Morgunblaðið - 17.07.2010, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 17.07.2010, Qupperneq 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2010 Á Austurvelli Einn helsti kostur blíðviðrisins sem hefur glatt borgarbúa er að fólk getur verið léttklætt. Þessi ungi drengur naut þess að kanna heiminn – á hvolfi – á gammosíunum í gær. Ernir Drögum ESB-umsóknina til baka Nú er ár síðan meiri- hluti Alþingis ákvað að sækja um aðild að ESB. Frá því umsókn Íslands var lögð inn hafa kröfur ESB skýrst sem veldur því að andstaðan við ESB aðild hefur aukist og kannanir sýna að mikill meirihluti þjóðarinnar vill að Alþingi losi hana úr þessari gíslingu og dragi ESB-umsóknina til baka. Hótanir á Alþingi þegar ESB var samþykkt Við myndun þessarar ríkisstjórnar var gert samkomulag þess efnis að lögð yrði fram þingsályktunartillaga á Alþingi og þar myndi það ráðast hvort sótt yrði um aðild að ESB. Um leið og ríkisstjórnarflokkarnir ákváðu að leggja málið fyrir þingið var því haldið rækilega til haga að í þinginu væru þingmenn einungis bundnir eig- in sannfæringu. Vegna þess hve um- deilt málið er þá hefði að sjálfsögðu verið réttast að sækja umboð frá þjóðinni til leiðangursins en það var ekki gert vegna þess að aðildarsinnar voru hræddir um að þjóðin myndi hafna því að sækja um aðild. Það verður lengi í minnum haft hvernig vinnubrögðum var beitt þegar málið var keyrt í gegnum þingið. Þrátt fyrir að samið hafi verið um að allir gengju óbundnir til atkvæða var haft í hót- unum við einstaka þingmenn og ráð- herra Vinstri grænna, þar voru því gerðir skórnir að líf fyrstu hreinu vinstri ríkisstjórnarinnar væri undir í atkvæðagreiðslunni og að staðan nú væri sú að það félli á atkvæði viðkom- andi. Samfelldar sms-sendingar á einstaka þingmenn meðan á at- kvæðagreiðslu stóð er dæmi af sama toga en þau innihéldu hótanir um stjórnarslit ef viðkomandi styddi ekki aðildarumsóknina. Þessi ólýðræð- islegu vinnubrögð voru í litlum takti við það aukna þingræði sem báðir stjórnarflokkarnir hafa talað fyrir. Einfaldar aðildarviðræður breytast í aðlögun Eitt af því sem valdið hefur aukinni andstöðu við ESB-umsóknina er að breyting hefur orðið á eðli stækk- unarviðræðna frá því sem áður var. Þessar breytingar fela það í sér að sem minnst er gefið af frestum til að aðlagast ESB áður en aðild- arviðræður klárast. Við- ræðum er ekki lokið og samningaköflum lokað fyrr en ákveðnum mark- miðum er náð í innleið- ingu löggjafar í viðkom- andi ríki. Samsvarandi kröfur eru gerðar áður en aðildarviðræður um einstaka samningakafla hefjast. Dæmi um þetta eru t.d. að Íslendingar hætti hvalveiðum áður en viðræður hefjast og að makrílveið- ar verði dregnar saman. Ef ESB- umsóknarferlið heldur áfram eiga eftir að koma fleiri kröfur, stórar og smáar, sem þjóðin þarf að uppfylla áður en hún segir hug sinn í þjóð- aratkvæðagreiðslu. Þrátt fyrir að þessar upplýsingar hafi legið fyrir t.d. í gögnum sem lögð voru fyrir utanrík- ismálanefnd þá var ekki gerð grein fyrir þessu opinberlega enda lítt fallið til vinsælda. Heldur var eingöngu tönnlast á því að mikilvægt væri að