Fréttablaðið - 21.10.2011, Side 34
KYNNING − AUGLÝSINGÁlfaborg FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 20114
Tarkett hefur ráðandi markaðsstöðu í heimin-
um í sölu nýstárlegra og endingargóðra gólfefna
og salan árið 2010 nam 1,9 milljörðum evra. Fyrir-
tækið vinnur með fremstu arkitektum og bygg-
ingaverktökum heims og gólfefnin frá Tarkett,
hvort sem er fyrir heimahús, fyrirtæki eða íþrótta-
mannvirki, njóta mikillar virðingar innan bygging-
ariðnaðarins.
Tarkett býður upp á gólfefni sem henta bæði ein-
staklingum og fyrirtækjum og gólfefnin frá Tarkett
auka bæði lífsgæði fólksins sem gengur á þeim
og endursöluverð bygginganna. Hvert gólf er sér-
sniðið að óskum viðskiptavinarins og tekur mið
af þörfum hans og óskum. Rýmið sjálft, notkun
þess, byggingareglugerðir og fjárráð eru mismun-
andi í hverju tilviki fyrir sig og Tarkett mætir öllum
kröfum með það að leiðarljósi að hver og einn við-
skiptavinur sé einstakur.
Hjá Tarkett trúa menn því að gólfefni hafi mark-
tæk áhrif á það hvernig fólk upplifir hýbýli sín,
vinnustaði og íþróttaaðstöðu og hafi mikið um það
að segja hversu vel fólki líður. Á sinn hátt má segja
að gólfefnin leggi sitt af mörkum til að auka lífs-
gæði fólksins sem býr, vinnur eða ræktar líkamann
í því umhverfi sem Tarkett hjálpar til við að skapa.
Það skiptir engu hvort um er að ræða opinbera
byggingu, verslunarhúsnæði, einkaíbúðir eða
íþróttahús, nýbyggingu eða endurbyggingu þá
sameinast sérfræðiþekking Tarkett og breitt úrval-
ið af viðargólfefnum, vínylgólfum, línóleumdúkum
og gúmmíi um að gera Tarkett-gólfin einstök. Og
þegar við bætist að Tarkett leggur ofuráherslu á að
koma til móts við einstakar þarfir viðskiptavinar-
ins getur útkoman ekki annað en orðið ánægjuleg.
Tarkettgólfin auka lífsgæði
Gólfefnin frá Tarkett njóta mikilla vinsælda í heimahúsum.
Álfaborg hefur selt flísar frá
spænska flísaframleiðandanum
Porcelanosa í yfir 20 ár, en Porcel-
anosa er leiðandi fyrirtæki í fram-
leiðslu og sölu gólf- og veggflísa
um allan heim, með útibú í yfir
hundrað löndum. Fyrirtækið gerir
strangar kröfur um gæði og lang-
an líftíma vörunnar sem hefur
tryggt Porcelanosa gott orðspor.
„Margir viðskiptavina okkar
sem keyptu Porcelanosa-flísar í
byrjun hafa keypt þær aftur og
aftur og ekki viljað annað þegar
farið hefur verið í framkvæmdir,“
segir Kolbeinn Össurarson, einn
af eigendum Álfaborgar.
„Porcelanosa hafa einnig ávallt verið á undan með nýjungar í flís-
um, bæði í útliti og tækninýjungum við framleiðsluna,“ bætir hann
við en Porcelonsa sérhæfir sig í framleiðslu á flísum með náttúrulegu
útliti og málteknum gólf- og veggflísum sem hægt er að leggja með
grannri fúgu. Þá koma flísarnar einnig í margvíslegri lögun og stærð-
um. Segja má að flísar frá Porcelanosa séu flísar fyrir vandláta en á
viðráðanlegu verði.
„Við höfum náð mjög góðum samningum við Porcelanosa eftir fall
krónunnar og getum boðið flísarnar þaðan á mjög samkeppnishæfu
verði,“ segir Kolbeinn.
Heimasíða fyrirtækisins er www.porcelanosa.com.
Porcelanosa – Flísar
fyrir vandláta
Keneya pulpis. Flestar gólfflísar frá Álfaborg
er hægt að leggja með grannri fúgu.
