Fréttablaðið - 21.10.2011, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 21.10.2011, Blaðsíða 18
18 21. október 2011 FÖSTUDAGUR Góð vísa er sjaldan of oft kveð-in eins og amma var vön að segja og hér er eitthvað úr fyrri skrifum höfundar sett í nýjan bún- ing. Tilefnið er meðal annars að þrjú ár eru liðin frá hruni, fyrir- heit stjórnvalda í kjölfar þess voru meðal annars um upplýstara og gegnsærra þjóðfélag. Mjög miklu er ennþá ábótavant og svokölluð B vinnubrögð og spilling er algeng. Hægt er að skoða tvö þjóðfélög A og B og spyrja sig hvoru muni vegna betur og borgurum þess. Í þjóðfélagi A er ráðið í stöð- ur eftir hæfni viðkomandi þar sem menntun og reynsla er talin nauðsynleg til ákveðinna starfa. Ákveðið jafnræði er milli kynja og skoðana og skilningur á að eftir höfðinu dansa limirnir. Hér er átt við að stjórnendur og hæfni þeirra hafa áhrif á allt fyrirtækið eða stofnunina, og þar með framleiðni. Slíkt þjóðfélag ræður til að mynda guðfræðing til starfa í kirkju til að messa yfir hjörðinni, og myndi því ekki velja hagfræðing eða sálfræð- ing með djáknapróf þrátt fyrir trúarhita og ræðuleikni. Í þjóðfélagi B er minni áhersla á að sá hæfasti sé ráðinn í hverja stöðu. Stöðuveitingar ráðast oft af tengslum ættar, einhverskonar hagsmunum eða jafnvel pólitískum skoðunum viðkomandi. Stöður eru jafnvel athvarf fyrir fyrrverandi stjórnmálamenn eða leiðitama ungliða. Það er mjög oft á kostnað fagmenntunar tilheyrandi starfa og getur átt við allt frá stöðuveit- ingum í opinberum fyrirtækjum til dómskerfis. Slíkt þjóðfélag myndi jafnvel ráða guðfræðing til að hafa yfirumsjón með hinum verðmæta eignarhlut ríkisins, og þar með fólksins, í bönkunum. Það væri meira að segja þrátt fyrir að viðkomandi hefði áður komið að einkavæðingu og sölu þessara sömu banka, þar sem mjög vafa- samri aðferðafræði við sölu var beitt. Þessir sömu bankar urðu báðir gjaldþrota! Það á að vera skýlaus krafa í upplýstu lýðræðisþjóðfélagi að hæfasta fólkið með tilheyrandi fagmenntun og reynslu sé jafn- an ráðið til starfa hverju sinni. B ráðningarnar og vinnubrögð hafa í tímans rás kostað þjóð- félagið hundruð eða jafnvel þús- undir milljarða. Ég geng reyndar reyndar svo langt að telja að þetta hafi verið ein af orsökum hruns- ins. Vanhæfir stjórnendur eru ein af ástæðum þess að Íslendingar þurfa að vinna meira og lengur en aðrar þjóðir til að halda uppi góðum lífskjörum. Það að afleggja B vinnubrögð er hagur fólksins og framtíðarhagur þjóðfélagsins og krafa framtíðar- innar, það er komi tími til að segja stopp. Vilt þú tilheyra A eða B? Af hvorri tegundinni verður hið nýja Ísland? Svo slegið sé á léttari strengi þá er það stundum ágætt meðal frá ruglinu í þjóðfélaginu að setja ABBA á fóninn í bílnum þegar lagt er af stað í daginn, í stað þess að hlusta á umfjallanir á öldum ljós- vakans af nýjum spillingarmál- um, gjaldþrotum og slíku. Þetta ráð fékk höfundur í ágætu erindi hjá Margréti Kristmundsdóttur á fundi Samtaka atvinnulífsins nýverið. Greinin var einnig send hæstvirtum fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra, ásamt tengli á ABBA-lagið „Money, Money, Money“. Þeir fara jú ásamt öðrum með ráðstöfun peninga okkar, þar með talið til mannaráðninga! Vanhæfir stjórn- endur eru ein af ástæðum þess að Ís- lendingar þurfa að vinna meira og lengur en aðrar þjóðir ... Á hverju ári greinast um það bil 14 konur með leghálskrabba- mein hér á landi samkvæmt krabbameinsskrá