Fréttablaðið - 14.11.2011, Qupperneq 38
KYNNING − AUGLÝSINGBorvélar MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 20114
NÚ FYLGIR AUKARAFHLAÐA MEÐ AÐ
KOSTNAÐARLAUSU
RAFHLÖÐUVÉLUM
VERKFÆRASALAN EHF SÍMI 5686899 SÍÐUMÚLI 11 108 REYKJAVIK
MEÐ ÖLLUM
M12 & M18
MILWAUKEE
TILBOÐ GILDIR TIL 31. DESEMBER 2011
Verkfærasalan var stofnuð árið 1997 og stutt í að hún verði 15 ára. „Við höfum alltaf verið hér á sama stað í
Síðumúla 11, nema að nú höfum við tekið
yfir húsið,” segir Benedikt Páll Magnússon
verslunarstjóri. „Við byrjuðum á 200 fer-
metrum en tókum síðan kjallarann undir
lager og verkstæði og efri hæðina fyrir skrif-
stofur. Það hefur því verið stöðugur stíg-
andi í þessu enda eigum við okkar föstu við-
skiptavini sem hafa haldið tryggð við okkur
í mörg ár.“
Jón Friðrik Birgisson í innkaupadeildinni
segir að það sem einkenni Verkfærasöluna
sé að þeir hafi alltaf lagt sig fram um að hafa
fjölbreytt úrval af góðri vöru á sanngjörnu
verði. „Við erum með verkfæri sem nota má
til léttra heimilisverka, eins og að hengja
upp myndir, setja saman hluti og fleira, og
svo erum við með þungavigtarverkfæri fyrir
iðnaðar menn.“
Milwaukee endast betur og snúast hraðar
Nú fer talið að berast að borvélum og þar eru
þeir Jón Friðrik og Benedikt Páll á heima-
velli. „Við erum með umboð fyrir Milwaukee-
rafhlöðuborvélar, AEG-rafhlöðuborvélar og
Ryobi-rafmagnshandverkfæri, sem allt eru úr-
valsmerki. Milwaukee tróna þó á toppnum og
eru frá samnefndri borg í Bandaríkjunum þar
sem borvélar hafa verið framleiddar frá 1924;
hjá Milwaukee hefur verið lögð áhersla á eina
sýn: að framleiða bestu rafmagnsverkæri fyrir
faglega notendur. Í dag stendur Milwaukee-
nafnið fyrir hæstu gæði og áreiðanleika,“ segir
Benedikt og brosir. „Það sama á við um bor-
vélar og önnur verkfæri, það er mjög misjafnt
hvað hentar hverjum og einum, sem og hvort
nota á borvélina til heimilisnota eða í iðnaði
eins og járnsmíði eða smíðum almennt.“
Að sögn Jóns og Benedikts er Milwaukee
brautryðjandi á sviði borvéla. ,,Þeir voru
t.d.fyrstir til þess að koma með 28 volta
hleðslurafhlöðu í borvélar,“ segir Jón og Bene-
dikt bætir við. „Það voru búnar að vera til
hleðslurafhlöður í borvélar í nokkur ár en árið
2004 verður algjör bylting. Milwaukee komu
fyrstir með lithium ion rafhlöður en það eru
aðrar sellur í rafhlöðunni en voru á undan og
síðan komu margir í kjölfarið. Núna er þriðja
kynslóðin af þessum rafhlöðum komin á
markaðinn hjá Milwaukee en það er red lithi-
um ion. Þær endast 40% lengur en aðrar raf-
hlöður og vélarnar torka 20% meira og snúast
20% hraðar og þetta er enginn með nema Mil-
waukee í dag.“
Verkfærasalan býður upp á f leiri vöru-
merki í borvélum, þar á meðal AEG og Ryobi.
,,AEG er mjög sterkt vörumerki í borvélum og
Ryobi er stærsti framleiðandi rafmagnsverk-
færa í Japan,“ segir Jón og segir það með betri
merkjum fyrir einstaklinga og iðnaðarmenn.
„Já, þeir hafa einnig verið mjög framarlega í
gegnum tíðina með vandaðar vörur. En það
má segja að Milwaukee er efst fyrir fagmann-
inn, þá kemur AEG og Ryobi þar á eftir og svo
eru fleiri vörumerki í ódýrari kantinum. Úr-
valið er því mikið.“
Milwaukee trónir
á toppnum
Verkfærasalan selur úrvalsborvélar í öllum verðflokkum og er einnig
með verkstæði sem þjónustar viðskiptavini hennar, oftast samdægurs.
Benedikt Páll Magnússon og Jón Friðrik Birgisson við hluta af því úrvali sem í boði er í Verkfærasölunni. MYND/GVA