Morgunblaðið - 31.05.2010, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010
www.noatun.is
Grillveislur
www.noatun.is
eða í næstu Nóatúns verslun
Pantaðu veisluna þína á
999VERÐ
FRÁ
MEÐ MEÐL
ÆTIÁ MANN
Grillveislur Nóatúns:
Grísahnakkasneiðar
Lambalærissneiðar
Kjúklingabringur
Lambafile
Ein með öllu
Þín samsetning
FRÉTTASKÝRING
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Úrslit sveitarstjórnarkosninganna
sýna að hið hefðbundna flokkakerfi
(fjórflokkurinn) er veikt. Flokk-
unum hefur ekki tekist að svara
þeim kröfum sem eru í samfélaginu
um endurnýjun og ný vinnubrögð í
stjórnmálum. Úrslitin bæta ekki
stöðu ríkisstjórnarinnar í þeim erf-
iðu verkefnum sem hún er að fást
við og stjórnarandstöðuflokkarnir
eiga enn langt í land með að ná fyrri
styrk.
Í síðustu alþingiskosningum
fengu Samfylkingin og VG samtals
51,5%. Þó erfitt sé að reikna út ná-
kvæmt fylgi þessara tveggja flokka í
sveitarstjórnarkosningunum er ljóst
að vinstribylgjan sem reis á síðasta
ári er horfin. Flokkarnir fá samtals
20% fylgi á Akureyri, 26% í Reykja-
vík og 38% í Kópavogi. Spurningin
er hvernig stjórnarflokkarnir munu
bregðast við þessari slæmu útkomu
og hvaða áhrif þetta hefur á stjórn-
arsamstarfið. Hvernig mun t.d. óró-
lega deildin í VG túlka þessi úrslit?
Mun hún líta svo á að þetta sé sönn-
un þess að ríkisstjórnin sé á rangri
braut og hún þurfi að taka meira
mið af sjónarmiðum þeirra stjórn-
arþingmanna sem gagnrýnt hafa
stjórnina eða munu flokkarnir
þjappa sér saman? Birgir Guð-
mundsson, dósent við Háskólann á
Akureyri, telur líklegt að úrslitin
muni styrkja þau öfl innan VG sem
gagnrýnt hafa stefnu ríkisstjórn-
arinnar. Þau muni líta svo á að þetta
séu skilaboð um að flokkurinn þurfi
að standa betur vörð um stefnumál
sín.
Hætta á klofningi
Stefanía Óskarsdóttir stjórnmála-
fræðingur, segir að ágreiningurinn
innan VG sé það alvarlegur að það
sé raunveruleg hætta á að flokk-
urinn klofni. Í þessu pólitíska um-
róti kunni hópurinn, sem er undir
forystu Ögmundar Jónassonar, að
líta svo á að það sé raunverulegur
grundvöllur fyrir nýju framboði.
Hún vill þó ekki spá því að þetta
gerist, en segir að hættan á klofn-
ingi VG sé fyrir hendi. Það er a.m.k.
enginn vafi á að hættan á klofningi
hefur áhrif á þau verkefni sem
stjórnin er að vinna að.
Stefanía segir að Jóhanna Sigurð-
ardóttir sé óþolinmóður stjórn-
málamaður. Nú sjái menn hversu
fylgið geti verið hverfult og það sé
spurning hversu mikinn tíma rík-
isstjórnin hafi til að koma stefnu-
málum sínum í framkvæmd.
Eftir hrunið haustið 2008 kom
fram hörð gangrýni á flokkana.
Flokkarnir mættu henni að nokkru
leyti með því að skipa nýja menn til
verka. Þetta hefur samt ekki dugað
til. Birgir segir að fjórflokknum hafi
ekki tekist að mæta kröfum sem
gerðar hafi verið úti í samfélaginu
þannig að fólk sé sátt. Spyrja má
hvort það sé nóg fyrir flokkana að
velja nýja menn til forystu án þess
að fram fari nein hugmyndafræðileg
endurnýjun. Flokkarnir þurfi að
setja fram skýra framtíðarsýn og
útskýra á trúverðugan hátt hvernig
þeir sjái fyrir sér að hægt sé að
koma Íslandi út úr kreppunni. Frá
því kreppan reið yfir hafa stjórn-
málin einkennst af viðbragðapólitík
og hefðbundnu pólitísku þrasi.
Þessu eru kjósendur að mótmæla.
Enginn vafi er á að kosn-
ingaúrslitin eru mikið áfall fyrir
fjórflokkinn, en það væri mikill
barnaskapur að afskrifa hann. Það
hefur áður verið sótt að þessum
flokknum, en hann hefur alltaf náð
vopnum sínum. Jafnvel þó að fram
komi ný stjórnmálaöfl munu þau
ekki getað komið sér undan því að
skipuleggja starf sitt í gegnum
stjórnmálaflokka. Ef ákveðið verður
að boða til stjórnlagaþings, sem ger-
ir grundvallarbreytingar á því
hvernig kosið er til þings gæti það
vissulega stuðlað að breytingum á
starfi stjórnmálaflokkanna. Það er
hins vegar óljóst hvort slíkt þing
kemur saman eða hvað gæti komið
út úr starfi þess.
