Fréttablaðið - 21.10.2011, Blaðsíða 58
21. október 2011 FÖSTUDAGUR38
sport@frettabladid.is
Aðalfundur
Knattspyrnudeildar Fylkis 2011
Aðalfundur Knattspyrnudeildar Fylkis verður haldinn í Fylkishöll
fimmtudaginn 3. nóvember 2011 kl. 20.30.
Dagskrá;
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Stjórn Knattspyrnudeildar Fylkis.
JAMES BARTOLOTTA , leikmaður ÍR, var fluttur með sjúkrabíl frá Grindavík í gærkvöldi eftir skelfilegt samstuð við
J´Nathan Bullock í leik Grindavíkur og ÍR í Iceland Express-deild karla í körfubolta í gær. Bartolotta fiskaði ruðning á Bullock
en sá síðarnefndi virtist fara með olnbogann beint í nefið á ÍR-ingnum og hann lá óvígur eftir, rotaður og með illa brotið nef.
J´Nathan Bullock reyndi fyrir sér í amerískum fótbolta á sínum tíma og er mikill skrokkur.
HANDBOLTI Íslenska kvenna-
landsliðið í handbolta tapaði með
fimm mörkum fyrir Spáni, 27-22
í fyrsta leik sínum í undankeppni
EM 2012 en leikurinn fór fram í
Madrid á Spáni í gær.
Íslenska liðið lenti mest níu
mörkum undir en minnkaði
muninn í lokin með góðum
endaspretti. Spænska
liðið labbaði hvað eftir
annað í gegnum íslensku
vörnina á sama tíma og
íslenska liðinu gekk
illa gegn fram-
liggjandi vörn
spænska liðsins.
Ágúst Jóhannsson fann ekki
lausnir fyrr en í lokin en það var
bara of seint. Liðið getur bætt
fyrir þetta á móti Úkraínu í Höll-
inni á sunnudaginn kemur.
Hanna Guðrún Stefánsdótt-
ir var markahæst með sex
mörk og hin unga Birna
Berg Haraldsdóttir
var með fimm mörk
en þær komu báðar
inn af bekknum í
þesum leik. Ólöf
Kolbrún Ragnars-
dóttir varði ágætlega
eftir að hún kom
inn á í lokin, þar
á meðal víti
Spánverja í
leikslok.
- óój
Stelpurnar byrjuðu undankeppni EM á 5 marka tapi:
Lengi að finna lausnir
BIRNA BERG
HARALDSDÓTTIR
FÓTBOLTI Staðfest var í gær að BÍ/
Bolungarvík og Guðjón Þórðar-
son hefðu komist að samkomu-
lagi um starfslok Guðjóns hjá
félaginu. Hann stýrði liðinu
aðeins í eitt ár.
BÍ er í þjálfaraleit og Freyr
Alexandersson, aðstoðarþjálfari
Vals, hafnaði tilboði frá félaginu
í gær.
Guðjón er nú orðaður við lið
Grindavíkur en samkvæmt heim-
ildum fréttastofu skiptast menn í
tvær fylkingar í Grindavík um að
ráða Guðjón.
Hann er þó ekki eini þjálfar-
inn sem er orðaður við Suður-
nesjaliðið því Lárus Orri Sigurðs-
son, fyrrverandi þjálfari Þórs,
er einnig orðaður við Grinda-
vík, sem er eina lið Pepsi-deildar
karla sem á eftir ráða þjálfara
fyrir næsta tímabil. - hbg
Guðjón hættur hjá BÍ:
Er orðaður við
Grindavík
GUÐJÓN ÞÓRÐARSON Þarf að róa á
önnur mið á nýjan leik. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HANDBOLTI Baráttan í N1-deild karla
jafnaðist enn meir í gær er topplið
deildarinnar, Fram, fékk skell á
heimavelli gegn HK. Eftir fjóra sig-
urleiki í röð þurfti Fram að sætta
sig við tap.
„Við vorum bara lélegir allan
leikinn að mínu mati,“ sagði heiðar-
legur þjálfari Fram, Einar Jónsson.
Þjálfarinn hafði lög að mæla enda
var hans lið fjarri sínu besta í þess-
um leik og átti nákvæmlega ekkert
skilið úr leiknum.
Jafnræði var með liðunum
fyrstu 40 mínúturnar en þá tók
HK öll völd á vellinum og skildi
Fram eftir í rykinu. Það sem vekur
mesta athygli er að HK tókst það án
þess að markmenn liðsins væru að
verja neitt af viti og að lykilmaður
liðsins, Ólafur Bjarki Ragnarsson,
væri nánast áhorfandi að leiknum.
HK á aftur á móti einn efnilegasta
leikmann landsins í Bjarka Má
Elíssyni og sá strákur hreinlega
blómstraði.
„Ég var stundum að spara hrós-
yrðin yfir hann í fyrra. Þessi strák-
ur er að þroskast með hverjum
degi. Hann var ekki bara góður í
sókninni því hann lék einnig glimr-
andi varnarleik í 5/1 vörninni
okkar. Það er ekki hægt að hafa
það betra. Hann er alveg frábær,“
sagði Erlingur Richardsson, annar
þjálfara HK, um Bjarka.
Einar hafði engan áhuga á að
afsaka tap sinna manna.
„Við vorum bara andlausir og
lélegir. Það er ekki hægt að afsaka
þetta því við vorum lélegir og sýnd-
um lélegan karakter er við lendum
undir. Það kæmi ekki á óvart ef
menn hefðu samt afsakanir inni í
klefa,“ sagði Einar en hann segir að
áhugavert verði að fylgjast með því
hvernig liðið bregðist við tapinu.
„Nú reynir á menn og leikmenn
verða að stíga upp og sýna úr
hverju þeir séu gerðir. Þetta var
samt bara eitt tap og við förum ekk-
ert að örvænta.“
Akureyri jafnaði í blálokin
Akureyri skoraði tvö mörk á loka-
mínútunni og tryggði sér jafn-
tefli gegn Val á heimavelli í gær,
24-24. Mínútu fyrir leiksloks varði
Stefán „Uxi“ Guðnason víti þegar
Valur var tveimur mörkum yfir og
gat tryggt sér sigur. Varsla Stefáns
kveikti í Akureyri, sem tryggði sér
eitt stig.
„Ég er ekki enn búinn að ná
þessu, þetta verður ömurleg rútu-
ferð heim,“ sagði Hlynur Morthens,
markmaður Vals. „Ég veit bara
ekki hvernig við klúðruðum þessu.
Kannski var þetta stress undir
lokin, þessir frábæru áhorfendur
tóku okkur kannski bara á taug-
um. Við vorum með unninn leik og
hefðum átt að vinna,“ sagði Hlyn-
ur sem tók þó margt jákvætt út úr
leiknum.
Valur var yfir allan fyrri hálf-
leikinn en þá spilaði Akureyri illa í
23 mínútur. Það breytti þó stöðunni
úr 5-11 í 13-14 sem voru halfleik-
stölur. Seinni hálfleikur var síðan
jafn allan tímann.
Atli Hilmarsson, þjálfari Akur-
eyrar, var ánægður með endurkomu
liðsins. „Við vorum svo gott sem
búnir að tapa þegar Stefán varði
vítið. En trúin lifði og þetta var erf-
itt en við erum ánægðir með eitt stig
úr því sem komið var. Það eru allt
erfiðir leikir núna og þetta dettur
kannski ekki jafn mikið með okkur
núna og í fyrra. Vonandi fáum við
fleiri menn inn úr meiðslum fljót-
lega en ég er ánægður með að liðið
gefst aldrei upp.“ - hbg, hþh
HK valtaði yfir Fram í seinni hálfleik
Fram tapaði sínum fyrsta leik í N1-deild karla í gær er HK kom í heimsókn í Safamýrina. Arfaslakir
Framarar fengu á baukinn. Baráttuglaðir Akureyringar nældu í jafntefli á heimavelli sínum gegn Val.
