkinu er verk annarra, ef svo
má segja, því hluti af því er
listagallerí, Gallerí Veggur, og
þar er ýmsum utanaðkomandi
boðið að sýna verk sín í
skamman tíma. Á morgun mun
Elísabet Brynhildardóttir sýna
þar verkið Os On-Station 57°N
20°A, eða réttara sagt upphafs-
punkt þess verks, því hún er rétt að byrja að vinna
það. Sýning hennar verður opnuð kl. 18:00 á
morgun og stendur fram á laugardag, en Elísabet
sýnir verkið meðal annars til að leita eftir aðstoð
áhorfenda við að láta því miða áfram.
Myndlist
Os On-Station 57°N
20°A á Gallerí Vegg
Elísabet
Brynhildardóttir
ÁHUGALEIKHÚS atvinnu-
manna sýnir í dag fjórða ör-
verkið um áráttur, kenndir og
kenjar. Í apríl hugleiðir leik-
hópurinn þá grimmd sem fellst
í áfellisdómum yfir þeim sem
leiddu þjóðina til falls. Í stað
þess að einblína á dóminn hef-
ur leikhópurinn einsett sér að
veita fyrirgefningunni rými og
býður fólki að taka þátt í eins-
konar friðþægingarathöfn sem
felst í játningu eða bón um fyrirgefningu í beinni
útsendingu á netinu á slóðinni www.her-
bergi408.is. Athöfnin fer fram í Útgerðinni, gjörn-
ingarými Hugmyndahúss háskólanna við Granda-
garð 16, kl. 12:30 í dag.
Leiklist
Fyrirgefning og
friðþægingarathöfn
Árni Pétur
Guðjónsson
KARLAKÓRINN Söng-
bræður í Borgarfirði ætlar að
syngja í Hásölum, Hafnarfirði,
föstudaginn 30. apríl kl. 20:00
ásamt Karlakór Kópavogs.
Kórinn hefur starfað í rúmlega
30 ár í Borgarfjarðarhéraði.
Hann var upphaflega kór í
uppsveitum Borgarfjarðar, en
nú syngja með kórnum menn
frá Ströndum í norðri, Dölum
og Hnappadal í vestri og suður
um allan Borgarfjörð.
Stjórnandi kórsins er Viðar Guðmundsson, inn-
fæddur Borgfirðingur, en nú búsettur á Mið-
húsum á Ströndum þar sem hann er tónlistar-
kennari, organisti og sauðfjárbóndi.
Tónlist
Söngbræður syngja
í Hafnarfirði
Viðar
Guðmundsson
Fjallað verður um
endalokin í þessum
pistli, svo haldið ykkur
fjarri! 36
»
EINS OG fram hefur komið í frétt-
um komst sænski klarínettuleik-
arinn Martin Fröst ekki til landsins
í tæka tíð til að leika einleik í klar-
ínettukonsert Kalevi Aho með Sin-
fóníunni í kvöld, enda hefur eld-
gosið í Eyjafjallajökli sett allt úr
skorðum.
Það voru því góð ráð dýr að finna
annað verk með svo skömmum fyr-
irvara, en úr varð að Sinfóníu-
hljómsveitin leikur Dansa frá Polo-
vetsíu eftir Borodin.
Á efnisskránni er, sem forðum,
fjórða sinfónía Tsjajkovskíjs, sem
kölluð hefur verið „örlaga-
sinfónían“, og forleikur að óp-
erunni Khovanschina eftir Módest
Músorgskíj.
Dansarnir sem bætast við eru úr
óperunni Ígor prins eftir Alexander
Borodin, en hann vann að óperunni
í átján ár og tókst ekki að ljúka
verkinu. Dansarnir eru úr öðrum
þætti óperunnar.
Rumon Gamba stýrir hljómsveit-
inni í kvöld.
Rómantík Rumon Gamba stýrir
Sinfóníuhljómsveitinni í kvöld.
Rússnesk
rómantík í
boði Sinfó
Borodin hleypur í
skarðið fyrir Aho
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
SÖNGDEILD Tónlistarskóla Kópa-
vogs sýnir óperuna Carmen eftir
Georges Bizet í Salnum á morgun og
á sunnudag, kl. 20:00 báða dagana.
Anna Júlíana Sveinsdóttir, söng-
kennari skólans, stýrir uppsetning-
unni. Tónlistarstjóri og píanóleikari
er Krystyna Cortes og Elín Ásta
Ólafsdóttir annast hljóð og myndir.
Söngvarar í sýningunni eru nem-
endur við skólann, fimmtán nem-
endur úr söngdeildinni og tveir
hljóðfæraleikarar sem syngja að
auki og fimm börn úr skólanum, en
einnig leika tveir trompetleikarar. Í
helstu hlutverkum eru Elín Arna
Aspelund, Hilmir Freyr Jónsson,
Sigurjón Örn Böðvarsson, Elva Lind
Þorsteinsdóttir, Alexander Jarl Rík-
harðsson, Anna Guðrún Jónsdóttir,
Bryndís Guðjónsdóttir og Aron
Steinn Ásbjarnarson.
Anna Júlíana Sveinsdóttir segir
að æfingar hafi staðið í allan vetur,
enda mikið fyrirtæki að setja óperu
á við Carmen upp. Hún býr að tal-
verðri reynslu í að setja óperur upp
með skólanum, því þetta er átjánda
óperuuppfærslan sem hún stýrir á
síðustu fimmtán árum, en sum árin
hafa óperurnar verið tvær og tekur
hver nemandi þátt í nokkrum upp-
færslum á námstímanum.
