Morgunblaðið - 17.07.2010, Síða 4
FRÉTTASKÝRING
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Hvar sem uppsjávarfiski er landað í sumar eru
engar sumarlokanir, heldur vertíðarstemning
og fjöldi ungmenna ráðinn til starfa. Skip frá
Samherja landa til dæmis makríl og síld hjá
Síldarvinnslunni á Neskaupstað, Vinnslustöðin
í Vestmannaeyjum vinnur sömuleiðis makríl
og síld. Það gerir einnig Skinney-Þinganes á
Höfn í Hornafirði, en að sögn Ásgeirs Gunn-
arssonar útgerðarstjóra voru þar ráðnir um 70
skólakrakkar í sumar. Þar eru menn að auki á
fullu í humrinum. HB Grandi hefur tilkynnt að
engar sumarlokanir verði og hefur ráðið fjölda
ungmenna til starfa í sumar. Nú eru tveir
frystitogarar HB Granda á makrílveiðum með
sérútbúin flottroll, en á þessum tíma hafa þeir
oftar en ekki verið við úthafskarfaveiðar. Mak-
ríll leikur því stóran þátt í uppgripunum, en
130.000 tonn af honum verða veidd á þessu
fiskveiðiári.
En á meðan sumir gera það gott er annað
uppi á teningnum hjá þeim sem vinna aðallega
bolfisk. Þar eru sumarlokanir og þær eru
miklu lengri en áður. Íslandssaga á Suðureyri
ætlar reyndar ekki að loka heldur halda sinni
70 manna starfsemi gangandi.
Að sögn Einars Vals Kristjánssonar hjá
Hraðfrystihúsi Gunnvarar á Ísafirði er mán-
aðarlöng sumarlokun í ár, en áður hefur hún
ekki verið nema tvær vikur. Fiskvinnsla Brim-
bergs á Seyðisfirði hefur verið lokuð frá júlí-
byrjun og opnar ekki aftur fyrr en 10. ágúst.
Adolf Guðmundsson forstjóri segir þetta í
fyrsta skipti sem fyrirtækið er með svona
vinnslustopp vegna kvótaleysis síðan kvóta-
kerfið var sett á fót.
Oddi á Patreksfirði er lokaður í tvo heila
mánuði í sumar vegna kvótaleysis og er það
heldur lengri lokun en áður hefur verið, að
sögn Skjaldar Pálmasonar framleiðslustjóra.
„Ef við hefðum hráefnisverðið í eðlilegum
farvegi þá gæti fiskvinnslan vel staðið undir
sér sem hún getur ekki í dag. Við erum eig-
inlega að éta okkur innan frá með þessu,“ segir
einn viðmælandi Morgunblaðsins.
„Það er víða blóð undir nöglum núna enda
gríðarlega hörð samkeppni verið um hráefnið,“
segir annar viðmælandi. Verð hafi hækkað
gríðarlega í vor en fyrirtækin samt hamast við
að kaupa hráefni, sum hver eftir að það hefði
átt að vera ómögulegt fyrir þau, vegna rekstr-
arvanda og lágrar framlegðar. Hlutfall hráefn-
iskostnaðar í heildarútgjöldum margra fyrir-
tækja fór í um 70% og var komið mun ofar um
það leyti sem menn fóru að hægja á sér og loka.
Jafnvel í 90% og þá segir sig sjálft að lítið er
eftir til að greiða laun og halda tækjum við.
Viðmælandinn segir útlendinga óbeint á bak
við einhver fiskvinnslufyrirtækin og hafi haldið
þeim gangandi. Þar að auki hafi hráefniskaup-
in staðist skoðun á meðan enn var hægt að
skipta með krónur á aflandsmarkaði. „Þetta
gat komið heim og saman, út frá gengi á
aflandsmarkaði, áður en lokað var á það.“
Blóðug samkeppni um
hráefni til fiskvinnslu
Hráefniskostnaður upp úr öllu valdi Sumarlokanir eru langar í bolfiski
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fiskverkun Óánægju gætti meðal fiskverkenda framan af ári með verðhækkanir. Samtök fisk-
vinnslufyrirtækja stofnuðu hóp sem kannaði af hverju hinar gríðarlegu verðhækkanir stöfuðu.
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2010
Febrúar til maí í vor fór afurðaverð frá
fiskvinnslustöðvum, einkum á þorski
og karfa, en einnig ufsa og ýsu, lækk-
andi. Á sama tíma hækkaði hráefnis-
verð, sem fiskvinnslan þurfti að
greiða útgerðinni fyrir aflann, gríðar-
lega. Hækkaði verð á þorski um allt að
þrjá fjórðu hluta og ýsu jafnvel enn
meira, á þessu nokkurra mánaða
tímabili. Þetta leiddi til þess að fram-
legðin hjá mörgum fiskvinnslufyr-
irtækjum varð ansi lág og róðurinn
þyngdist.
Ástæður hinna miklu verðhækkana
eru meðal annars ákvæði í kjarasamn-
ingum sjómanna sem miða við upplýs-
ingar frá Verðlagsstofu skiptaverðs,
um verð á mörkuðum og fleira. Þær
hækkanir sem leiddu af þessum kjara-
samningsákvæðum voru seint á ferð-
inni og komu fram þegar afurðaverð
fór lækkandi. Hlutfall hráefnisinn-
kaupa í kostnaði fiskvinnslunnar varð
því mjög hátt.
Óánægjan með hækkanirnar varð til
þess að Samtök fiskvinnslufyrirtækja
settu á fót nefnd til að skoða hvað olli.
Arnar Sigurmundsson, formaður SF,
segir spurður út í þetta að menn hafi
viljað fá útskýringar. „Hreyfingar eru
stundum lengi að koma fram og
stundum bæði hvað varðar hækkun og
lækkun, það var sú meginskýring sem
gefin var hjá Verðlagsstofu skipta-
verðs. En engu að síður kom þetta
mjög sérkennilega út. Um leið og af-
urðaverðið lækkaði, þá hækkaði hrá-
efnisverðið.“ Nú hefur hins vegar
dregið úr hækkunum og síðast kom
reyndar verðlækkun frá verðlagsstof-
unni.
Mjög óþægileg
verðsveifla
LÍTIL FRAMLEGÐ FYRIRTÆKJA
0kr.
Eftirstöðvum dreift á
allt að 12 mánuði.*
1.000 kr. inneign á
mán. í 12 mán. fylgir.
Staðgreitt: 13.900 kr.
Símalán – útborgun:
HUAWEI U1251
Ódýrasti 3G síminn með öllu sem þú þarft.
Styður m.a. 3G langdrægt kerfi.
0kr.
Eftirstöðvum dreift á
allt að 12 mánuði.*
1.000 kr. inneign á
mán. í 12 mán. fylgir.
Staðgreitt: 34.900 kr.
Símalán – útborgun:
NOKIA 5230
Frábær 3G sími með stóran snertiskjá og GPS
sem gerir gott ferðalag enn betra.
Báðum
símum fylgir
12.000 KR.
INNEIGN
yfir árið!
3G
Báðir símarnir
styðja 3GL
*
Ef
gr
ei
tt
er
m
eð
kr
ed
it
ko
rt
ie
r
hæ
gt
að
dr
ei
fa
ef
ti
rs
tö
ðv
un
um
va
xt
al
au
st
á
al
lt
að
12
m
án
uð
i.
G
re
ið
sl
ug
ja
ld
er
25
0
kr
./
m
án
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
2
2
11