Fréttablaðið - 21.10.2011, Síða 28
4 föstudagur 21. október
Guðrúnu Heimisdóttur
líður vel í Hafnarfirði
með fjölskyldunni.
Guðrún Heimisdóttir rekur
fyrirtækið Puzzled by Ice-
land sem hannar og
framleiðir púsluspil
undir vörumerk-
inu „Puzzled by“.
Hún er einnig að
endurútgefa barna-
bækurnar um Mola
litla flugustrák eftir Ragn-
ar Lár, ásamt eiginmanni
sínum. Fyrstu bækurnar
eru nýkomnar í verslan-
ir og fleiri eru væntanleg-
ar stuttu fyrir jól. Guðrún
er búsett í Hafnarfirðin-
um ásamt manni sínum og
tveimur börnum og kann
fjölskyldan vel við sig þar.
Föstudagur fékk að líta inn
til Guðrúnar.
Einfalt og stílhreint
Uppáhaldsflíkin:
Það eru annars vegar
svört stígvél sem ég
keypti í Sviss. Ég var
alveg handviss um að ég
myndi nota þau óspart
og ég hef varla farið úr
þeim síðustu vikurnar.
Hins vegar er það grænn
kjóll sem ég er með í láni
frá systur minni og ég
veit ekki hvort ég mun
geta skilað honum. Þetta
er ein klæðilegasta flík
sem ég hef gengið í.
Uppáhaldshluturinn: Síminn minn. Ég gríp
í hann til að mynda gullkorn barnanna minna,
hann geymir tölvupóstinn minn, spilar uppá-
haldstónlistina mína, vekur mig á morgnana
ef börnin eru ekki fyrri til og er bara alveg
ótrúlega traustur félagi.
Uppáhaldslistaverkið: Þetta er Guðrún, eftir Sæmund
Valdimarsson. Ég fékk hana í þrítugsafmælisgjöf frá for-
eldrum mínum og þykir ótrúlega vænt um hana. Sæ-
mundur nefndi hana í höfuðið á mér eftir að hafa spurt
þau hverjum hún væri ætluð þegar þau keyptu hana.
Uppáhaldsstaðurinn: Mér líður best uppi í rúmi hjá syni mínum, þar eyðum við
löngum stundum við lestur.
Innlit
Aldur: 30 ára.
Í hvaða hverfi býrðu og hver er
helsti kostur hverfisins? Ég bý í
Hafnarfirði, sem er einn notalegasti
bær sem hægt er að finna og með
yndislegan miðbæ. Ég er þann-
ig staðsett að það er stutt fyrir
mig að komast út úr bænum
og svo er ég ekki nema mín-
útu að ganga upp á hæðina
við Flensborg þaðan sem ég get
horft yfir allan bæinn. Það er góður
staður til að setjast niður og hugsa
málin.
Hvar líður þér best í íbúðinni? Uppi
í rúmi hjá syni mínum. Þar eyðum við
löngum stundum við lestur ýmissa æv-
intýra. Hann er farinn að þylja upp heilu
bækurnar með mér og við mæðginin
erum saman að kenna litlu systur hans
að sitja prúð og hlusta. Hún er mikill
orkubolti og skottast yfirleitt í kring á
meðan ég les.
Hvað einkennir heimili þitt? Það
mætti segja að það væri nokkurs
konar IKEA-bragur á því en ég er mjög
hrifin af öllu einföldu og stílhreinu. Ég
vil hafa notalegt heima hjá mér og það
má brotna glas á mínu heimili. Húsið
mitt er í stuttu máli sagt fullt af dauð-
um hlutum og svo mínum dýrmæt-
ustu „hlutum“ sem er fjölskyldan mín.
Á meðan fjölskyldan mín er í lagi þá er
í lagi með heimilið mitt, öllu öðru má
skipta út.
Hvernig er dæmigerður laugar-
dagsmorgunn hjá þér? Við förum
vanalega fram úr um klukkan sjö.
Litlu molarnir mínir fá „kodda“ og lýsi í
morgunmat og svo er hundurinn hand-
mataður af syni mínum. Við förum
stundum í sund og reynum þá að drífa
okkur út sem fyrst því sundlaugarnar
eru fljótar að fyllast. Annars finnst
okkur líka voðalega notalegt að dóla
bara heima, fara út í garð að leika eða
út að labba með hundinn.
Uppáhaldsskartið: Þetta hálsmen fékk ég í morgungjöf frá eiginmanni mínum.
Það er bæði fallegt og táknrænt og svo kom það líka að góðum notum á með-
göngunni, þar sem það passaði vel upp á giftingarhringinn þegar bjúgurinn náði yf-
irhöndinni.
Uppáhaldshúsgagnið:
Blái sófinn frá afa mínum.
Hann var inni á skrif-
stofunni hans og hann
var vanur að leggja sig á
honum. Það sést enn á
áklæðinu hvorum megin
fæturnir voru.
KRIN
GLA
N &
SM
ÁRA
LIND
www.click-six.com