Fréttablaðið - 14.11.2011, Síða 46
22 14. nóvember 2011 MÁNUDAGUR
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
CAFÉ/BAR, opið 17-23 / www.bioparadis.is / midi.is
VERTU FASTAGESTUR!
Ódýrara í bíó með aðgangskortum!
MÁNUDAGUR: ERKIFJENDUR (SUPERCLÁSICO) 18:00,
20:00, 22:00 BAKKA-BALDUR 18:00, 20:00, 22:00
MIDNIGHT IN PARIS 18:00, 20:00, 22:00 BORGRÍKI 18:00,
20:00, 22:00
ÍSL. TEXTI / ENGLISH SUBTITLES.
BAKKA-BALDUR
EFTIR ÞORFINN GUÐNASON
Lóa Hjálmtýsdóttir er söng-
kona FM Belfast en teiknar
líka myndasögur. Hún
hefur sent frá sér enska
útgáfu bókarinnar Alhæft
um þjóðir og óttast ekki við-
brögð þjóðanna sem alhæft
er um.
„Ég held að flestum finnist gaman
að alhæfa um þjóðir,“ segir Lóa
Hlín Hjálmtýsdóttir, söngkona FM
Belfast og myndasöguhöfundur.
Lóa sendi í síðustu viku frá sér
rassvasabókina Generalizations
about Nations, sem er ensk útgáfa
bókar hennar, Alhæft um þjóðir,
sem kom út árið 2009. Í bókun-
um myndskreytir Lóa furðuleg-
ar alhæfingar um 60 þjóðir sem
eru flestar sprottnar úr hugar-
heimi hennar. Á meðal þess sem
hún alhæfir er að Þjóðverjar séu
svo uppteknir af fortíðinni að
þeir verði gleymnir, að japanskar
konur séu úrillar á morgnana og
að fátt gleðji börn á Havaí meira
en lík sem rekur á land. En ótt-
ast hún viðbrögðin, nú þegar búið
er að þýða bókina á útbreiddara
tungumál?
„Nei. Þetta er náttúrulega grín.
Svo er ég ekkert svo viss um að
hún fari mikið á flakk,“ segir Lóa
og bætir við að hörð viðbrögð
geti virkað sem afbragðs auglýs-
ing. „Fólk fattar ekki að með því
að vera rosalega æst og skrifa
ofstækisfullar hatursgreinar um
eitthvað auglýsir það bara hlutinn
frekar.“
Lóa segist þó hafa lent í því að
fólk telji hana vera með fordóma
gagnvart fólki, en hún vísar því til
föðurhúsanna enda sé hún að bulla
í bókunum. „Þetta er ekki vísinda-
legt,“ segir hún.
Alhæfingarnar eiga ekkert skylt
við algengar alhæfingar, eins og
að Danir séu leiðinlegir eða Finn-
ar þunglyndir. „Ég geri eiginlega
grín að því. Sumir segja að Skotar
séu nískir, hvað veit fólk um það?“
Þannig að þú óttast ekki að t.d.
Þjóðverjar taki grínið óstinnt upp?
„Nei, Þjóðverjar eru rosa næs
fólk.“ atlifannar@frettabladid.is
Óhrædd við að alhæfa um
þjóðir á útbreiddri tungu
ALHÆFT UM ÞJÓÐIR Lóa sendi frá sér bók í síðustu viku þar sem hún alhæfir um þjóðir á skemmtilegan hátt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
“STERK, FURÐULEG
OG ÁHUGAVERÐ!”