sjá hvað kæmi út úr aðildarviðræðum áður en þjóðin gæti tekið upplýsta ákvörðun. Evran – ESB í vanda Evran var og er ein helsta gulrótin sem notuð er til áróðurs fyrir ESB- aðild. Aðstæður innan sambandsins hafa nú breyst mikið frá því Ísland sótti um aðild sl. sumar og það glímir nú við stór efnahagsvandamál. Ekki liggur fyrir hvort það tekst að bjarga evrunni eða til hvaða aðgerða verður gripið á næstu árum en viðbrögð ESB-ríkjanna við þeirri upplausn sem blasir við í efnahags- og fjár- málum hefur m.a. verið að leggja til aukna miðstýringu frá Brussel. Icesave skilyrði fyrir ESB Allt frá því fyrst var farið að ræða um það hvort íslenska ríkið bæri ábyrgð á Icesave-reikningunum þá hafa verið mjög skiptar skoðanir um það. Sama gildir um það hvort Ice- save-reikningarnir tengjast ESB en nú liggur hins vegar fyrir af hálfu breskra og hollenskra stjórnvalda að greiðsla á Icesave-reikningunum eru eitt af því sem þeir munu setja sem skilyrði í aðildarviðræðum við Ísland. Á sama tíma sýnir utanríkisráðherra því gríðarlegan áhuga að fara nú að koma samningaviðræðum af stað. Sú spurning vaknar óneitanlega hvort Icesave-málið væri í þeim farvegi sem það er nú nema vegna ESB- umsóknarinnar. Vinstri græn eiga að draga ESB umsóknina til baka ESB hefur verið erfitt mál fyrir Vinstri græn og mikil andstaða er í flokknum við aðildarumsókna. Nú hefur þessi andstaða vaxið enn frekar og kom það vel fram á flokksráðs- fundi sem haldinn var í lok síðasta mánaðar. Miklar umræður voru um ESB-umsóknina. Fundurinn lýsti því yfir að forsendur umsóknarinnar væru brostnar og því væri mikilvægt að taka málið til gagngerrar endur- skoðunar. Ákveðið var að vísa málinu til sérstaks málefnafundar sem hald- inn verður á haustdögum. Í framhald- inu verður tekin ákvörðun um hvað verður um ESB-umsóknina. Það er ábyrgðarhluti að halda ESB-umsókninni áfram við núver- andi aðstæður. Það liggur fyrir að Samfylkingin á ekki í nein skjól að vernda, enginn er tilbúinn að bakka málið upp og flokkurinn er algerlega einangraður í afstöðu sinni. Þol- inmæðin þrýtur senn gagnvart því að allt stjórnkerfið sé undirlagt í ESB- aðlögunarferli og að utanrík- isráðherra ferðist um heiminn og gefi röng skilaboð um sýn meirihluta Ís- lendinga á mál sem tengjast ESB- umsókninni. Framtíð Íslands er björt og með hjálp auðlinda okkar munum við senn rífa okkur upp úr þeirri lægð sem við erum í. Nú er mikilvægt að einbeita sér að þeim stóru verkefnum sem þjóðin glímir við og koma landinu á beinu brautina. Því eigum við að leggja til hliðar umdeild og kostn- aðarsöm gæluverkefni sem ekki tengjast endurreisn Íslands með beinum hætti. Eftir Ásmund Einar Daðason » Leggjum til hliðar umdeild og kostn- aðarsöm gæluverkefni sem ekki tengjast end- urreisn Íslands með beinum hætti. Ásmundur Einar Daðason Höfundur er alþingismaður VG og formaður Heimssýnar. Þegar Alþingi stóð í því að reyna að betrumbæta Icesave- málið var birtur þessi texti: „Til stendur að kynna Bretum og Hollendingum nið- urstöðu fjár- laganefndar í Ice- save-málinu, bak við tjöldin, áður en breytingar á frum- varpinu verða lagðar fyrir Alþingi.“ – Í apríl sl. birtist fréttatilkynning þar sem greint var frá því að fjármálaráðherra hefði staðfest nýskipan starfshóps um breytingar á skattkerfinu. Og nú, tveimur og hálfum mánuði síð- ar, kemur í dagsljósið skýrsla Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins um end- urbætur á skattkerfinu. – Hm. Ætli fleirum en mér hafi dottið maðurinn á bak við tjöldin í hug? Það má segja að tvær meg- inhugmyndir togist á í skatta- málum. Fyrst er það hugmyndin um háan og stighækkandi tekju- skatt sem er byggð á e.k. sann- girnishugmynd, þ.e. að menn leggi til eftir getu, „greiði eftir efnum og ástæðum“. Órjúfanlega sam- ofnir þessari aðferð eru víðtækir frádráttarliðir, til að mynda vax- tafrádráttur, námsfrádráttur, frá- dráttur vegna kostnaðar við tekju- öflun, svo sem flutning, fatnað o.s.frv., o.s.frv. Hin hugmyndin er um lágan, flatan skatt. Lág skattprósenta með fáum frádrátt- arliðum leiðir til hagsældar. Menn leggja á sig meiri vinnu en ella og njóta vinnusemi sinnar, en þjóðin líka því að framleiðsla eykst, verkaskipting verður hagkvæmari og flóknir frádráttarliðir ráða ekki för við ákvarðanir fólks. Á Íslandi hefur tekist að sam- eina þessar tvær aðferðir með ein- stökum töktum sem ekki eru á allra færi. Hér er á kominn hár og stighækkandi tekjuskattur með fáum, takmörkuðum frádrátt- arliðum. Maðurinn á bak við tjöld- in hefur sem sagt komið að mál- inu. Og hugmyndaauðgin birtist líka í fjármagnstekjuskattinum. Astrid Lindgren var þeirrar skoðunar, andstætt Olof Palme, að 100% skattur væri það mesta sem hægt væri að leggja á. Hún er látin og ekki hægt að leiðrétta þennan misskilning við hana. Á Íslandi er það nefnilega svo að mað- ur sem greiðir 99.999 krónur í vexti og hef- ur 100 þúsund í vaxtatekjur greiðir 18 þúsund í skatt af þessari 1 krónu í nettó vaxtatekjur. Eru það ekki 18 þúsund prósent og slagar upp í kunnar prósentur úr Atómstöðinni? – Maður sem ætti 100 dollara í upphafi árs sem krónan fellur um 50% greiðir 18 dollara í skatt í árslok hér á landi. Lagist gengið árið eftir þannig að krónan nái fyrri hæðum greiðir hann ekki fjármagnstekjuskatt. (Þarna er komið verkefni; er ekki einhvern veginn hægt að skatt- leggja þetta)? Nú, þriðja árið fell- ur krónan svo aftur um 50%. Þá greiðir maðurinn 15 dollara af því sem hann þá átti eftir. Á síðasta ári voru lögð fyrir Alþingi ýmis lagafrumvörp er vörðuðu tekju- öflun ríkisins. Upplýsingarnar sem þinginu voru gefnar voru af ýms- um toga. Því sem illa færi í maga var laumað með. Ætli mat- reiðsluaðferðin hafi verið í sama dúr handa Alþjóðagjaldeyr- issjóðnum. Aðferðin að sykurhúða eitrið? Jæja, það er gott að eiga margar gamlar hugmyndir bak við tjöldin. En hvers eiga blaðburð- arbörnin að gjalda? Hvenær verð- ur blaðberaskatturinn dreginn fram aftur? Á bak við tjöldin Eftir Einar S. Hálfdánarson » Astrid Lindgren var þeirrar skoðunar, andstætt Olof Palme, að 100% skattur væri það mesta sem hægt væri að leggja á. Einar S. Hálfdánarson Höfundur er hæstaréttarlögmaður og löggiltur endurskoðandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.