Fréttablaðið - 21.10.2011, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 21.10.2011, Blaðsíða 28
4 föstudagur 21. október Guðrúnu Heimisdóttur líður vel í Hafnarfirði með fjölskyldunni. Guðrún Heimisdóttir rekur fyrirtækið Puzzled by Ice- land sem hannar og framleiðir púsluspil undir vörumerk- inu „Puzzled by“. Hún er einnig að endurútgefa barna- bækurnar um Mola litla flugustrák eftir Ragn- ar Lár, ásamt eiginmanni sínum. Fyrstu bækurnar eru nýkomnar í verslan- ir og fleiri eru væntanleg- ar stuttu fyrir jól. Guðrún er búsett í Hafnarfirðin- um ásamt manni sínum og tveimur börnum og kann fjölskyldan vel við sig þar. Föstudagur fékk að líta inn til Guðrúnar. Einfalt og stílhreint Uppáhaldsflíkin: Það eru annars vegar svört stígvél sem ég keypti í Sviss. Ég var alveg handviss um að ég myndi nota þau óspart og ég hef varla farið úr þeim síðustu vikurnar. Hins vegar er það grænn kjóll sem ég er með í láni frá systur minni og ég veit ekki hvort ég mun geta skilað honum. Þetta er ein klæðilegasta flík sem ég hef gengið í. Uppáhaldshluturinn: Síminn minn. Ég gríp í hann til að mynda gullkorn barnanna minna, hann geymir tölvupóstinn minn, spilar uppá- haldstónlistina mína, vekur mig á morgnana ef börnin eru ekki fyrri til og er bara alveg ótrúlega traustur félagi. Uppáhaldslistaverkið: Þetta er Guðrún, eftir Sæmund Valdimarsson. Ég fékk hana í þrítugsafmælisgjöf frá for- eldrum mínum og þykir ótrúlega vænt um hana. Sæ- mundur nefndi hana í höfuðið á mér eftir að hafa spurt þau hverjum hún væri ætluð þegar þau keyptu hana. Uppáhaldsstaðurinn: Mér líður best uppi í rúmi hjá syni mínum, þar eyðum við löngum stundum við lestur. Innlit Aldur: 30 ára. Í hvaða hverfi býrðu og hver er helsti kostur hverfisins? Ég bý í Hafnarfirði, sem er einn notalegasti bær sem hægt er að finna og með yndislegan miðbæ. Ég er þann- ig staðsett að það er stutt fyrir mig að komast út úr bænum og svo er ég ekki nema mín- útu að ganga upp á hæðina við Flensborg þaðan sem ég get horft yfir allan bæinn. Það er góður staður til að setjast niður og hugsa málin. Hvar líður þér best í íbúðinni? Uppi í rúmi hjá syni mínum. Þar eyðum við löngum stundum við lestur ýmissa æv- intýra. Hann er farinn að þylja upp heilu bækurnar með mér og við mæðginin erum saman að kenna litlu systur hans að sitja prúð og hlusta. Hún er mikill orkubolti og skottast yfirleitt í kring á meðan ég les. Hvað einkennir heimili þitt? Það mætti segja að það væri nokkurs konar IKEA-bragur á því en ég er mjög hrifin af öllu einföldu og stílhreinu. Ég vil hafa notalegt heima hjá mér og það má brotna glas á mínu heimili. Húsið mitt er í stuttu máli sagt fullt af dauð- um hlutum og svo mínum dýrmæt- ustu „hlutum“ sem er fjölskyldan mín. Á meðan fjölskyldan mín er í lagi þá er í lagi með heimilið mitt, öllu öðru má skipta út. Hvernig er dæmigerður laugar- dagsmorgunn hjá þér? Við förum vanalega fram úr um klukkan sjö. Litlu molarnir mínir fá „kodda“ og lýsi í morgunmat og svo er hundurinn hand- mataður af syni mínum. Við förum stundum í sund og reynum þá að drífa okkur út sem fyrst því sundlaugarnar eru fljótar að fyllast. Annars finnst okkur líka voðalega notalegt að dóla bara heima, fara út í garð að leika eða út að labba með hundinn. Uppáhaldsskartið: Þetta hálsmen fékk ég í morgungjöf frá eiginmanni mínum. Það er bæði fallegt og táknrænt og svo kom það líka að góðum notum á með- göngunni, þar sem það passaði vel upp á giftingarhringinn þegar bjúgurinn náði yf- irhöndinni. Uppáhaldshúsgagnið: Blái sófinn frá afa mínum. Hann var inni á skrif- stofunni hans og hann var vanur að leggja sig á honum. Það sést enn á áklæðinu hvorum megin fæturnir voru. KRIN GLA N & SM ÁRA LIND www.click-six.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.