Krabbameins- félags Íslands. Til að krabbamein myndist í leghálsi verður slím- himnan þar að hafa sýkst af svo kölluðum vörtuveirum (á ensku Human Papilloma Viruses, HPV), að öðrum kosti myndast ekkert krabbamein. Þekktar eru yfir 120 mismun- andi gerðir af vörtuveirum en langflestar þeirra valda venjuleg- um vörtum í húð sem eru hættu- lausar. Nokkrar þessara gerða vörtuveira geta valdið krabba- meini í leghálsi. Af þeim eru tvær gerðir sem orsaka 60% til 70% allra krabbameina þar og kall- ast þær vörtuveirur 16 og 18. Í dag eru til tvö bóluefni sem virka gegn vörtuveirum 16 og 18. Ef allar stúlkur væru bólusettar hér á landi með öðru hvoru þessara bóluefna mætti fækka tilfellum af leghálskrabbameinum úr 14 á ári allt niður í fjögur tilfelli á ári. Á þessum grunni hefur velferðar- ráðuneytið ákveðið að bjóða öllum stúlkum sem eru 12 og 13 ára á þessu ári bólusetningu gegn þess- um veirum, þeim að kostnaðar- lausu. Í framhaldi af því verður síðan árlega öllum 12 ára stúlkum boðið upp á þessa bólusetningu. Ef þátttakan í bólusetningunum verður almenn er möguleiki á að fækka dauðsföllum vegna legháls- krabbameins. Á hverju ári deyja tvær konur úr leghálskrabba- meini. Konurnar eru ungar en meðalaldur þeirra við greiningu er 44 ár. Til samanburðar er meðal- aldur þeirra kvenna sem greinast með brjóstakrabbamein 61 ár. Almenn bólusetning hefur því getu til að forða þeim konum sem annars mundu greinast með leg- hálskrabbamein frá þeirri erfiðu lífsreynslu sem því fylgir ásamt því að draga úr dánartíðni af völd- um þessa sjúkdóms. Bólusetning fækkar einnig tilfellum af for- stigsbreytingum leghálskrabba- meins en vörtuveirur 16 og 18 eru orsakavaldar hluta þeirra. Marg- ar konur sem greinast með for- stigsbreytingar þurfa á meðferð að halda við þeim en almenn bólu- setning mundi koma í veg fyrir það. Þessar tvær gerðir vörtu- veira valda einnig öðrum sjald- gæfari krabbameinum eins og krabbameinum í koki, leggöngum og endaþarmsopi. Heilbrigðisyfirvöld geta ekki farið af stað með útdeilingu á ókeypis bóluefnum til stúlkna nema að minnsta kosti þremur spurningum er svarað játandi. Er hagkvæmt fyrir þjóðfélagið að 12 ára stúlkur hér á landi verði bólu- settar þeim að kostnaðarlausu? Virka bóluefnin? Eru þau örugg? Hagkvæmni athugun hefur þegar farið fram á vegum Landlæknis- embættisins þar sem sýnt var fram á að það að bólusetja allar 12 ára stúlkur á hverju ári á kostnað hins opinbera er hagkvæmt fyrir þjóðfélagið. Var þá bæði tekið til- lit til sparnaðar í beinhörðum pen- ingum og til þeirra lífsgæða sem vinnast með því að forða konum frá því að greinast með legháls- krabbamein. Þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á bóluefnunum hafa sýnt fram á að þau virka nánast 100% þegar um forstigsbreyting- ar að leghálskrabbameini með sýkingu af vörtuveirum 16 og 18 er að ræða en forstigsbreytingar eru nauðsynlegur undanfari mynd- unar á krabbameini. Bóluefnin eru því mjög virk gegn leghálskrabba- meini og enn sem komið er bendir allt til að sú virkni haldist. Aukaverkanir eru fyrst og fremst tengdar stungustað eins og hjá öðrum bóluefnum en fram getur komið m.a. roði og bólga í húðinni á stungustaðnum. Ekki er vitað um alvarlegar aukaverkanir né dauðsföll tengd bólusetningum gegn leghálskrabbameini. Bólu- efnin eru því örugg. Þróunin heldur áfram. Á alþjóð- legri ráðstefnu krabbameinslækna sem haldin var í Stokkhólmi í septem ber á þessu ári kom