STÓRKOSTLEGUR HK-ingurinn efnilegi Bjarki Már Elísson fór á kostum í liði HK sem varð fyrst allra liða til að vinna Fram. Bjarki
skoraði ellefu glæsileg mörk í leiknum og lék fínan varnarleik. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI Grindvík, Keflavík og
Fjölnir fögnuðu sigri þegar þriðja
umferð Iceland Express-deildar
karla fór af stað í gær en henni
lýkur síðan í kvöld þar sem mæt-
ast meðal annars KR og Njarðvík
í DHL-höllinni. Grindavík er búið
að vinna alla leiki sína, Keflavík
þá tvo síðustu en þetta var fyrsti
sigur Fjölnismanna í vetur.
Grindvíkingar halda áfram sig-
urgöngu sinni í Iceland Express-
deild karla en þeir unnu ÍR-inga,
87-70, í Röstinni í gærkvöld. Gest-
irnir sáu aldrei til sólar í gær auk
þess sem þeir misstu tvo mikil-
væga leikmenn af vellinum vegna
meiðsla, en þeir James Bartolotta
og Sveinbjörn Claessen þurftu að
yfirgefa völlinn. Grindvíkingar
hafa því unnið alla þrjá leiki sína í
deildinni en ÍR-ingar eru með tvö
stig eftir þrjár umferðir.
„Þetta var ágætur leikur hjá
okkur í kvöld og við sýndum
frábæran varnarleik,“ sagði
Helgi Jónas Guðfinnsson, þjálfari
Grindvíkinga, eftir leikinn í gær.
„Við erum með virkilega mikla
breidd í ár og ef menn eru ekki að
leggja sig fram í leikjum þá fara
þeir bara beint út af“.
„Þetta er frekar svekkjandi, en
ég er samt ánægður með eitt og
það er varnarleikur liðsins,“ sagði
Gunnar Sverrisson, þjálfari ÍR,
eftir tapið í gær.
„Við höfum verið að spila ágæt-
an sóknarleik á tímabilinu en varn-
arleikurinn hefur verið skelfileg-
ur. Í kvöld var það sóknarleikurinn
sem felldi okkur,“ sagði Gunnar að
lokum.
Keflvíkingar komu í Voda-
fonehöllina í gær og unnu 30
stiga stórsigur, 110-80. Bæði
Reykjanesbæjar liðin hafa því
unnið stóra sigri á Hlíðarenda
í fyrstu tveimur heimaleikjum
nýliða Vals í vetur.
Steven Gerard Dagustino skaut
Valsmenn hreinlega í kaf í fyrri
hálfleik en hann hitti úr 7 af 9
þriggja stiga skotum sínum í
hálfleiknum og skoraði 29 stig á 17
mínútum. Keflavík var 60-39 yfir
í hálfleik og úrslitin nánast ráðin.
Fjölnismenn fögnuðu sínum
fyrsta sigri þegar þeir unnu átta
stiga sigur á Tindastól á Sauðár-
króki, 97-89. Tindastóll hefur þar
með tapað þremur fyrstu leikjum
sínum á tímabilinu þar af tveimur
þeirra á heimavelli. Frábær byrj-
un vó þungt fyrir Fjölnismenn,
sem komust í 30-15, en Tindastóll
vann upp forskotið og leikurinn
var jafn fram í lokaleikhlutann
þegar gestirnir úr Grafarvogi
voru sterkari. - sáp, óój
Fjölnir vann sinn fyrsta sigur í Iceland Express-deildinni en Valur steinlá aftur heima:
Grindavík áfram með fullt hús
ÓSTÖÐVANDI Í FYRRI HÁLFLEIKNUM Steven Gerard Dagustino skoraði 29 af 34
stigum sínum í fyrri hálfleiknum á Hlíðarenda í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI