Morgunblaðið - 31.05.2010, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010
Úrslit sveitarstjórnarkosninganna um helgina liggja fyrir og er óhætt
að segja að niðurstöðurnar í nokkrum sveitarfélögum hafi komið
mjög á óvart. Viðbrögð formanna og talsmanna fjögurra stærstu
flokka landsins, fjórflokksins svokallaða, eru blendin.Víða um land
hafa flokkarnir haldið sínu og jafnvel styrkt sig.
Formennirnir fara ekki leynt með þá skoðun sína að úrslitin í mörg-
um af stærstu sveitarfélögum landsins, þá sérstaklega í Reykjavík og
á Akureyri, eru þeim mikil vonbrigði. Ljóst sé að kjósendur séu að
senda hinum hefðbundnu flokkum sterk skilaboð. Þeir krefjist breyt-
inga. jonpetur@mbl.is
Viðbrögð formanna blendin
„Þetta gekk ekki nógu vel á höfuðborgarsvæð-
inu,“ segir Sigurjón Þórðarson, formaður
Frjálslynda flokksins, spurður út í niðurstöður
kosninganna. Hann er þeirrar skoðunar að íbú-
ar á höfuðborgarsvæðinu séu ekki reiðubúnir til
að ræða um alvöru stjórnmál.
Margir séu enn í sárum í kjölfar efnahags-
hrunsins. Kjósendur í Reykjavík hafi einfald-
lega lýst frati á stjórnmálin með því að kjósa
Besta flokkinn. Nú hafi menn ekki hugmynd um
hvað muni gerast í borginni.
Þá segir Sigurjón að um-
ræðan um málefni flokkanna
hafi orðið undir.
„Við frjálslyndir höfum
ekki fengið áheyrn með okkar
lausnir, sem ég er alveg sann-
færður um að komi þjóðinni
til góða,“ segir Sigurjón.
„Við höfum ekki náð í gegn
og átt undir högg að sækja að
komast í fjölmiðla.“
Spurður hvort Frjálslyndi flokkurinn eigi enn
erindi til kjósenda segir Sigurjón: „Já, ég er á
því. Málefni flokksins eru alveg eitthvað sem við
verðum að taka til umræðu, því þau hafa verið
sett til hliðar,“ segir hann.
Alls fékk Frjálslyndi flokkurinn tvo menn
kjörna í sveitarstjórnir. Sigurjón í Skagafirði og
Kristján Andai Guðjónsson á Ísafirði undir
merki Í-listans, sem er sameiginlegt framboð
frjálslyndra með Vinstri grænum og Samfylk-
ingu.
Umræða um málefni varð undir
Frjálslyndir fengu ekki áheyrn Kjósendur lýstu frati á stjórnmálin
Sigurjón
Þórðarson
Úrslit sveitarstjórnarkosninga
„Mér finnast þessar kosningar vera mjög mik-
ilvægur áfangi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á leið
til þess að endurheimta fyrra traust kjós-
enda,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, að-
spurður um stöðu flokksins
í kjölfar sveitarstjórnar-
kosninganna.
Sjálfstæðisflokkurinn sé
augljóslega að styrkja sig
miðað við þingkosningarnar
á síðasta ári.
„Varðandi mína stöðu og
stöðu Sjálfstæðisflokksins,
þá hef ég ávallt litið á þetta
sem langtímaverkefni. Og
þess vegna er ég ánægður
með það hvar við erum stödd núna, ári eftir
þingkosningarnar. Ég tel að við séum á réttri
leið. Mér finnst líka að dæmin um góða sigra
Sjálfstæðisflokksins, víða um landið, segi okk-
ur einfaldlega þá sögu, að ef menn standa sig,
rísa undir væntingum kjósenda og skila sínu
verki, þá njóta þeir áfram trausts,“ segir
Bjarni.
Hann tekur fram að sjálfstæðismenn séu
alls ekki komnir á leiðarenda. „Við erum í
miðju verki.“
Nýir meirihlutar litu dagsins ljós
Bjarni segir flokkinn hafa unnið fjölmarga
kosningasigra. Víða um land séu niðurstöður
kosninganna ánægjulegar. Flokkurinn hafi
unnið nýja meirihluta, t.d. í Árborg, Mos-
fellsbæ og á Álftanesi. Sjálfstæðismenn hafi
jafnframt styrkt stöðu sína víða, t.d. í Garða-
bæ, á Seltjarnarnesi og í Fjarðabyggð.
Hins vegar verði menn að skoða hvaða skýr-
ingar liggi að baki úrslitunum á hverjum stað
fyrir sig.
„Að sjálfsögðu er niðurstaðan í Reykjavík, í
sögulegu samhengi, ekki viðunandi fyrir okkur
í Sjálfstæðisflokknum. En miðað við aðstæður
og miðað við það að við erum að vinna okkur út
úr hruni þar sem allir flokkar hafa sammælst
um að skella skuldinni á Sjálfstæðisflokkinn
finnst mér að Sjálfstæðisflokkurinn hafi unnið
mjög á í kosningabaráttunni sjálfri, með mál-
efnalegri baráttu,“ segir Bjarni.
Margt sé þó eftir óunnið. „Auðvitað tek ég
eftir því að það eru margir auðir seðlar og
kjörsókn er ekki nema rétt sæmileg, og ýmis
merki sem við tökum auðvitað til okkar. En
þetta er áfangi á ferðalagi sem við erum í í
Sjálfstæðisflokknum.“
R-listinn rústir einar
Hann bendir á að fyrir nokkrum árum hafi
valið í borginni staðið á milli R-listans og Sjálf-
stæðisflokksins. „R-listinn er auðvitað bara í
rúst eftir þessar kosningar, eða þeir flokkar
sem að honum stóðu.“
Ljóst sé að gríðarlega mikil breyting hafi
orðið í borgarpólitíkinni á tiltölulega fáum ár-
um.
„Þó að Sjálfstæðisflokkurinn nái ekki sínu
fyrra fylgi þá stendur hann þó með fleiri full-
trúa en þessir flokkar samanlagt, sem á sínum
tíma stóðu að R-listanum og stýrðu borginni í
mörg ár,“ segir Bjarni. Það liggi í augum uppi
að ekki sé hægt að tala um neina vinstri sveiflu
í sveitarstjórnarkosningunum.
Mjög mik-
ilvægur
áfangi
Bjarni
Benediktsson.
Sjálfstæðisflokkurinn
á réttri leið Staða
flokksins í Reykjavík
ekki viðunandi
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir
að Samfylkingin hafi fengið vonda útkomu í
sveitarstjórnarkosningunum. Úrslitin hafi ver-
ið veruleg vonbrigði. „Þetta var bylmingshögg
sem við fengum og fram hjá því er ekkert
hægt að horfa.“
Aðspurður segir hann að ekki sé hægt að
tengja úrslitin við einhvern einn einstakling.
„Miklu frekar að menn skoði stöðu flokksins
almennt og okkar allra sem erum í framlínu
flokksins.“
Össur segir að niðurstaðan hafi þó ekki
komið sér á óvart. „Hún er jafndjúp vonbrigði
fyrir því. Ég held að þetta sé pólitískur land-
skjálfti sem er að ganga yfir landið,“ segir Öss-
ur. Ekki sé þó hægt að túlka niðurstöðuna sem
skýr skilaboð, líkt og allir stjórnmálaleiðtogar
hafi viljað halda fram.
Friðsöm bylting
„Ég lít miklu fremur á þetta sem höfnun
mjög verulegs hluta almennings á flokkakerf-
inu.“ Þetta hafi verið friðsöm byltingin í gegn-
um kjörklefann, sem sé í reynd ekkert annað
en framhald af febrúarbyltingunni.
„Þetta stafar einkum af tvennu. Í fyrsta lagi
brást flokkakerfið því að greina þann veru-
leika sem hér varð til fyrir hrunið 2008. Og þar
af leiðandi einnig að bregðast við þeim veru-
leika með réttum hætti á árunum á undan. Í
öðru lagi þá er ljóst að í þessum úrslitum felst
líka djúp óánægja þeirra með það hvernig,
a.m.k. okkur sem erum í ríkisstjórn, okkur
hefur tekist að greiða úr þeim fádæma vanda
sem þar kom upp,“ segir Össur.
Samhliða þessu séu landsmenn að lýsa
djúpri óánægju sinni með það að flokkarnir
hafi ekki horfst í augu við sinn eigin hlut af
þeirri stöðu sem ríki.
