Morgunblaðið - 17.07.2010, Síða 37

Morgunblaðið - 17.07.2010, Síða 37
og okkur fannst við vera að ganga í gegnum það aftur, það var allt voðalega svart bara. Og við auðvitað hugsuðum við um það hvort við ættum að halda áfram eða ekki. En við ákváðum, bæði hvað varðar búðirnar og skó- línuna, að halda bara okkar striki og gera það sem við trúðum á, og við trúðum því að við værum að gera rétt. Við vorum náttúrlega bú- in að vinna að þessari línu í eitt ár þannig að það hefði verið leiðinlegt að kasta þeirri vinnu bara til hliðar.“ Versnandi aðstæður urðu Hugrúnu og Magna inn- blástur og þau ákváðu að halda ótrauð áfram og aðlaga reksturinn að breyttu um- hverfi. „Við ákváðum bara að gera enn betur, til dæmis hvernig við veljum inn í búð- irnar og fleira. Og ég held að það hafi skilað sér. Það var ótrúlega gaman að koma með skólínuna þarna um haustið og halda sínu striki og geta það. En auðvitað var þetta erfitt púsluspil það árið.“ Skórnir eru þau - Ég spyr Hugrúnu að því hvort þau finni samt ekki fyr- ir kreppunni. Verslar fólk minna núna? „Nei,“ svarar hún hugsi. „Það sem hefur eiginlega gerst er að í dag virðast neyt- endur bara vanda sig við að velja, velja kannski færri flík- ur en velja vandað, vegna þess að það auðvitað nýtist lengur og þegar þú velur fallega vöru þá stenst hún tímans tönn, og þetta er eitthvað sem við höfum haft að leiðarljósi. Öll okkar innkaup eru þannig að þau eru ekki bara fyrir daginn í dag. Og það hefur verið að skila sér.“ Hún segir að breyttur hugsunarháttur neytenda og breytingar á verðlagi hafi átt sinn þátt í því að reksturinn hefur borið sig. „Fjöldaframleiddar vörur hafa líka hækkað í verði, flíkur sem eru í minni gæðum og eru kannski eitthvað sem þú vilt bara vera í þessa vikuna en ekki þá næstu. Og við höfum reynt að halda verðinu niðri og tekið aðeins á okkur gengishækkunina, þannig að vörurnar okkar hafa hækkað minna. Og ég held að þegar fólk er að velja sér flíkur í dag, þá velji það vel og þær endist betur.“ Við snúum talinu aftur að skólínunni og sú spurning vaknar hvar þau fái innblástur að hönnuninni sem verður að teljast einstök. „Þetta kemur eiginlega bara upp úr okkur. Við hugsum svolítið um tímaleysi og finnst það skipta máli, og við leggjum áherslu á það að aldur skiptir ekki máli þegar þú kaupir vöru; þó að þú sért kominn á einhvern ákveð- inn aldur þá velur þú bara það sem þér þykir fallegt. Þannig að við höfum svolítið hugsað um það. Svo erum við hrifin af mismunandi textíl og litum, en ann- ars leitum við ekki í neitt ákveð- ið. Við erum náttúrlega búin að vinna í 10 ár með skó og vitum hvað okkur lang- ar til að sjá. Þeir eru svolítið mik- ið bara við, þetta er eig- inlega bara spegillinn okkar, þetta kemur bara áreynslu- laust.“ Útrás? Línan Kron by Kronkron hefur hlot- ið mjög góðar viðtökur erlendis og skórnir seljast afar vel í Asíu og Evrópu, og eru aðeins farnir að sjást í Banda- ríkjunum. Það er ótvírætt að Kron-merkið á erindi á erlendan markað, en stefna Hugrún og Magni að útrás? „Eftir að allt féll hefur orðið útrás fengið mjög neikvæða merkingu þannig að maður vill eiginlega ekki nota það. En við erum búin að vinna vinnuna okkar mjög vel hvað varðar það að markaðssetja vöruna okkar. Og þetta hefur gengið mjög vel og við ætlum okkur að gera enn betur.“ Hugrún er þó mjög meðvituð um það að það eru góðar viðtökur hér heima fyrir sem hafa skilað þeim velgengni erlendis og kann Kron-aðdáendum bestu þakkir fyrir. „Það hefur gengið rosalega vel hérna heima og við erum ótrúlega þakklát fyrir það og það skiptir okkur miklu máli. Ef ekki væri fyrir þær við- tökur þá værum við ekki að gera skóna í dag.“ Þó að fyrirtækinu hafi sannarlega vaxið fiskur um hrygg er ekki tímabært enn sem komið er að setja á laggirnar skrifstofu er- lendis. Það vantar þó ekki áhugann utan að og Hugrún segir þau fá fyrirspurnir á hverjum degi. Þegar ég tala við hana eru þau á leiðinni í Kronkron og mér er spurn hvernig þau hafi tíma til að sinna þessu öllu. Hugrún hlær við. „Þetta er svolítið mikið. En við erum bara dugleg, við viljum gera hlutina vel og vitum hvað við viljum.“ -Gott gengi hlýtur líka að hjálpa? „Já, við erum ótrúlega þakklát fyrir það og allt svoleiðis gefur manni aukapúst. Maður verður að hafa bensín á bílnum til að fara svona ferð.“ Í tilefni tíu ára afmælisins og til að fagna velgengni skólínunnar, efnir Kronkron í sam- starfi við Reykjavíkurborg, til sumarfestivals í dag kl. 16-20. Hluta af Vitastíg verður lokað og á dagskránni eru tónleikar, ljósmyndasýn- ing, grillveisla og happdrætti. Það er alltaf nóg að gera hjá Hugrúnu og Magna, en auk þess að reka verslanirnar tvær og hanna Kron by Kronkron-skólín- una, hafa þau hannað sokkabuxnalínu sem er væntanleg í hús í ágúst og eru á leið út á sýningar með nýja fatalínu. Skórnir „Vetrarlínan kemur í hús eftir tvær vikur og nú er verið að afhenda hana út um allt erlendis. Hún er öll svona þyngri að sjá, bæði útlitslega og í litum. Hún er svolítið meira í 19. aldar stílnum, hún einhvern veginn æxlaðist þannig. Við erum alltaf með hælana, bæði háa og lága hæla, svo- lítið mikið af lágum í þessari línu. Svo vetrarstígvél og há uppreimuð stígvél.“ Fötin „Núna í ágúst ætlum við að setja sokka- buxnalínuna á markað. Svo þegar við för- um á sýningarnar í Mílanó og París núna í september og október, þá verðum við að kynna sumarlínuna fyrir 2011, fatalínu. Hún er eiginlega unnin undir sama hatti og Kron by Kronkron, bara sem lítil fatalína svona með. Hún kemur á markað næsta sumar og við erum mjög spennt fyrir því; það verður rosa gaman.“ Nýir skór, sokka- buxur og fatalína VÆNTANLEGT Menning 37FÓLK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2010 VIÐTAL Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Fyrirtækið á bak við skóverslunina Kron, fataverslunina Kronkron og skómerkið Kron by Kronkron, fagnar í ár tíu ára afmæli sínu. Það var stofnað árið 2000, hefur staðið af sér lægðir og kreppu í efnahagslífinu og er í stöð- ugum vexti. Velgengni Kron-merkisins ber að langmestu leyti að þakka hugsjónum og eljusemi eig- enda þess, Hugrúnu Dögg Árnadóttur og Magna Þor- steinssonar, sem hófu reksturinn stuttu eftir að þau kynntust. „Þetta eiginlega bara gerðist,“ segir Hugrún, „Ég var nýkomin úr námi erlendis í fatahönnun og nýbúin að kynnast mann- inum mínum og okkur fannst við verða að gera eitthvað saman, og eig- inlega leiddi bara eitt af öðru. Við vorum bara rétt búin að kynnast þegar við opnuðum búðina en það bara gekk allt svona hratt hjá okkur.“ - Var þetta þá ekki lang- þráður draumur hjá ykkur? „Nei, en ég hef náttúr- lega verið mikil skó- manneskja frá upphafi og þeir hafa eiginlega bara átt hug minn allan, þannig að þetta var bara eðlilegt skref.“ Bil milli hönnuða og neytenda Hugrún og Magni opnuðu skóverslunina Kron árið 2000, þegar aðstæður í efnahagslíf- inu voru verslunum af þessu tagi ekki sem hagstæðastar, en þau voru útsjónarsöm og eins og hún orðar það sjálf: „Maður verður að kunna að púsla, og við virðumst kunna það.“ Fjórum árum seinna opnuðu þau síðan fata- verslunina Kronkron. „Kronkron var opnuð 2004. Okkur, sem er- um mikið áhugafólk um hönnun, fannst vanta þessa brú milli hönnuðarins og fólksins á göt- unni. Og okkur langaði að brúa þetta bil og sýna hvað fólk væri að gera. Á þessum tímum var almennt svo lítil vitneskja um unga hönn- uði og þá vinnu sem þeir voru að leggja í þetta; að það væri einhver sem stæði á bak við hverja flík. Og svo fannst okkur vanta bara að fólk væri meðvitað um það ferli sem lægi að baki þeim flíkum sem það gengi í, hvort sem er fjöldaframleiðslu eða hönn- unarvöru.“ - Hvernig veljið þið vörur í búðina? „Við förum á allar þessar tískuvikur, í París og Mílanó til dæmis, og hvar sem er. Og við förum og skoðum og veljum svona brot af því besta, eitthvað sem höfðar til okkar og hefur einhver skilaboð fram að færa.“ - Hvað með íslenska hönnuði? „Við höfum verið með nokkra í gegnum ár- in, svona einhverja sem hafa verið að skila frá sér línum. En það hafa verið svo fáir sem hafa verið að halda úti tveimur línum á ári og hafa verið með reglubundnar vörur og línur. Og skiljanlega, því það er gífurleg vinna á bak við það og kostar peninga og er ekkert á allra færi.“ Skólína í miðju hruni Skómerkið Kron by Kronkron leit svo dagsins ljós haustið 2008, á sama tíma og bankarnir féllu. Hugrún segir að hún og Magni hafi þurft að setjast niður og taka ákvörðun um það hvort þau ættu að pakka í vörn eða kýla á framleiðslu línunnar sem þau höfðu eytt heilu ári í að hanna. „Þegar við vorum að byrja með Kron, þarna 2000-2001, þá eiginlega liggur allt niðri Þú velur bara það sem þér þykir fallegt Morgunblaðið/Ernir Hugrún og Magni Voru nýbúin að kynnast þegar þau opnuðu skóbúðina Kron fyrir tíu árum. Sumar 2010 Mynd úr svokall- aðri „lookbook“ skólínunnar.  Kronkron fagnar tíu ára afmæli sínu  Nýjar skó-, sokkabuxna- og fatalínur væntanlegar www.kron.is www.kronkron.com

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.