Fréttablaðið - 14.11.2011, Blaðsíða 4
14. nóvember 2011 MÁNUDAGUR4
GENGIÐ 11.11.2011
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
214,4918
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
116,33 116,89
185,01 185,91
158,40 159,28
21,281 21,405
20,451 20,571
17,420 17,522
1,5024 1,5112
182,43 183,51
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Í fréttaskýringu um fyrirtæki í eigu
banka sem birtist í Fréttablaðinu á
föstudag kom fram að 37,2% hlutur
í Eimskipum væri í eigu Horns fjár-
festingarfélags, dótturfélags nýja
Landsbankans. Það er ekki rétt. Þrota-
bú gamla Landsbankans á þann hlut
en eign Horns í félaginu er 3,95%.
Einnig kom fram að Horn ætti 33,3%
í Intrum Justia í Svíþjóð. Það er ekki
rétt, heldur á félagið 1,9% hlut. Þá er
eignarhlutur Horns í Oslo Bors 6,54%
en ekki 7,8% eins og kom fram.
LEIÐRÉTT
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
10°
6°
8°
7°
10°
7°
7°
24°
13°
20°
15°
26°
2°
13°
16°
6°Á MORGUN
Strekkingur allra vestast,
annars hægari.
MIÐVIKUDAGUR
fremur hægur vindur
víða um land.
8
6
7
6
6119
8
8
7
9
9
8
8
6
5
6
6
7
7
6
10
20
18
9
8
7 6
6
5
5
10
16
HLÝINDI
verða á landinu í
dag og á morgun
en reikna má
með 8 til 13 stiga
hita á landinu nú
síðdegis. Það verða
suðlægar áttir
fram eftir vikunni
og veður milt þótt
það dragi heldur úr
hlýindunum eftir
morgundaginn.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
Fannst látinn við Hlemm
Maður fannst látinn á almennings-
salerni við Hlemm á laugardags-
morgun. Málið er í rannsókn lögreglu
en ekki liggur fyrir hvort andlát manns-
ins bar að með voveiflegum hætti.
SAMGÖNGUR Langflestum starfs-
mönnum Landspítalans, eða 87
prósentum, finnst auðvelt að kom-
ast til og frá vinnu, að því er ný
könnun á samgönguvenjum þeirra
leiddi í ljós. Þeir sem telja erfitt að
komast til og frá vinnu segja flest-
ir að það sé vegna of mikillar bíla-
umferðar, kostnaðar og óhentugra
almenningssamgangna.
Langflestir nota einkabílinn til
að komast til og frá vinnu. Not-
endum einkabíls hefur fækkað
úr 80 prósentum í 73 prósent frá
árinu 2008. Tvöfalt fleiri nota nú
strætó en þá. Flestir nota bílinn
vegna þess að þeim finnst þeir
búa of langt frá spítalanum til
þess að ganga eða hjóla og/eða
vegna óhentugra almenningssam-
gangna. Einnig vegna þess að þeir
telja ekki raunhæft að nota aðra
samgöngumáta þar sem þeir þurfi
að koma börnum í og úr leikskóla,
skóla, íþróttum og svo framvegis
fyrir og eftir vinnu.
Flestir, eða um 60 prósent, gætu
hugsað sér að nota annan sam-
göngumáta en þeir gera nú og
flestir þeirra væru til í að hjóla
eða nota strætó. Það sem helst
kemur í veg fyrir að menn færi sig
yfir á hjól eða í strætó er of mikil
fjarlægð frá vinnustað auk þess
sem það tekur of langan tíma að
nota þessa samgöngumáta.
Niðurstöður könnunarinnar
og könnunar á ferðavenjum við-
skiptavina og gesta verða notaðar
við innleiðingu nýrrar samgöngu-
stefnu spítalans eftir áramót. - ibs
Meirihluti starfsmanna Landspítalans gæti hugsað sér að hjóla eða taka strætó í vinnuna:
Langflestir nota bíl til að komast í vinnu
AKUREYRI Stjórn Akureyrarstofu
furðar sig á ákvörðun umhverfis-
og samgöngunefndar Alþingis um
að senda forsendur fyrir fram-
kvæmdum Vaðlaheiðarganga til
Ríkisendurskoðunar.
Í nýrri bókun stjórnarinnar
segir að málið sé komið á loka-
stig en úttekt Ríkisendurskoðunar
muni óhjákvæmilega fresta
afgreiðslu málsins um óákveðinn
tíma.
Stjórnin fagnar því að for-
sendur fyrir göngunum hafi ekki
breyst og framkvæmdir eigi að
geta hafist á næsta ári. Þó átelur
hún þá umræðu að ríkið leggi
fram fé úr ríkissjóði til fram-
kvæmdarinnar. Hið rétta sé að
það ábyrgist fjármögnun og því
mun ekki koma til fé úr ríkissjóði.
- sv
Akureyrarstofa um göngin:
Endurskoðun
fresti málinu
VAÐLAHEIÐI Stjórnin fagnar því að fram-
kvæmdir við göngin geti hafist á næsta
ári. FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTJÁN
ÞÝSKALAND, AP Þjóðverjar leita til
Grikklands, Portúgal og Spánar
eftir vinnuafli, en atvinnuleysi
í Þýskalandi hefur ekki verið
lægra í 20 ár. Nú mælist 6,6 pró-
senta atvinnuleysi í Þýskalandi og
forsvarsmenn fyrirtækja í land-
inu eru margir orðnir örvænting-
arfullir eftir fagfólki til starfa.
Yfirvöld hafa nú komið á sam-
skiptum við lönd sem hafa orðið
illa úti í fjármála kreppunni. Í
Grikklandi er atvinnuleysið tölu-
vert, en um 42 prósent íbúa undir
24 ára aldri eru nú án vinnu. - áp
Þjóðverjar leita að vinnuafli:
Senda boð til
annarra landa
SLYS
Köfunarbúnaður bilaði
Kafari lenti í kröppum dansi í gær er
munnstykki á búnaði hans bilaði við
köfun í Silfru á Þingvöllum. Lögreglan
á Selfossi fór ásamt sjúkraflutninga-
mönnum til að veita kafaranum
aðhlynningu en hann var á um 18
metra dýpi þegar búnaðurinn bilaði.
LANDSPÍTALINN Flestum sem nota
bílinn þykir of langt að ganga eða hjóla.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Bragi Guðbrandsson, for-
stöðumaður Barnaverndarstofu,
segir knýjandi að Alþingi sam-
þykki lög sem geri kleift að hafa
eftirlit með þeim kynferðisbrota-
mönnum sem hættulegastir séu
börnum.
„Hérlendis eru engar heimildir
til eftirlits með kynferðisbrota-
mönnum sem hlotið hafa dóma
og eru búnir að afplána þá,“ segir
Bragi. Hann kveður Barnaverndar-
stofu hafa lagt til við endurskoðun
barnaverndarlaga í fyrra að slíkt
eftirlit yrði gert heimilt með kyn-
ferðisbrotamönnum sem metnir
væru mjög hættulegir. Það hafi
þó ekki fengist í gegn hjá félags-
málanefnd Alþingis. Björgvin G.
Sigurðs son, formaður allsherjar-
nefndar Alþingis, sagðist á visir.
is á föstudag vilja Braga á fund
nefndarinnar til að ræða þessi mál.
Bragi segir að gert yrði áhættu-
mat á þeim sem hlytu dóma fyrir
kynferðisbrot gegn barni. „Þeim
sem eru metnir með mikla áhættu,
það er einstaklingum með barna-
girnd á háu stigi, þarf beinlínis að
hafa eftirlit með eftir af plánun.
Þetta hefur reynst mjög vel í
Bandaríkjunum og Bretlandi sem
dæmi,“ segir Bragi.
Að sögn Braga yrðu menn heim-
sóttir reglulega og þeim sett skil-
yrði. „Til dæmis um að þeir megi
ekki dvelja undir sama þaki og
börn eða vera einir með börnum.
Ef þeir séu staðnir að slíku sé það
ígildi brots. Þá væru heimildir til
að vara þá við sem byggju í næsta
nágrenni við þessa menn,“ segir
Bragi og bætir við að veita yrði
viðkomandi strangt aðhald. „Marg-
ir þeirra reyna að halda sig á mott-
unni en þeir ráða ekki við sig sjálf-
ir því þetta er svo sterk árátta. Það
eru jafnvel dæmi um að þeir sjálfir
séu eftirliti síst mótfallnir.“
Þótt slíkt eftirlit og skilyrði
myndi skerða persónufrelsi manna
eftir afplánun segir Bragi það vel
réttlætanlegt. Miklir hags munir
séu í húfi fyrir hugsanlega þolend-
ur. „Ég tel að okkur beri skylda
til að gera allt sem í okkar valdi
stendur til að varna því að börn
verði fyrir barðinu á þessum
mönnum. Þessar lagabætur myndu
örugglega forða mörgum börnum í
framtíðinni,“ segir hann.
Einnig nefnir Bragi að Barna-
verndarstofa þurfi að fá upp-
lýsingar um búsetu manna eftir
afplánum og heimild til að tilkynna
barnaverndarnefnd á þeim stað um
búsetuna. „Menn með barnagirnd
á háu stigi eru gangandi tíma-
sprengjur; síbrotamenn á þessu
sviði og geta ekki stöðvað sig nema
með verulegri hjálp,“ segir Bragi,
sem telur að þennan hóp manna
fylli á bilinu fimm til tíu einstak-
lingar hérlendis.
„Við getum gert svo miklu betur
í þessum efnum og þetta nýjasta
mál er mjög gott dæmi um það,“
segir Bragi og vísar í dóm yfir
manni sem braut á ungum dreng
í áraraðir þrátt fyrir að lögregla
varaði móður drengsins við mann-
inum „Þessi maður er búinn að fá
fimm dóma á einum áratug. Það
segir okkur að fælingarmáttur
refsingarinnar hefur lítið að segja
í þessu tilliti,“ segir Bragi. Dómur-
inn veki margar áleitnar spurning-
ar sem þurfi að skoða. „En það er
eins gott að hrapa ekki að ályktun-
um.“ gar@frettabladid.is
Vill eftirlitsheimildir
vegna barnaníðinga
Forstjóri Barnaverndarstofu vill lagaheimild til eftirlits með mönnum með
barnagirnd á háu stigi eftir að þeir ljúka afplánum. Dómur frá í síðustu viku
undirstriki þetta. Slíkir menn séu tímasprengjur sem springi fyrr eða síðar.
FRÉTTABLAÐIÐ Í SÍÐUSTU VIKU Karlmaður var í síðustu viku dæmdur í sex og hálfs
árs fangelsi fyrir afar gróf kynferðisbrot gegn dreng sem dvaldi stundum á heimili
hans. Móðir drengsins hafði þó verið vöruð við manninum.
Áfrýjar fangelsisdómi
Morðingi Heidi Thisland-Jensen ætlar
að áfrýja 15 ára fangelsisdómi sem
hann hlaut á föstudag. Honum er gert
að greiða syni hennar miskabætur, en
hann er búsettur hjá föðurfjölskyldu
sinni í Vestmannaeyjum.
NOREGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR