Fréttablaðið - 21.10.2011, Qupperneq 50
21. október 2011 FÖSTUDAGUR30
Myndlist ★★★★
Listasafn ASÍ
Inga Þórey Jóhannsdóttir, Þorbjörg Þorvaldsdóttir
Tvær sýningar standa nú yfir í Listasafni ASÍ
við Freyjugötu. Þar hefur Þorbjörg Þorvalds-
dóttir unnið innsetningu í Gryfju og Inga Þórey
Jóhannsdóttir sýnir í Arinstofu og Ásmundarsal.
Þorbjörg sýnir líkön af byggingum og ljósmyndir
en segja má að þema hennar sé sköpun framand-
leika gagnvart nánasta umhverfi. Stærðarhlutföll
leika stærsta hlutverkið, en á sýningunni er áhorf-
andinn líkt og vitni að atburðarás sem þó er hulin,
gægist gegnum glugga inn í heim sem gefur meira
í skyn en hann lætur uppi. Innsetning Þorbjargar
er áhugaverð og vekur forvitni.
Inga Þórey Jóhannsdóttir hefur umbreytt Arin-
stofunni, skipt henni í tvennt og tengir þetta verk
sýningarnar tvær í safninu fallega saman. Veggur-
inn er höggmynd og málverk í senn. Hann lokar af
en birtir líka nýja sýn á hluta af Arinstofunni.
Í Ásmundarsal er síðan að finna innsetningu
sem kemur á óvart og er kraftmesta innsetning
sem ég hef séð á þessum stað. Verkið sprengir sal-
inn utan af sér og tekur áhorfandann með sér af
stað í nýjar slóðir. Þetta er glæsilegt verk hjá Ingu
sem hefur á undanförnum árum getið sér æ sterk-
ara orð í myndlistinni.
List Ingu Þóreyjar er ávallt fyrst og fremst
malerísk og sjónræn, en felur líka í sér hið óvænta.
Þannig verður verkið til í nokkrum þrepum, við
fyrstu sýn minnir það á málverk, það tekur á
sig einkenni höggmyndar þegar betur er að gáð
og loks, þegar upp er komið, gerist eitthvað enn
annað, salurinn tekur á sig ævintýralegan blæ,
einnig birtist ný sýn á umhverfið úti fyrir.
Í verkum Ingu koma saman þættir sem eru
ofarlega á baugi í samtímalistum. Hún vinnur
á einfaldan máta með sjónræna þætti nánasta
umhverfis, í fyrri verkum t.d. með bílaumferð, hér
með siglingar og báta, en þess má geta að Inga er
búsett í Reykjanesbæ. Þessum þáttum umbreytir
hún, dregur fram einhvern mjög persónulegan,
sjónrænan kjarna sem alltaf kemur á óvart. Þátt-
ur áhorfandans er jafnframt undirstrikaður með
möguleikanum á að ganga inn í eða upp í verkin,
hér upp í byggingareiningu sem minnir á brú á
bát. Með þátttökunni umbreytist jafnframt sjónar-
hornið og nýjar hliðar á verkinu koma í ljós.
Inga Þórey er hér í feiknagóðu formi, henni virð-
ast allir vegir færir og ætti að mínu mati að kom-
ast í útrás með verk sín. Það fer vel á því að sýna
verk þeirra Ingu Þóreyjar og Þorbjargar saman,
fallegir snertifletir magna hver aðra upp.
Ragna Sigurðardóttir
Niðurstaða: Þorbjörg Þorvaldsdóttir býður upp á sýn í
forvitnilegan heim sem leynir á sér í Gryfju. Glæsileg inn-
setning Ingu Þóreyjar í Ásmundarsal hreinlega sprengir
salinn utan af sér. Frábær upplifun, kraftmikil, litrík og
spennandi.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 21. október 2011
➜ Tónleikar
20.00 Hljómsveitin Ham heldur
tvenna útgáfutónleika á Græna hatt-
inum. Þeir fyrri hefjast kl. 20 og þeir
síðari kl. 23. Miðaverð er kr. 2.900.
