Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 17.07.2010, Síða 33

Morgunblaðið - 17.07.2010, Síða 33
Dagbók 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2010 Sudoku Frumstig 8 1 7 6 2 2 4 6 5 1 8 4 7 1 3 3 5 6 8 2 7 6 4 4 2 8 1 4 7 7 6 1 8 2 4 3 8 1 6 3 5 2 3 6 3 1 6 6 4 2 5 8 1 7 5 6 7 8 3 2 2 3 7 5 2 7 5 6 2 3 4 1 5 3 4 8 3 9 4 6 2 5 8 7 1 1 6 2 4 7 8 9 5 3 7 5 8 1 9 3 4 2 6 6 7 5 9 8 4 1 3 2 4 3 1 2 5 7 6 8 9 8 2 9 3 1 6 5 4 7 9 8 3 7 4 1 2 6 5 5 1 7 8 6 2 3 9 4 2 4 6 5 3 9 7 1 8 9 5 1 4 8 6 2 7 3 8 2 4 5 3 7 9 1 6 3 6 7 2 1 9 4 8 5 4 1 9 6 2 8 5 3 7 7 3 6 9 5 1 8 2 4 2 8 5 7 4 3 6 9 1 1 4 3 8 9 5 7 6 2 6 9 2 3 7 4 1 5 8 5 7 8 1 6 2 3 4 9 1 7 4 3 2 5 6 8 9 2 5 9 8 7 6 3 4 1 8 6 3 1 4 9 5 7 2 3 4 7 6 9 8 1 2 5 9 8 1 4 5 2 7 3 6 5 2 6 7 3 1 8 9 4 7 3 5 2 1 4 9 6 8 6 1 2 9 8 3 4 5 7 4 9 8 5 6 7 2 1 3 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 17. júlí, 198. dag- ur ársins 2010 Orð dagsins: Og orð hans býr ekki í yð- ur, því að þér trúið ekki þeim, sem hann sendi. (Jóh. 5, 38.) Útlendingar sem koma til Íslandssegja oft að þrennt einkenni landið öðru fremur. Einstaklega fal- leg náttúra, sérstaklega ljótur arki- tektúr og stórkostlega góður matur. Víkverja er mjög umhugað að það síðastnefnda haldi sér í gegnum kreppuna. Matarmenningin hér má ekki láta á sjá þótt það þrengi að. x x x Tvenns konar breytingar hefurVíkverji orðið var við síðan 2007. Í fyrsta lagi að þeir veitingastaðir sem hafa hafið starfsemi í kreppunni eru af ódýrari gerðinni. Sumir þeirra eru ágætir, en þetta eru samt ekki staðir þar sem mikið er borgað fyrir matinn og hann er þar misgóður. Eitt dæmi um slíkan stað sem hefur opnað og býður upp á ágætan mat er Bras- ilía við Skólavörðustíg. Annað dæmi um slíkan stað er Balkanika, sem Vík- verja þótti reyndar dálítið síðri. Þetta eru samt góðar tilraunir og auka úr- valið. Það sama má segja um Tan- doori í Skeifunni, það er snyrtilegur staður í ódýrari kantinum, sem býður upp á ágætan indverskan mat. Inn- réttingar og húsgögn á þessum stöð- um eru samt ekki þess eðlis að manni finnist maður vera að fara „fínt út að borða“. x x x Hitt sem Víkverji hefur orðið varvið er að skammtastærðir hafa minnkað. Veitingamenn eins og aðrir þurfa að gæta aðhalds í kreppunni og finna leiðir til að minnka útgjöldin, um leið og þeir halda tekjunum í horf- inu. Þetta kemur kannski ekki að sök þegar útlendingar eru annars vegar því þeim þykir maturinn mjög ódýr og finnst ekkert tiltökumál að fá sér forrétt og eftirrétt. En fyrir Víkverja er það orðið frekar hvimleitt að panta sér pastarétt á tvö þúsund krónur og fá hann svo á einhverjum aflöngum diski, sem lætur hann líta út fyrir að vera vel útilátinn, en uppgötva svo að þetta er ekki upp í nös á ketti. x x x Engu að síður er Víkverji sátturvið að gæðum matarins sjálfs virðist ekki hafa hrakað. víkverji@m- bl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 gæði, 4 dý, 7 endar, 8 fim, 9 væl, 11 duglegu, 13 ósköp, 14 byr, 15 galdratilraunir, 17 bjartur, 20 viðvar- andi, 22 stílvopn, 23 af- löng, 24 þvaðra, 25 reyna sig við. Lóðrétt | 1 brekka, 2 fárviðri, 3 harmur, 4 hróp, 5 látni, 6 skynfær- in, 10 guð, 12 reyfi, 13 ögn, 15 málmur, 16 þekktu, 18 flatur klett- ur, 19 bölva, 20 hlífa, 21 föst á fé. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 tjaldferð, 8 rófan, 9 róðan, 10 dóm, 11 skata, 13 asnar, 15 svans, 18 eldur, 21 ker, 22 riðla, 23 titra, 24 ruglingur. Lóðrétt: 2 jafna, 3 lenda, 4 ferma, 5 ræðin, 6 hrós, 7 knár, 12 tin, 14 sól, 15 sárt, 16 auðnu, 17 skafl, 18 ertan, 19 duttu, 20 róar. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3 O-O 9. h3 Rb8 10. d4 Rbd7 11. Rbd2 Bb7 12. Bc2 He8 13. a4 c5 14. d5 c4 15. b3 cxb3 16. Rxb3 Dc7 17. Bd2 bxa4 18. Hxa4 Rb6 19. Ha1 Rc4 20. Bc1 Rd7 21. Rfd2 Rdb6 22. Bd3 Hec8 23. De2 Bd8 24. Rxc4 Rxc4 25. Rd2 Rb6 26. Ba3 Dd7 27. c4 Ra4 28. Rb3 Hab8 29. Bxd6 Dxd6 30. Hxa4 Bxd5 31. exd5 Hxb3 Staðan kom upp á hollenska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Eindhoven. Benjamin Bok (2430) hafði hvítt gegn Robin Van Kampen (2481). 32. Bxh7+! Kf8 33. Bf5 Hcb8 34. Dh5 Bf6 35. c5! Dxc5 36. Hxa6 Hb2 37. He3 H2b7 38. d6 g6 39. Bxg6! fxg6 40. Dxg6 Bg7 41. d7 De7 42. Dh7 e4 43. Df5+ Kg8 44. Dd5+ Kh8 45. Hxe4 Hb1+ 46. Kh2 H1b5 47. Dxb5! og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Frumleg vörn. Norður ♠62 ♥K62 ♦K96 ♣K10983 Vestur Austur ♠ÁDG7 ♠10954 ♥D85 ♥94 ♦G108 ♦D3 ♣Á74 ♣DG652 Suður ♠K83 ♥ÁG1073 ♦Á7542 ♣ – Suður spilar 4♥. Alfredo Versace er engum líkur. Hann var hér í vestur á nýliðnu Evr- ópumóti. Þjóðverjinn Gromöller vakti á 1♥, Versace doblaði, norður redoblaði og Lauria í austur sagði 1♠ á hundana. Gromöller sýndi tígulinn, fékk hjartað stutt og stökk í fjögur. Versace hóf vörnina með ♦G. Gromöller tók strax tvo efstu í tígli og spilaði þeim þriðja aftur til Versace. Vill lesandinn taka við keflinu? Ótrúlegt, en satt: Versace spilaði nú trompi frá drottningunni! Gromöller tók slaginn á tíuna heima og spilaði spaða, sem Versace drap og trompaði aftur út. Sagnhafi reyndi ♠K í von um þriðja hjartað í austur, en því var ekki að heilsa: Versace drap og trompaði út í þriðja sinn. Fékk svo fjórða varn- arslaginn í lokin á spaða. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það er eitthvert valdatafl í gangi í vinnunni svo þér er skapi næst að gefast upp. Stilltu þig um að rífast við samstarfs- fólkið. (20. apríl - 20. maí)  Naut Ungbörn laðast að fólki sem brosir og svo er líka yngjandi að brosa. Ef þú fæst við slíkt í dag, eða viðgerðir og lag- færingar, mun það bera góðan ávöxt. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þótt þú sért úrkula vonar um að finna lausnina á vandamálinu sem þú glímir við skaltu ekki gefast upp. Gefðu þér tíma til þess að kanna allar hliðar þess vandlega áður en þú afræður nokkuð. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Neyttu hvers færis sem þú færð til þess að sinna sjálfum þér. Stundum þarf að láta ánægjuna ganga fyrir vinnunni. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Nú er rétti tíminn til þess að bera upp spurningu sem hefur lengi verið að brjótast um í þér. Taktu með þakklæti við því sem að þér er rétt. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú finnur löngun hjá þér til að gera eitthvað nýtt og gætir fengið tækifæri til þess fyrr en síðar. Leyfðu henni að flæða án þess að reyna að stjórna. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Skot hér og þar eru skemmtileg, en þú hefur meiri áhuga á sambandi sem endist. Einbeittu þér að framhaldinu þannig að allt takist sem best má verða. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Njóttu augnabliksins, því allt sem þú snertir verður að töfrum. Nú eru tækifærin svo margvísleg að þú hlýtur að finna eitthvað við þitt hæfi. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Daður á netinu kemur við sögu. Gefðu þér tíma til þess að skipu- leggja hlutina og þá muntu ná mun betri árangri. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Ekkert er eins fráhrindandi og talsmaður sem veit ekki hvað hann er að tala um. Reyndu samt að velja þar úr en ekki bara láta berast með straumnum. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Til þín verður leitað til þess að leysa viðkvæmt deilumál. Vertu við öllu búin(n) og forðastu heimskulegt örlæti. Sýndu vinsemd og taktu undir daður. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það er eitt og annað í þínum eigin garði sem þarfnast athugunar og úrbóta. Upp á síðkastið hefur þú notið sömu „leið- sagnar“ aftur og aftur. Stjörnuspá 17. júlí 1991 Arnór Guðjohnsen skoraði fjögur mörk í landsleik í knattspyrnu við Tyrki og end- urtók þannig afrek Ríkarðs Jónssonar fjörutíu árum áður. 17. júlí 2003 Samkeppnisstofnun birti skýrslu um meint ólöglegt samráð olíufélaganna. Rúmu ári síðar sektaði samkeppnis- ráð félögin um 2,6 milljarða króna en áfrýjunarnefnd lækkaði sektina í 1,5 milljarða króna. 17. júlí 2004 Þórey Edda Elísdóttir setti Norðurlandamet í stangar- stökki kvenna þegar hún stökk yfir 4,60 metra á móti í Madríd. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Steinþór Mar- inó Gunnarsson, málarameistari og listmálari, verður áttatíu og fimm ára á morgun, 18. júlí. Hann verður að heiman á afmæl- isdaginn. 85 ára Trausti Ólafs- son, fyrrverandi forstjóri, Hlaðbæ 16, Reykjavík, verð- ur sjötíu og fimm ára mánu- daginn 19. júlí. 75 ára „Ég ætla bara að slaka á og hafa litla afmæl- isveislu, fyrir nánustu fjölskyldu og vini mína,“ segir Hjörleifur Pálsson sem er hálffertugur í dag. Hjörleifur kveðst ekki vera mikið afmælisbarn að eðlisfari og segist hafa haldið sjaldan upp á af- mælið á síðustu árum. Hins vegar er afmælið ekki eina tilefnið fyrir veislu að þessu sinni því Hjörleifur lauk nýverið meistaragráðu í fjármálahagfræði frá Háskóla Ís- lands, en þar að auki er hann verkfræðingur að mennt. Þetta er því líka útskriftarveisla. Hjörleifur segir að námið hafi verið mjög áhugavert. Aðspurður hvort það hafi verið mjög krefjandi neitar Hjörleifur því ekki, enda tók hann það meðfram vinnu og þurfti því að skipuleggja sig mjög vel á meðan. Eflaust hefur sumarfríið því verið vel þegið en því lýkur um helgina og eftir það tekur hversdagslífið við á ný. Hjörleifur starfar hjá Arion banka og býr í Garðabæ, ásamt eig- inkonu sinni Toniu Eka Asiwe og Marteini syni þeirra, sem er nýorð- inn eins árs gamall. onundur@mbl.is Hjörleifur Pálsson er 35 ára í dag Fagnar afmæli og útskrift Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.