Fréttablaðið - 21.10.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 21.10.2011, Blaðsíða 4
21. október 2011 FÖSTUDAGUR4 VIÐSKIPTI „Þarna er augljós skekkja á markaðinum sem getur verið verjanleg í einhvern ör- skamman tíma. En að fyrirtæki sé enn í mjúkum faðmi bankanna þremur árum eftir hrun gengur ekki,“ segir Orri Hauksson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, um aðkomu Arion banka að Penn- anum. Fréttablaðið greindi frá því í gær að bankinn hefði nýverið aukið hlutafé Pennans, sem er í 100% eigu félags í eigu Arion, um 200 milljónir króna þrátt fyrir að fyrir- tækið hefði tapað rúmum milljarði króna á síðustu tveimur árum. Til viðbótar lánaði Arion Pennanum 500 milljónir króna í fyrra. Orri segist hafa miklar áhyggj- ur af því almennt að bankar taki fyrir tæki í fangið og styðji við þau á samkeppnismarkaði. „Í þessu til- felli eru það húsgagnaframleiðend- ur sem eru að keppa við starfsem- ina og finnst sú staða sem er komin upp mjög ójöfn og ósanngjörn. Við höfum almennt verið að berjast fyrir því að bankarnir séu ekki að halda lífinu í starfsemi sem er ekki sjálfbær.“ Skúli Rósantsson, eigandi hús- gagnaverslunarinnar Casa, segir Pennann hafa verið að eltast við birgja sem einungis hafi versl- að við Casa árum saman.„Þeir hafa verið að eltast við birgja sem ég hef verið að versla við árum saman. Velta í húsgagnaverslun hefur eðlilega dregist saman á Íslandi eftir hrun. Þegar birgjar fá stórar pantanir frá nýjum aðila sem getur sýnt fram á miklu meiri veltu en við, þó að hluti hennar sé vegna sölu á pappír og pennum, þá hugsa þessi fyrirtæki sig um. Á sama tíma styður bankinn við Pennann með því að setja fullt af peningum inn í rekstur hans til að mæta taprekstri. Það er ekki hægt að keppa gegn svona atgangi bank- anna.“ Guðmundur Ásgeirsson, fram- kvæmdastjóri Á. Guðmundsson, segist velta því fyrir sér hvort framlegð og afkoma skipti í raun engu máli hjá Pennanum. „Við höfum lengi verið að selja skrif- stofu- og skólahúsgögn í sam- keppni við Pennann. Þeir hafa mest verið að flytja inn sín skóla- húsgögn. Fyrir hrun voru þau hús- gögn á svipuðu verði eða dýrari en þau sem við bjóðum. Núna virð- ast þau orðin ódýrari, þrátt fyrir gengishrunið. Maður veltir því fyrir sér hver framlegðin er af slíkum viðskiptum og hvort hún skipti kannski engu máli. Ef svo er þá skiptir afkoman heldur engu máli því það koma þá peningar frá bankanum ef vantar.“ thordur@frettabladid.is Faxafeni 14 www.heilsuborg.is Vilt þú dansa þig í form? Nýtt Zumba námskeið hefst 31. október. Einföld spor, skemmtileg tónlist og góður félagsskapur. Skráðu þig strax í síma. 5601010 eða á heilsuborg@heilsuborg.is Zumba þri. og fim. kl. 18.30 Zumba II (fyrir lengra komna)- þri. og fim. kl. 17.30 (4 vikur kr. 11.900 eða 7.900 í áskrift) GENGIÐ 20.10.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 214,3923 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 115,18 115,72 181,90 182,78 159,16 160,06 21,376 21,502 20,608 20,730 17,490 17,592 1,4980 1,5068 181,59 182,67 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512- 5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is Staða Pennans sögð skekkja markaðinn Orri Hauksson segir banka ekki eiga að halda lífinu í ósjálfbærum fyrirtækjum. Samkeppnisaðili segir Pennann reyna að ná til sín birgjum. Annar segir fram- legð og afkomu ekki virðast skipta máli hjá Pennanum. FLYTUR STARFSEMI SÍNA Penninn hefur tekið á leigu þriggja hæða húsnæði í Skeif- unni undir hluta af starfsemi sinni. Húsnæðið er við hliðina á samkeppnis aðilanum Casa. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ... að fyrirtæki sé enn í mjúkum faðmi bankanna þremur árum eftir hrun gengur ekki. ORRI HAUKSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI SAMTAKA IÐNAÐARINS VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 22° 14° 10° 11° 11° 9° 11° 11° 25° 14° 19° 16° 22° 8° 12° 22° 7°Á MORGUN 8-15 m/s á Vestfj., annars hægari SUNNUDAGUR 8-15 m/s N- og V-til, annars hægari. 4 3 6 5 5 5 4 4 5 5 7 1 7 5 7 6 68 3 5 4 3 5 4 5 6 6 0 -1 1 34 KÓSÝ INNANDYRA Nú er tími til að kveikja á kertum og hita kakó. Úrkoma V-til í dag en bjartara A-til. Væta víðast hvar á morgun og strekk- ingur NV-til. Snýr í N-átt á sunnudag og kólnar í veðri með slyddu eða snjókomu N-til. Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður SJÁVARÚTVEGUR Þrátt fyrir að her- ferð samtakanna Whale and Dolphin Conservation Society (WDCS) um sniðganga fisk frá HB Granda hafi staðið í um tvo mánuði hefur ekki orðið vart við minnkandi sölu. WDCS hvöttu til sniðgöngu á fisk- veitingahúsum sem selja fisk frá HB Granda til að mótmæla hval- veiðum Íslendinga, en Hvalur hf. er stærsti einstaki hluthafinn í HB Granda. Svavar Svavarsson, markaðs- stjóri HB Granda, segir í samtali við Fréttablaðið að aðgerðirnar hafi ekki haft teljandi áhrif á fyrirtækið. „Við höfum feng ið e i t t- hvað af tölvu- póstum, en mér finnst heldur hafa dregið úr því undanfarið,“ segir Svavar. „Hvað varð- ar sölu á okkar fiski, samskipti okkar við mark- aðinn, kúnna og veitingastaði, er ekkert hikst í gangi og hefur ekki verið. Ég missi allavega ekki svefn yfir þessu.“ - þj Hvalaverndunarsamtök hvetja til að fiskur frá HB Granda verði sniðgenginn: Engin áhrif á fisksölu í Bretlandi FINNA EKKI FYRIR HERFERÐINNI Boðuð herferð gegn breskum fiskveitingastöð- um sem selja fisk frá HB Granda, hefur ekki skilað sér í minnkandi sölu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SVAVAR SVAVARSSON Á vef Whale and Dolphin Conservation Society segir að fiskur frá HB Granda hafi sterka stöðu á markaði með „fisk og franskar“ í Bretlandi. Það er eins konar þjóðarréttur Breta, en á ell- efta þúsund slíkra veitingastaða er þar í landi. Warners er einn af helstu birgjunum og hefur átta prósenta markaðshlutdeild ef marka má vef WDCS, en þar segir einnig að Warners fái „nær allan“ sinn fisk frá HB Granda. WDCS vill að þrýst verði á Warners að hætta að versla við fyrirtæki sem tengjast hvalveiðum. Fiskur og franskar DÓMSMÁL Maður um tvítugt hefur verið dæmdur í tólf mánaða fang- elsi fyrir vopnuð rán, þjófnað, eignaspjöll og fíkniefnalagabrot. Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa rænt verslun 10-11 í Grímsbæ í desember 2010 vopn- aður hnífi. Hann rændi fimmtán þúsund krónum auk sígarettu- pakka. Þá var hann dæmdur fyrir að ræna söluturn í Hraunbergi vopnaður hnífi. Loks var maður- inn ákærður fyrir tilraun til ráns í sumar þegar hann fór inn í verslun 10-11 í Glæsibæ vopnaður klaufhamri. Hann var sýknaður af síðastnefnda tilvikinu. - jss Í tólf mánaða fangelsi: Dæmdur fyrir tvö vopnuð rán BANDARÍKIN, AP Lögreglan í bænum Zanesville í Ohio sá sér ekki annað fært en að elta uppi og skjóta tugi villidýra sem sluppu laus eftir að eigandi þeirra framdi sjálfsvíg á þriðju- dagskvöld. Alls voru 48 dýr drepin, þar á meðal 18 bengaltígrar og 17 ljón. Terry Thompson, eigandi dýr- anna, sleppti þeim lausum áður en hann svipti sjálfan sig lífi með byssuskoti. Bitsár voru á höfði líksins þegar það fannst. - gb Eigandinn framdi sjálfsvíg: Tugir villidýra gengu lausir HÆTTUÁSTAND „Varúð, villidýr“ stendur á þessu óvenjulega umferðarskilti. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FÓLK Fjöldi fólks mætti í verslan- ir Eymundsson í gær til að hitta minnsta mann í heimi samkvæmt bókinni Ripley´s, Khagendra Thapa Magar. Hann er hér á landi í tengslum við útgáfu bókar- innar Ripley´s ótrúlegt en satt. Magar er nítján ára gamall og er frá Nepal. Samkvæmt Ripley´s er hann 56 sentimetrar og því minnsti maður í heimi. Heims- metabók Guinness segir reyndar að Junrey Balawing frá Filipps- eyjum sé minnsti maður heimsins og að Magar sé í raun 67 senti- metrar á hæð. - þeb Fjöldi fólks í Eymundsson: Margir vildu hitta Khagendra ATHYGLI Í EYMUNDSSON Augu allra við- staddra voru á hinum smáa Khagendra Thapa Magar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Nýr Þór kemur frá Síle Hið nýbyggða varðskip Þór kemur til landsins frá Síle á miðvikudaginn í næstu viku og tekur land í Vest- mannaeyjum þar sem heimamenn undirbúa nú veglegar móttökur. LÖGGÆSLA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.