Morgunblaðið - 17.07.2010, Side 30

Morgunblaðið - 17.07.2010, Side 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2010                          Legsteinar ehf, Gjótuhrauni 3 Hafnarfirði, Sími: 822 4774 legsteinar@gmail.com ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN HELGA BJÖRGVINSDÓTTIR, frá Svalbarðseyri, á Fáskrúðsfirði, sem lést laugardaginn 10. júlí, verður jarðsungin frá Fáskrúðsfjarðarkirkju mánudaginn 19. júlí kl. 15.00. Björgvin Valur Guðmundsson, Jón Þorgils Hauksson, Jóhanna Kristín Hauksdóttir, Erla Sveinbjörg Hauksdóttir, tengdabörn og barnabörn. ✝ Elskulegur sonur, bróðir og barnabarn, STEFÁN H. SKÚLASON, Hólmasundi 2, lést að morgni mánudagsins 12. júlí á Landspítala, Fossvogi. Útför verður gerð frá Víðistaðakirkju, Hafnarfirði, mánudaginn 19. júlí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast Stefáns er bent á Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna. Katrín Árnadóttir, Páll E. Winkel, Guðný Kristín Winkel, Katrín Pála Winkel, Guðný Sigurðardóttir, Árni Hreiðar Þorsteinsson. ✝ Innilegustu þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem heiðruðu minningu míns ástkæra eiginmanns, PÉTURS SIGURGEIRSSONAR biskups, við andlát hans og útför, með nærveru sinni og með minningargjöfum og sýndu okkur öllum samúð og vinarhug með blómum og skeytum, bréfum og heimsóknum. Guð blessi ykkur öll. Sólveig Ásgeirsdóttir og fjölskylda. ✝ Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elsku- legs föður okkar, tengdaföður og afa, STEFÁNS EIRÍKSSONAR fv. aðstoðarslökkviliðsstjóra á Keflavíkurflugvelli. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Skógarbæjar og hljóðbókadeild blindrabókasafnsins, fyrir einstaka alúð, þjónustu og umönnun. Guðmundur Már Stefánsson, Auður Margrét Möller, Helga Björk Stefánsdóttir, Jóhann Jóhannsson, Stefán Hrafn Stefánsson, Ása Hrönn Kolbeinsdóttir, Ásta Hrönn Stefánsdóttir, Jón Dan Einarsson, Hrefna Stefánsdóttir og barnabörn. ✝ Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýjar kveðjur vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURLAUGAR GUÐJÓNSDÓTTUR, frá Fögruhlíð, Fljótshlíð, er lést á dvalarheimilinu Kirkjuhvoli, Hvolsvelli, laugardaginn 3. júlí. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Kirkjuhvols fyrir góða umönnun og aðstoð á liðnum árum. Ingilaug Guðmundsdóttir, Brynjólfur Guðmundsson, Steinunn Guðmundsdóttir, Einar Þorbergsson, Theodór Guðmundsson, Brynja Bergsveinsdóttir, Guðjón Guðmundsson, Ágústa Guðjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Sumardvöl að Seli í Grímsnesi var ár- viss viðburður á æskuárunum. Að kynnast heimilisfólkinu að Seli, ættingjum þess og vinum, var lán og með sanni sérstök upplifun. Á sumrin var heimilið fjölmennt og þar dvaldi fólk á öllum aldri sem kom víða að. Þýska var töluð í bland við íslenskuna og evrópskur blær fylgdi heimilishaldinu öllu, enda húsmóðirin þýsk að uppruna. Húsbændur voru glæsileg hjón, sem löðuðu að sér fólk og í raun má segja að í þessari fallegu ís- lensku sveit hafi ríkt alþjóðlegur andi sem var í senn fræðandi og spennandi. Árni var yfirvegaður og fágaður húsbóndi og Ellenor, eiginkona hans, atorkumikil og Þórunn Árnadóttir ✝ Þórunn Árnadótt-ir frá Seli í Gríms- nesi fæddist 18. júlí 1939 á fæðingarheim- ili í Reykjavík. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Suðurlands á Selfossi 4. júlí 2010. Útför Þórunnar fór fram frá Skálholts- dómkirkju 16. júlí 2010 hreinskiptin hús- freyja. Bæði voru þau einstakir per- sónuleikar sem eftir- sóknarvert var að kynnast. Heimilis- hald og búrekstur voru í öruggum hönd- um þeirra beggja, sem og bræðra Árna. Þegar ég kynntist Selsfólkinu fyrst var mikið af ungu fólki á heimilinu. Þar á með- al var heimasætan Dúdda, dóttir Árna og Halldóru heitinnar, fyrri konu hans. Fullu nafni hét Dúdda því fallega nafni Þórunn Árnadóttir. Mér fannst alltaf að Dúdda bæri persónu sína svo vel í nafninu. Dúdda var eins og klettur, bjó yfir einstöku jafnaðargeði, skynsöm og kankvís. Hún var, eins og annað ungt fólk á heimilinu, dugleg til verka enda gekk allt eins og smurt á þeim bæ. Oft dvöldum við Ell- enor, Dúdda og Stína tímum sam- an í eldhúsinu að Seli og elduðum, bökuðum eða sultuðum. Þó kon- urnar, sem voru mér eldri, hafi unnið eins og ein manneskja þá fylgdi þessum störfum sko engin lognmolla, öðru nær. Landsmálin og ekki síður heimsmálin voru