Fréttablaðið - 31.10.2011, Síða 40
31. október 2011 MÁNUDAGUR20
sport@frettabladid.is
SÍMI 50 50 250
FJARVAKUR@FJARVAKUR.IS
WWW.FJARVAKUR.IS
FJÁRVAKUR ER EKKI EINS OG ÖNNUR
FJÁRMÁLAÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI Á ÍSLANDI
Fjárvakur sérhæfir sig í umsjón bókhalds, launavinnslu og annarra
fjármálaferla fyrir meðalstór og stór fyrirtæki. Fagfólk okkar leggur
áherslu á framúrskarandi þjónustu, áreiðanlegar upplýsingar og að ná
árangri með viðskiptavinum okkar.
Með því að útvista fjármálaferlum til Fjárvakurs geta fyrirtæki dregið
úr kostnaði og lagt meiri áherslu á kjarnastarfsemi sína. Aukin áhersla
á kjarnastarfsemi stuðlar að meiri árangri í rekstri. Okkar
kjarnastarfsemi er umsjón fjármálaferla. Hver er þín kjarnastarfsemi?
KYNNTU ÞÉR HVAÐ VIÐ GETUM GERT FYRIR ÞITT FYRIRTÆKI
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
S
5
53
07
6
10
.2
01
1
ÞESSIR TVEIR
PENNAR
ERU EKKI
ALVEG EINS
Annar þeirra er oft tregur til að þjóna eins og til er ætlast
og þá kemur fyrir að hann finnst ekki þegar hans er þörf.
Hinn er eins og Fjárvakur. Hann er ávallt á sínum stað,
traustur og til þjónustu reiðubúinn.
ALBERT BRYNJAR INGASON á enn eftir að taka ákvörðun um hvar hann ætlar að spila
á næsta tímabili en samningur hans við Fylki rennur út um áramótin. Hann staðfesti í samtali við
Fréttablaðið í gær að hann ætti enn í viðræðum við Fylki, Val og FH og myndi taka ákvörðun í dag.
Bjarki er að spila frá-
bærlega og að mínu
mati er hann einn af tveimur
bestu hornamönnum deildar-
innar.
KRISTINN GUÐMUNDSSON
ANNAR ÞJÁLFARA HK
Enska úrvalsdeildin
Everton - Manchester United 0-1
0-1 Javier Hernandez (19.).
Chelsea - Arsenal 3-5
1-0 Frank Lampard (14.), 1-1 Robin van Persie
(36.), 2-1 John Terry (45.), 2-2 André Santos
(49.), 2-3 Theo Walcott (55.), 3-3 Juan Mata
(80.), 3-4 Van Persie (85.), 3-5 Van Persie (92.).
Manchester City - Wolves 3-1
1-0 Edin Dzeko (52.), 2-0 Aleksandar Kolarov
(67.), 2-1 Stephen Hunt, víti (75.), 3-1 Adam
Johnson (90.).
Sunderland - Aston Villa 2-2
0-1 Stilian Petrov (20.), 1-1 Connor Wickham
(38.), 1-2 Richard Dunne (85.), 2-2 Stéphane
Sessegnon (89.).
Swansea - Bolton 3-1
1-0 Joe Allen (49.), 2-0 S. Sinclair, víti (57.), 2-1
Danny Graham, sjálfsm. (74.), 3-1 Graham (93.).
Norwich - Blackburn 3-3
0-1 David Hoilett (48.), 1-1 Steve Morison (53.),
1-2 Yakubu Aiyegbeni (62.), 1-3 Christopher
Samba (64.), 2-3 Bradley Johnson (82.), 3-3
Grant Holt, víti (90.).
Wigan - Fulham 0-2
0-1 Clint Dempsey (42.), 0-2 M. Dembélé (87.).
West Brom - Liverpool 0-2
0-1 Charlie Adam, víti (9.), 0-2 Andy Carroll (45.).
Tottenham - QPR 3-1
1-0 Gareth Bale (19.), 2-0 Rafael van der Vaart
(32.), 2-1 Jay Bothroyd (61.), 3-1 Bale (71.).
STAÐAN
Man. City 10 9 1 0 36-8 28
Man. United 10 7 2 1 27-12 23
Chelsea 10 6 1 3 23-15 19
Newcastle 9 5 4 0 12-6 19
Tottenham 9 6 1 2 18-14 19
Liverpool 10 5 3 2 14-10 18
Arsenal 10 5 1 4 20-21 16
Norwich 10 3 4 3 14-15 13
Aston Villa 10 2 6 2 13-13 12
Swansea 10 3 3 4 12-15 12
Stoke City 9 3 3 3 7-11 12
QPR 10 3 3 4 8-17 12
West Brom 10 3 2 5 9-13 11
Sunderland 10 2 4 4 14-12 10
Fulham 10 2 4 4 13-12 10
Everton 9 3 1 5 10-13 10
Wolves 10 2 2 6 9-17 8
Blackburn 10 1 3 6 13-23 6
Bolton 10 2 0 8 13-27 6
Wigan 10 1 2 7 6-17 5
Enska B-deildin
Leeds - Cardiff 1-1
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með C.
