Fréttablaðið - 21.10.2011, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 21.10.2011, Blaðsíða 22
21. október 2011 FÖSTUDAGUR22 Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Ólafur Helgi Baldvinsson frá Gilsbakka, lést á Dvalarheimilinu Hlíð mánudaginn 17. október. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 24. október kl. 10.30. Hjálmar Randversson Gréta Friðleifsdóttir Guðrún Ólafsdóttir Gunnlaugur B. Ólafsson Sigurhanna Ólafsdóttir Helga E. Ólafsdóttir Haraldur H. Guðmundsson Lára Ólafsdóttir Jóhann Ólafsson Berta Kjartansdóttir Kristján S. Ólafsson Áslaug Hallbjörnsdóttir og afabörn Herluf Clausen fyrrverandi formaður Vörubílstjórafélagsins Þróttar og Landssambands vörubifreiðastjóra, lést á Hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi laugardaginn 8. október sl. Útförin fer fram fram frá Grafarvogskirkju, föstudaginn 21. október kl. 15.00. Aðstandendur. Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, tengdasonar, afa og langafa, Arnfinns Ingvars Sigurðssonar. Sjöfn Arnfinnsdóttir Snorri Arnfinnson Ósk Gunnarsdóttir Skúli Arnfinnsson Sólrún Ingimundardóttir María Kristjándóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Svanborg Rósamunda Kjartansdóttir frá Vindási, Eyrarsveit, andaðist á dvalarheimilinu Fellaskjóli, Grundarfirði, 18. október. Útförin fer fram frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 22. október kl. 14.00. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á Dvalarheimilinu Fellaskjóli. Jóhanna Jóhannesdóttir Svanur H. Halldórsson Kristín Lilja Nóadóttir Tryggvi Gunnarsson Jón Jóhann Nóason Sóley Sigursveinsdóttir Jónína Guðrún Nóadóttir Salbjörg Sigríður Nóadóttir Friðgeir V. Hjaltalín Þráinn Nóason Kjartan Nóason Halldóra Guðmundsdóttir Trausti Nóason Vilborg Sigurðardóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, María Steingrímsdóttir lést á heimili sínu, Hjúkrunarheimilinu Sóltúni, þriðjudaginn 18. október. Hjördís Guðrún Svavarsdóttir Gísli Steinar Jónsson Hörður Svavarsson Díana Sigurðardóttir Gunnar Svavarsson Hrönn Ásgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. 90 ára afmæli Sigríður Guðmundsdóttir verður 90 ára sunnudaginn 23. október. Hún tekur fagnandi á móti frændum og vinum í Gjábakka, Fannborg 8, Kópavogi, milli kl. 15 og 18 þann dag. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Torfhildur Ingibjörg Jónsdóttir lést á Grund mánudaginn 17. október. Sérstakar þakkir til starfsfólks Grundar V-2 fyrir góða umönnun, hlýju og vinsemd. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 27. október kl. 15.00. Ólafur Aðalsteinsson Jónína M. Aðalsteinsdóttir Jón Otti Ólafsson Einfríður Þ. Aðalsteinsdóttir Stefán Finnsson ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn. timamot@frettabladid.is Brautryðjandinn er heiti bókar sem kemur út á sunnudaginn. Þar rekur Óskar Guðmundsson rit- höfundur sögu Þórhalls Bjarnar sonar, ritstjóra, kennara, búnaðarfrömuðar og biskups svo fátt eitt sé nefnt af því sem Þórhallur fékkst við á æviferlinum. Þórhallur fæddist árið 1855 og dó árið 1916. „Þórhallur var landskunn- ur á seinni hluta 19. aldar og byrjun þeirrar 20. Allir vissu hver hann var, þekktu sögur af honum og tilsvör- um hans en svo gleymdist hann. Nú er kominn tími á að endurvekja minninguna um hann,“ útskýrir Óskar