Fréttablaðið - 21.10.2011, Blaðsíða 16
16 21. október 2011 FÖSTUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
S
tærstu stjórnarandstöðuflokkarnir lögðu í vikunni fram
tillögur í efnahagsmálum. Bæði Framsókn og Sjálfstæðis-
flokkurinn halda því fram að tillögurnar eigi á trúverðugan
hátt að tryggja sjálfbærni í ríkisrekstri. Af lestri þeirra er
vandséð að svo verði.
Framsókn setur fram loðnar tillögur til lausnar á skuldavanda
heimila. Flokkurinn vill að fjármálastofnanir nýti svigrúm til
almennra leiðréttinga skulda, sem þær eru þegar að mestu búnar
að gera. Hann vill líka að verðtrygging verði afnumin án þess að taka
neina afstöðu til þess hvaða gjaldmiðli þjóðin eigi að lifa með. Þess í
stað eigi að „kanna framtíðarkosti í gjaldmiðlamálum“.
Afnám verðtryggingar án aflagningar íslensku krónunnar
myndi éta upp eignir lífeyris-
sjóða. Þá þyrfti annaðhvort að
hækka iðgjöld eða skerða lífeyris-
greiðslur. Sá kostnaður myndi
lenda á almenningi.
Sjálfstæðisflokkurinn vill
að „sett verði fram trúverðug
efnahagsstefna sem miðar að
sjálfbærum ríkisrekstri“. Til að
ná þessari sjálfbærni leggur flokkurinn meðal annars til að láta
110%-leiðina miðast við fasteignamat í stað markaðsvirðis. Ef sú leið
dugar ekki vill Sjálfstæðisflokkurinn að skuldurum verði „heimilt
að afsala fasteign sinni til viðkomandi fjármálastofnunar. Falli þá
niður allar kröfur á skuldara vegna hús næðis“.
Ef stærstu lánveitendur húsnæðislána væru einkaaðilar í áhættu-
rekstri væru tillögurnar góðar og gildar. Þá myndu bankarnir og
eigendur þeirra taka höggið. Vandamálið við þær er að langstærsti
lánveitandinn er Íbúðalánasjóður, í eigu og á ábyrgð íslenska ríkis-
ins. Ríkissjóður hefur þegar lagt 33 milljarða króna inn í sjóðinn til
að mæta afskriftum. Til viðbótar þarf hann 12-16 milljarða króna
á þessu ári. Seðlabankinn hefur mótmælt harðlega báðum þessum
leiðum þar sem þeir tugir milljarða króna sem greiða niður „leið-
réttingarnar“ myndu nánast allir koma úr ríkissjóði skattgreiðenda.
Samhliða þessum gríðarlega kostnaðarauka ætlar Framsókn líka
að lækka almenna skatta og veita annars konar skattaafslætti, en
tilgreinir ekki nákvæmlega hvernig. Flokkurinn vill líka stórefla
opinberar framkvæmdir en segir ekki hvaðan peningarnir í þær
eiga að koma. Sjálfstæðisflokkurinn gengur enn lengra og vill
draga allar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar til baka. Hann ætlar
að veita fyrir tækjum alls konar hvataívilnanir og eyða 22,6 millj-
örðum króna í opinberar framkvæmdir á næstu tveimur árum. Þær
á að fjármagna með 17,6 milljarða króna lækkun á ríkisútgjöldum.
Rúmlega 90% af þeirri lækkun eiga að koma til vegna þess að fólk
„fer af atvinnuleysisbótum og í vinnu“. Ein þeirra leiða sem eiga að
eyða atvinnuleysinu er að „aðilar vinnumarkaðarins taki yfir málefni
Vinnumálastofnunar“.
Tillögurnar eru ekki alvondar. Báðir flokkar vilja efla aðhald með
ríkisbúskapnum og skera niður útgjöld. Framsókn vill meira að segja
banna það með lögum að reka ríki og sveitarfélög með halla. Þarna er
líka að finna ágætis leiðir til að koma efnahagslífinu aftur af stað og
mynda hagvöxt. En þorri tillagna flokkanna er hraðsoðinn og lyktar
af lýðskrumi. Í þeim er tekið tillit til væntinga nánast allra háværra
sérhagsmunahópa en algjörlega litið framhjá heildarmyndinni. Þær
skortir skynsemi og jarðtengingu. Þær eru ósjálfbærar.
HALLDÓR
Plan B: Amma borgar
Ritari Framsóknarflokksins heldur því fram í aðsendri grein í Fréttablaðinu að
verðtryggingu hafi verið komið á til þess að
steypa fólki í skuldir með hjálp verðtrygg-
ingarinnar. Þarna er staðreyndum snúið á
haus. Verðtryggingu var komið
á til þess að koma í veg fyrir að
skuldarar, meðal annars þeir sem
reistu sér hurðarás um öxl, gætu
fyrir tilstilli verðbólgunnar komið
sér undan því að greiða skuldina.