Millwall - Ipswich 4-1
Ívar Ingimarsson kom inn á sem varamaður hjá I.
Derby - Portsmouth 3-1
Hermann Hreiðarsson lék ekki með Portsmouth.
Coventry - Reading 0-0
Brynjar Björn Gunnarsson lék ekki með Reading.
Þýska úrvalsdeildin
Schalke - Hoffenheim 3-1
Gylfi Þór Sigurðsson spilaði í 78 mínútur fyrir H.
Bayern - Nürnberg 4-0
1-0 Mario Gomez (2.), 2-0 B. Schweinsteiger
(19.), 3-0 Franck Ribery (39.), 4-0 Gomez (69.).
Spænska úrvalsdeildin
Barcelona - Real Mallorca 5-0
Lionel Messi 3, Isaac Cuenca, Dani Alves.
Real Sociedad - Real Madrid 0-1
Gonzalo Higuain.
ÚRSLIT
N1-deild karla
HK - Akureyri 30-27 (16-15)
Mörk HK (skot): Bjarki Már Elísson 10/2 (11/3),
Hörður Másson 6 (11), Tandri Már Konráðsson
4 (7), Ólafur Bjarki Ragnarsson 4 (10/1), Atli
Ævar Ingólfsson 2 (2), Leó Snær Pétursson 2 (3),
Vilhelm Gauti Bergsveinsson 1 (1), Ólafur Víðir
Ólafsson 1 (2), Atli Karl Bachmann (1).
Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 22/1 (48/5,
46%), Arnór Freyr Stefánsson (1/1, 0%).
Hraðaupphlaup: 6 (Bjarki Már 2, Ólafur Bjarki 1,
Atli Ævar 1, Leó Snær 1, Vilhelm Gauti 1)
Fiskuð víti: 2 (Bjarki Már 2, Atli Ævar 2)
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Akureyrar (skot): Bjarni Fritzson 6/3
(9/4), Bergvin Gíslason 6/2 (10/2), Halldór Örn
Tryggvason 5 (6), Guðmundur H. Helgason 5
(10), Hreinn Hauksson 1 (1), Jón H. Sigurðsson
1 (1), Guðlaugur Arnarsson 1 (2), Daníel Örn
Einarsson 1 (3), Geir Guðmundsson 1 (5), Svein-
björn Pétursson (1), Heimir Örn Árnason (4).
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 8/1 (31/2,
26%), Stefán Guðnason 6 (13/1, 46%).
Hraðaupphlaup: 8 (Bjarni 1, Halldór 1, Guðm. H.
2, Hreinn 1, Jón 1, Guðlaugur 1, Daníel 1)
Fiskuð víti: 5 (Bjarni 2, Bergvin 2, Geir 1, Heimir 1)
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson.
Iceland Express-d. kvenna
Snæfell - Hamar 80-70
Lengjubikar karla
KR - Þór Þ. 95-94 (39-44, 82-82)
Stigahæstir hjá KR: David Tairu 23/7 fráköst,
Edward Lee Horton Jr. 20, Hreggviður Magnússon
15/7 fráköst, Martin Hermannsson 12/8 fráköst.
Þór Þorlákshöfn: Darrin Govens 29/10 fráköst/8
stoðsendingar, Michael Ringgold 20, Guðmundur
Jónsson 13, Marko Latinovic 13/8 fráköst.
Snæfell - Tindastóll 93-91 (40-39, 83-83)
Stigahæstir hjá Snæfell: Marquis Hall 30/7
stoðs., Jón Ólafur Jónsson 14, Quincy Hankins-
Cole 14/11 fráköst, Davíð Guðmundsson 11.
Stigahæstir hjá Tindastóli: Trey Hampton 20/7
fráköst, Friðrik Hreinsson 18, Maurice Miller 13/6
fráköst, Þröstur Leó Jóhannsson 13.
Þýska úrvalsdeildin
Füchse Berlin- Kiel 32-33
Alexander Petersson 2 – Aron Pálmarsson 0.
ÚRSLIT
HANDBOLTI HK vann fínan sigur
gegn Akureyri, 30-27, í Digra-
nesinu í gær, en leikurinn var sá
síðasti í sjöttu umferð N1-deildar
karla. Jafn var á með liðunum í
fyrri hálfleiknum en í byrjun síð-
ari hálfleiksins stungu HK-ing-
ar af, en Akureyringar gerðu sig
seka um gríðarlega mörg mistök í
leiknum sem reyndust dýrkeypt.
Munurinn var mestur 6 mörk á
liðunum en gestirnir frá Akureyri
náðu aðeins að klóra í bakkann
undir lokin.
Bjarki Már Elísson átti stór-
leik í liði HK og skoraði tíu mörk.
