Fréttablaðið - 21.10.2011, Blaðsíða 5
Gildir til 23. október á meðan birgðir endast.
Komdu og smakkaðu!
Föstudaginn kl. 14-18
Laugardaginn kl. 12-16
í öllum matvöruverslunum Hagkaups
DAGURINN MIKLI
Súpukjöt tilboð
tilboðsverð 798kr/kg
verð áður 898kr/kg
Kjötið e.t.v. fituhreinsað að hluta og síðan
sett í pott, vatninu hellt yfir og hitað að
suðu. Froðu fleytt ofan af, saltað og súpu-
jurtum og lauk hrært saman við. Soðið í um
40 mínútur. Á meðan eru gulrófurnar afhýddar
og skornar í bita, kartöflurnar afhýddar og skor-
nar í helminga eða fjórðunga, ef þær eru stórar,
og gulræturnar skafnar og skornar í bita. Sett út í
og soðið í 15 mínútur til viðbótar. Kálið skorið í mjóar
ræmur, sett út í og soðið í um 5 mínútur, eða þar til allt
grænmetið er meyrt. Um leið er haframjölinu bætt út í (má
sleppa). Smakkað og bragðbætt með salti og pipar, ef þarf. Kjötið
er ýmist borið fram í súpunni eða með henni á sérstöku fati.
Ýmislegt annað grænmeti má hafa í súpuna, svo sem blómkál, sellerí eða
grænkál. Ágætt er að sjóða rófurnar og kartöflurnar sér í potti. Ef afgangur
verður þá er gott að muna að mörgum finnst kjötsúpan langbest þegar hún er
hituð upp í annað eða þriðja sinn. Verði ykkur að góðu!
1 kg súpukjöt
1,8 l vatn
1 msk salt, eða eftir smekk
1-2 msk súpujurtir
½ laukur, saxaður smátt
500 g gulrófur
500 g kartöflur
250 g gulrætur
100 g hvítkál (má sleppa)
nýmalaður pipar
hrísgrjón 1½ dl
haframjöl ½ dl (má sleppa)
Íslensk kjötsúpa
Íslenska grænmetið gefur kraft og
bragð, hikið ekki við að nota það
grænmeti sem ykkur lystir.