20.00 Björn Thoroddsen býður til
sinnar árlegu gítarveislu í Salnum í
Kópavogi. Meðal þeirra sem koma fram
eru Robin Nolan, Bjöggi Gísla, Gummi
P., Hákon Möller, Þórður Árna, Dóri
Braga, Siggi Ólafs, Jón Hilmar og Hjörtur
Steph. Miðaverð er kr. 3.500.
20.00 Kelly Joe Phelps and Corinne
West Duo með tónleika í félagsheim-
ilinu á Laugarbakka. Hljómsveitin Ylja er
sérstakur gestur. Miðaverð er kr. 2.000.
21.00 Lay Low heldur útgáfutónleika í
Hofi á Akureyri. Miðaverð er kr. 2.500.
20.00 Stórtónleikar í Stykkishólms-
kirkju til styrktar orgelsjóð kirkjunnar.
Aðgangseyrir er kr. 1.500.
21.00 Tónleikar til styrktar Krabba-
meinsfélagi Íslands verða haldnir á
Obladí Oblada á Frakkastíg 8. Meðal
þeirra sem koma fram eru Andrea
Gylfadóttir, Eðvarð Lárusson, Helga
Völundardóttir, Magnús Einarsson,
Björgúlfur Egilsson og Lísa Pálsdóttir.
Aðgangseyrir er kr. 1.500.
21.00 Melodica heldur tónleika á Café
Rosenberg.
22.00 Hljómsveitin Hjálmar heldur
tónleika á Faktorý. Miðaverð er kr.
1.500. Dj Gísli Galdur þeytir skífum á
neðri hæðinni og er aðgangur þangað
ókeypis.
➜ Leiklist
20.00 Sýningin Söngleikir með
Margréti Eir er sýnd í Tjarnarbíói.
Gestasöngvari er Heiða Ólafsdóttir.
Miðaverð er kr. 3.200. Hægt er að panta
borð og njóta kræsinga frá Friðriki V fyrir
sýningu kl. 19. Miðaverð með máltíð
innifaldri er kr. 5.400.
20.00 Leiksýningin Hjónabandssæla
sýnd í Gamla bíói. Miðaverð er kr.
4.300.
20.00 Leikfélag Fljótsdalshéraðs
frumsýnir Leikritið Finnski Hesturinn í
Valaskjálf á Egilsstöðum. Miðaverð er kr.
2.500. Eldri borgarar og börn 14 ára og
yngri greiða kr. 2.200.
22.00 Leiksýningin Judy Garland
Kabarett í leikstjórn Charlotte Böving
verður sýnd í Þjóðleikhúskjallaranum.
Miðaverð er kr. 2.900.
➜ Tónlist
23.30 Hipphopp quiz á Prikinu. Dj
Danni Deluxe stjórnar tónlistinni.
➜ Málstofur
15.00 Málstofa um ríkisfjármálaráð
og ríkisfjármálamarkmið verður haldin
í fundarsal Seðlabankans, Sölvhóli.
Málshefjandi er Torben M. Andersen,
prófessor í hagfræði við Árósaháskóla
sem hefur framsögu um reynslu af
mismunandi aðferðum við að stjórna
þróun ríkisfjármála.
20.00 Vinklar – málstofa í Nýlistasafn-
inu. Ragnhildur Jóhannsdóttir, Áslaug
Einarsdóttir, Dr. Hlynur Helgason og
Guðbjörg R. Jóhannesdóttir verða
með erindi um kvenlæga aðkomu að
listsköpun og menningu og kanna
sögulega karllæga slagsíðu í menningu
á víðum grundvelli. Allir velkomnir.
➜ Sýningar
13.00 Endemi stendur fyrir hljóð-
verkasýningunni Endemis óhljóð á
Háskólatorgi í samvinnu við Nýlistasafn-
ið og Jafnréttisdaga. Verkið Ein vika eftir
Sindra Má Sigfússon verður flutt í dag.
