Fréttablaðið - 14.11.2011, Side 13

Fréttablaðið - 14.11.2011, Side 13
MÁNUDAGUR 14. nóvember 2011 13 Framsóknarmenn hafa brugð-ist ókvæða við vangaveltum Eiríks Bergmann um flokkinn og stefnu hans að undanförnu. Eiríkur sagði í grein í Frétta- tímanum að flokkurinn væri far- inn að daðra við þjóðernisstefnu, að breytingar á merki flokksins vísuðu í klassísk fasísk minni og að fánahylling glímumanna á síðasta landsfundi hefði verið til marks um áherslu á „þjóðleg gildi“. Eiríkur er glöggur en ég held samt að við eigum að fara varlega með orð eins og „fasisma“ – slík orð verða að merkja eitthvað svo að við getum brugðist við þeirri stefnu þegar hún skýtur upp kollinum. Þótt Framsóknarmenn bauli Ísland er land þitt á fundum og mæni á glímumenn hnykla vöðvana með íslenska fánann eru þeir ekki þar með orðnir að fasistum. Þeir eru bara skringilegir. Á berangri Við ættum líka að reyna að halda í heiðri þá grundvallarreglu í samskiptum okkar að virða rétt fólks til að skilgreina sig sjálft. Framsóknarmenn eru að reyna það. Þeir eru að leita að sjálfum sér, tilverurétti sínum sem flokks, hugmyndum, stefnu, rétt- lætingu. Það er jákvætt að þeir skuli fyrtast við að vera spyrtir saman við öfgaflokka á Norður- löndum og raunverulega fasista. Það segir okkur að slíkar hug- myndir eru enn taldar óásættan- legar í hinu opinbera stjórnmála- kerfi okkar. Framsóknarmenn eru villtir á pólitískum og hugmyndalegum berangri og hafa verið allar götur síðan flokkurinn þróaðist frá því að vera pólitískur armur Sambandsins og varð vettvangur óprúttinna fjármálaskúma sem notuðu þennan aðgang að valda- kerfinu til að skara eld að eigin köku. En um leið og afskriftir fóru fram á skuldum þessara manna fóru fram stórfelldar afskriftir á fylgi Framsóknar- flokksins. Í rauninni má merki- legt heita að hann skyldi ekki gufa upp. Jón Sigurðsson, einn af hugs- uðum flokksins og maður sem naut virðingar út fyrir raðir flokksins, reyndi í sinni stuttu formennskutíð að finna honum merkingu og stað í tilverunni með því að innleiða hugtakið „þjóðhyggja“ í íslenska hug- mynda- og stjórnmálaumræðu. Um leið sá hann fyrir sér að flokkurinn hefði frjálslyndi, umburðarlyndi, hófsemi, sveigjan leika og slíkar dyggðir að leiðarljósi, aðhylltist alþjóða- samstarf á sem flestum sviðum, vildi ganga í ESB og væri almennt gefinn fyrir praktískar lausnir fremur en æsing og orða- gjálfur. Flokkur í anda Frjáls- lyndra demókrata í Þýskalandi – í lykilstöðu á miðjunni. Væri sem sagt flokkur sæmilega menntaðrar miðstéttar, sem hefði þjóðleg gildi í hávegum, í orði kveðnu að minnsta kosti; óskakjósandinn væri deildar- stjóri einhvers staðar sem hefði átt hagmælta ömmu, héldi upp á Jónas Hallgrímsson og hefði tárast yfir bókum Jóns Kalmans, ætti sér rætur í dreifbýli en byggi í einbýlishúsi í þéttbýlinu og keyrði um á jeppa; vildi halda í heiðri arf þjóðarinnar en líka stuðla að góðum lífskjörum. Jón hafði ekki erindi sem erfiði. Þjóðleg áflog Það er því kannski ekki alls kostar rétt hjá Eiríki Bergmann að hin þjóðlega áhersla hafi komið með Sigmundi Davíð inn í flokkinn – Jón Sigurðsson var farinn að þreifa sig áfram með þetta, enda líta framsóknarmenn eflaust svo á að flokkurinn eigi sér rætur í þjóðlegum alþýðu- hreyfingum – Samvinnuhreyf- ingunni og Ungmennafélags- hreyfingunni. En þessi fánahylling með glímumönnunum á landsfundi flokksins … hefði maður ekki vitað betur hefði maður haldið að hér væri um að ræða gamalt skens með Stuðmönnum. Svo virðist ekki hafa verið. Þegar svona sýning er sett upp án íróníu, að því er best verður séð, þá eru menn að taka sér stöðu í afkáraskapnum miðjum. Þetta eru allt tákn. Glíman er tákn ítrustu þjóðlegra gilda hins íslenska bændasamfélags; hug- myndin var sú að hún væri alveg sérstaklega séríslensk, eins og rímnahættirnir og fjármörkin (reyndar er hugtakanotkunin í þessu þrennu