Morgunblaðið - 17.07.2010, Síða 28

Morgunblaðið - 17.07.2010, Síða 28
28 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2010 ✝ Ingibjörg Gests-dóttir fæddist þann 9. febrúar 1935 í Stykkishólmi. Hún lést á Landspítalanum 1. júlí 2010. Foreldrar hennar voru hjónin Hólm- fríður Hildimund- ardóttir, f. 15.11. 1911, d. 8.1. 2003 og Gestur Guðmundur Bjarnason, f. 22.5. 1904, d. 15.2. 1970. Systkin Ingibjargar eru: 1) Kristinn Bjarni, f. 23.11. 1932, d. 8.11. 2009, maki Ingveldur Sigurðardóttir. 2) Hildimundur, f. 9.8. 1936, d. 2.1. 1988, maki Þórhildur Halldórs- dóttir. 3) Jónas, f. 10.6. 1940, maki Elín Ólafsdóttir. 4) Ólafía Sig- urborg, f. 29.7. 1941, maki Þórður Ársæll Þórðarson. 5) Hulda, f. 26.9. 1943, maki Kjartan Þorgrímsson sem er látinn. 6) Brynja, f. 25.8. 1945, maki Einar Halldórsson sem er látinn. 7) Ævar, f. 14.9. 1947, maki Alma Diego. 8) Júlíana Krist- ín, f. 19.6. 1949, maki Hermann Jónsson Bragason. 9) Hrafnhildur, f. 7.2. 1952. Árið 1958 giftist Ingibjörg eftirlifandi maka sínum, Gísla Birgi Jónssyni, f. 5.9. 1937. Gísli Birgir er sonur hjónanna Katr- ínar Guðmunds- dóttur, f. 3.1. 1896, d. 20.7. 1979 og Jóns Sveinbjörns Péturs- sonar, f. 18.2. 1894, d. 12.10. 1968. Dætur þeirra eru: 1) Hólm- fríður, f. 7.6. 1958. 2) Katrín, f. 28.5. 1962, gift Pétri Kristinssyni, f. 14.6. 1964. Synir þeirra eru Birgir, f. 19.7. 1991 og Kristinn Magnús, f. 9.2. 1996. Á sínum yngri árum vann Ingi- björg ýmis verslunarstörf. Þá kenndi hún handavinnu við Grunn- skólann í Stykkishólmi um nokk- urra ára skeið. Síðar vann hún ýmis skrifstofustörf, m.a. í Búnaðar- banka Íslands, hjá Sýslumanninum í Stykkishólmi og síðast sem launa- fulltrúi hjá St. Franciskusspítala í Stykkishólmi. Útför Ingibjargar hefur farið fram í kyrrþey. Ingibjörgu Gestsdóttur, eða Ingu eins og hún var jafnan kölluð, kynnt- ist ég fyrst vorið 1989 þegar við störfuðum saman á sýsluskrifstof- unni í Stykkishólmi. Ingu kynntist ég svo enn betur þegar við Katrín dóttir hennar rugl- uðum saman reytum. Með okkur tókst strax góð vinátta. Sama gilti um Birgi tengdaföður minn en á milli þeirra hjóna ríkti gagnkvæm virðing og væntumþykja. Voru þau ólík um margt en mjög samrýnd. Inga var skemmtileg og glaðvær. Hún var að sama skapi hlédræg, nokkuð dul og ekki allra. Hún var vel gefin og stóðst öllum snúning. Hún var vinur vina sinna og einkar raungóð. Inga var sjálfri sér nóg og undi sér best heima. Hún var reglu- söm og nánast algjör bindindiskona. Hún bar mikla umhyggju fyrir sín- um nánustu og þegar ég bættist í hópinn naut ég sömu kjara. Dótt- ursynirnir þeir Birgir og Kristinn Magnús voru í sérstöku uppáhaldi hjá ömmu sinni og voru þeir dekr- aðir þannig að mér fannst stundum nóg um. Eitt helsta áhugamál Ingu var blóma- og trjárækt. Undi hún sér vel út í garði á góðviðrisdögum og hlúði þar að blómum og trjám. Voru hún og Birgir meðal þeirra fyrstu í Hólminum sem ræktuðu fallegan garð við hús sitt í Lágholti en fram- an af síðustu öld höfðu fæstir trú á að hægt væri að rækta tré í Stykk- ishólmi. Þá byggðu þau gróðurskála við húsið og kenndi þar ýmissa grasa. Leitaði ég oft ráða hjá Ingu varðandi trjárækt, síðast fjórum dögum fyrir andlát hennar. Get ég fullyrt að ráð hennar hafi aldrei brugðist. Inga var mikil áhugakona um íþróttir og stundaði badminton á sín- um yngri árum og síðar golf. Inga var einnig mikil hannyrðakona og listakokkur. Hin síðari ár reyndust Ingu erfið vegna veikinda. Bar hún sig þó jafnan vel og kvartaði ekki. Fyrir u.