Fréttablaðið - 14.11.2011, Blaðsíða 20
KYNNING − AUGLÝSINGBorvélar MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 20112
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is s. 512 5432
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Bosch er elsti og stærsti fram-leiðandi rafmagnsverkfæra í Evrópu, en fyrir tækið
fagnar hvorki meira né minna en
125 ára starfsafmæli sínu á árinu.
Bosch fram leiðir ein 8.000 vöru-
númer í flokki rafmagnsverkfæra
og fylgihluta og hefur sá hluti
framleiðslunnar sem snýr að raf-
magns- og raf hlöðu borvélum
verið vaxandi, segir Kristinn
Wiium, sölu maður á fagsölusviði
BYKO.
„Ra f mag nsverk fær u m f rá
Bosch er í grunninn skipt í tvær
framleiðslulínur sem hafa verið
seldar hérlendis og ættu að vera
mönnum kunnugar. Eru verkfærin
auðkennd hvort með sínum
litnum, grænum og bláum
eftir því hver fyrirhug-
uð notkun er. Þannig eru
grænu verkfærin aðallega
hugsuð til heimilis- og frí-
stundanota en þau bláu
f y r ir k röf uharða
iðnaðarmenn og
þá til notkun-
ar við krefj-
andi og erf-
iðar aðstæð-
ur,“ útsk ýrir
Kristinn.
Að hans sögn eru raf-
hlöðuborvélar Bosch einkar
eftirsóttar. „Fram-
úrskarandi hönn-
unar- og þróunar-
vinna Bosch gerir
það að verkum að
borvélar þeirra eru
allt í senn léttari,
fyrirferðar minni og
öf lugri en almennt
þekkist á markaðnum.“
Kristinn bendir á að
starfsfólk BYKO sé stolt af
því að geta boðið upp á þessi
þýsku gæðaverkfæri á mjög sam-
keppnishæfu verði. „Við erum
með úrvalsfólk í okkar verslun-
um sem aðstoðar viðskiptavini
eftir fremsta megni við val á verk-
færum. Byggir þar á áralangri
kunnáttu, reynslu og þekkingu á
Bosch-rafmagnsverkfærum. Hjá
BYKO kemur enginn að tómum
kofanum.“
Nánari upplýsingar eru veittar
hjá BYKO í síma 515 4000. Einnig
á heimasíðu fyrirtækisins, á slóð-
inni byko.is.
Bosch í leik og starfi
BYKO ehf. er innflutnings- og þjónustuaðili á Íslandi fyrir Bosch, sem er elsti og stærsti
framleiðandi rafmagnsverkfæra í Evrópu. Að sögn Kristins Wiium hjá BYKO hafa
rafmagnsverkfæri Bosch verið gríðarlega eftirsótt í gegnum tíðina.
Kristinn Wiium með eintak af Bosch-rafhlöðuborvél, en þær njóta mikilla vinsælda.
MYND/STEFÁN
Flest i r fag men n þek k ja DeWalt-borvélar og nú er komin ný lína af þeim, endur-
hönnuð frá grunni. Þróunin er svo
hröð í þessari tækni að það er allt-
af að koma eitthvað nýtt,“ segir
Hákon Ingi Jörundsson, verslunar-
stjóri í Sindra. „Aðal atriðið er að
borvélarnar eru sífellt að verða
léttari og nettari en jafnframt öfl-
ugri,“ segir Hákon og lýsir hönnun-
inni nánar. „DeWalt hefur nú horf-
ið frá því að vera
með batterí
sem stingst
upp í hand-
fangið á vélinni
yfir í það að vera með
renndar rafhlöður. Það gerir það
að verkum að handfangið er orðið
minna og mun betur formað fyrir
hendina, til gamans má geta þess
að DeWalt er með fimm einkaleyfi
á handfanginu.“
Fleira hefur breyst í borvélunum
að sögn Hákonar Inga. Mótor-
inn hefur minnkað að um-
fangi en er að skila 15%
meiri vinnslu og raf-
hlaðan að skila allt að
30% lengri vinnslu-
tíma. „Þannig að með
nýju vélunum geta
menn unnið allt að 30% leng-
ur án þess að hlaða,“ segir hann.
Allar eru vélarnar með led-ljósi og
snjallrofinn í þeim passar upp á að
rafhlaðan ofhitni ekki. „Það er yf-
irálagsvörn í rofanum, sem er mjög
mikilvægt, og að auki er ekki leng-
ur neitt minni í raf hlöðunum,“
tekur Hákon Ingi fram. Segir vél-
arnar hafa styst og því séu þær
ekki eins framþungar og áður.
„Þegar þyngdardreifingin er rétt fer
vélin betur í hendi og er þægilegri
í vinnu,“ segir hann og bendir á að
það sé líka gott að hægt sé að leggja
vélarnar frá sér án þess að þær detti
fram fyrir sig.
Um þrjár stærðir á borvélum er
að ræða frá DeWalt, 10,8 volt, 14,4
volt og 18 volt. Hákon Ingi segir
18 volta vélina vera þá
vinsælustu.
„Minnsta
vélin kom
á markað-
inn í fyrra
og var sú
f y rsta með
þessu nýja hand-
fangi og nýju raf-
h l ö ð u m . H i n a r
komu með þeim út-
búnaði í sumar og
v iðtökurnar hafa
verið mjög góðar.“
DeWalt-merkið er
þekkt á mörgum
rafhlöðu knúnum
tækjum. Má þar
nefna sl ípirok ka,
kíttisbyssur og sagir.
Hleðslutækið hleð-
ur allar rafhlöður frá 10,8 upp í 18
volt. „Það býður enginn keppinaut-
ur jafn mikinn fjölda véla innan
sömu línunnar,“ fullyrðir Hákon
Ingi. „Eftir næsta ár er reiknað
með að tækin í 18V línunni verði
orðin 37.“
Ný lína, endurhönnuð frá grunni
Í verslunum Sindra að Viðarhöfða 6 og Bæjarhrauni 12 skipa DeWalt-handverkfæri stóran sess enda gildir hið fornkveðna um þá tegund að lengi getur
gott batnað. Það getur Hákon Ingi Jörundsson, verslunarstjóri á Viðarhöfðanum, staðfest.
„Aðalatriðið er að borvélarnar eru sífellt að verða léttari og nettari en jafnframt öflugri,“ segir Hákon Ingi verslunarstjóri. MYND/ANTON
Blár fyrir fagmenn
Grænn fyrir heimilið
þýsk gæðavara sem fæst í BYKO