merkilega lík) en hún var auðvitað meira og minna búin til snemma á 20. öldinni úr einhverjum fornum áflogum. Í sjálfu sér er allt í lagi að vísa til þjóðlegra verðmæta. Það er allt í lagi að heiðra gamla hluti úr eigin menningu, rétt eins og ætt- jarðarást er í sjálfu sér jákvæð kennd. Fólk sem ber virðingu fyrir eigin menningu er líklegra til að bera virðingu fyrir menn- ingu annars fólks og skilja hvers vegna það vill heiðra sinn arf. En glíman íslenska er gömul áflogahefð og með því að vísa til hennar er verið að segja: Við stöndum fyrir þjóðleg áflog. Við ætlum að standa í ryskingum. Glíman er ekki bara lang dregið hnoð tveggja manna heldur kannski það úr Ungmennafélaga- menningunni í byrjun 20. aldar sem tengist helst þjóðernis- belgingi eins og þeir muna sem lesið hafa bók Stefáns Jóns sonar um Jóhannes á Borg. Hnyklaðir vöðvar, glímubúningur og fána- hylling: allt vekur þetta ógeð- felld hugrenningatengsl við hermennskudýrkun og búninga- derring – en þó umfram allt lið- inn tíma. Ég veit að ég slæ úr og í. En Framsóknarflokkurinn er samt ekki fasistaflokkur. Því fer fjarri. En hann á enn eftir að sýna okkur fram á að hann sé ekki draugagangur. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG Fjárhags- umsvif Bændasam- taka Íslands Samkvæmt ríkisreikningi ársins 2010 runnu 16,5 milljarðar króna af skatt- tekjum til landbúnaðartengdra málefna. Greiðslur til Bænda- samtaka Íslands námu um hálf- um milljarði króna auk þess sem Bændasamtökin sáu (og sjá) um útgreiðslu fjár úr ríkis- sjóði eða um að safna nauðsyn- legum upplýsingum vegna slíkra útgreiðslna. Í skýrslu frá mars 2011 bendir Ríkisendurskoðun á að stjórnvöld og Alþingi hafi falið Bændasamtökum Íslands að fara með opinbert vald. Ríkis- endurskoðun telur að Bænda- samtök Íslands séu bundin af ákvæðum stjórnsýslulaga og upplýsingalaga við fram- kvæmd verkefna. Lágmarks- upplýsingar um umsvif og framkvæmd eru fólgnar í ársreikningi og ársskýrslu samtakanna. Ætla verður að Bændasamtökin séu skuld- bundin til að birta hvoru- tveggja opinberlega. Undirritaður hefur farið fram á það í tvígang að fá aðgang að ársreikningum Bændasamtaka Íslands. Þeim beiðnum mínum hefur ekki verið sinnt þrátt fyrir skýra skyldu samtakanna samkvæmt áliti Ríkisendurskoðunar. Að óreyndu máli verður ekki fullyrt að neitt gruggugt sé að finna í ársreikningum Bænda- samtaka Íslands. En meðan samtökin skirrast við að veita aðgang að þessum upplýsing- um vakna óþægilegar grun- semdir. Landbúnaður Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor Í leit að liðnum tíma AF NETINUTil varnar fáráðum ferða- mönnum Er markaðssetningin nægilega ábyrg? Við dásömum hina hrika- legu náttúru til þess að laða og lokka – fegrum aðstæðurnar – og ruglum þar með saman kynningu og markaðssetningu. Nú ætla ég ekki að áfellast einn eða neinn, heldur aðeins að biðja alla hlutaðeigandi að líta í eigin barm. Ef ferðaþjónustuaðilar gætu komið sér saman um aðgerðir til að hindra þessi ömurlegu ferða- mannaslys, þá væri mikið unnið. Það þarf ekki mikinn kostnað eða fyrirhöfn – þarf ekki einu sinni lagasetningu, heldur bara svolítið hugvit og umhyggju. Að innleiða ábyrga menningu í markaðsstarf ferðaþjónustunnar er fyrst og fremst spurning um hugarfar. Ólína Þorvarðardóttir blogg.smugan.is/olina Papademos og Monti Lucas Papademos var aðstoðar- bankastjóri Seðlabanka Evrópu og Mario Monti var forstjóri hjá Evrópusambandinu. Þeir eru vafalaust hæfir hagfræðingar. Samt í hópi þeirra, sem telja, að skuldir beri að greiða upp í topp. Fallið hefur á þau fræði síðustu mánuði, þegar skoðuð er ábyrgðarlaus hegðun lánveitenda. Tími er kominn til að skrúfa fyrir ábyrgðarlausan blöðrublástur pilsfalda-banka, sem treysta á ríkisábyrgð. Papademos og Monti eru ekki menn til þess. Jónas Kristjánsson jonas.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.