þ.b. 10 árum seldu þau hjón- in húsið í Lágholti og fluttu í gamalt hús á Skólastíg sem Birgir hafði gert upp og byggt við. Eftir að veik- indi Ingu ágerðust hentaði það hús ekki lengur og keyptu þau þá nýja íbúð í Móholti. Fluttu þau þangað í mars á síðasta ári og undu sér vel. Í mars á þessu ári greindist Inga með krabbamein og var ljóst ekki yrði við það ráðið. Inga gerði sér grein fyrir því og tók því af aðdáunarverðu hug- rekki og æðruleysi. Birgir, sem alla tíð stóð eins og klettur við hlið Ingu í veikindum hennar, gerði henni kleift að vera heima síðustu vikurnar sem hún lifði. Naut hann við það stuðn- ings dætranna og starfsmanna heimahjúkrunar. Var það Ingu ómetanlegt. Er táknrænt í mínum huga að síð- ustu vikurnar sem Inga lifði voru sólríkar og þær hlýjustu í Stykkis- hólmi síðan mælingar hófust. Dag- inn sem hún þurfti að fara á sjúkra- hús í síðasta sinn dró ský fyrir sólu og daginn sem hún kvaddi gerði fyrsta slagveður sumarsins. Þegar alvarleg veikindi steðja að verður manni ljóst hversu mikilvæg góð heilbrigðisþjónusta er. Eru starfsfólki sjúkrahússins hér, starfs- fólki LSH og öllum öðrum sem að komu sendar alúðarþakkir fyrir góða umönnun og hlýhug á erfiðum stundum. Það er bjart yfir minningu Ingibjargar Gestsdóttur. Pétur Kristinsson. Elsku frænka mín, þá er komið að kveðjustund. Þú barðist hetjulega við sjúkdóm sem á endanum hafði betur. Þú varst orðin þreytt en tókst á við þetta af svo miklu æðruleysi. Þú varst hetjan mín og fyrirmynd í svo mörgu. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Inga, þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Það var ómetanlegt að fá að alast upp með fólki eins og ykkur Birgi. Hvíldu í friði. Þín frænka, Hólmfríður. Ingibjörg Gestsdóttir Elsku Helgi afi. Okkur systkinin langar að kveðja þig með nokkrum orðum. Þegar við rifjum upp minn- ingarnar úr bernskunni koma fyrst upp í hugann ferðirnar með ykkur ömmu í sumarbústaðinn. Afi var svo iðinn við að rækta upp landið og hlaða upp grjótgörð- um til að verja landið fyrir ánni. Það var alltaf svo stutt í grínið hjá afa eins og þegar hann taldi okkur trú um að það byggi stór ormur í ánni. Leituðum við mikið að honum og urðu til margar sögur af orm- inum langa í ömmu og afa sveit. Nú ríkir kyrrð í djúpum dal, þótt duni foss í gljúfrasal, í hreiðrum fuglar hvíla rótt, þeir hafa boðið góða nótt. Nú saman leggja blómin blöð, er breiddu faðm mót sólu glöð, í brekkum fjalla hvíla hljótt, þau hafa boðið góða nótt. Nú hverfur sól við segulskaut og signir geisli hæð og laut, en aftanskinið hverfur fljótt, það hefur boðið góða nótt. (Magnús Gíslason) Elsku afi, nú ert þú kominn til ömmu og munum við halda fast í allar góðu minningarnar um ykkur. Hvíl í friði. Jóhanna Sæunn og Ágúst Hrafn. Helgi Hunter ✝ Helgi Hunter, áður GeoffreyTrevor Hunter, fæddist í Surr- ey í Englandi 5. mars 1935. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítala – háskólasjúkrahúss 14. júní 2010. Helgi var jarðsettur 22. júní 2010 og fór útförin fram í kyrrþey . Ágætur vinur minn, Haraldur Þórarinsson í Kvistási, er fallinn frá. Nokkuð regluleg símtöl, oftast nokkuð löng, verða því ekki fleiri. Við þekkt- umst í um tvo áratugi og með okkur tókst ágæt vinátta, líklega vegna þess að áhugamálin voru nokkuð áþekk. Oftar en ekki voru það lands- málin sem rædd voru fram og til baka í símann. Þar var Haraldur á heimavelli, enda fylgdist hann vel með gangi mála í þjóðfélaginu. Lítt