Fréttablaðið - 21.10.2011, Blaðsíða 62
21. október 2011 FÖSTUDAGUR42
fyrstu hæð
Sími 511 2020
Erum á
Whooo
FBL, E.B.
BRÚÐUHE IMAR B O R G A R N E S I
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
Sími 530 5000 www.bruduheimar.is
Gilitrutt
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Lagið mitt er We‘ve Only Just
Begun með Carpenters.“
Guðmundur Steingrímsson,
alþingismaður.
Bakarameistarinn Jói Fel, eða
Jóhannes Felixson, hefur selt mat-
reiðslubækur sínar í tæplega 150
þúsund eintökum undanfarin ár.
Aðallega er um að ræða fjórar
Hagkaupsbækur hans og hafa þær
að meðaltali selst í yfir 35 þús-
und eintökum hver. Að auki hefur
bókin Eldað með Jóa Fel sem kom
út fyrir síðustu jól og hafði að
geyma 400 uppskriftir úr sam-
nefndum sjónvarpsþáttum hans,
selst í um sex þúsund eintökum.
Hún var ein söluhæsta matreiðslu-
bók síðasta árs. „Ég er ekki hætt-
ur enn, því ég er skrifa nýja bók,“
segir Jói Fel hress, en hún er vænt-
anleg á næsta ári. Hann verður því
fjarri góðu gamni í jólabókaflóð-
inu í ár. Jói Fel hefur verið fasta-
gestur á íslenskum heimilum frá
árinu 2003 þegar matreiðsluþættir
hans hófu göngu sína á Stöð 2. Þeir
eru nú orðnir um eitt hundrað tals-
ins. Hann nýtur því að einhverju
leyti góðs af því hversu þekkt and-
lit hann er þegar matreiðsla er
annars vegar.
Þrátt fyrir að Jói verði fjarri
góðu gamni fyrir jólin verða
Nanna Rögnvaldsdóttir, Friðrika
Geirsdóttir og kokkalandsliðið það
ekki. Þau snúa öll aftur með mat-
reiðslubækur fyrir þessi jól eftir
að hafa selt síðustu bækur sínar
vel í sumar og fyrir síðustu jól,
eða í tæpum tólf þúsund eintökum
samanlagt. Smáréttir Nönnu hafa
selst í um þrjú þúsund eintökum,
Bollakökur Rikku í um fjögur þús-
undum og Einfalt með kokkalands-
liðinu í um 4.500 eintökum
Ný bók Nönnu nefnist Jólamatur
Nönnu og kemur út hjá Iðunni. Bók
Rikku, sem er gefin út af Vöku
Helgafell, nefnist Heimsréttir
Rikku og Sögur útgáfa gefur svo
út Einfalt og íslenskt með kokka-
landsliðinu. Meðal annarra mat-
reiðslubóka sem koma út í ár eru
Gott líf – góður matur í takt við
árstíðirnar eftir hjónin Ingu Elsu
Bergþórsdóttur og Gísla Egil
Hrafnsson, þýdd bók Rósu Guð-
bjartsdóttur Einfaldara sushi og
Uppáhaldsrétturinn minn þar sem
fjörutíu Íslendingar gefa uppskrift
af uppáhaldsréttinum sínum.
Nanna Rögnvaldardóttir hefur
ritstýrt matreiðslubókum lengi
fyrir Forlagið en sjálf hefur hún
selt eigin bækur í um sjötíu þúsund
eintökum. Spurð út í þennan mikla
áhuga Íslendinga á matreiðslu-
bókum, segir hún hann ekki vera
bundinn við Ísland. „Það héldu
mjög margir þegar þetta fór meira
inn á netið að bækurnar myndu
detta út en raunin er sú að sala á
matreiðslubókum fer vaxandi alls
staðar,“ segir Nanna. „Hluti af
því eru auknar myndskreytingar.
Fólk er að kaupa bækurnar dálítið
mikið til að skoða, fá hugmyndir
og til að láta sig dreyma kannski
um hvað gæti gerst og auðvitað til
að nota líka.“
Til marks um þennan áhuga
fór hún nýverið á bókamessuna
í Frankfurt þar sem matreiðslu-
bækur voru mjög áberandi.
freyr@frettabladid.is
BAKARAMEISTARINN JÓI FEL: ÉG ER EKKI HÆTTUR ENN
Hefur selt 150 þúsund matreiðslubækur
METSÖLUHÖFUNDUR Jói Fel hefur selt bækur sínar í tæplega 150 þúsund eintökum undanfarin ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég rann til á hálkubletti,“ segir
Magnús Þór Jónsson, betur þekkt-
ur sem Megas, sem varð fyrir því
óláni að úlnliðsbrotna um helgina.
