Morgunblaðið - 19.07.2010, Page 14

Morgunblaðið - 19.07.2010, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ár er liðiðsíðan Al-þingi sam- þykkti ályktun um að senda skyldi beiðni til Brussel um aðildarvið- ræður við Evrópu- sambandið. Látið var í veðri vaka að þetta væru þó ekki í raun að- ildarviðræður, heldur ætti að sjá „hvað væri í pakkanum“, eins og það var gjarnan orðað. Látið var eins og skilyrði fyrir Evrópusambandsaðild væri eins og sjónvarpsdagskrá fyr- ir fjölnota rásir sem menn þyrftu ekki að horfa á frekar en þeir vildu. Þess vegna væri ekkert á móti því að óska eftir viðræðum um að ganga í Evr- ópusambandið þótt annar stjórnarflokkurinn og allir stjórnarandstöðuflokkarnir væru hugmyndafræðilega á móti því. Búrókratarnir í Brussel hafa ekki ansað þessu pakkatali enda sjá þeir það sem hjal ætlað til að blekkja óvita. Þeir telja sig vera að tala við ríkisstjórn sem ætli að koma landi sínu í ESB og gerir kröfur til að landið fari strax að laga sig að þeim veruleika sem í aðild felist. Það þyrfti ekki að fara í að- lögunarferli ef Alþingi hefði eingöngu ákveðið að fá pakka- gægi í nefnd því enginn vissi hvað fælist í aðild að ESB! Þingmönnum stjórn- arflokkanna hafði verið sagt að þeir mættu í þessu máli greiða atkvæði samkvæmt sannfæringu sinni. En því fór fjarri að það fyrirheit stæðist, sem er þó að auki varið af sjálfri stjórnarskránni. Þing- maður Vinstri grænna, Ás- mundur Einar Daðason, sem jafnframt er formaður Heims- sýnar, lýsti aðförunum í grein í Morgunblaðinu nú um helgina. Honum þótti þessi málatilbúnaður allur merki um ólýðræðisleg vinnubrögð og í „litlum takti við það aukna þing- ræði sem báðir stjórnarflokkarnir hafa talað fyrir“. En Ásmundur Einar Daða- son alþingismaður bendir einnig á að það sem sagt var vera aðildarviðræður reynd- ust í raun aðlögunarviðræður. Það hafi aukið mjög á and- stöðuna við ESB-umsóknina, þegar þetta kom í ljós. Eins hafi það aðdráttarafl sem áhugamen um ESB treystu, á að evran yrði minnkað í réttu hlutfalli við ógöngur og efa- semdir um myntina. Þá sé ekki lengur hægt að mótmæla því að Icesave-málið sé bein- tengt ESB-umsókninni. Af þessum ástæðum m.a. hafi flokksráðsfundur VG lýst því yfir að „forsendur umsókn- arinnar væru brostnar og því væri mikilvægt að taka málið til gagngerrar endurskoð- unar“. Ríkisstjórnin er með öðrum orðum í aðildarvið- ræðum (aðlögunar) við ESB, þrátt fyrir að flokksráðs- fundur annars ríkisstjórn- arflokksins hafi lýst því yfir að forsendur fyrir samþykki þess flokks séu nú brostnar. Utanríkisráðherra Íslands hefur ekki upplýst þjóðina um hvort hann hafi gert Evrópu- sambandinu formlega grein fyrir hinni nýju og alvarlegu stöðu sem upp er komin í um- sóknarmálinu. Hafi hann ekki gert hreint fyrir dyrum rík- isstjórnarinnar að þessu leyti er um að ræða alvarlegt brot ráðherra í starfi hans. Ásmundur Einar Daðason, alþingis- maður VG, segir að forsendur fyrir stuðningi við aðild- arumsókn að ESB séu brostnar } Forsendur brostnar Herjólfur lagðií fyrsta sinn að bryggju í Land- eyjahöfn laust fyr- ir miðnætti sl. föstudag. Þetta var prufusigling, en á morgun verður fyrsta ferðin farin með farþega og á miðvikudag hefjast áætl- unarsiglingar á milli Land- eyjahafnar og Vestmanna- eyja. Þetta er gríðarlegur áfangi í samgöngusögu Vestmanna- eyja og þar með landsins alls. Sumir hafa gengið svo langt að tala um að með þessu sé einangrun eyjanna rofin, þó að gárungarnir muni ef til vill frekar telja að nú loks verði einangrun meg- inlandsins rofin. En hvernig sem á þetta er litið er ljóst að um bylt- ingu er að ræða því að siglingin styttist um rúmar tvær klukkustundir og verður hér eftir aðeins rúmur hálftími. Ferðunum fjölgar úr innan við tveimur á dag í fjórar til