Össur segir ljóst að Samfylkingin hafi átt
þátt í þeirri röngu þróun
sem hafi orðið hér á landi,
þ.e. hugarfarslega og
starfslega. „Ég tel t.d. að
Samfylkingin hafi ekki
horfst í augu við þá stað-
reynt að hún stillti sér upp í
þeim mögnuðu átökum sem
hér voru allar götur frá
2003 og frameftir þessum
áratug.“
Þetta endurspeglist í nið-
urstöðum kosninganna.
Össur segir að krafan um að fjórflokkurinn
verði lagður niður sé ósanngjörn. Það séu ekki
leikreglur lýðræðisins. „Hinir óánægðu, sem
eru greinilega gríðarlega fjölmennir, þeir eiga
tvo kosti. Annað hvort að leita inn í flokkana
og breyta þeim innanfrá. Eða, sem er ekki
síðri kostur, að stilla sig saman og bjóða upp á
valkosti í stjórnmálunum.“
Spurður hvort boða eigi til þingkosninga
vegna þeirrar stöðu sem sé uppi segir Össur:
„Ég tel ekki að þessi úrslit feli í sér kröfu um
þingkosningar. Alls ekki. Hins vegar getur í
kjölfar þessara úrslita vel komið upp staða inn-
an flokka sem er þannig að það leiði til þing-
kosninga. En það eru engin merki til þess, sem
ég sé núna.“
Össur segir að flokkarnir hafi með vissum
hætti misst samband við veruleikann. „Það
speglast í því að þegar allir flokkarnir horfast í
augu við verulega kosningaósigra, þá virðist
obbi stjórnmálaleiðtoganna leyfa sér það að
túlka það sem einhverja sérstaka sigra. Það er
firring og til marks um algjört sambandsleysi
við veruleikann eins og hann er í dag.“
Ekki náðist í Jóhönnu Sigurðardóttur, for-
mann Samfylkingarinnar, í gær þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir.
„Pólitískur landskjálfti“
Úrslitin veruleg vonbrigði fyrir Samfylkinguna
Flokkarnir hafa misst samband við veruleikann
Össur
Skarphéðinsson
„Það eru nokkur svekkelsi en miklu fleiri sigr-
ar,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins, um niður-
stöður kosninganna.
Hann segir flokkinn hafa
náð mjög góðum árangri
víða um land. „Það eru til
dæmis margir staðir þar
sem hann er að ná mesta
fylgi í áratugi.“
Ljóst sé að flokknum hafi
vegnað illa þar sem
óánægjuframboð hafi boðið
fram. Um sé að ræða sveit-
arfélög þar sem
Framsóknarflokkurinn hafi
verið veikur fyrir, líkt og í
Reykjavík. Þar fékk hann engan borgarfull-
trúa.
Spurður út í stöðu flokksins í borginni segir
hann: „Það var erfitt að fá stóran hluta fram-
sóknarmanna til þess að kjósa flokkinn núna
eftir þann klofning sem varð í prófkjörinu.“
Margir traustir framsóknarmenn hafi ákveðið
að sitja heima að þessu sinni.
Hann bendir á að vandamál flokksins í
Reykjavík, nú sem áður, felist í innbyrðis átök-
um manna. „Núna ætti að gefast tækifæri til
þess að byrja upp á nýtt frá grunni. Við höfum
þegar séð mjög mikinn árangur af endurnýjun
og uppbyggingarstarfi vítt og breitt um land-
ið.“ Það sýni góður árangur víða.