Megas átti að vera í upptökum
fyrir sjónvarpsþáttinn Hljómskál-
ann sem Sigtryggur Baldursson
stjórnar ásamt Braga Valdimar
Skúlasyni og Guðmundi Kristni
Jónssyni en þeim var frestað um
óákveðinn tíma. Til stóð að taka
upp samstarf Megasar og Ragnars
Bjarnasonar eftir því sem Frétta-
blaðið kemst næst.
Úlnliðsbrot verða oft þegar fólk
dettur og ber fyrir sig höndina til að
minnka fallið eins og kemur fram
á heimasíðu AFL-sjúkraþjálfunar.
Magnús var á leiðinni út á land
þegar Fréttablaðið náði tali af
honum og vildi sem minnst tjá sig
um brotið. Eins og Fréttablaðið
greindi frá um helgina stóð til að
tónlistarmaðurinn spilaði á Air-
waves-hátíðinni en hann reyndist
tvíbókaður og tók tónleika RGM
fram yfir.
Magnús segir einfalda skýringu
á því. „Þetta var eldri bókunin og
maður stendur við hana.“ - fgg
Megas úlnliðsbrotinn
Biggi Veira úr hljómsveitinni Gus-
Gus hitti bandaríska tónlistar-
manninn John Grant þegar hann
var hér á landi vegna tónleika
sinna á Airwaves-hátíðinni. Grant
er mikill GusGus-aðdáandi eins
og kom fram í viðtali við hann í
Fréttablaðinu.
„Hann gaf sig bara á tal við mig
þegar við vorum að spila á Kex-
inu. Hann langaði að kíkja í heim-
sókn í stúdíóið þannig að hann kom
til mín á föstudaginn. Hann fékk
að hlusta á demó sem við höfðum
ekki klárað og svo tók ég hann í
„syntha“-kennslu,“ segir Biggi
en Grant notast við „syntha“, eða
hljóðgervla í tónlist sinni.
Biggi segir Grant vera frábær-
an söngvara sem gerir áhugaverða
tónlist. Í viðtalinu við Fréttablaðið
sagðist Grant vilja prófa sig áfram
í elektrónískri tónlist og svo virðist
sem hann vilji vinna með GusGus.
„Hann var að spyrja hvort okkur
langaði að hjálpa honum eitthvað
við það og ég sagði að það væri
alveg sjálfsagt að skoða það mál.“
Biggi er núna orðinn einn af
mörgum íslenskum vinum Grants
á Facebook. „Okkur þótti báðum
mjög leiðinlegt að við vorum að
spila á sama tíma á Airwaves.
En hann var rosalega hrifinn af
Íslandi og ég sá að þegar hann
kom í heimsókn var hann nýbú-
inn að kaupa sér kennslubók
í íslensku og var að spyrja
mig aðeins út í það. Ég sagði
honum að við höfðum unnið í
plötunni okkar í sumarbústað
og hann var einmitt að tala
um að hann langaði að koma
hingað einhvern tímann,
þvælast um og vinna. Þannig
að við erum greinlega búinn
að eignast enn einn Íslandsvin,
eins og þeir eru kallaðir.“ - fb
John Grant vill vinna með GusGus
Í HLJÓÐVERINU
Biggi Veira úr GusGus bauð John
Grant í heimsókn í hljóðverið sitt í
síðustu viku.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
RANN Á HÁLKUBLETTI Magnús Þór
Jónsson eða Megas rann til á hálkubletti
um helgina og úlnliðsbrotnaði.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Spennusagan Ég man þig eftir
Yrsu Sigurðardóttur er nú í
fimmtu viku á þýska kiljulistanum
en bókin hefur setið þar frá því
að hún kom út í lok september.
Bókin situr í 23. sæti listans og
hefur aldrei farið hærra. Listinn
mun birtast í vikuritinu Spiegel
næstkomandi mánudag. Hrollvekja
Yrsu virðist því leggjast jafn vel í
Þjóðverja og Íslendinga, en bókin
hefur verið samfleytt á metsölulista
Eymundssonar frá því að hún kom
út fyrir tæpu ári. Ég man þig vann
Blóðdropann, Íslensku
glæpasagnaverðlaun-
in, og verður framlag
Íslands til Gler-
lykilsins, Norrænu
glæpasagnaverð-
launanna, á
næsta ári. - hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.