þýddi að fá Harald til að skipta um skoðun, enda var málflutningur meistarans í Kvistási jafnan vel rök- studdur, ígrundaður og settur fram af hógværð. Síðast þegar við ræddum saman sagði Haraldur mér frá hugmyndum um að smíða vindmyllu handa sér og sínum. Allar teikningar væru komn- ar í hús og nú væri bara að hefjast Haraldur Þórarinsson ✝ Haraldur Þór-arinsson var fædd- ur í Ólafsgerði í Kelduhverfi þann 27. maí árið 1928. Hann lést að morgni hins 4. júlí síðastliðins. Haraldur var jarð- sunginn 10. júlí 2010. handa við verkið. Auð- heyrt var að hann taldi sig sæmilega færan um smíðina, annað eins hefði nú verið gert á verkstæð- inu í Kvistási. Haraldur Þórarins- son var af þeirri kyn- slóð sem sannarlega man tímana tvenna. Skemmtilegt og fróð- legt var til dæmis að heyra hann segja frá því þegar frostlögur- inn kom á markaðinn í fyrsta sinn hér á landi. Sannkallað undravatn sem breytti miklu og auð- veldaði margvísleg störf að vetrar- lagi. Ótal fleiri sögur af tæknifram- förum eru minnisstæðar. Alltaf sagðar á lifandi og myndrænan hátt. Skemmtilegast var að sitja í eldhús- inu heima í Kvistási, hlusta og síðast en ekki síst fræðast. Haraldur var greinilega mikill fjölskyldumaður og hann ræktaði vinasambönd af trú- mennsku. Ég kveð Harald Þórarinsson í Kvistási með virðingu og söknuði. Blessuð sé minning hans. Fjölskyld- unni eru sendar innilegar samúðar- kveðjur. Karl Eskil Pálsson, Akureyri. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN ÞÓRARINSDÓTTIR RIIS, lést mánudaginn 11. janúar á heimili sínu í Pacifica. Hvílir í Fossvogskirkjugarði. Þökkum auðsýnda samúð. Ib Árnason Riis og fjölskylda. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RÓSA DANEY WILLIAMSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Eir, áður til heimilis að, Þórðarsveig 1, lést fimmtudaginn 15. júlí á hjúkrunarheimilinu Eir. Gunnar Skagfjörð Sæmundsson, William, Sigrún, Sæmundur, Inga, Margrét, Halldór, Gunnar, Guðrún, Anna, Sigurður, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, JÓNA BJÖRG HALLDÓRSDÓTTIR, frá Húsavík, lengst af til heimilis að, Keldulandi 11, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð þann 4. júlí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 19. júlí kl. 13.00. Guðrún Birna Hannesdóttir, Halldór Ingi Hannesson, Edda Óskarsdóttir, Helga Heiður Hannesdóttir, Hannes Jón Hannesson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR SVEINN JÓNSSON, Sléttuvegi 23, lést mánudaginn 12. júlí. Jarðsett verður frá Áskirkju mánudaginn 19. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð, en þeir sem vildu minnast hans láti líknarfélög njóta þess. Fyrir hönd aðstandenda, Rakel Margrét Viggósdóttir, Viggó Sigurðsson, Guðmundína Ragnarsdóttir, Unnur Kristín Sigurðardóttir, Þórður Georg Lárusson, Edda Björg Sigurðardóttir, Konráð Jón Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og sonur, GUNNAR LEVÝ GISSURARSON, Birkihlíð 16, Reykjavík, lést miðvikudaginn 14. júlí. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstu- daginn 23. júlí kl. 13.00. Við þökkum fjölskyldu og vinum hlýhug og stuðning á þessum erfiðu tímum. Sérstakar þakkir til allra þeirra sem önnuðust hann af alúð og virðingu í veikindum hans. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Hulda Kristinsdóttir, Eva Björk Gunnarsdóttir, Anna Lilja Gunnarsdóttir, Gissur Örn Gunnarsson, Kristinn Már Gunnarsson, Bryndís Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.