Morgunblaðið - 19.07.2010, Page 21

Morgunblaðið - 19.07.2010, Page 21
Minningar 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2010 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Garðar Túnþökusala Oddsteins  Lóðaþökur  Fótboltaþökur  Golfvallargras  Holtagróður Steini, s. 663 6666 Kolla, s. 663 7666 visa/euro Þvottasnúrur Alvöru íslenskar þvottasnúrur með öllu, sem þola íslenskt veður. VIG Vélsmiðja, www.vig.is, vig@vig.is. S. 486 1810. Gisting Stúdíóíbúðir og hús til leigu á Akureyri Við erum staðsett miðsvæðis í bænum. Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt Internetsamband. Frekari upplýsingar á www.saeluhus.is eða í síma 618 2800. AKUREYRI Höfum til leigu 50, 85 og 140 m² sumarhús 5 km frá Akureyri, öll með heitum potti og flottu útsýni yfir Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir á Akureyri. www.orlofshus.is, Leó, s: 897- 5300. Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Til sölu sumarhús 85 fm, milliloft 55fm. Ás. verð 12,5m. Tilbúið til flutnings (seljandi tekur þátt í kostn.) . Upplýsingar í síma 868 3002. haffihar@simnet.is og hafgolan@gmail.com til að fá nánari upplýsingar og myndir. Til sölu Ódýr blekhylki og tónerar í HP, Dell, Brother, Canon og Epson. Send samdægurs beint heim að dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150. Sjá nánar á blekhylki.is www.verslun.is Pöntunarsími: 5351300 VERSLUNARTÆKNI Sorptunnur Íslenskur útifáni Stór 108x150 cm. 3.982 kr. Krambúðin, Skólavörðustíg 42, Strax Laugarvatni, Strax Mývatni, Strax Seyðisfirði, Strax Flúðum, Úrval Selfossi, Úrval Egilsstöðum, Hyrnan Borgarnesi, Strax Búðardal. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Upp. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Þjónusta Ýmislegt ...þegar þú vilt þægindi Kr. 6.500,- Dömu sandalar með frönskum rennilás. Litir: Ljósblátt, dökkblátt. Stærðir 36-42. Bonito ehf. Praxis Faxafeni 10, 108 Reykjavík Sími: 568 2878 Opnunartimi: mánud- föstudag kl. 11.00 - 17.00 www.praxis.is ALVEG SPLÚNKUNÝTT Teg. FABRICIA - glæsilegur push up í BCD skálum á kr. 7.680,- teg. FABRICIA - fyrir stærri barminn í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 7.680, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, Lokað á laugardögum. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is - vertu vinur Vandaðir götuskór úr leðri. Teg: 107 Litir: svart og rautt Stærðir: 37 - 42. Verð: 14.685.- Teg: 2721 Litir: svart og brúnt Stærðir: 37 - 42. Verð: 14.685.- Teg: 18K. Verð: 13.950.- Teg: 5011 Stærðir: 37 - 42 Verð: 13.950.- Sími: 551 2070, opið: mán.- fös. 10 - 18. Lokað á laugardögum. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Bátar Til sölu nýr slöngubátur 3,60 Verð aðeins 180.000. Upplýsingar í síma 866-6610. H-Berg ehf. Suðurholt 3 220 Hafnarfirði Bílar Bón & þvottur Vatnagörðum 16, sími 445-9090 Þvoum, bónum, djúphreinsum, þrífum að innan alla bíla, eins sendibíla, húsbíla og hjólhýsi, eins vélmössum við matt lakk svo það verði sem nýtt. Einnig bjóðum við hrað-gæðaþvott. Öll vinna er handunnin. Opnum kl. 9.00 virka daga og 10.00 laugardaga. Bonogtvottur.is Bílaþjónusta Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, 4WD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason BMW 116i. Bifhjólakennsla. 8921451/5574975. Visa/Euro. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '08. 8924449/5572940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Fellihýsi Fellihýsi til sölu Palomino 4103 10f m/fortjaldi, sólarsellu og fl. Vel með farið, tilbúið í ferðalagið, ekkert áhv. Verð 1900 þús. stgr. Uppl. í s. 698 6309. Húsviðhald Þak og utanhússklæðningar og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. lét hann engan bilbug á sér finna og sneri sér að nýjum og verðugum verkefnum. Á yngri árum stundaði Sigurður handknattleik með Vík- ingi. Sú íþrótt átti vel við hann. Hraði, átök, útsjónarsemi. Þótti Sigurður kappsfullur en drengileg- ur íþróttamaður sem hafði liðið sitt í fyrirrúmi. Hann valdist því til for- ystu þegar handknattleiksskórnir fóru á hilluna. Um skeið var hann formaður handknattleiksdeildar Víkings og vann af alefli að gera veg félagsins sem mestan. Árið 1974 var Sigurður kjörinn formaður Handknattleikssambands Íslands. Það hefur aldrei verið auð- velt hlutverk að gegna formennsku í HSÍ. Þar hafa alla tíð verið gerðar miklar kröfur – þjóðin vill árangur. Horft var til mannsins í brúnni. Á honum, öðrum fremur, hvíldi ábyrgðin að staðið væri undir kröf- unum. Þegar Sigurður tók við for- mennskunni urðu þáttaskil. Menn sáu að íslenskt íþróttafólk ætti enga möguleika á alþjóðlegum vettvangi nema gjörbreyta um stefnu í afreksíþróttum. Eitt fyrsta verk stjórnar Sigurðar var að takast á við það. Nýjar leiðir farnar í fjár- öflun og allt lagt undir. Aldrei var spurt um tíma eða fyrirhöfn. Árang- urinn var það sem skipti máli. Í landsliðsmálum voru einnig farnar nýjar leiðir. Ráðist var í það stór- virki að fá erlendan landsliðsþjálf- ara. Á þeim tíma voru bestu þjálf- arar heims í Austur-Evrópu. Meðal þeirra var Pólverjinn Janus Cerw- insky. Og Sigurður Jónsson lét það ekki aftra að fara þurfti yfir heilt járntjald. Með Cerwinsky komu ný- ir straumar og ný hugsun inn í ís- lenskan handknattleik. Árangurinn blasti við en á ögurstundu gripu hins vegar pólsk yfirvöld í taumana og afturkölluðu leyfi hans. Þótt ár- angurinn sæist ekki strax er ekkert efamál að með framtaki Sigurðar og hans manna var sáð því fræi sem sá gróður hefur vaxið af að íslenskur handknattleikur er nú í allra fremstu röð. Ekkert er íþrótta- hreyfingunni dýrmætara en dug- miklir forystumenn. Þegar sigrum er fagnað gleymast þessir menn stundum. Samt eru þeir kyndilber- ar árangursins. Sigurður Jónsson var einn þeirra. Maður sem lagði mikið fram og náði árangri en krafðist einskis sjálfur. Þegar Sigurður Jónsson er kvaddur þakkar handknattleiks- hreyfingin á Íslandi öll hans góðu störf. Þau spor sem hann markaði af djörfung og stórhug hafa reynst íþróttinni heilladrjúg. Og að leið- arlokum eru fjölskyldu Sigurðar og öllum vandamönnum sendar inni- legar samúðarkveðjur. Hjá þeim og öðru samferðafólki mun minningin um góðan dreng og mætan foringja lifa. Guð blessi þá minningu. Handknattleikssamband Íslands, Knútur G. Hauksson formaður. Formannafélag HSÍ, Júlíus Hafstein. Sigurður, vinur minn og fyrrum félagi, er allur. Fyrri hluta árs 1961, er ég starfaði á stórri verkfræði- stofu í München, fékk ég boð um starf sem verklegur framkvæmda- stjóri Byggingarfélagsins Brúar hf. Ég þekkti lítið til fyrirtækisins eða eigenda þess, en kannaðist við nafn fjármálalegs framkvæmdastjóra. Í þeim stóli sat Sigurður Jónsson, en við höfðum á skólaárunum marga hildi háð í handbolta í Hálogalandi, hvor með sínu félagsliði. Var það ekki síst vegna þessarar viðkynn- ingar við Sigurð að ég þáði boðið og flutti heim til Íslands ásamt fjöl- skyldu minni. Þau 4-5 ár sem við Sigurður börðumst saman vonlítilli baráttu við að halda deyjandi fyr- irtæki á floti, tókst með okkur ein- læg og traust vinátta, sem aldrei bar skugga á. Síðar átti ég sem framkvæmdastjóri Framkvæmda- nefndar byggingaráætlunar þátt í að byggingarfélagið Breiðholt hf var stofnað, en Breiðholt hf var að- alverktaki við sex af sjö bygging- aráföngum framkvæmdanefndar- innar. Stofnendur voru Guðmundur Einarsson verkfræðingur og þeir félagarnir Páll Friðriksson húsa- smíðameistari og Björn Emilsson byggingafræðingur. Sigurður var fljótlega ráðinn framkvæmdastjóri Breiðholts hf og varð meðeigandi. Gott samstarf var alltaf með okk- ur Sigurði þótt við værum sinn hvorum megin borðsins. Í samvinnu okkar hjá Brú hf vakti það strax at- hygli mína og mikla aðdáun hve reikningsglöggur hann var sem og stálminni hans á allt verð og verð- breytingar. Hann var oft snöggur að hugsa og framkvæma. Mér er minnisstæð fyrirvaralaus ferð okkar með eiginkonunum til Glasgow til að horfa á Þórólf Beck leika knatt- spyrnu. Sigurður var mjög vel liðinn og ekki síst hjá samkeppnisaðilum í verktakastéttinni og naut hann óskoraðs trausts þeirra. Kom það sér oft vel og létti okkur starfið. Við Sigurður störfuðum einnig saman í nokkur ár í stjórn Handknattleiks- sambands Íslands, þar sem hann var formaður. Hann var félagslynd- ur og átti gott með að fá menn til að vinna saman og skipta verkefnum á milli manna. Hann var ekki fyrir það að trana sér fram. Í stjórnartíð hans voru öll samskipti HSÍ við IHF (nú EHF) og nágrannaþjóð- irnar endurskipulögð og samskipti bætt og aukin. Sigurður átti góðan lífsförunaut þar sem Rakel var og börn þeirra og barnabörn voru jafn- an fremst í forgangsröðinni. Ég votta Rakel og börnum þeirra hjóna innilega samúð mína. Gunnar Torfason. HINSTA KVEÐJA Í dag er borinn til grafar einn okkar tryggu og öflugu félaga, jafnaðarmaðurinn Sigurður Jónsson. Við vorum saman fé- lagar í Alþýðuflokknum og þeg- ar Samfylkingin var stofnuð gekk Sigurður til liðs við hana og var félagi þar framundir það síðasta. Ég vill þakka honum þá samfylgd, þakka honum fyrir hönd Samfylkingarinnar ára- tuga framlag hans til baráttu íslenskra jafnaðarmanna fyrir réttlátara og betra samfélagi. Eftirlifandi eiginkonu og af- komendum sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar.  Fleiri minningargreinar um Sig- urð Svein Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.