Fyrir daga verðtryggingar-
innar var reikningurinn sendur
til gamla fólksins, til ömmu, sem
þá eins og nú, átti peningana sem
bankarnir voru að lána. Undir for-
ystu formanns Framsóknarflokks-
ins, Ólafs Jóhannessonar, var
verðtrygging lögfest árið 1979,
enda var allur sparnaður, undir-
staða lánsviðskipta, að hrynja í
landinu. Verðtryggingin býr ekki
til neinar skuldir, en tryggir að
lántakandinn endurgreiði þau
verðmæti sem hann fékk að láni.
Það er hægt að lána fé án verðtryggingar,
en skuldararnir greiða alltaf svipaða upp-
hæð að lokum, vextirnir heita bara öðrum
nöfnum. Þess vegna munu óverðtryggð kjör
ekki lækka skuld eða vaxtakostnað. Það er
blekking sem haldið er að fólki um þessar
mundir að óverðtryggð kjör þýði kjarabót
fyrir skuldara. Hið gagnstæða er líklegra,
vextir hafa hingað til verið hærri af óverð-
tryggðum lánum.
Frá janúar 2000 til 2008 hækk-
aði fasteignaverð á höfuðborgar-
svæðinu um 169%, en verðtrygg-
ing skulda var á sama tíma aðeins
45%, aðeins fjórðungur af eigna-
hækkuninni. Frá janúar 2008
hefur dæmið snúist við, fasteignir
hafa lækkað um 10% en verðbólg-
an hefur verið 35%. Engu að síður
er hækkun eigna yfir allt tíma-
bilið 142% og verðbólgan 96%.
Skuldirnar þyrftu að hækka til
þess að haldast í hendur við verð-
hækkun eignanna. Hver er vand-
inn við verðtryggingu lánsfjár?
Það fer hins vegar ekki á milli
mála að Eygló Harðardóttir boðar
að afnám verðtryggingar eigi að
lækka skuldir. Það verður þá ein-
hver að borga reikninginn. Þar
horfir ritari Framsóknarflokksins til spari-
fjáreigenda og eigenda lífeyrisréttinda.
Reikningurinn verður ekki sendur þeim
sem högnuðust á gífurlegri verðhækkun
fasteigna heldur til ömmu.
Fjármál
Kristinn H.
Gunnarsson
fv. alþingismaður
Það er blekk-
ing sem
haldið er að
fólki um þess-
ar mundir að
óverðtryggð
kjör þýði
kjarabót fyrir
skuldara.
Ekki endilega ál
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, hóf utandagskrár-
umræðu á Alþingi 11. október. Þar var
til umræðu skýrsla um efnahagsleg
áhrif af rekstri Landsvirkjunar fram til
ársins 2035. Jón fagnaði skýrslunni
mjög og þeirri vinnu sem farið hefði
fram hjá Landsvirkjun undanfarin ár.
„Ástæðan fyrir því að hægt er að
horfa núna víðar í sölu á raf-
orkunni er sá infrastrúktúr og
þeir innviðir sem hafa verið
byggðir upp og sú stefna sem
fylgt hefur verið.“ Sem sagt,
hægt er að horfa víðar en
bara til álvera og það er hið
besta mál.
En samt helst álið
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, hóf utandagskrár-
umræðu á Alþingi í gær. Þar var til
umræðu ákvörðun Alcoa að reisa
ekki álver á Bakka. Þar fann hann
Landsvirkjun allt til foráttu fyrir
að opna viðræður um orkusölu í
Þingeyjarsýslum fyrir öðrum aðilum
en álframleiðandanum. Ljóst væri
að þar réði pólitískur
þrýstingur. Álið er
sem sagt þrátt fyrir
allt málið hjá
Jóni Gunn-
arssyni.
Vinsæl hjá Vinstri grænum
Viðskiptablaðið gerir könnun á stuðn-
ingi við Jóhönnu Sigurðardóttur sem
formann Samfylkingarinnar. Athygli
vekur að Jóhanna er vinsælli formaður
Samfylkingarinnar hjá Vinstri grænum
en eigin flokksmönnum. Alls treysta
43,4 prósent þeirra Vinstri grænu sem
spurð voru henni best til formennsk-
unnar, en aðeins 36,1 prósent hennar
eigin flokksmanna. Kannski Jóhanna
sé í vitlausum flokki? Erfðaprinsinn
hlýtur hins vegar að vera fundinn; af
þeim sem svara óháð stjórnmálaskoð-
unum nýtur Guðbjartur Hannesson
38,6 prósenta stuðnings en
Jóhanna aðeins 14,9 prósenta.
kolbeinn@frettabladid.is
Tillögur stjórnarandstöðu eru ekki trúverðugar.
Ósjálfbært plan
SKOÐUN
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@frettabladid.is