Bjarni Fritzson og Bergvin Gísla-
son gerðu 6 mörk fyrir Akureyri.
Björn Ingi Friðþjófsson varði 22
skot í marki HK.
„Þetta var frábær sigur hjá
okkur í dag,“ sagði Bjarki Már
Elísson, leikmaður HK, eftir
sigurinn í gær.
„Við gerum fullt af mistökum í
þessum leik, en það er mjög svo
sterkt að ná samt sem áður að
vinna Akureyri. Við náðum fínu
forskoti í síðari hálfleiknum en
hleyptum óþarfa spennu inn í leik-
inn rétt undir lokin. Mér fannst
samt sigurinn aldrei vera í hættu.“
Heimir Örn Árnason, leikmaður
Akureyrar, átti óvænta innkomu í
lið norðanmanna í gær, en hann
meiddist illa fyrir stuttu og átti
jafnvel að vera frá fram í janúar
á næsta ári.
„Ég ákvað að reyna að hjálpa
strákunum og koma inn í leik-
stjórnandastöðuna, en þetta var í
raun verra en ég bjóst við,“ sagði
Heimir. „Ég var allt of hægur og
stirður, á þó nokkuð langt í land.
Ég var samt ánægður með margt
í okkar leik. Margir léku vel í dag,
en á móti svona sterku liði eins og
HK þá verðum við allir að spila
betur. Menn eru hægt og bítandi að
koma til baka úr meiðslum en það
mun taka þá alla nokkrar vikur að
komast í gott leikform. Við verðum
ekki orðnir fullmannaðir fyrir en
eftir áramót. Mér finnst samt að
við ættum að vera komnir með
fleiri stig.“
„Þetta var frábær sigur því lið
Akureyrar berst alltaf eins og
ljón allan leikinn,“ sagði Kristinn
Guðmundsson, annar þjálfari HK,
eftir sigurinn í gær.
„Við spiluðum kannski ekki
fallegan handbolta í kvöld, en
náðum upp fínu forskoti með því
að berja okkur dálítið saman. Við
dreifðum álaginu mikið í kvöld og
ég held að það hafi skilað okkur
sigrinum. Bjarki [Már Elísson]
nýtur góðs af því hversu góða
vörn við erum að spila, en hann
er að spila frábærlega og að mínu
mati er hann einn af tveimur bestu
hornamönnum deildarinnar.“ - sáp
Bjarki og HK á sigurbraut
HK vann í gær sinn annan sigur í N1-deildinni í röð, í þetta sinn gegn Akureyri
á heimavelli. Bjarki Már Elísson átt enn einn stórleikinn og skoraði tíu mörk.
TÍU MARKA MAÐUR Bjarki Már Elísson í baráttunni við Guðmund Hólmar Helgason í
gær. MYND/VALLI
KÖRFUBOLTI KR vann Þór frá Þor-
lákshöfn 95-94 í DHL-höllinni
í gær, en leikurinn var í A-riðli
Lengjubikarkeppni KKÍ. Fram-
lengja þurfti leikinn og var hann
æsispennandi frá byrjun. KR-ing-
ar eru því komnir í efsta sæti rið-
ilsins með 4 stig, en aðeins eitt lið
fer áfram í undanúrslit. Þórsarar
eru sem fyrr með tvö stig.
Snæfell vann svo sigur á Tinda-
stóli, 93-91, einnig eftir framleng-
ingu en Jón Ólafur Jónsson tryggði
sínum mönnum sigurinn af víta-
línunni tveimur sekúndum fyrir
leikslok.
„Það er margt sem ég er nokk-
uð ósáttur við eftir þennan leik,“
sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari
KR, eftir sigurinn í gær.
„Þetta er hörkulið sem stóð svo
sannarlega í okkur. Við vorum í
raun bara heppnir að vinna leik-
inn. Það voru ákveðnir hlutir sem
ég var samt sem áður ánægð-
ur með og má sérstaklega nefna
framlagið frá Martin Hermanns-
syni. Liðið var að flækja hlutina
allt of mikið sóknarlega í kvöld
og við verðum að finna lausnir við
því.“
Þegar þessi sömu lið mættust í
Iceland Express-deild karla fyrr í
mánuðinum hafði Þór betur.
„Það er sennilega jafn sárt að
tapa svona eins og það var ljúft
fyrir KR-ingana,“ sagði Benedikt
Guðmundsson, þjálfari Þórs, eftir
leikinn.
„Þetta var bara spurning um
eitt frákast til eða frá. Þetta bara
féll ekki með okkur í kvöld. Leik-
urinn var virkilega jafn allan tím-
ann, stál í stál allan tímann. Næst
eigum við leik gegn Stjörnunni og
við verðum bara að horfa á það
verkefni núna.“
- sáp, esá
Framlengt í báðum leikjum gærkvöldsins í Lengjubikar karla:
Vorum heppnir að vinna leikinn
TEKIST Á Edwart Horton, KR, og Þórsar-
inn Marko Latinovic berjast um boltann.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI