Morgunblaðið - 31.05.2010, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 3 1. M A Í 2 0 1 0
Stofnað 1913 124. tölublað 98. árgangur
KAMMERHÓPUR OG
SAGNFRÆÐINGUR
Í SVIÐSLJÓSINU
DAUÐAROKK
Á SÓDÓMU
REYKJAVÍK
LISTRÆN
SYSTKINI MEÐ
NÆM AUGU
FJÖR Í BÆNUM 34 MEISTARAR 10TÍÐARANDINN 31
Aldrei hafa fleiri skilað auðu í sveit-
arstjórnarkosningum hér á landi.
Hlutfall auðra seðla og ógildra af
heildarfjölda greiddra atkvæða í
þeim 58 sveitarfélögum þar sem
gengið var til hlutbundinna kosn-
inga var 6,4% og er nálægt því að
þrefaldast frá því í síðustu kosning-
um þegar það var 2,4%. Sama hlut-
fall var 2% í kosningunum 2002 og
2,7% 1998.
Alls skiluðu 9.486 kjósendur auðu,
en ógildir seðlar voru 583 talsins.
Hæst hlutfall auðra atkvæðaseðla
var í Hafnarfirði, en þar skiluðu
1.578 manns, eða 13,6 prósent kjós-
enda, auðum seðli í kjörkassann í
gær. Alls voru 106 seðlar ógildir.
Samanlagt skiluðu 14,5 prósent
kjósenda inn auðum eða ógildum
seðli. Kjörsókn í Hafnarfirði var af-
ar dræm, eða aðeins 65 prósent.
Á Álftanesi var einn af hverjum
tíu kjörseðlum auður eða ógildur.
Í Árborg var hlutfall auðra seðla
tæp níu prósent af fjölda greiddra
atkvæða, en heildarfjöldi auðra at-
kvæða var 372 og ógildir seðlar voru
35.
Í Hafnarfirði og í Árborg voru að-
eins fjórir flokkar í kjöri en engin ný
framboð líkt og í flestum stærri
sveitarfélögum landsins.
Kosið var hlutfallskosningu í 58
sveitarfélögum. Af þeim 22 sveitar-
félögum sem hafa 2.000 íbúa eða
fleiri hélt meirihlutinn í tólf sveitar-
félögum. Í sex þeirra náði stærsta
framboðið hreinum meirihluta.
Aldrei hafa fleiri skilað auðu
Tæplega tíu þúsund kjósendur skiluðu auðum seðli í kjörkassann á laugardag
Flestir skiluðu auðu í sveitarfélögum þar sem engin ný framboð komu fram
Auðir og ógildir
2006
2010
2,4%
6,2%
Morgunblaðið/Ómar
Kosningar Beðið eftir því að kjósa.
„Það er ekki
nokkur vafi að
forysta flokksins
þarf að hugsa
sinn gang,“ segir
Þorleifur Gunn-
laugsson, fráfar-
andi borgar-
fulltrúi Vinstri
grænna, að-
spurður um stöðu
Steingríms J. Sig-
fússonar, formanns flokksins, eftir
sveitarstjórnarkosningarnar.
„Við þurfum að taka upp mál sem
varða lýðræðisleg vinnubrögð og að
þora að ræða um hlutina. Ég á með
því við að við þurfum að búa til betri
og meiri vettvang fyrir almenna fé-
laga til að hafa áhrif á stefnu flokks-
ins,“ segir Þorleifur sem telur for-
ystu flokksins í litlum tengslum við
alþýðu manna. Þar sé á ferð
menntafólk í „glerhýsi“. » 4
Lýðræðisleg
vinnubrögð
skortir í VG
Þorleifur
Gunnlaugsson
„Fyrir mánuði
hafði sennilega
enginn trú á því
að við stæðum í
þessum sporum í
dag; að hafa unn-
ið Meistaradeild-
ina og sitja í efsta
sæti þýsku 1.
deildarinnar,“
sagði Alfreð
Gíslason þjálfari Kiel við Morgun-
blaðið í gær eftir að hann stýrði liði
sínu til sigurs í Meistaradeild Evr-
ópu í handbolta þegar það vann
Barcelona, 36:34, í úrslitaleik í Köln.
Hafnfirðingurinn Aron Pálmarsson
var í sigurliði Kiel. „Það er stórkost-
legt fyrir hann að vera hluti af þessu
liði, ekki eldri en hann er,“ sagði Al-
freð um Aron. » Íþróttir
Íslenskir
meistarar
Alfreð og Aron urðu
Evrópumeistarar
Alfreð Gíslason
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það er í rauninni ekkert í stefnunni. Það var sam-
eiginleg ákvörðun miðstjórnar Besta flokksins að
við skyldum reyna þetta fyrst,“ sagði Jón Gnarr,
oddviti Besta flokksins, um ástæður þess að ekki
skyldi fyrst leitað til Sjálfstæðisflokksins um mynd-
un nýs meirihluta í höfuðborginni.
Fulltrúar Besta flokksins og Samfylkingar höfðu
þá komið saman á leynilegum fundi í gær en það var
niðurstaða hans að ræða framhaldið í dag.
Á eftir að fá yfirsýn yfir stefnumálin
Inntur eftir málefnalista Besta flokksins segir
Jón Gnarr „her manna“ hafa unnið að honum en
hann hafi ekki yfirsýn yfir hann að svo stöddu. Hitt
sé ljóst að áherslur verði bæði til vinstri og hægri.
Jón kveðst sannfærður um að af myndun meiri-
hluta með Besta flokknum innanborðs verði en
framboðið fékk 6 menn og 34,7% atkvæða. Dagur
B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, sagði í
gærkvöldi að viðræðurnar gengju vel.
Ekki búið að ræða verkaskiptingu
„Það er ekki búið að ræða verkaskiptingu þó við
höfum farið yfir víðan völl. Ég hef ekki gert neina
úrslitakröfu um að ég verði borgarstjóri. Besti
flokkurinn hafði samband við okkur og óskaði eftir
viðræðum um myndun meirihluta,“ sagði Dagur
sem boðar gagngera endurskoðun á flokksstarfi
Samfylkingarinnar.
„Það þarf raunverulegar breytingar, ekki bara
einhverja nýja útlitshönnuði.“ Hann rekur rætur
óþols gagnvart flokknum til landsmálanna: „Það er
vegna þeirra verkefna sem ríkisstjórnin er í og
þeirrar útbreiddu tilfinningar að þau gangi of hægt
og séu ekki nógu markviss.“ Saman hefðu flokk-
arnir 9 sæti af 15.
Morgunblaðið/Eggert
Næsti borgarstjóri? Glatt var á hjalla á sigurfundi Besta flokksins í gærkvöldi. Jón Gnarr fékk þar afhenta teikningu eftir listamanninn Hugleik Dagsson.
Undirbúa valdatöku
Oddviti Besta flokksins fullviss um að flokkurinn verði í meirihluta í Reykjavík
Flokkurinn vann sögulegan stórsigur Dagur krefst ekki borgarstjórastólsins
Viðræður í Reykjavík og Kópavogi » 2
Flokkakerfið veikt en ekki dautt »6
Úrslit í 22 stærstu sveitarfélögum »12-13
Stærstu staðirnir krufðir » 4, 14 og 15
Úrslit sveitarstjórnarkosninga