og segir sögu Þórhalls eiga erindi við samfélagið í dag. Þórhallur hafi verið maður málamiðlana og hafi meðal annars tekið við biskups- embætti á átakatímum innan kirkjunnar, ekki ólík- um þeim sem samfélagið sé að upplifa í dag. „Hann var forstöðu maður Prestaskólans og biskup síð- ustu átta ár ævinnar. Sem biskup tók hann við klof- inni kirkju sem logaði í innbyrðis deilum. En Þór- halli tókst með umburðar- lyndi og mannkærleika að halda þjóðkirkjunni saman. Hann var mikill framfara- maður í allri þjóðfélagsbar- áttu, bæjarfulltrúi í Reykja- vík, alþingismaður og einn þeirra sem pældu svörð- inn fyrir jafnréttisbaráttu kvenna. Hann var með fing- urgómana á framförum á öllum sviðum,“ segir Óskar og lýsir Þórhalli sem ólík- indamanni sem hélst ekki innan flokka. Hann hafi verið borgaralegur emb- ættismaður sem bjó í hjarta Reykjavíkur en einnig bændahöfðingi sem ræktaði jörðina og var formaður Búnaðarfélags Íslands um langa hríð. „Þórhallur kom með frjálslynda borgaralega strauma hingað til lands en hann var lærlingur hjá Jóni Sigurðssyni í Kaup- mannahöfn. Sjálfur varð hann lærifaðir manna sem seinna settu svip á stjórn- mál og menningarlíf fyrri hluta tuttugustu aldar, svo sem Jónasar frá Hriflu og Ásgeirs Ásgeirssonar, tengdasonar síns sem seinna varð forseti. Hann var þó laus við allan yfirstéttar- hroka og gaf meðal annars út Kirkjublað fyrir íslenska alþýðu sem hafði mikil áhrif á sínum tíma.“ En hvernig stóð þá á því að svo fjölhæfur maður gleymdist um árabil? „Þeir sem skila árangri eru oft ekki fyrirferðar- miklir. Ég held að Þórhall- ur gæti hafa gleymst vegna þess að við höfum lifað tíma hinna árásargjörnu sigur- vegara ef svo má segja. Hanarnir sem höfðu hæst hafa verið mest áberandi,“ segir Óskar. Útgáfu Braut- ryðjandans verður fagnað í Safnaðarheimili Grensás- kirkju klukkan 16.00 á sunnudaginn þar sem Óskar mun kynna bókina. heida@frettabladid.is BRAUTRYÐJANDINN: BÓK UM ÞÓRHALL BJARNARSON KEMUR ÚT Á SUNNUDAG Sagan á erindi við okkur í dag Í GÓÐRA MANNA HÓPI á hestbaki. Þórhallur Bjarnarson er fyrir miðri mynd með hatt á höfði. MYND/SKÁLHOLTSÚTGÁFA INGIBJÖRG HARALDSDÓTTIR skáld er 69 ára. „Allt sem við eigum er í okkur sjálfum.“ Merkisatburðir: 1819 Jón Þorláksson, skáld og prestur, fellur frá. 1916 Pétur Ottesen er kjörinn á þing 28 ára og situr í 43 ár. 1917 Tryggvi Gunnarsson, kaupstjóri Gránufélagsins og banka- stjóri, fellur frá. 1933 Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram um afnám bannlaganna. 1944 Ríkisstjórn Ólafs Thors tekur við völdum. 1961 Bjarni Jónsson vígslubiskup verður fyrsti heiðursborgari Reykjavíkur. 1967 Tólf þúsund flöskum af áfengi er smyglað með bátnum Ásmundi. 1988 Listasafn Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara er opnað í Laugarnesi. FJÖLHÆFUR FRAMFARAMAÐUR Óskar Guðmundsson rithöfundur hefur skrifað ævisögu Þórhalls Bjarnar- sonar og verður útgáfunni fagnað á sunnudaginn í safnaðarheimili Grensáskirkju. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM AFMÆLISBÖRN ÞORSTEINN GUNNARSSON rektor er 58 ára. GUÐLAUG ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR leikkona er 42 ára. ARNÞRÚÐUR KARLSDÓTTIR útvarpsmaður er 58 ára. VÖRÐUR LEVÍ TRAUSTASON, forstöðumaður Hvítasunnukirkj- unnar, er 59 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.