„Ég hef alltaf valið nýja óperu í
hvert sinn, enda mjög mikilvægt fyr-
ir nemendurna að læra að syngja og
leika samtímis, að læra að samsama
sig hlutverkinu, lifa sig inn í það.“
Sumarið fer alla jafnan í að velja óp-
erur fyrir hópinn og verður að velja
hana eftir þeim röddum sem hún
hefur tiltækar hverju sinni.
„Það er sérstaklega gaman að
taka þátt í því að setja Carmen upp
enda söng ég það hlutverk sjálf á
sínum tíma og gaman að fá að upp-
lifa óperuna í gegnum nýja Carm-
en.“
Tónlistarskóli Kópavogs setur upp Carmen
Morgunblaðið/Kristinn
Mikilvægt Elín Arna Aspelund Carmen, Vera Sjöfn Ólafsdóttir og Anna Margrét Gunnarsdóttir sígaunastúlkur,
Bryndís Guðjónsdóttir Mersedes, Anna Guðrún Jónsdóttir Fraskíta og Hilmir Freyr Jónsson Don José.
Átjánda óperuuppfærslan
FYRIR tæpum tveimur árum lagði
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir af stað
með verkefni sem nefnist Rétt-
ardagur - 50 sýninga röð, en að
byggist á því að hún setur upp 50
ólíkar sýningar víða um heim á tíma-
bilinu júní 2008 til júní 2013.
Sýningar úr röðinni hafa þegar
verið settar upp í Bretlandi, Hol-
landi, Þýskalandi og hér heima, en á
laugardaginn kl. 15:00 verður
nítjánda sýningin opnuð í Nútímalist
á Skólavörðustíg.
Sýningarnar eiga það sameig-
inlegt að túlka menningararfleifð ís-
lensku sauðkindarinnar. Aðalheiður
lýsir því svo að sá dagur þegar fé er
safnað af fjalli, sé töfrum líkastur,
„upphaf nýs tímabils, menning og
allsnægtir, er viðfangsefni mitt.
Ég er áhugamanneskja um
náttúruvæna og þjóðlega atvinnu-
vegi eins og búskap, og hef sjálf hag-
að lífi mínu þannig. Ég flokka sorpið
og nýti til listsköpunar margt af því
sem fellur til á heimilinu.“
Aðalheiður segir að þegar hún
hafi tekið til við að vinna þrívíð verk
hafi hún lagt leið sína á gámasvæðið
á Akureyri í hráefnisleit og þar hafi
verið ríkuleg uppskera. „Mér líkar
tilhugsunin um að vera hluti af heild.
Setja saman skúlptúra úr timbri
sem smiðir hafa sagað niður og jafn-
vel málað, niðurrif af gömlum húsum
með sína sögu og sál, afsag frá
smíðakennslu eða sólpöllum og gef-
ur þetta að mínu mati verkunum
aukna vídd.“
Verkin sem hún sýnir eru aðallega
timburskúlptúrar. „Ýmsar myndir
mannlífs hafa verið viðfangsefni mitt
alla tíð, fyrst á tvívíðan flöt, en í
seinni tíð þrívíðan. Þegar vinna mín
beindist í átt að sauðkindinni áttaði
ég mig á því að ég hafði verið að
vinna á svipuðum nótum alla tíð.“
Réttardagur - 50 sýninga röð Aðalheiðar Eysteinsdóttur
Menningararfleið Ís-
lensku sauðkindarinnar
Þrívídd Frá sýningu á verkum Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur sem opnuð
verður í Nútímalist á Skólavörðustíg.
NÆSTKOMANDI laugardag kl.
17:00 verða úrslit í hönnunarsam-
keppni í anda Ásmundar Sveins-
sonar kunngerð í Listasafni Reykja-
víkur, Ásmundarsafni. Óskað var
eftir tillögum að nytjahlut sem end-
urspegla skyldi hugarheim og verk
myndhöggvarans Ásmundar Sveins-
sonar og alls bárust 68 tillögur. Að
samkeppninni stóðu verslunin
Kraum, Listasafn Reykjavíkur og
Hönnunarmiðstöð Íslands.
Verðlaunahafi hlýtur fjárupphæð í
verðlaun, auk þess sem hluturinn
verður seldur í verslunum Kraums í
Aðalstræti og á Kjarvalsstöðum og í
safnverslunum Listasafns Reykja-
víkur í Hafnarhúsi og Ásmund-
arsafni. Sigurhugmyndin verður
sýnd á laugardag og fjórtán hug-
myndir til.
Á sama tíma verður opnuð sýn-
ingin Ég kýs blómlegar konur ...
Konur í verkum Ásmundar Sveins-
sonar, þar sem sjónum er beint að
konum og kvenímyndinni í verkum
Ásmundar. Þá hefur hluti af vinnu-
stofu Ásmundar verið endurgerður,
sem gerir gestum kleift að skyggn-
ast inn í líf og starf myndhöggv-
arans.
Titill sýningarinnar er tilvitnun í
Ásmund sjálfan í viðtali við hann
sem birtist í Þjóðviljanum sumarið
1961. Verkin á sýningunni spanna
allan feril Ásmundar og sýna allt frá
fyrstu raunsæisverkum hans til
íburðarmikilla framsetninga hans á
kvenkynsímyndum. Sýningarstjóri
er Yean Fee Quay.
Nytjahlutir og
blómlegar konur
Hönnunarsamkeppni í anda Ásmundar
Sveinssonar og sýning á verkum hans
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Hönnunarsamkeppni Myndhöggv-
arinn Ásmundur Sveinsson.