Erfiðar ákvarðanir bíða rík-
isstjórnarinnar í ríkisfjármálum.
Icesave, umsókn um aðild að ESB,
breytingar á stjórnarráðinu og fjár-
festingar í orkumálum eru allt mál
sem valda deilum milli stjórn-
arflokkanna. Haustið gæti orðið
heitt.
Morgunblaðið/Eggert
Milli vonar og ótta Oddvitar flokkanna, Dagur B. Eggertsson, Einar Skúlason, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Sóley Tómasdóttir, Helga Þórðardóttir, Ólafur F. Magnússon, Baldvin Jónsson og Jón
Gnarr, bíða eftir fyrstu tölum í Ráðhúsinu í Reykjavík eftir að kjörstöðum hafði verið lokað. Eins og sjá má var Jón Gnarr strax byrjaður að brosa á meðan aðrir virtust óttast tölurnar.
Flokkakerfið veikt en ekki dautt
Gömlu flokkunum hefur ekki tekist að svara þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra í samfélaginu
Úrslit sveitarstjórnarkosninganna gætu stuðlað að meiri ófriði í samstarfi ríkisstjórnarflokkanna
B D S V F
Fylgi stóru flokkanna á landsvísu
%
45
40
35
30
25
20
15
10
5
0
Aðrir
flokkar Au
ði
r
Ó
gi
ld
ir
Prósent af greiddumatkvæðum Kosningar 2006
9,89,2
40,4
32
22
17,1
9,7
6,7
4,6
0,4
13,6
28,5
2,1
5,8
0,30,4
Fylgi í alþingis-
kosningum
11,7 14,8
36,6 23,7
26,8 29,8
14,3 21,7
7,3 2,2
3,3 7,8
B
D
S
V
F
Aðrir
2007
%
2009
%
Fengu rauða spjaldið
» Vinstribylgjan sem reis í al-
þingiskosningunum í fyrra er
horfin.
» Línuritið sýnir fylgi flokk-
anna í þeim sveitarfélögum þar
sem þeir buðu fram hreina
flokkslista.
» Í minni sveitarfélögum buðu
Samfylking, VG og Framsókn
víða fram lista í samvinnu við
önnur framboð. Stuðningur við
flokkana er því í reynd meiri.
» Um 2/3 af fylgi „annarra
flokka“ á línuritinu er fylgi
Besta flokksins sem bauð fram
í Reykjavík.
Úrslit sveitarstjórnarkosninga
Kosningaúrslitin sýna að Fram-
sóknarflokkurinn er í mikilli til-
vistarkreppu. Þó að flokkurinn
hafi kosið sér nýja forystu og skipt
úr stærstum hluta af þing-
flokknum fær hann víða vonda
kosningu. Hafa þarf í huga að
Halldór Ásgrímsson taldi úrslitin
fyrir fjórum árum svo slæm að
hann ákvað að segja af sér for-
mennsku í flokknum. Þessi úrslit
eru á það heila litið verri fyrir
flokkinn þó hann geti eins og aðrir
bent á góð úrslit í einstökum sveit-
arfélögum.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk í síð-
ustu alþingiskosningum 23,7% at-
kvæða sem voru verstu úrslit frá
stofnun flokksins. Úrslitin um
helgina eru miklu betri, en samt
mun verri en í kosningunum 2006.
Bjarni Benediktsson, formaður
flokksins, benti á eftir að úrslitin
lágu fyrir að hann hafi tekið við
flokknum í sinni dýpstu kreppu og
hann sé að vinna að því að reisa
hann við. Það sé langtímaverkefni
og úrslitin um helgina séu góður
áfangi á þeirri leið.
Þó Sjálfstæðisflokkurinn vinni
víða góða sigra verður ekki fram
hjá því litið að árangur flokksins í
þremur af stærstu sveitarfélögum
landsins, Reykjavík, Kópavogi og
Akureyri, er slakur.
Stefanía Óskarsdóttir segir að
forystu Sjálfstæðisflokksins bíði
erfitt verkefni. Hún þurfi ekki að-
eins að endurheimta traust kjós-
enda eftir hrunið. Hún þurfi líka
að varðveita einingu innan flokks-
ins. Sjálfstæðisflokkurinn hafi allt-
af verið bandalag nokkuð ólíkra
afla og almennt megi segja að for-
ystumönnum hans hafi í gegnum
tíðina tekist vel að varðveita ein-
ingu innan hans. Það sé hins vegar
ekkert sjálfsagt mál að frjálslyndir
hægrimenn sem vilja nánara sam-
starf við ESB og þjóðernissinnaðir
hægrimenn starfi áfram í sama
flokknum. Hún segir að í Sjálf-
stæðisflokknum og raunar í öllum
flokkum sé fólk sem upplifi sig
sem heimilislaust og á hliðarlín-
unni. egol@mbl.is
Stjórnarandstaðan hefur
ekki enn náð fyrri styrk
Betri úrslit fyrir
Sjálfstæðisflokk en í
þingkosningum 2009
Morgunblaðið/Kristinn
Formenn Bjarni Benediktsson og
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.