Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 17.07.2010, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 17.07.2010, Blaðsíða 31
Messur 31Á MORGUN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2010 AÐVENTKIRKJAN: Aðventkirkjan Reykjavík | Samkoma í dag, laugardag, kl. 11 hefst með biblíu- fræðslu fyrir börn, unglinga og fullorðna. Einnig er boðið upp á biblíufræðslu á ensku. Guðsþjónusta kl. 12. Manfred Lemke prédikar. Aðventkirkjan Vestmannaeyjum | Sam- koma í dag, laugardag, kl. 11. Boðið upp á biblíufræðslu fyrir börn og full- orðna. Guðþjónusta kl. 12. Bein útsend- ing frá kirkju aðventista í Reykjavík. Manfred Lemke prédikar. Aðventsöfnuðurinn Suðurnesjum | Sam- koma í dag, laugardag, kl. 11 í Reykja- nesbæ hefst með biblíufræðslu. Guð- þjónusta kl. 12. Þóra Jónsdóttir prédikar. Aðventsöfnuðurinn Árnesi | Samkoma á Selfossi í dag, laugardag, kl. 10, hefst með biblíufræðslu fyrir börn og full- orðna. Guðsþjónusta kl. 11. Jóhann Þor- valdsson prédikar. Aðventsöfnuðurinn Hafnarfirði | Sam- koma í Loftsalnum í dag, laugardag, hefst með fjölskyldusamkomu kl. 11. Eric Guðmundsson prédikar. Biblíu- fræðsla fyrir börn, unglinga og fullorðna kl. 11.50. Boðið upp á biblíufræðslu á ensku. Samfélag Aðventista á Akureyri | Sam- koma í Gamla Lundi í dag, laugardag, hefst kl. 11. með biblíufræðslu fyrir alla. Guðsþjónusta kl. 12. AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Svavar Alfreð Jónsson, Ellen Kristjánsdóttir syngur einsöng og félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja, organisti Eyþór Ingi Jónsson. Söng- og helgistund kl. 20. ÁRBÆJARKIRKJA | Sameiginleg messa nágrannasóknanna þriggja, Árbæjar, Grafarholts og Grafarvogs. Messan er haldin á Nónholti innst í Grafarvoginum. Nónholt er skógarlundur stutt frá sjúkra- húsinu Vogi. Hægt er að keyra langleið- ina upp að lundinum eftir malarveginum hjá Vogi en einnig verður farin pílagríms- ferð úr kirkjunum þremur í lundinn. Lagt verður af stað frá Árbæjarkirkju kl. 10 fyrir þau sem vilja ganga til kirkju. Grill- að í lundinum að messu lokinni. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Guðmundur Karl Brynjarsson, félagar úr kór Digraneskirkju leiða söng. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Hjálm- ar Jónsson prédikar og þjónar fyrir alt- ari, organisti er Kári Þormar. Hádeg- isbænir á þriðjudag og kvöldkirkjan á fimmtudag. GARÐAKIRKJA | Sameiginleg guðsþjón- usta Garðasóknar og Bessastaðasóknar kl. 20. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson og prestur Hans Guðberg Alfreðsson. GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10, bænastund kl. 10.15. Messa kl. 11. Altarisganga og samskot til Sambands íslenskra kristniboðsfélaga. Messuhóp- ur þjónar. Kirkjukór Grensáskirkju syng- ur, organisti Ásta Haraldsdóttir, prestur sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Mola- sopi eftir messu. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Auður Inga Ein- arsdóttir prédikar, Kári Friðriksson syng- ur einsöng og organisti er Kristín Waage. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Sum- armessa kl. 11. Sr. Guðbjörg Jóhann- esdóttir þjónar, organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir og forsöngvari er Þóra Björnsdóttir. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Kristján Valur Ingólfsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða, félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja, organisti er Douglas A. Brotchie. Sögustund fyrir börn. Winfried Bönig leikur eftirspil. Alþjóðlegt orgelsumar: Laugardag kl. 12 og sunnudag kl. 17. Winfried Bönig leikur. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Org- anisti Reynir Jónasson, prestur sr. Sig- urður Pálsson, fyrrverandi sóknarprestur í Hallgrímssókn. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar, fé- lagar úr kór kirkjunnar leiða safn- aðarsöng, organisti Jón Ólafur Sigurðs- son. Sjá www.hjallakirkja.is HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam- koma kl. 20. Umsjón hefur Harold Rein- holdtsen og Ólafur Jóhannsson predik- ar. HÓLADÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Hjörtur Pálsson. Tónleikar 14. Laufey Sigurðardóttir og Páll Eyjólfs- son leika saman á fiðlu og gítar. Ókeyp- is aðgangur. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl. 20. Lofgjörð og fyrirbænir. Ágúst Valgarð Ólafsson predikar. Sjá kristskirkjan.is KAÞÓLSKA Kirkjan: Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og laugardag kl. 18. Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl. 11 og 19. Virka daga er messa kl. 18. Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema föstudaga). Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8. Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14. Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30 og á ensku kl. 18. Virka daga kl. 18. Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laugardaga er messa á ensku kl. 18.30. Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka daga kl. 18.30. Ísafjörður | Messa kl. 11. Flateyri | Messa laugardag kl. 18. Bolungarvík | Messa kl. 16. Suðureyri | Messa kl. 19. Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16. KÓPAVOGSKIRKJA | Messa kl. 14 í samstarfi þjóðkirkjusafnaðanna í Kópa- vogi. Ath. breyttan messutíma. Almenn- ur safnaðarsöngur. Sjá www.kopavogs- kirkja.is LANGHOLTSKIRKJA | Kirkjan verður lok- uð til 27. júlí vegna sumarleyfa sókn- arprests og starfsfólks. Sr Pálmi Matt- híasson, sóknarprestur í Bústaðakirkju, þjónar Langholtsprestakalli ofan- greindan tíma. Vísað er á messur í Bú- staðakirkju. LAUGARNESKIRKJA | Helgistund kl. 20. Sr. Hans Markús Hafsteinsson héraðs- prestur þjónar. LÁGAFELLSKIRKJA | Göngumessa kl. 11. Gengið frá Lágafellskirkju að Reykja- lundi. Ritningarlestrar og bænagjörð þrisvar á leiðinni. Sr. Skírnir Garðarsson leiðir göngumessuna. Kaffi í Reykjalund- inum að göngu lokinni. LINDAKIRKJA Kópavogi | Helgistund kl. 14. Samstarf þjóðkirkjusafnaða í Kópa- vogi. NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng, org- anisti er Steingrímur Þórhallsson og sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Samfélag og kaffisopi eftir messu. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri | Messa kl. 14. Altarisganga og barn borið til skírn- ar. Grétar Geir Kristinsson leikur einleik á gítar, kór kirkjunnar syngur undir stjórn Stefán H. Kristinssonar. Með- hjálpari er Súsanna Fróðadóttir. SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17. Ræðumaður er Guðlaugur Gunn- arsson. SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Fé- lagar úr kirkjukórnum syngja, organisti er Jörg Sondermann, prestur sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson. Veitingar í safn- aðarheimilinu eftir messu. Morg- unsöngur kl. 10 á þriðjud. til föstud. SELJAKIRKJA | Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson pré- dikar og þjónar fyrir altari, félagar úr Kór Seljakirkju leiða safnaðarsönginn og organisti er Tómas Guðni Eggertsson. Altarisganga. SELTJARNARNESKIRKJA | Helgistund kl. 11, í umsjón sr. Hans Markúsar Haf- steinssonar héraðsprests. STRANDARKIRKJA | Fræðslustund/ helgistund kl. 14. Sóknarprestur rifjar upp helgisöguna um tilurð kirkjunnar og fleira um sögu hennar og presta hennar. ÞINGEYRAKIRKJA Húnavatnsprófasts- dæmi | Guðsþjónusta kl. 14. Kór Mikla- bæjar- og Flugumýrarkirkju syngur, org- anisti Jóhanna Marín Óskarsdóttir og prestur er sr. Dalla Þórðardóttir. ÞINGVALLAKIRKJA | Fararblessun píla- gríma á leið til Skálholtshátíðar kl. 10 í dag, laugardag. Messa sunnudag kl. 14. Kristján Valur Ingólfsson predikar og þjónar fyrir altari, organisti er Guð- mundur Vilhjálmsson og meðhjálparar Birna Gunnarsdóttir og Þorsteinn Guð- laugsson. ÞYKKVABÆJARKLAUSTURSKIRKJA | Þorláksmessa að sumri í Álftaveri verð- ur þriðjudaginn 20. júlí kl. 20. Messan er til að minnast Þorláks Þórhallssonar, fyrsta ábóta Þykkvabæjarklausturs og Skálholtsbiskups. Eftir messu verða kaffiveitingar til styrktar uppbyggingu staðarins. Sr. Haraldur M. Kristjánsson, sóknarprestur í Vík, leiðir stundina, Harpa Ósk Jóhannesdóttir og Gunnar Pétur Sigmarsson syngja og leiða söng og organisti er Brian R. Haroldsson. ORÐ DAGSINS: Jesús mettar 4 þúsundir manna. Digraneskirkja (Mark. 8) Bækur Til umhugsunar að vestan í góða veðrinu Vertu ekki alltaf að hugsa um hvað veitir þér ánægju. Reyndu heldur að gleðja aðra og hamingjan mun finna þig. Hrósaðu einhverjum! Vestfirska forlagið. Húsnæði óskast Norskur lektor í HÍ óskar eftir 2ja herb. íbúð í miðbæ Rvk. helst í Þingholtunum frá lok ág. til júní. Reglusemi og öruggar greiðslur. Uppl. á ttm@hi.is eða í síma 0047 9938 8183 ./ xxx 4444. Óska eftir iðnaðar-/atvinnu- húsnæði Lítið fyrirtæki óskar eftir iðnaðar-/ atvinnuhúsnæði í Garðabæ, Kópa- vogi eða Rvk., ekki stærra en 100 m². Verður að vera með innkeyrsludyr fyrir vörubíl. Hafið samband á re@centrum.is. Fellihýsi Fellihýsi til sölu Palomino 4103 10f m/fortjaldi, sólarsellu og fl. Vel með farið, tilbúið í ferðalagið, ekkert áhv. Verð 1900 þús. stgr. Uppl. í s. 698 6309. Óska eftir Kaupi gamla mynt og seðla Óska eftir að kaupa gamla mynt og seðla. Frá stórum og smáum myntsöfnum. Kaupi gullmynt og minnispeninga frá Seðlabankanum. Sigurður: 825 1016. Ferðafélagi/vinur 60+ Óska eftir að kynnast traustum manni sem vill ferðast og spila á jákvæða þætti lífsins. Er nokkuð hávaxin, heiðarleg og með mín mál í góðu lagi. Vænti þess sama. Fullur trúnaður. S. 846 2470. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl fjórar sveitastelpur, fjórtán og fimmtán ára: Áslaug, Ásdís, Stein- unn og Þórunn – eða Dúdda, eins og hún var oftast kölluð. Við lent- um saman í herbergi, sem í dag- legu tali gekk undir nafninu Rusla- kistan. Þar var oft skemmtilegt að vera og þar kynntumst við vel. Eina helgina bauð Dúdda mér með sér heim að Seli. Þar var gaman að koma og man ég sér- staklega eftir hvað mér fannst eft- irrétturinn framandi sem Ellinor, stjúpmóðir Dúddu, bauð upp á. Það voru bökuð epli að þýskum hætti en slíka matreiðslu þekkti ég ekki. Seinna, eftir að ég tengdist Dúddu fjölskylduböndum með því að giftast frænda hennar, fórum við aftur að hittast og voru það jafnan fagnaðarfundir. Dúdda starfaði lengi sem handa- vinnukennari í Reykjavík en vann við ferðaþjónustuna á Seli á sumr- in. Hún bjó í Kópavogi ásamt Þór- dísi dóttur sinni, Sigrúnu systur sinni og Kristjáni manni hennar. Seinna tók Dúdda við búinu á Seli og fluttist alveg í sveitina. Ellinor kom oft hingað að Heið- arbæ með erlenda ferðamenn og stundum var Dúdda líka með í för. Oft fórum við í heimsókn að Seli á vorin þegar skólaslitin voru á Borg og var fjölskyldan þar ávallt góð heim að sækja. Handavinnukennarinn Dúdda kenndi okkur kvenfélagskonum í Þingvallasveit að hnýta blóma- hengi og fleiri fallega hluti á nám- skeiði sem kvenfélagið stóð fyrir á Þingvöllum einn