rædd og krufin til mergjar. Í eld- húsinu á Seli áttu allar skoðanir rétt á sér. Aldrei man ég eftir að hafa fengið skömm í hattinn þó ég, óharðnaður unglingurinn, hafi á stundum verið nokkuð tungulipur. Stundum voru umræðurnar líka á rólegri nótunum þegar Ellenor sagði okkur frá fjölskyldu sinni, æskuheimilinu í Þýskalandi og líf- inu þar. Þetta voru ekki bara skemmtilegar stundir, heldur líka áhrifamiklar. Þær gáfu innsýn í framandi heim og fólu í sér hlýju og nálægð við góðar og gegnar konur, sem nú er saknað. Þegar litið er til áranna að Seli er margt að þakka og margs að minnast. Sorgir hafa knúið þar dyra og snert djúpt, ekki síst Dúddu. Hún sýndi ávallt mikinn styrk og ein- staka mannkosti. Það er mikil eft- irsjá að slíkri konu og þannig er hennar minnst. Við fjölskyldan á Reynimelnum, sem oft nutum gestrisni og góðra stunda með Dúddu og heimilisfólkinu að Seli, færum aðstandendum öllum inni- legar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Þórunnar Árnadóttur. Jóhanna Bernharðsdóttir (Hanna). Við hittumst fyrst í Héraðsskól- anum á Laugarvatni haustið 1954, Langri ævi er lok- ið. Elsku afi minn kvaddi þennan heim fyrir stuttu og skilur eftir sig djúp spor. Oft er sagt að fjölskyldan sé hornsteinn samfélagsins, afi var hornsteinn fjölskyldu minnar, og amma. Minningarnar eru ótal margar. Minningar um sterkan, harðgerðan og góðhjartaðan mann sem gaf svo ótrúlega mikið af sér á sinn sérstaka hátt. Ég minnist hans fyrst og fremst með þakklæti og virðingu. Þegar lífið virtist óskiljanlegt var ómetanlegt að vita af afa og ömmu í Nesi, heimsækja þau og spjalla við þau um heima Benedikt K. Franklínsson ✝ Benedikt KristinnFranklínsson fæddist í Litla- Fjarðarhorni í Kolla- firði á Ströndum 17. maí 1918. Hann and- aðist á Ási í Hvera- gerði 26. júní sl. Útför Benedikts fór fram frá Selfoss- kirkju 8. júlí 2010. og geima. Þá kom jarðtengingin og viskan. Allt líf deyr að lokum og það er gangur lífsins. Afi var lánsamur að eiga langa og góða ævi með hæðum og lægð- um eins og gengur. Upp úr standa minningar um afa á mjólkurbílnum, með okkur Söru litlar að keyra um Selfoss og nágrenni með mjólk- urvörur. Ógleyman- legar páskaeggjaferðir þar sem við frænkurnar fengum að eiga brotnu eggin úr búðunum og átum súkku- laði þangað til við fengum syk- ursjokk. Flottast þótti okkur að afi færi með mjólkina á Hraunið, þá fengu aumingja fangarnir mjólk! Afi vatnsgreiddur með rakspíra í leðurjakkanum á Lödu að sækja mig úr rútunni. Afi með ferða- stressið í Lödu Sport á leiðinni til Flateyjar, stoppar í Hvalfirði til að heilsa upp á hvalveiðimennina og dásamar „ilminn“. Afi hrjótandi í rauða stólnum við undirleik harm- ónikkutónlistar á Gufunni, eða ömmu að spila á píanóið – þess vel gætt að trufla ekki lúrinn. Afi að garfa í Flatey, skipandi mönnum og konum til verka og allir hlýða sem einn maður, hvort sem menn skilja tilgang verksins eða ekki. Það sem var sagt, var gert. Afi sem laðaði til sín öll börn, al- veg sjálfkrafa, þau komu til hans og voru alltaf róleg í fanginu á honum. Sterku, þykku, mjúku hendurnar sem ég elskaði að skoða, með stóra úrið á úlnliðnum. Best var að hafa afa þegar ég var veik, það var eins og hann hefði lækningarmátt, bara með því að vera í sama húsi. Afi sem fór með skrítnar vísur og kunni vísur við öll tilefni, húm- orinn beittur. Orðasmiðurinn afi sem drakk í sig bókmenntir eins og lífsvökva. Alþýðumaðurinn afi sem lét réttlætiskenndina ráða og lá aldrei á skoðunum sínum. Þús- undþjalasmiðurinn afi kunni allt sem þarf til að lifa af, ekkert verk var of stórt eða of lítið. Afi sem þekkti alla og heilsaði nánast hverjum manni á Selfossi. Afi sem laumaði að mér peningaseðli þegar enginn sá til og bað mig um að brenna þetta eða henda því á haugana með glettni í augunum. Elsku afi minn. Svo fallegur maður að innan sem utan. Svo endalaust góðhjartaður, gjafmild- ur, gáfaður og líka strangur. Hann sem var mér mesti og besti pabb- inn. Betri fyrirmyndir er ekki hægt að hugsa sér en afa og ömmu. Nú tekur við nýr kafli í lífi okk- ar sem syrgjum hann, hann var víst ekki eilífur eins og við helst vildum. Nú getum við með stolti borið með okkur veganestið sem hann gaf okkur og gefið af því til næstu kynslóðar. Á þann hátt verður hann eilífur. Hvíl í friði og takk fyrir allt, elsku afi minn. Regína Hjaltadóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.