„Á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega í
Reykjavík, þurfa menn að starfa meira eins og
á landsbyggðinni. Ég held að það myndi leiða á
endanum til meira fylgis heldur en hitt. Vegna
þess að áherslur flokksins eiga þrátt fyrir allt
mikinn hljómgrunn í þéttbýlinu, ef hann er
sjálfum sér samkvæmur og þorir að standa á
sínu. Það hefur svolítið vantað upp á það.“
Hvað varðar skilaboð kjósenda til stjórn-
málaflokkanna segir Sigmundur: „Ég held að
það sé óhætt að segja að þetta sé refsing til
þessara hefðbundnu stjórnmálaflokka.“ Í kjöl-
far efnahagshrunsins hafi verið gerð nokkurs
konar bylting og menn hafi séð fyrir sér ann-
ars konar vinnubrögð. „En einu og hálfu ári
seinna hefur eiginlega ekkert breyst til hins
betra. Og jafnvel eru bara ýmsir hlutir verri en
þeir voru. Það er eðlilegt að það skapi gríðar-
leg vonbrigði.“
Þá sé það óheppileg þróun að setja alla
stjórnmálamenn undir sama hatt. „Til að lýð-
ræðið virki sem skyldi þurfa menn að aðgreina
flokka og gera upp á milli manna. Og verð-
launa þá sem eru að standa sig og refsa hin-
um.“
„Svekkelsi
og sigrar“
Margir flokksmenn
sátu heima í Reykjavík
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, segir úrslit sveitarstjórnarkosning-
anna vera mjög kaflaskipt. Það eigi við VG
jafnt sem aðra flokka. „Við verðum fyrir
miklum áhrifum af þessum stóratburðum í
pólitíkinni hér í Reykjavík og á Akureyri. Það
er líka á einu stöðunum þar sem við töpum
mönnum, og talsverðu fylgi. Sérstaklega í
Reykjavík. Við horfumst bara í augu við það.“
Steingrímur segir stöðu VG annarsstaðar á
landinu vera góða. „Þá höldum við öllum
sveitarstjórnarfulltrúum sem við höfum áður
haft og bætum allmörgum við.“ Það sé mjög
ánægjulegt.
„En að sjálfsögðu eru það vonbrigði að
okkur skuli ganga svona illa að halda utan
um okkar fylgi hér í Reykjavík, og að nokkru
leyti á Akureyri þó við höldum nú betur sjó
þar.“ Hann bætir við það séu sterk skilaboð
fólgin í úrslitum kosninganna á höfuðborg-
arsvæðinu og á Akureyri.
„Ég held að það séu skilaboð um óánægju,
vonbrigði, þreytu og skort
á tiltrú gagnvart stjórn-
málunum. Það beinist í
raun og veru að öllum
flokkum. Allir hefðbundnu
stjórnmálaflokkarnir verða
að horfast í augu við það
að það er verið að senda
þeim skilaboð.“
Í þessu felist jafnframt
krafa um öðruvísi vinnu-
brögð og aukið samstarf.
„Menn nálgist hlutina öðruvísi en hin hefð-
bundnu valdastjórnmál hafa verið ávísun á.“
Hvað varðar niðurstöður kosninganna og
þá óánægju sem verið hefur í garð rík-
isstjórnarinnar segir Steingrímur skiljanlegt
að ráðandi öfl séu gagnrýnd. „En nú vill svo
til að stjórnarandstaðan er ekkert síður að fá
þessi skilaboð en við. Framsóknarflokkurinn
nær þurrkast út hér á höfuðborgarsvæðinu.
Sjálfstæðisflokkurinn verður auðvitað fyrir
gríðarlegu áfalli hér í Reykjavík, að maður
tali nú ekki um á Akureyri.“
Spurður út í ummæli Jóhönnu Sigurð-
ardóttir, að niðurstaða kosninganna væri
mögulega upphafið að endalokum fjórflokks-
ins, segir Steingrímur ekki hafa trú á því að
hefðbundnir stjórnmálaflokkar muni brátt
heyra sögunni til. Hann velti fremur fyrir sér
stöðu málefnabundinna stjórnmála. Hann
spyr hvað felist í því þegar flokkur eins og
Besti flokkurinn nái jafn miklum árangri og
raun beri vitni. Í raun án þess að skilgreina
sig með hefðbundnum hætti. „Það er auðvitað
hlutur sem maður veltir mikið fyrir sér.“
Aðspurður segir Steingrímur að úrslit
kosninganna séu ekki skilaboð um að efna
eigi til nýrra þingkosninga. „Það eru engin
ein slík skýr skilaboð sem berast einum flokki
fremur en öðrum. Ég bara einfaldlega sé það
ekki.“ Allir flokkar eigi að nokkru leyti um
sárt að binda um leið og þeir geta bent á góð
úrslit.
Skilaboð kosninganna eru sterk
Slæmt gengi í Reykjavík vonbrigði Óánægja beinist að öllum flokkum
Steingrímur J.
Sigfússon