fimm. Þessi samgöngubylting er afar ánægjuleg og ekki er síst ánægjulegt að tekist hafi að ljúka henni nokkurn veginn á réttum tíma þrátt fyrir þau áföll sem dunið hafa yfir þjóð- ina, en ljóst er að hvorki efna- hagshrun né eldgos auðveld- uðu framkvæmdir. Ekki er fjarri lagi að einangrun Vestmannaeyja ljúki á miðvikudag} Bylting í samgöngum V ið rekum upp úr klukkan tíu! var svarið sem fékkst á dögunum við spurningu um hvenær sundlaug- ar í Reykjavík væru opnar. Það var ekki opið til klukkan tíu, það var ekki lokað klukkan tíu, nei, það var „rekið upp úr klukkan tíu. Í einni sundferðinni setti undirrituð þetta neikvæða og fautalega svar í samhengi við önnur neikvæð skilaboð sem gjarnan heyrðust í skólasundi hér í den; „krakkar, ekki hanga á línunni!“ Í barnauppeldi er mjög í tísku um þessar mundir að nota aðeins jákvæð skilaboð. Það á að segja börnum hvað þau mega og eiga að gera frekar en að minna þau stöðugt það sem má ekki. Með því er ætlunin að styrkja sjálfs- mynd þeirra en brjóta hana ekki niður með sí- felldum boðum og bönnum. Við síprílandi tæplega tveggja ára snáða er víst betra að útskýra „við sitjum á stól en stöndum á gólfinu“ í stað þess að garga „ekki standa uppi á stólnum“. Reyndar er misjafnt hversu vel þessi já- kvæðni skilar sér en alltént er það lenska að fara svona að. Börnin fá meira út úr því að heyra talað um það sem má en um það sem er bannað. Út frá svari sundlaugarstarfsmannsins sem vildi reka upp úr er hægt að vera sammála þessari jákvæðu línu. Viljum við ekki annars miklu frekar vita hversu lengi er opið í stað þess að heyra hvenær við verðum rekin upp- úr … hvenær okkur er hollast að hypja okkur? Sundlaugarverðirnir í Breiðholtslauginni forðum daga voru eflaust vænsta fólk en því miður þá er það eina sem er minnisstætt frá því í skólasundinu þó hin áð- urnefnda fræga lína sem glumdi svo oft í hátal- arakerfinu: „ekki hanga á línunni!!!“ Ekki er vitað til þess að þessi neikvæðu skilaboð hafi orðið til þess að minnka álag á blessuðum lín- unum sem skilja áttu að leiksvæðið og sund- svæðið. Það sorglega er að verðirnir hefðu ef- laust getað kennt okkur krökkunum sitthvað um sundlaugar og umgengni við þær, en það eina sem fengum frá þeim voru þessi fráhrind- andi boð og bönn um línuna sem ekki mátt snerta. Líklega hefðu verðirnir náð meiri ár- angri með því að koma einfaldlega niður úr turninum og ræða við okkur krakkana. Þá hefði þessi lína verið gleymd innan fárra mín- útna. Enda hafði enginn sérstakan áhuga á að hanga á henni, það voru miklu frekar glymj- andi skilaboðin í sundlaugarvörðunum sem komu þeirri hugmynd að. Jákvæð skilaboð eiga ekki bara við í samskiptum fullorðinna við börn, heldur líka í sam- skiptum fullorðinna á milli. Flest okkar vilja miklu frekar vita hvað við megum og getum heldur en það sem við meg- um ekki og getum ekki. Sundlaugarstarfsmenn mættu gjarnan tileinka sér þennan jákvæða hugsunarhátt og útskýra fyrir fólki hversu lengi er opið – hversu lengi er tekið á móti gestum – í stað þess að tilkynna hvenær rekið er upp úr lauginni. Hvernig svo sem farið er að því að útskýra hvenær opið er þá er það alltént á hreinu að sundlaugargestir eru upp til hópa fólk sem í gegnum árin hefur ekki hætt að hanga á línunni. Er ekki kominn tími á nýjar aðferðir? eyrun@mbl.is Eyrún Magnúsdóttir Pistill Rekið upp úr klukkan tíu STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Fjármagna uppgröft frekar en viðhald FRÉTTASKÝRING Anna Sigríður Einarsdóttir annaei@mbl.is U m hundrað milljónum króna verður varið til fornleifarannsókna á þessu ári, en litlum sem engum fjár- munum til viðhalds á fornleifum. Fornleifasjóður ríkisins fjármangar um fjórðung þessarar rannsókn- arfjárhæðar en aðrir styrkir koma t.a.m. frá erlendum samstarfsaðilum og Alþingi. Dr. Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Fornleifaverndar rík- isins, telur fulla þörf á að auka vægi viðhaldsins. Fornleifar hafi ekki síður aðdráttarafl fyrir ferðafólk en nátt- úruperlur séu þær gerðar aðgengi- legar og áhugaverðar. „Samkvæmt lögum á ríkið að halda friðlýstum fornleifum við, en það hefur aldrei verið veitt neitt ákveðið fjármagni í slíkar aðgerðir,“ segir Kristín. Magn- ús Þorkelsson, skólameistari Flens- borgar sem sat í stjórn Fornleifasjóðs þar til í vor, er sammála Kristínu um að þessi þáttur hafi verið vanræktur. Víða um land er að finna forn- leifar sem þarfnast lagfæringa við. Sumstaðar þarf að bæta aðgengi, en á öðrum stöðum liggja fornleifar jafn- vel undir skemmdum. Rústirnar af Stöng í Þjórsárdal þarfnast t.a.m. lagfæringar við og þá hafa fréttir af niðurbroti fornleifa við Kolkuós í Skagafirði vakið athygli. „Í sumum tilfellum veitir Siglingastofnun fjár- muni til að afstýra eyðileggingu með því að styrkja ströndina,“ segir Krist- ín. Umhverfisstofnun hafi sömuleiðis veitt fjármuni til lagfæringa á Írska brunni í þjóðgarði Snæfellsjökuls. Fornleifavernd, sem ætti að hafa með þessi mál að gera, hafi hins vegar til þess enga fjármuni. Full þörf sé því á fjárveitingu og stefnumörkun sem m.a. taki á fjölda fornleifa sem við- haldið væri. Ekki eigi að vera tilvilj- unum háð hvaða fornleifar njóti við- halds og hverjar falli. Kristín telur þetta þó ekki ein- göngu vera mál mennta- og menn- ingamálaráðuneytisins, sem Forn- leifavernd heyrir undir. „Fjárhæðir eru reglulega veittar úr ráðuneyti ferðamála til náttúruperla til þess að bæta aðgengi þar. Íslendingar gleyma því hins vegar æði oft að það er líka þörf á fornleifavernd.“ Að hennar mati væri æskilegt að sjóður til slíkra verka væri til úthlutunar hjá Ferðamálastofu sem árlega styrkir verkefni sem tengd eru vernd náttúr- unnar. Sveinn Rúnar Traustason, um- hverfisstjóri Ferðamálastofu, segist gjarnan vilja sjá hærri upphæðir fara í fornleifavernd, en Ferðamálastofa hefur helst beint aðgerðum sínum við fornminjar í merkingar, salerni og stígagerð. „Við höfum hins vegar úr mjög litlu að spila,“ segir hann. 48 milljónir séu veittar árlega og búið sé að veita 90 styrki í ár, sem svari til um 500.000 kr. í meðalstyrk. „Þessar upphæðir nýtast þó vel því þær fara aðallega í efniskostnað á meðan sjálf- boðaliðar og félagasamtök sjá að mestu um vinnuna.“ Færri framkvæmdir nú Veitt hefur verið leyfi til forn- leifarannsókna á 28 stöðum á landinu það sem af er þessu ári og eru það umtalsvert færri leyfi en veitt voru árin á undan, er ríflega 50 leyfi voru veitt. „Rannsóknarbeiðnum kann vissulega enn að fjölga, en þær verða aldrei 50,“ segir Kristín Huld. Sam- dráttinn nú má að stórum hlut reka til þess að dregið hefur úr fram- kvæmdum. „Í ár er mest um rann- sóknarverkefni fornleifafræðinga, en mjög lítið er um leyfi til uppgraftar í tengslum við framkvæmdir sem framkvæmdaaðilar þurfa sjálfir að borga fyrir.“ Morgunblaðið/ÞÖK Vandaverk Viðhald fornminja er ekki síður mikilvægt en uppgröfturinn. „Veikleikinn í fornleifakerfinu er sá að það er auðvelt að fá pen- inga til að byrja rannsókn, en þegar rannsókn fer að teygjast á langinn er lítill skilningur á því. Það er því til mikið af hálf- kláruðum rannsóknum,“ segir Magnús sem sat í stjórn Forn- leifasjóðs þar til í vor. Fornleifa- sjóður hafi styrkt fjölda verk- efna á lokastigum, en auðvelt hefði verið að styrkja mun fleiri. Umsóknir hafi enda jafnan hljóðað upp á þrisvar sinnum hærri upphæð en sjóðurinn hafði úr að spila. Erfitt að ljúka rannsóknum FORNLEIFASJÓÐUR Morgunblaðið/Golli Fornleifar Uppgröftur getur verið tímafrek þolinmæðisvinna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.