fram að rannsóknir eru í gangi á bóluefni sem ekki eingöngu virkar gegn vörtuveirum 16 og 18 heldur einn- ig til fleiri gerða vörtuveira sem valda leghálskrabbameini. Fram kom að vonir eru um að með því verði jafnvel hægt að útrýma leg- hálskrabbameini með fyrirbyggj- andi aðgerðum bólusetningar í nánustu framtíð. Um leið og mælt er með að for- eldrar og forráðamenn láti bólu- setja stúlkur hér á landi er hvatt til árvekni hvað varðar legháls- krabbamein með því meðal annars að halda áfram leit að legháls krabbameini á vegum leitar stöðvar Krabbameinsfélags Íslands. Enn sem komið er nær bólusetningin ekki til þeirra gerða vörtuveira sem valda 30% til 40% leghálskrabbameina hér á landi þó þróunin bendi til að þess verði ekki langt að bíða. Bólusetning gegn leghálskrabbameini A og B, guðfræði, hagfræði og ABBA Grunnatriði við endurskoð-un kvótakerfis er að breyta „eignarrétti“ útgerðarmanna í nýtingarsamninga. Þá er mikil- vægt að tryggja að hér sé áfram rekinn öflugur iðnaður á viðskiptaleg- um forsendum sem skil- ar miklum verðmætum í þjóðarbúið. Um leið þarf þjóðin að fá veru- lega hlutdeild í arðin- um sem nýtingin skap- ar. Við endurskoðun er ekki hægt að horfa framhjá því að núver- andi kvótahafar hafa að einhverju leyti keypt kvóta á markaði og þar með lagt út fyrir vænt- um ávinningi af nýt- ingu auðlindar. Að sama skapi verða útvegsmenn að skilja kröfu almenn- ings að fá til sín veru- lega stóran hluta af arði auðlindarinnar. Tvær leiðir eru í boði. Annars vegar er hægt að leggja veru- lega háan skatt á þann arð sem myndast við nýtinguna. Fyrir- tæki í sjávarútvegi skila hagnaði og af honum greiða þau tekjuskatt eins og önnur fyrirtæki í landinu. Þjóðin á hins vegar tilkall til þess umfram hagnaðar sem myndast og er umfram eðlilega ávöxtun fjármagns. Þjóðin á sem sagt með réttu að fá til sína stærsta part- inn af þessum „auðlindahagnaði“ – og væri eðlilegt að það væri allt að 70%. Hinn valkosturinn er að setja kvótann á markað smátt og smátt og útvegsmenn settu inn til- boð í kvóta á markaði og tekjurn- ar myndu renna til þjóðarinnar. Ef kvótinn yrði fyrndur um t.d. 3% á ári hverju, væri komið til móts við rekstraröryggi fyrir- tækjanna og rétt verð- mat myndi fást á kvót- ann. Slík afskrift væri í línu við afskriftir annarra fastafjármuna fyrirtækja. Opinn til- boðsmarkaður myndi kalla fram sanngjarnt afgjald og þjóðin myndi fá arð auðlindar til sín. Lág afskriftarprósenta tryggir rekstraröryggi fyrirtækjanna. Breytingar á kvóta- kerfinu mega ekki draga úr verðmæta- sköpun en pólitísk hand- stýring vinnur gegn markmiðum um arð- semi. Báðar hugmyndirnar hér að framan gefa útgerðinni mögu- leika til að hámarka afrakstur auðlindarinnar en veita almenn- ingi verulega mikla hlutdeild í þeirri arðsemi. Tekjurnar sem myndast eiga svo að nýtast til að styðja nýsköpun og samkeppnis- hæft atvinnulíf út um land. Sátt um kvótakerfi Ein af fjölmörgum spurningum sem berast vegna fyrirhugaðrar stækkunar á Landspítala er um símapeningana eða í raun fullnustu laga nr. 133/2005. Lögin snérust um ráðstöfun á sölu- andvirði Landssíma Íslands hf., en í 3. gr. laganna segir að verja skuli samtals 18.000 milljónum kr. til uppbyggingar Landspítala – háskólasjúkrahúss á lóð stofnunarinnar við Hringbraut í Reykjavík. Þá þegar á árinu 2005 var í fjáraukalögum heimild á fjárlagalið 08-376, Bygging sjúkrahúss á lóð Landspítalans. Þar til lög nr. 64/2010, um stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík voru sam- þykkt samhljóða á Alþingi, voru fjárheimildir ætíð samþykktar af Alþingi í fjárlögum hvers árs á fjárlagalið 08-376, enda er það í samræmi við lög um fjárreiður ríkisins nr. 88/1997. En hvað um símapeningana? Söluandvirðið, 66,7 milljarðar króna, miðaðist við gengisskráningu Seðlabanka Íslands 27. júlí 2005. Skyldi greiðslan fara fram innan 5 virkra daga frá því að niður- staða Samkeppniseftirlitsins lægi fyrir og að því gefnu að stofnunin samþykkti söluna fyrir sitt leyti. Samkeppniseftirlitið tilkynnti með bréfi, dags. 30. ágúst 2005, að stofnunin gerði ekki athuga- semdir við söluna. Þann 6. september 2005 greiddu Skipti ehf. ríkissjóði kaupverð hlutafjár ríkisins í Símanum í samræmi við ákvæði kaup- samnings og fengu eignarhlutinn í Símanum afhentan. Hin fyrrgreindu lög nr. 133/2005 um ráðstöfun fjárins gerðu ráð fyrir að 43 milljörðum yrði ráðstafað til verkefna í tengslum við söluna á Landsímanum, m.a. umræddar 18.000 milljónir í stækkun Landspítalans. Fjármagn á fjárlaga- liðnum sem notað hefur verið, í hönnun og skipu- lag verkefnisins, frá árinu 2005 nemur um 945 milljónum (miðað við verðlag hvers árs). Það er því eðlilegt að spyrja hvað varð um mismuninn á 18.000 og 945. Lögin um ráðstöfunin á símapeningunum voru afnumin Við þann forsendubrest sem var staðfestur á haustmánuðum 2008, samþykkti Alþingi lög nr. 173/2008 um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Þar eru einfaldlega hin fyrri sértæku lög um ráðstöfun símapeninganna felld úr gildi. Í 13. gr. segir „Lög um ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf., nr. 133/2005, eru felld úr gildi“. Í almennum skýringum með lögunum segir m.a. að í frumvarpinu sé lagt til að lög um ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf., verði felld úr gildi, sé það vegna gjörbreyttra aðstæðna í efnahagslífi þjóðarinnar frá því að lögin voru sett. Þykir réttast að fella lögin hreinlega úr gildi og að ákvarðanir um fjármögnun framkvæmda og verk- efna sem þar er fjallað um verði teknar árlega á vettvangi fjárlaga. En hvað varð þá um símapeningana? Það sem eftir stóð af söluandvirðinu hefur orðið hluti af ráðstöfunarfé ríkissjóðs frá og með áramótum 2008/2009. Í raun voru símapeningarnir alltaf hluti af ríkissjóði og eftir að sérlögin voru felld úr gildi var þessum fjármunum ráðstafað í samræmi við fjárheimildir í fjárlögum hverju sinni. Birt er niðurstaða þess í ríkisreikningi ár hvert. Núverandi heimildir um stækkun Landspítala byggja á lögum nr. 64/2010 en þar er gefin heimild til að standa að nauðsynlegum undirbúningi og láta bjóða út stækkun Landspítala við Hringbraut. Þá er það skýrt í lögunum að fyrir undir ritun samninga að loknu útboði skal leita samþykkis Alþingis með almennum lögum. Hvað varð um símapeningana í stækkun Landspítalans? Heilbrigðismál Jakob Jóhannsson krabbameinslæknir Nýr Landspítali Gunnar Svavarsson verkfræðingur í byggingarnefnd Landspítala Ef þátttakan í bólusetningunum verður almenn er möguleiki á að fækka dauðsföllum vegna legháls- krabbameins. Á hverju ári deyja tvær konur úr leghálskrabbameini. Sjávarútvegsmál Magnús Orri Schram alþingismaður Stöðuveitingar Hákon Þór Sindrason viðskipafræðingur og rekstrarhagfræðingur Breytingar á kvótakerfinu mega ekki draga úr verð- mætasköpun en pólítísk handstýring vinnur gegn markmiðum um arðsemi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.