➜ Kvikmyndahátíð
14.00 Kvikmyndahátíðin Berlín og Bláir
englar hefst í kamesi aðalsafns Borgar-
bókasafns á Tryggvagötu 15. Þýskar
kvikmyndir frá millistríðsárunum verða
sýndar. Kvikmyndin Auge in Auge er
sýnd í dag kl. 14 og kl. 16. Aðgangur er
ókeypis.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Sverrir Guðjónsson heldur
fyrirlesturinn Gengið í hljóði / Walking
on Sound á vegum tónlistardeildar
Listaháskóla Íslands. Fyrirlesturinn fer
fram í Sölvhóli, Sölvhólsgötu 13 og eru
allir velkomnir.
13.20 Ingjaldur Hannibalsson heldur
fyrirlesturinn Viðskipti Íslands og Kína
- fjárfestingar Kína erlendis í 102
Lögbergi í Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn
er á vegum Konfúsíusarstofnunarinnar
Norðurljós og Kínversk-Íslenska Menn-
ingarfélagsins. Aðgangur er ókeypis.
➜ Samkoma
09.30 Korpúlfarnir, samtök eldri
borgara í Grafarvogi, standa fyrir sund-
leikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30.
Listasmiðjan á Korpúlfsstöðum er opin
frá kl. 13 til 16.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
„Ég fór á frumsýningu Listaverksins um
daginn. Það var stórskemmtileg sýning. Hún
er öðruvísi og fjallar um lítið viðfangsefni í
sjálfu sér. Karakterarnir, sem eru allir góðir
vinir, eru svo ólíkir. Svo er náttúrulega leikhús-
veisla að sjá þessa stórleikara, Hilmi Snæ, Ingvar
E. og Baltasar Kormák, koma saman í sömu sýningu.
Svo fór ég á Galdrakarlinn í Oz með litlu stjúpsystur
minni. Hún hefur fengið misjafna dóma, en ég verð
að vera hreinskilinn: Þetta er stórskemmtileg upplifun.
Mér fannst hún skemmtilega útfærð og karakterarnir
lifandi, skemmtilegir og hressir eins og þeir eiga að vera
í barnasýningum. Svo bíð ég spenntur eftir Hreinsun
og Heimsljósi — samt meira eftir Heimsljósi, sem er
jólasýning Þjóðleikhússins.“
Af stað, af stað!
Gott í leikhúsi: Níels Thibaud Girerd
Listaverkið er leikhúsveisla
Z IK ZAK F I LMWORKS OG F INE & MELLOW KYNNA KV IKMYND EFT IR RÚNAR RÚNARSSON „ELDFJALL“
THEODÓR JÚL ÍUSSON MARGRÉT HELGA JÓHANNSDÓTT IR ÞORSTE INN BACHMANN ELMA L ÍSA GUNNARSDÓTT IR
HÁR OG FÖRÐUN GUÐBJÖRG HULDÍS KR IST INSDÓTT IR BÚNINGAHÖNNUN HELGA RÓS V. HANNAM LEIKMYND HAUKUR KARLSSON
TÓNL IST K JARTAN SVE INSSON HLJÓÐ INGVAR LUNDBERG KL IPP ING JACOB SECHER SCHULS INGER KVIKMYNDATAKA SOPHIA OLSSON DFF
FRAMKVÆMDASTJÓRI RANNVE IG JÓNSDÓTT IR SAMFRAMLE IÐANDI HL ÍN JÓHANNESDÓTT IR EXECUT IVE FRAMLE IÐANDI THOMAS GAMMELTOFT
FRAMLE IÐENDUR ÞÓRIR S IGURJÓNSSON SKÚL I FR . MALMQUIST EG IL DENNERL INE HANDRIT OG LE IKSTJÓRN RÚNAR RÚNARSSON
STYRKT AF NEW DANISH SCREEN KV IKMYNDASJÓÐI Í SLANDS NORRÆNA KV IKMYNDA- OG S JÓNVARPSSJÓÐNUM
LISTRÆN STJÓRN, NEW DANISH SCREEN JACOB HØGEL RÁÐGJÖF, NEW DANISH SCREEN K IM LEONA FORSTÖÐUMAÐUR NORRÆNA KV IKMYNDA- OG S JÓNVARPSSJÓÐS INS HANNE PALMQUIST FORSTÖÐUMAÐUR KV IKMYNDASJÓÐS ÍSLANDS LAUFEY GUÐJÓNSDÓTT IR