Það kostar ekki nema eitt sím-tal í Álfaborg að fá dúklagn-ingameistara í heimsókn til
að gera tilboð í teppalögn á stiga-
húsinu, þar sem allt frá A til Ö er
innifalið,“ upplýsir Skafti Stefáns-
son, innkaupastjóri í teppadeild
Álfaborgar, sem býður húsfélögum
umrædda þjónustu endurgjalds-
og skuldbindingarlaust.
„Ásamt því að mæla upp stiga-
ganginn mætir meistarinn með
sýnishorn teppa sem fást í úrvali
lita og gæða, og reiknar út tilboð
sem felur í sér að rífa og fjarlægja
gömlu teppin, leggja ný teppi með
öllum tilheyrandi kostnaði og út-
reiknaða endurgreiðslu á virðis-
aukaskatti svo húseigendur geri
sér grein fyrir endanlegum kostn-
aði við teppaskiptin,“ útskýrir
Skafti.
Í teppadeild Álfaborgar fæst
ríkulegt úrval slitsterkra stiga-
húsa- og skrifstofuteppa, sem öll
eiga sammerkt að vera dugandi á
fjölfarin gólf.
„Fyrsti kostur ætti ávallt að vera
teppi með góðri endingu, því með
teppalögn í stigahúsum er ekki
tjaldað til einnar nætur. Ending
teppanna okkar er frá einum upp
í þrjá áratugi, og mikið um teppi
sem við lögðum fyrir aldarfjórð-
ungi sem eiga enn mikið eftir og
sér varla á,“ segir Skafti og gefur
upp 2.000 króna mun á fermetra-
verði eftir gæðum. „Val fólks á
teppum fer líka eftir því hversu
lengi það sættir sig við að hafa þau,
því vissulega getur verið gaman að
breyta til á tíu ára fresti.“
Að sögn Skafta hefur teppa-
tíska stigahúsa verið söm við sig á
undan förnum árum og engar stór-
vægilegar breytingar í augsýn.
„Flestir kjósa gráleit, yrjótt
teppi á stigahúsin, enda mikil-
vægt að velja praktísk teppi sem
fela óhreinindi sem óhjákvæmi-
lega verða eftir þegar gengið er inn
á þau beint af götunni. Þá er líka
áríðandi að setja góðar mottur í
forstofur stigahúsa til að taka við
mesta skítnum, bleytu og slabbi,
því sandur og gróf óhreinindi slíta
teppum fyrr en ella,“ segir Skafti
og minnir á annað mikilvægt atriði
við val á gólfteppum á stigahús, en
það er hljóðeinangrun.
„Á öllum teppum okkar eru
tækniupplýsingar sem gera grein
fyrir einangrun þeirra í desibelum
og mikill munur á milli teppa. Ein-
angrun skiptir sköpum ef losna á
við glymjanda og bergmál í stiga-
húsum, og er einmitt höfuðástæða
þess að teppi eru oftast valin um-
fram gólfdúk á stigahús.“
Auk fallegra teppa á stigahús
býður Álfaborg einnig stórkost-
legt úrval heimilisteppa úr ull og
gerviefnum í öllum verðflokkum
og ódýr filtteppi sem henta vel til
bráðabirgða.
Hljótt í stigahúsinu
Það er bæði auðvelt og gaman að skipta um teppi á stigaganginum í samvinnu við
Álfaborg. Þar fást slitsterk og fögur stigahúsateppi í úrvali og allt unnið af
metnaðarfullum fagmönnum með áratuga reynslu.
Skafti Stefánsson, innkaupastjóri og sölumaður hjá Álfaborg, segir hljóðeinangrun skipta miklu þegar teppi á stigaganga eru valin, en
einnig litur og áferð sem fela óhjákvæmileg óhreinindi. MYND/STEFÁN
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Nýtt teppi á stigaganginn –
nú er tækifærið !!!!
Eitt verð - niðurkomið kr. 6.390 m2
Verðdæmi:
70 fermetra stigahús með 8 íbúðum
Heildarverð kr. 447.300
Endurgr. VSK og meðal skattaafsl (70.995)
Raunverð kr. 376.305
pr. íbúð aðeins 47.038
Komum á staðinn með prufur og mælum,
ykkur að kostnaðar lausu
ára25
Treviso. Porcelanosa býður upp á mikið úrval flísa með mosaík-útliti.