Fréttablaðið - 14.11.2011, Page 47
MÁNUDAGUR 14. nóvember 2011 23
Kringlunni
Söngfuglinn Jessica Simpson á
von á sínu fyrsta barni ásamt
unnusta sínum, íþróttakapp-
anum Eric Johnson. Að hennar
sögn gengur meðgangan vel en
hún viðurkennir þó að henni fylgi
ýmsir leiðinlegir fylgikvillar.
„Fólk segir alltaf að ófrískar
konur glói, ég segi að það sé
vegna þess að þær svitna enda-
laust og það glampar svona
fallega á svitann,“ sagði söngkon-
an í viðtali við People Magazine.
Til stóð að Simspon og Johnson
gengju í hið heilaga nú í nóvem-
ber en þau ákváðu að fresta brúð-
kaupinu þar til eftir fæðingu
barnsins því Simpson vildi ekki
bæta á álagið.
Glóir ekki
SVITNAR Jessica Simpson segist ekki
glóa eins og aðrar ófrískar konur, hún
svitnar aðeins. NORDICPHOTOS/GETTY
Chloé Sevigny hefur hannað sína
eigin fatalínu sem hún vonar að
höfði ekki til fólks eins og Hilton-
systranna. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem Sevigny reynir fyrir sér
sem hönnuður því hún hefur hann-
að fatalínu í samstarfi við fata-
merki Opening Ceremony.
Sevigny kveðst heldur vilja að
raunveruleikastjarnan Nicole
„Snooki“ Polizzi klæðist hönn-
un sinni heldur en hótelerfinginn
Nicky Hilton. „Ég las einhvers-
staðar að Nicky Hilton segðist ekki
skilja hönnun mína og ég hugsaði
með mér: „Gott, því fötin eru ekki
ætluð henni.“ Ég held að Snooki
mundi líta mun betur út í fötunum
mínum heldur en Nicky,“ sagði
leikkonan í samtali við Bullet
Media.
Ósátt við Hilton
ÓSÁTT Chloé Sevigny er ósátt við Nicky
Hilton og vill ekki að hún gangi í föt-
unum sem hún hefur hannað.
NORDICPHOTOS/GETTY
Söngkonan Beyonce tilkynnti fyrir nokkrum vikum
að hún ætti von á barni ásamt eiginmanni sínum,
rapparanum Jay-Z.
Fjölmiðlar vestanhafs efast hins vegar um að hún
sé að segja satt og hafa keppst við að birta myndir
af henni sem sýna að kúlan er síbreytileg í stærð og
leggst jafnvel saman þegar hún sest niður. Slúðrað
er um að önnur kona gangi með barn hjónakornanna
og að með því sé Beyonce að hlífa lögulegum vexti
sínum.
Slúðursögurnar fengu byr undir báða vængi á
dögunum þegar Beyonce kom fram í spjallþætti
Jimmy Fallon, en kúlan var þá hvergi sjáanleg.
Talsmenn söngkonunnar svara fréttunum þannig
að hún hafi tekið lagið upp fyrir þremur mánuðum,
sem þykir undarlegt í ljósi þess að þátturinn er í
beinni útsendingu og hún var kynnt á svið eins og
hún væri á svæðinu. Snúið mál!
Kúlan hvergi sjáanleg
ÓLÉTT EÐA EKKI? Fjölmiðlar vestanhafs velta fyrir sér hvort
Beyonce sé ekki ólétt, þrátt fyrir yfirlýsingar um annað.