- EMPIRE
“TIL HAMINGJU, ÍSLAND”
-Þ.Þ., FT
TOWER HEIST KL. 6 - 8 - 10 12
IN TIME KL. 8 - 10 12
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 6 7
HUMAN CENTEPIDE KL. 10.15 18
HEADHUNTERS KL. 5.45 - 8 16
MONEYBALL KL. 6 - 9 L
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 5.40 - 8 - 10.20 7
MIDNIGHT IN PARIS KL. 10.15 L
ELDFJALL KL. 5.45 - 8 L
TOWER HEIST KL. 5.40 - 8 - 10.20 12
TOWER HEIST LÚXUS KL. 4 - 10.20 12
IN TIME KL. 5.40 - 8 - 10.30 12
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 7
ÆVINTÝRI TINNA 2D KL. 3.20 7
HEADHUNTERS KL. 8 16
ÞÓR 3D ÍSLENSKT TAL KL. 3.40 - 5.50 L
ÞÓR 2D ÍSLENSKT TAL KL. 3.20 L
BORGRÍKI KL. 10.15 14
SÝND Í
TAKMARKAÐAN TÍMA
TOWER HEIST 5.50, 8 og 10.15
IN TIME 3D 8
ÆVINTÝRI TINNA3D 5
ÆVINTÝRI TINNA2D 5
BORGRÍKI 8 og 10
THE THING 10.15
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Þ.Þ. - FRÉTTATÍMINN
A.K. - DV
www.laugarasbio.is
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
FYNDIN, TILKOMUMIKIL - BACKSTAGE
SVIKRÁÐ
MAGNAÐUR ÞRILLER
100/100
Philadelphia Inquirer
91/100
ENTERTAINMENT WEEKLY
ÁLFABAKKA
12
12
12
12
L
L
7
10
L
L
V I P
KRINGLUNNI
7
12
12
12
12
7
L
16
16
AKUREYRI
HELP kl. 5:30 2D
THE IDES OF MARCH kl. 8 2D
THE INBETWEENERS MOVIE kl. 10:20 2D
THE THREE MUSKETEERS kl. 6 - 10:20 2D
THE SKIN I LIVE IN kl. 8 2D
EGILSHÖLL
12
7
7
L
L
L
16
THE ADVENTURES OF TINTIN kl. 5:40 - 8 - 10:30 3D
ÞÓR: HETJUR VALHALLAR m/ísl tali kl. 5:40 3D
THE IDES OF MARCH kl. 8 - 10:30 2D
FOOTLOOSE kl. 5:40 2D
THE INBETWEENERS MOVIE kl. 8 - 10:30 2D
THE THREE MUSKETEERS kl. 5:40 3D
HELP kl. 9 2D
TOWER HEIST kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D
TOWER HEIST Luxus VIP kl. 5:50 - 8 - 10:20 2D
THE IDES OF MARCH kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D
THE INBETWEENERS kl. 5:50 - 8 - 10:20 2D
THE HELP kl. 5:40 - 8:20 - 10:20 2D
FOOTLOOSE kl. 5:50 2D
JOHNNY ENGLISH REBORN kl. 8 2D
THE IDES OF MARCH kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D
THE INBETWEENERS kl. 10:20 2D
THE HELP kl. 5:40 - 8:30 2D
THE THREE MUSKETEERS - 3D kl. 8 3D
BANGSÍMON M/ ísl. Tali kl. 6 2D
KEFLAVÍK
TOWER HEIST kl. 8 2D
THE IDES OF MARCH kl. 10:20 2D
WHAT’S YOUR NUMBER kl. 8 2D
THE THING kl. 10:20 2D
14
Rokkhljómsveitin Reykjavík!
sendi á dögunum frá sér sína
þriðju breiðskífu, Locust Sounds.
Útgáfunni var fagnað með veg-
legum hætti á Kex Hosteli síðasta
fimmtudagskvöld. Vertar á veit-
ingahúsinu Tjöruhúsinu á Ísafirði
buðu gestum að kynnast sínu ómót-
stæðilega fiskihlaðborði og tón-
listarmaðurinn Markús lék tón-
list undir borðhaldi. Aðalstjörnur
kvöldsins stigu því næst á svið og
reiddu fram magnaðan rokkseið
sinn. Að síðustu tróð stuðsveitin
FM Belfast upp.
Veisla fyrir eyrun og magann
ROKK, RÓL OG FISKIVEISLA Strákarnir í Reykjavík! voru drulluþéttir á Kexinu á
fimmtudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Gestir gátu ekki stillt sig um að sogast inn í stemningu sveitarinnar.
Söngvarinn Bóas Hallgrímsson blandaði
geði við áhorfendur.