veturinn. Við hittumst ekki mjög oft en samt finnst mér að það hafi alltaf verið einhver taug á milli okkar, vináttubönd sem við hnýttum aust- ur á Laugarvatni, feimnu sveita- stelpurnar sem skildu hvor aðra. Það var Dúddu mikill missir þegar Þórdís einkadóttir hennar lést, langt um aldur fram. En áfram hélt Dúdda og reyndist barnabörnum sínum þremur ómet- anleg stoð og stytta. Ég hitti Dúddu síðast um miðjan mars. Þá vorum við Bangsi á heimleið frá Skálholti og ákváðum að koma við á Seli. Þar hittum við Dúddu og tvö af barnabörnunum. Hún lét vel af sér og tók höfð- inglega á móti okkur að vanda. Við áttum góða stund og spjölluðum margt. Skömmu seinna tók við erf- ið barátta Dúddu við sjúkdóminn sem að lokum hafði yfirhöndina. Ég minnist Dúddu með þökk fyrir áratuga trausta vináttu og votta barnabörnum hennar, systur, mági, tengdasyni og konu hans mína innilegustu samúð. Minning kærrar vinkonu lifir. Steinunn Guðmundsdóttir, Heiðarbæ. Margt í sögu lands má lesa úr æviskeiði einstaklings sem lifað hefur nær heila öld. Anna í Blönduhlíð, seinna Anna á Akranesi var sumarmanneskja, sól- rík, umvefjandi, fjörmikil og nær- andi, lét alltaf gott af sér leiða. Það voru mikil húsnæðisvandræði í Reykjavík um miðja síðustu öld og alltaf verið að flytja. Þá réðust marg- ir í að byggja sér íbúðarhús oftast af litlum efnum og leigðu þá út og þrengdu að sér. Ég var svo heppin að byrja minn búskap í nýrri og fallegri íbúð Önnu og manns hennar Daníels, seinna bæjarstjóra á Akranesi, sem var fjölhæfur athafnamaður með mörg járn í eldinum. Þetta voru eft- irstríðsárin svonefndu þegar Reykjavík var að breytast úr smábæ í borg með tilheyrandi gauragangi, vaxtarverkjum, framkvæmdagleði og bjartsýni. Olíukyndingin vék fyrir hitaveitunni og Hlíðahverfið var allt í uppbyggingu og skurðgreftri og bærinn ilmaði allur af steypulykt. Anna stýrði stóru og margslungnu rausnarheimili þeirra Daníels af miklum myndarskap og menningar- brag. Hún var gædd skapfestu og sjálfsaga, hlýhug og vingjarnleik, sem vakti virðingu allra sem henni kynntust. Hún var flink og afkasta- mikil í verkum enda menntuð í hús- mæðrafræðum frá „Sóreyjarskólan- um“ Þekkta í Danmörku. Anna hafði ríka kímnigáfu og sá hið skoplega í daglegu lífi, en var ávallt grandvör og hlý, naut þess að hitta fólk og gleðjast, enda fróð með afbrigðum og stálminnug. Maður lifnaði við í návist hennar því hún var Anna Erlendsdóttir ✝ Anna Erlends-dóttir fæddist 9. ágúst 1919 í Odda á Rangárvöllum. Hún lést á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi 2. júlí 2010. Útför Önnu fór fram frá Akra- neskirkju 9. júlí 2010. fagurkeri og listelsk og hafði víðsýni heimskonunnar. Hún sýndi áhuga á því sem ég tók mér fyrir hend- ur frá fyrstu tíð og var tíður gestur á listsýn- ingum í galleríi mínu við Bókhlöðustíginn, þegar hún var stödd í bænum. Hún var alla tíð einstaklega trygg- lynd og vinmörg eins og hún hefði tíma fyrir alla. Smábörn hænd- ust að henni á sérstak- an hátt. Þau fundu fljótt þessa næmu útgeislun og urðu „gulldroparnir“ hennar. Við leiðarlok eru virðing og hjart- ans þakkir efst í huga og samúðar- kveðjur til fólksins hennar, Jakobínu systur og hennar fjölskyldu, barna hennar, fornvina minna, Erlendar og Ingileifar og þeirra stóru fjöl- skyldna, sem áttu hana svona lengi glaða og umvefjandi, sýnandi kær- leikann í verki. Hulda Jósefsdóttir. Morgunblaðið birtir minningar- greinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á for- síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður grein- in að hafa borist eigi síðar en á há- degi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.